Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 5

Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 5
22. desember 1987 - DAGUR - 5 Kristinn G. Jóhannsson skrifar Þetta eru erfiðir dagar fyrir okk- ur karlmenn, síðustu dagarnir fyrir jól. Það er þetta óskaplega friðleysi í kringum mann, kon- urnar að óskapast í svokölluð- um jólaundirbúningi, sem er eins og kunnugt er fólginn í því að setja fyrst allt á annan end- ann á heimilinu og reyna svo að koma öllu í sama horfið aftur á tilsettum tíma og með ærnu ónæði fyrir okkur sem viljum nota dagana um jólin og þar í kring til andlegrar iðju, inn- hverfrar íhugunar, rólegheita og afslöppunar svo sem vera ber. Til þess nú að reyna að halda heimilisfriðinn verðum við samt helst að þykjast líka og þá er kúnstin sú að velja verkefni við hæfi, þannig að það virðist tals- vertyfirgripsmikiðen án þess þó að það reyni of mikið á andlegt eða líkamlegt atgervi manna. En það verður sífellt erfiðara. Fyrir mörgum árum á tím- um olíumálningarinnar sælu og emeleringarinnar datt eng- um sæmilegum manni annað í hug en að fá fagmenn ef mála þurfti innanhúss. Síðan fóru menn illu heilli að framleiða alls konar vatnsblandaðar málning- arvörur, sem fólki var síðan tal- in trú um að það gæti sjálft og hjálparlaust komið á veggina hjá sér. Það eru auðvitað helber ósannindi. En þetta gripu eig- inkonur fegins hendi og nú þótti enginn eiginmaður með mönn- um nema hann léti tylla sér upp á stól fyrir jólin til þess nú að mála eldhúsið eða stofuna eða eitthvað annað. Þessi vatns- blendna málning er einhver hrapallegasta uppfinning síðari ára ekki síst í höndum þeirra sem ekki hafa löggildingu fyrir því að þeir megi yfirleitt mála veggi. Svona málning hefur nefnilega þá náttúru fram yfir ýmislegt annað að hún slettist alveg svakalega. Auk þess hafa jólaeiginmenn í geðshræringu verulega tilhneigingu til þess aö mála út á loftið sem ekki átti að mála, niður á miðja gólflista sem þó áttu að halda viðarlitn- um, sletta á harðviðinn í eld- húsinnréttingunni að maður nú ekki tali um parketið, gólfteppið og leðursófann. Sumir reyna í örvæntingu sinni að nota svo- kallað málningarlímband á samskeyti eða við loft. Svoleið- is límbönd festast annað hvort varanlega eða koma með fín- pússninguna með sér þegar þeim er kippt af. Jólamálning af þessu tagi hefur eyðilagt margar annars ágætar íbúðir, jólahátíðir, hjónabönd og sambúðir og ber að varast. Mér hefur reynst best að bjóðast til að gera hreina neðri skápana í eldhúsinu. Það er m.a., vegna þess að í eldhús- innréttingum að neðanverðu eru oft afar ólánlegir hornskáþ- ar, voða langir í hinn endánn. í þessum skápum eru gjarnan geymdir pottar og pjátur ýmiss konar. En einmitt í svona skáp- um getur maður hæglega átt drjúglangar hljóðar stundir en skarkað þó í pottum og pönnum með hæfilega löngum hléum á milli til að búa til sennilegan jólaundirbúningshávaða. Inní svona skáp hefi ég einatt átt góðar stundir og undur frið- sælar og komist í sannkallað jólaskap um leið og ég hefi sýnst gera skyldu mína í tilefni jólanna. Ég hefi að hinu leytinu reynt að forðast rúllur og pensla með málningu í og hef býsna hald- góð rök á takteinum þess efnis að rétt sé að geyma allan slíkan glannaskap til vors þegar séð verður hvernig veggir koma undan vetri og birtuskilyrði séu auk þess afar slæm um svart- asta skammdegið til þess að ástunda svo erfiðar iðnir. Ég get aftur á móti með góðri samvisku mælt með viðgerðum á Ijósasamstæðum eða festum ef menn vilja sýna af sér dugn- að og brennandi innlifun. Það er nefnilega eitt sérkenni kvenna að þær vita ekkert um rafmagn og Ijós og svoleiðis. í gamal- dags jólaljósafestum var nóg að skrúfa lausa eina peru til þess að slokknaði á öllum hinum. Slíkt er upplagt að gera þegar festin er tekin til handargagns og sitja síðan í þungum þönk- um og önnum næstu klukku- stundir að finna bilunina og gera við. Ef maður hefur hægt sæti við þennan starfa er hann afar uppbyggilegur og jólalegur. Ég tala nú ekki um þá hrifningu og aðdáun sem uppi er höfð þegar maður sigri hrósandi stendur allt í einu með fagurlýs- andi festina í höndunum að við- gerð lokinni. Ef maður á fleiri en eina svona festi er ekki ósann- gjarnt að dagur fari í að koma á þær Ijósi. Ég kann að sönnu fleiri holl- ráð fyrir húslega karlmenn að styðjast við í jólaundirbúningn- um en hætti hér að sinni enda stutt orðið til jóla og ekki tilefni til mikilla tilþrifa í húsverkum úr þessu. Gleðileg jól. Kr.G.Jóh. Litli jólagesturinn Úti lék vindurinn sér að snjó- kornunum og þyrlaði þeim upp með gluggarúðunum, svo ekki sáust Ijósin á bæjunum handan við ána, en inni í húsinu var hlýtt og bjart. Það var að- fangadagskvöld. Fólkið var allt sest inn í stofu, það var búið að borða jólamatinn og allir voru önnum kafnir við að skoða jólagjafirnar. En hvað var nú þetta? Það var eins og barið í gluggarúðuna og aftur kvað við sama hljóðið. Strákarnir þustu út, en þá fundu þeir lítinn snjótittling sem kúrði í snjónum. Þeir kontu inn með fuglinn og lögðu hann í svefn- - sönn frásögn sófa. Hann var dálitla stund að átta sig en það var ekki að sjá að hann væri hræddur eða undrandi því brátt fór hann að fljúga um stofuna og setjast hér og þar á stólbök og tylla sér á mynda- ramma og var svo gæfur að hann stóð í lófa manns auk heldur þáði hann brauðmola af undirskál. Athygli fólksins beindist að jólagestinum og það leit út fyrir að hann kynni ljómandi vel við sig. Kvöldið leið og fólkið fór að búa sig í háttinn. Það var búið um litla jólagestinn í litlum pappakassa og loftgöt voru skor- in á lokið. Að því búnu var hann lagður í hvíluna. Um morguninn þegar fólkið fór á fætur var farið að athuga hvernig litla jólagestinum liði. En þá var hann sofandi. Hann var sofnaður svefninum langa en andinn var floginn mót sumri og sól, Þar söngurinn hljómaði gleðileg jól. Tryggvi Jónatansson. Piltur og stúlka Leikstjóri Borgai eJarðarsson. Leikmynd Örn Ingi Gíslason. Lýsing Ingvar Björnsson. Tónlist Jón Hlöðver Áskelsson. Frumsýning 2. dag jóla kl. 17.00. 2. sýning sunnudag 27. des kl. 20.30. 3. sýning þriðjud. 29. des. kl. 20.30. 4. sýning miðvikud. 30. des. kl. 20.30. 5. sýning fimmtud. 7. jan. kl. 20.30. 6. sýning föstudag 8. jan. kl. 20.30. 7. sýning laugardag 9. jan. kl. 18.00 8. sýning sunnudag 10. jan. kl. 15.00. Athugið breyttan sýningartíma. Forsala aðgöngumiða hafin. Gjafakortið gleður Tilvalin jólagjöf I S Æ MiÐASALA Æjf Æmm sími mmm 96-24073 lEIKFéLAG AKURGYRAR Greiðsla í mars Athugið góðu kreditkortaþjónustuna í ESSO-nestunum. Ef þú kaupir jólagjöfina hjá okkur greiðir þú úttektarnótuna ekki fyrr en í mars. I -nestin Leiruvegi, Veganesti/ Tryggvabraut. AKUREYRARBÆR Forstöðumenrí dagvista Félagsmálastofnun Akureyrar auglýsir eftir starfsfólki til aö gegna forstööu dagvista. Þar sem fóstrumenntaðir starfsmenn fást ekki til starfans, er leitaö eftir fólki meö uppeldisfræðilega mennt- un og reynslu. Leitað veröur undanþágu mennta- málaráðuneytis til aö ráöa starfsmann án fóstru- menntunar, ef viöunandi umsóknir berast. Upplýsingar veita dagvistafulltrúi Félagsmála- stofnunar í síma 24600 og félagsmálastjóri í síma 25880. Félagsmálastjóri. Hýlegjólagjöf dúnstakkar .. Litir: \ Dökkblátt Ljósblátt Rautt Grátt jm HERRADEILD ts (JjL Gránufélagsgötu 4 Akureyri • Sími 23599

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.