Dagur - 22.12.1987, Blaðsíða 8
8 - DAGUR - 22. desember 1987
22. desember 1987 - DAGUR - 9
Safnahúsið Hvoll á Dalvík var
opnað þann 12. desember síð-
astliðinn. Þetta gamla hús hef-
ur nú fengið það hlutverk að
hýsa sögulega muni sem varða
sögu Dalvíkur og byggðarlags-
ins alls. Munir í húsinu skipta
þúsundum og er þó mikið af
munum enn í geymslu og bíða
þess að safnahúsið verði
stækkað en í framtíðinni mun
það verða gert.
Safnahúsið Hvoll er tekið í
notkun þegar liðin eru 100 ár frá
búsetu á Böggvisstaðasandi. Til-
drög að safnahúsinu eru þau að
árið 1983 skipuðu bæjaryfirvöld
fulltrúum sem sátu þá í stjórn
Héraðsskjalasafns Svarfdæla að
athuga um náttúrugripi unna af
Steingrími Þorsteinssyni með það
fyrir augum að stofna náttúru-
gripasafn. Nefndinni var einnig
falið að kannað yrði mögulegt
húsnæði fyrir safnið en ekkert
húsnæði fannst að sinni. í janúar
1985 skipaði Dalvíkurbær byggða-
safnsnefnd og í henni sitja Krist-
ján Ólafsson formaður, Júlíus
Kristjánsson og Gylfi Björnsson.
Stuttu seinna kom upp sú staða
að Hvoll er til sölu og þá keypti
bærinn húsið með það fyrir aug-
um að setja upp safnahús. Hvoll
var afhentur Dalvíkurbæ 1. júlí
1985 og var þá strax hafist handa
við að innrétta húsið sem safna-
hús.
Húsið var nánast gert upp að
nýju. Skipt var um miðstöðvar-
og rafmagnslagnir í húsinu,
málað, parket- og teppalagt
o.s.frv. í dag hafa tvær hæðir í
húsinu verið teknar í notkun en
enn er óinnréttuð rishæð og er
ætlunin að þar verði baðstofa í
framtíðinni.
Strax þegar ákveðið var að
gera Hvol að safnahúsi fóru hús-
inu að berast ýmsar gjafir. Menn-
ingarsjóður Svarfdæla gaf 350
þúsund krónur til stoínunar nátt-
úrugripasafns. Systkini Jóhanns
„Svarfdælings" Péturssonar
færðu safnahúsinu 100 þúsund
krónur að gjöf og á vígsludag
hússins færðu Svarfdælingasam-
tökin í Reykjavík húsinu 100
þúsund krónur.
Endurbætur í
sjálfboðavinnu
Er Kristján Ólafsson. formaður
byggðasafnsnefndar sýndi blaða-
manni safnahúsið á dögunum
sagði hann að öll vinna við
endurbætur hafi verið unnin í
sjálfboðavinnu. Umsjón meö raf-
lögnum hafði Porsteinn Skapta-
son, Valur Harðarson sá unt mið-
stöðvarlögn en yfirsmiður var
Björn Þorleifsson. Yfirumsjón
Þúsundir safngrijM
undir sama þaki
iar plöntum sem hún fór Jóhann til D;
af ýmiss konar plöntum sem hún
hefur safnað í gegnum árin.
Aðalbjörg sá einnig sjálf um upp-
setningu og frágang safnsins.
Steinasafnið er frá burtflutt-
um Dalvíkingum, þeim Frímanni
Sigurðssyni og Árnýju Þorleifs-
dóttur og sömu sögu er að segja
um eggjasafnið sem kemur frá
Össuri Kristinssyni.
Þessu til viðbótar er í safnahús-
inu um 1200 muna safn sem kalla
má vísi að byggðasafni en aðeins
um 10 munir af þessum 1200
koma ekki úr byggðarlaginu.
Þessum munum hafa Kristján
Ólafsson og Valgerður Guð-
Skór af Jóhanm
/w. £ <</
Svarfdælingi“. Númer þeirra er 84.
fór Jóhann til Danmerkur þar
sem hann hafði starfa af að sýna
sig í fjölleikahúsum. Hann ferð-
aðist víða og kom m.a. fram á
heimssýningunni í París árið
1937. Þegar heimsstyrjöldin síð-
ari skall á lokaðist hann inni í
Kaupmannahöfn en kom síðan
heim árið 1945. Aftur hvarf hann
þó utan en í þetta sinn til Banda-
ríkjanna. Þangað fór hann árið
1958 og var þar óslitið til ársins
1982 er hann kom til íslands á ný.
Heimkominn til Dalvíkur bjó
Jóhann á Dalbæ, dvalarheimili
aldraðra en hann andaðist þann
26. nóvember árið 1984.
Úr herbergi með munum Jóhanns „Svarfdælings“.
með verkinu í heild hafði
byggðasafnsnefnd.
„Byggðasafnsnefnd vill þakka
Jóni E. Stefánssyni, fyrrum eig-
anda hússins, fyrir hans framlag
til að þetta safn gæti orðið að
veruleika því að þegar hann seldi
húsið þá var verð þess langt undir
raunvirði. Þá viljum við einnig
þakka hinum fjölmörgu sem
styrkt hafa þessa uppsetningu,
ýmist með fjárframlögum eða
vinnu,“ segir Kristján.
„Það er gott að horfa til safna-
mála hér á Dalvík í framtíðinni
því við bindunt miklar vonir við
að þetta hús verði stækkað og hér
megi koma inn þeim munum sem
við eigum nú þegar. Þetta hús er
nýtt eins og frekast er kostur í
dag en þó kemst ekki nema hluti
af þeim munum sem til eru í
húsið.“
Fimm söfn undir einu þaki
í Safnahúsinu Hvoli eru fimm
söfn og auk þess eitt herbergi
sem helgað er minningu Jóhanns
„Svarfdælings“ Péturssonar.
Náttúrugripasafnið er unnið af
Steingrími Þorsteinssyni og
samanstendur af um 50 munum,
aðallega fuglum sem Steingrímur
hefur sjálfur stoppað upp.
Steingrímur sá einnig um upp-
setningu safnsins í safnahúsinu.
Plöntusafn Aðalbjargar
Jóhannsdóttur telur 216 tegundir
Gömul verkfæri í munasafninu.
í herbergi því er helgað er
minningu Jóhanns „Svarfdæl-
ings“ er að finna muni svo sem
sýningarföt hans, skó, hringa,
hækjur, harmoniku og margt
fleira. Flestir eru þessir munir
stærri en gerist og gengur t.d. ná
hækjurnar í höfuðhæð meðal-
manns. Reiðhjól Jóhanns er líka
þarna að finna en Kristján segir
að hjólið hafi fundist í kjallara
Austurbæjarskólans í Reykjavík.
Þetta hjól er eins í útliti og önnur
hjól nema því aðeins að það er
mun stærra. Sennilega eru ekki
margir hérlendis sem gætu hjólað
á farskjótanum. Margir af munum
í herbergi Jóhanns fengust frá
Bandaríkjunum þar sem hann
bjó lengstum ævi sinnar. Aðrir
munir voru í eigu ættingja
Jóhanns.
Sjón sögu ríkari
Mjög hefur verið vandað til upp-
sctningar safnanna í Safnahúsinu
Hvoli. Án efa eiga margir eftir að
rifja upp liðinn tíma þegar munir
í þessu myndarlega safnahúsi eru
skoðaðir. Þarna eru til sýnis allt
frá bátavélum ofan í saumnálar,
allt vandlega merkt og frágengið.
Þá er vert að geta fjölda ljós-
mynda sem til sýnis eru í húsinu
en þær eru úr ljósmyndasafni
Jónasar Hallgrímssonar.
Nú þegar jólahátíðin fer í hönd
ætti að vera gott tækifæri til að
líta inn í Safnahúsið Hvol á Dal-
vík og njóta þess að skoða þá
muni sem þar eru. JÓH
Gömul sýningarvél úr Dalvíkurbíói.
Byggðasafnsnefnd á vígsludaginn. Frá vinstri: Júlíus Kristjánsson, Gylfi Björnsson og Kristján Ólafsson.
mundsdóttir kona hans safnað á
undanförnum árum og á vígslu-
dag safnahússins færðu þau Dal-
víkurbæ þetta safn að gjöf.
Dalvíkurbær á nú bæði húsið
og alla þá muni sem > því eru.
Söfnin eru öll gjafir til bæjarins í
tilefni af uppsetningu safnahúss á
Dalvík og ber það vott um hlý-
hug safnaranna til bæjarins og
áhuga þeirra fyrir stofnun safna-
hússins.
Munir Jóhanns „risa“
Þegar farið er í gegnum söfnin í
safnahúsinu vekur herbergið sem
tileinkað er Jóhanni „Svarfdæl-
ingi“ mikla athygli. Jóhann Pét-
ursson var fæddur 9. febrúar
1913, þriðji í aldursröð 9 syst-
kina. Við fæðingu vóg hann 18
merkur. Jóhann „Svarfdælingur"
var kunnur fyrir hæð sína. Hann
var hæsti íslendingur sem sögur
fara af og um tíma var hann tal-
inn vera hæsti inaður í heinti. Þá
mældist hann 2,52 m á hæð og
vóg 163 kíló. Þar sem Jóhanni
gekk erfiðlega að finna atvinnu
við sitt hæfi hér heima varð hann
að leita fyrir sér á erlendri grund.
Árið 1935, þá 22 ára gamall,
Myndir: JÓH og EHB
Séð yfir hluta muna í byggðasafninu.
Farþegar stíga frá borði á Akureyrarflugvclli eftir áætlunarflug frá Reykjavík með Flugfélagi Norðurlands.
Ferðir um jól
og áramot
Eflaust munu margir bregða
undir sig betri fætinum um
þessi jól sem önnur. Miklar
annir eru hjá flugfélögum og
sérleyfishöfum í kringum há-
tíðardagana og mikilvægt að
fólk hafí kynnt sér hvernig
ferðum verður hagað um há-
tíöarnar.
Flestir ferðast innanlands með
flugi og þá sennilega einna flestir
með Flugleiðum. Flugleiðir
fljúga á þrjá staði á Norðurlandi,
þ.e. Akureyri, Sauðárkrók og
Húsavík.
Á Þorláksmessu munu verða
flognar 9 ferðir milli Akureyrar
og Reykjavíkur. Aðeins einn
dagur á árinu hefur verið jafn
annasamur á þessari flugleið.
Síðasta ferð á þessari flugleið
verður kl. 13 á aðfangadag og
síðasta flug frá Akureyri er kl.
14.20 sama dag. Á annan jóladag
verður fyrsta mæting í Reykjavík
kl. 12.35 og verða flognar 4 ferðir
þann daginn. Dagana milli jóla
og nýárs verður flogið samkvæmt
venjulegri áætlun. Á gamlársdag
verður flogið eins og á aðfanga-
dag en fyrsta flug eftir áramót
verður 2. janúar.
Á Þorláksmessu verður farin
ein ferð milli Sauðárkróks og
Reykjavíkur en síðasta vél fyrir
jól fer kl. 9.00 á aðfangadag.
Fyrsta flug eftir jól verður sunnu-
daginn 27. des. en þá verður lagt
af stað frá Reykjavík kl. 9.15.
Venjuleg áætlun verðuf í gildi
milli jóla og nýárs en síðasta ilug
fyrir áramótaknallið verður á
gamlársdag kl. 11. Fyrsta flug á
nýju ári verður 3. janúar kl. 8.15
úr Reykjavík.
Milli Húsavíkur og Reykjavík-
ur verða flognar tvær ferðir á
Þorláksmessu, mætingar kl. 8.30
og 17.15 í Reykjavík. Á aðfanga-
dag verður flug frá Reykjavík kl.
11.30. Fyrsta flug eftir jól verður
sunnudaginn 27. desember en þá
verða flognar tvær ferðir. Milli
jóla og nýárs verður flug sam-
kvæmt áætlun á flugleiðinni en á
gamlársdag verður síðasta flug
frá Reykjavík til Húsavíkur kl.
11. Byrjað verður aftur að fljúga
eftir áramót þann 2. janúar.
Flugleiðir vilja koma því á
framfæri við fólk að pantanir
verði gerðar í tíma og fólk láti
vita með fyrirvara um afpantanir.
Arnarflug
Arnarflug flýgur í áætlunarflugi
frá Reykjavík til Siglufjarðar og
Blönduóss. Til Sigluíjarðar er
flogið alla daga vikunnar og er
brottför úr Reykjavík kl. 10 en
frá Siglufirði kl. 11.30. Síðasta
ferð fyrir jól verður þann 23. des.
og fyrsta ferð fyrir jól verður á
annan í jólum. Síðasta ferð fyrir
áramót verður þann 30. des. en
fyrsta ferð eftir áramót verður 2.
janúar.
Til Blönduóss er flogið alla
daga nema mánudaga og laugar-
daga og er brottför úr Reykjavík
kl. 18 og frá Blönduósi kl. 19.
Síðasta ferð fyrir jól verður á
Þorláksmessu en fyrsta ferð eftir
jól verður sunnudaginn 27. des.
Síðasta ferð fyrir áramót verður
30. des en fyrsta ferð á nýju ári
verður þann 3. janúar.
Hjá Arnarflugi fengust enn-
fremur þær upplýsingar að enn
gætu átt eftir að bætast við auka-
ferðir og því væri ráðlegast að
spyrjast fyrir urn flugferðir hjá
Árnarflugi. Ennfremur verður
flogið bæði á aðfanga- og gaml-
ársdag ef veður tefur flug rétt fyr-
ir hátíðar.
Sérleyfíshafar
Milli Akureyrar og Húsavíkur
verða daglegar ferðir fram að
jólúm. Ekið er frá Húsavík kl. 8
og til baka kl. 16. Sunnudaginn
27. des. er ferð frá Húsavík kl. 19
og frá Akureyri kl. 21. Þriðju-
daginn 29. des. verður síðasta
ferð fyrir áramót frá Húsavík kl.
8 en frá Akureyri kl. 16. Fyrsta
ferð á nýju ári verður 3. janúar
kl. 19 og frá Akureyri kl. 21.
Þriðjudaginn 5. janúar verður
ferð frá Húsavík kl. 8 en frá
Húsavík kl. 16. Næstu ferðir eru
síðan fimmtudaginn og föstudag,
7. og 8.
Á leiðinni Dalvík-Akureyri
verður ekið á aðfangadag frá
Dalvík, kl. 9 og frá Akureyri kl.
12.30. Næsta ferð milli Akureyr-
ar og Dalvíkur er síðan þann 29.
des. Þá verður farið frá Dalvík
kl. 9 og frá Akureyri kl. 12.30.
Ekki er ekið miðvikudaginn 30.
des. en næsta ferð er á gamlárs-
dag kl. 9 frá Dalvík og kl. 12.30
frá Akureyri.
Á leiðinni Ólafsfjörður-Akur-
eyri verður ekið 22. og 23. des.
kl. 9 frá Ólafsfirði og kl. 15.30 frá
Akureyri. Engin ferð verður fyrr
en þann 29. des en þá verður
einnig farið frá Ólafsfirði kl. 9 og
frá Akureyri kl. 15.30.
Norðurleið
Norðurleið mun aka alla daga að
undanskildum aðfangadegi, jóla-
degi, gamlársdegi og nýársdegi.
Farið verður frá Akureyri kl.
9.30 og komið til Reykjavíkur kl.
17.30 en frá Reykjavík er farið
kl. 8. og komið til Akureyrar kl.
16.
Sérleyfisbílar Akureyrar rnunu
aka á leiðinni Akureyri-Mývatn
um jól og áramót. Þann 22. des.
verður farið frá Akureyri kl. 18
og frá Reynihlíð kl. 8. og 20.
Þann 29. des. verður farið frá
Akureyri kl. 14 og frá Reynihlíð
kl. 17. Sömu brottfarartímar
verða einnig í gildi þann 3. janú-
ar.
Flugfélag Norðurlands
Mikið verður flogið hjá Flug-
félagi Norðurlands um iólin.
Félagið flýgur á ísafjörð, Ólafs-
fjörð-Reykjavík, Siglufjörð,
Grímsey, Húsavík, Kópasker,
Rajifarhöfn, Þórshöfn, Vopna-
fjörð og Egilsstaði. Ferðum á
'þessa staði verður fjölgað um jól
og áramót og segja má að þá
daga sem ekki er áætlunarflug á
þessa staði verði flogið þangað.
Þannig mun félagið reyna að
koma öllum á áfangastað. Ekki
er ráðgert að fljúga á jóladag og
nýársdag. Fólki er ráðlagt að
hafa samband við flugfélagið til
að fá nánari tímasetningar á
flugi. "JÓH
Örtruð í farangursafgreiðslu á Akureyrarflugvelli.