Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 1

Dagur - 31.03.1992, Blaðsíða 1
75. árgangur Akureyri, þriðjudagur 31. mars 1992 63. tölublað HERRADEILD Gránutelagsgötu 4 Akureyri ■ Sími 23599 Þessa dagana eru bændur að fá í hendur bréf með tilkynningu um greiðslumark lögbýlis, sem sam- kvæmt breytingu á búvörulög- unum frá 1985 kemur í stað full- virðisréttar. Það má orða það svo að greiðslumark veiti lögbýlum rétt til beinnar greiðslu úr ríkis- sjóði gegn framleiðslu á tilteknu magni af kindakjöti. Bændur hafa hálfsmánaðar frest frá dag- setningu tilkynningar til að gera athugasemdir við úthlutaö greiðslumark. Ólafur G. Vagnsson, ráðunautur hjá Búnaðarsambandi Eyjafjarðar, segist hafa heyrt óánægjuraddir bænda á sambandssvæðinu með úthlutað greiðslumark. Hann segist fastlega gera ráð fyrir að þetta mál fái ítarlega umfjöllun á aðalfundi Búnaðarsambands Eyjafjarðar, sem verður á Dalvík í dag. „Bændur hér eru ósáttir við að þegar kaup ríkisins á fullvirðisrétti í fyrrasumar voru kynnt, hafi verið Veðrið: Vorblíðan ræður ríkjuni Mynd: KL Haukur Valtýsson, fyrirliði KA, hampar bikarnum eftirsótta annað árið í röð. Bikarkeppni karla í blaki: Bikarimi áfram á Akureyri - stelpurnar urðu í 2. sæti sagt að þar sem tækist að selja 12 prósent af fullvirðisrétti út af svæð- unum, myndu bændur sleppa við frekari skerðingu fyrsta árið. Síð- an kemur í ljós að menn fá á sig skerðingu. Þetta svíður bændum hér á svæðinu, ekki síst vegna þess að þeir voru mjög duglegir að selja fullvirðisrétt á síðasta ári. Það er að vísu boðað að þeir njóti þess við svokallaða seinni niðurfærslu í haust, þegar framleiðsluréttur haustsins 1993 verður ákveðinn, að hafa selt umfram 12 prósentin í íyrra,” sagði Ólafur. Með greiðslumarki verða felld- ar niður niðurgreiðslur til afurða- stöðva og teknar upp beinar greiðslur í stað þeirra. Beinu greiðslumar svara til helmings af framleiðslukostnaðarverði dilka- kjöts og berast framleiðendum í samræmi við greiðslumark lögbýl- isins. Þær verða greiddar út mán- aðarlega á almanaksárinu frá mars til desember fyrir það verðlagsár sem hefst 1. september og lýkur 31. ágúst á næsta almanaksári. Af- urðastöðvamar greiða það sem upp á vantar.óþh ' KA tryggði sér bikarmeistaratit- ilinn í blaki karla þegar liðið sigr- aði Þrótt Reykjavík 3:2 í úrslita- leik á laugardag. KA lék einnig til úrslita í kvennaflokki en tap- aði 0:3 fyrir ÍS. Þetta er annað árið í röð sem KA vinnur keppnina í karlaflokki og þriðja árið í röð sem liðið leikur til úrslita. Leikurinn var tvísýnn, KA komst í 2:0 en Þróttarar jöfn- uðu þannig að KA-menn þurftu oddalotu til að knýja fram úrslitin. KA-stúlkumar léku til úrslita í fyrsta sinn og var leikurinn jafnari en lokatöiumar gefa til kynna. ÍS á góða möguleika á að vinna einnig Islandsmeistaratitilinn. Sjá nánar um leikina á íþrótta- síðum. Formaður Alþýðusambands Norðurlands um viðræðuslit aðila vinnumarkaðarins: Tilkynning send út til bænda um greiðslumark lögbýla: Margir eyfirskir bændur ósáttir við sinn hlut Þýðir ef til vill endalok þessarar miklu miðstyringar í samningsgerð - verkalýðsfélög á Norðurlandi meta stöðuna á fundum í þessari viku í dag spá veðurfræðingar aust- lægri átt á landinu, golu eða kalda. Skýjað verður með strönd- inni norðaustanlands en úr- komulítið og víðast bjart í öðrum landshlutum. Hiti breytist Iítið og verður 2-6 stig yfir daginn. Á miðvikudag gerir Veðurstof- an ráð fyrir hægri breytilegri átt eða norðvestan golu og kólnandi veðri. Einhver éljagangur verður um norðanvert landið. Á fimmtu- dag er síðan búist við suðvestan átt. Þurrt verður norðanlands og hiti nálægt frostmarki. Loðnuvertíðinni er nú að ljúka. Mikið hefur dregið úr veiðinni síð- ustu dagana en enn voru nokkrir bátar að við Snæfellsnes í gær. Jón Ólafsson hjá Félagi íslenskra fiskmjölsframleiðenda segist reikna með aö nú um mánaðamót- in hætti flestir þeir bátar sem enn eru við veiðar. Heildarveiðin á vertíðinni er orðin 626 þúsund tonn og enn eru eftir 125 þúsund tonn af loðnu- kvótanum. Frá áramótum hafa veiðst 570 þúsund tonn en 56 þús- und tonn komu á land fyrir áramót. Undir lok loðnuvertíðarinnar jók sjávarútvegsráðuneytið loðnu- Kári Arnór Kárason, formaður Alþýðusambands Norðuriands, er svartsýnn á að viðræður um nýjan kjarasamning fari aftur af kvótann um 50 þúsund tonn að til- lögu Hafrannsóknastofnunar. Stofnunin gerði þessa aukningu að tillögu sinni þar sem mælst hafði loðna djúpt út af Vesturlandi og var gert ráð fyrir að hún gengi inn að landinu en svo virðist sem þessi ganga hafa ekki skilað sér. „Því miður hef ég grun um að nú um mánaðamótin detti veiðam- ar alveg niður. Ég hefði viljað sjá einhverja þrauka fram í aprfl til að sjá betur hvemig hegðunin hjá loðnunni er á þessum tíma en þetta er ekki nógu mikil veiði til að menn haldi skipunum úti,“ sagði Jón. JOH stað fyrr en í fyrsta Iagi eftir páska. Kjaraviðræður aðila vinnumarkaðarins sigldu í strand um helgina og næstu daga verður boðað til funda hjá verka- lýðsfélögum víða um land til þess að meta stööuna. Mið- og sam- bandsstjórn Alþýðusambands Noröurlands og formenn allra verkalýðsfélaga á Norðurlandi hafa verið boðaðir til fundar á Akureyri nk. föstudag og í næstu viku er gert ráð fyrir fundum hjá Verkamannasambandinu og Al- þýöusambandinu, þar sem niður- stöður fundanna í þessari viku verða kynntar. Um miðnætti sl. laugardags- kvöld sigldu kjaraviðræðumar í strand. Hyldýpi var þá á milli samningsaðila og ljóst að ekki væri unnt að brúa bilið að svo komnu máli. Kári Amór Kárason sagði í gær að verkalýðshreyfingin hafi ekki viljað fallast á að skrifa upp á nýj- an kjarasamning um engar kaup- hækkanir. „Við vomm tilbúnir að fallast á nokkum veginn þann kaupmátt sem fólk býr við í dag, en í staðinn kæmi rfkið til móts við okkur í ýmsum velferðarmálum, t.d. varðandi heilbrigðiskerfið, bamabætur o.fl. Ríkið bauð 150 milljónir, en ekki var unnt að fá loforð frá heilbrigðisráðherra um að gripið yrði til frekari hækkana á þjónustugjöldum eða tekin upp ný gjöld. Það mátti reyndar skilja á honum að það gerði ekkert til þótt við fengjum þessar 150 milljónir, hann myndi ná þeim annars staðar. Við þessar aðstæður var mat flestra að það væri enginn samningur í augsýn,“ sagði Kári Amór. Hann sagði erfitt að meta hvort kæmi til harkalegra átaka á vinnu- markaði í kjölfar viðræðuslita um helgina. „Það er mjög erfitt að meta það á þessari stundu, en mér þykir ekki ólíklegt að það verði einhver átök. Ekki er ólíklegt að einhverjir hópar fari út í átök,“ sagði Kári Amór og bætti við að hann ætti ekki von á að samflot ASÍ, BSRB og Kennarasambands- ins héldi áfram. Formaður Alþýðusambands Norðurlands taldi að viðræðuslit um helgina markaði ákveðin tíma- mót í kjaraviðræðum hér á landi. „Þetta þýðir ef til vill endalok þess samningakerfis sem við höfum haft, þessarar miklu miðstýringar í samningsgerð. Þetta kerfi er mjög þungt og erfitt.“ Valdimar Guðmannsson, for- maður Verkalýðsfélags Austur- Húnvetninga, segist ósáttur við áherslur verkalýðshreyfingarinnar í viðræðum við atvinnurekendur að undanfömu. Ekki hati nægiiega mikið verið lagt upp úr kjarabótum fyrir lægst launaða fólkið, en það atriði hafi Verkalýðsfélag Austur- Húnvetninga alltaf sett á oddinn. „Ég er óhress með hvemig þetta hefur verið rekið. Láglaunabætur sem menn hafa verið að tala um er ekki til að hrópa húrra fyrir. Það verður að segjast að þetta samflot er að mörgu leyti mjög erfitt. Þó að menn geti sameinast um margt, þá er í mörgu dálítið langt á milli rnanna," sagði Valdimar. óþh Skagaprður: 1 Bflslys á Höfðaströnd Bílslys varð f Skagafirði um helgina og lærbrotnaði öku- maður bíls sem fór út af Siglu- fjarðarvegi, en farþegi slapp ómeiddur. Slysið varð skammt frá bæn- um Höfða á Höfðaströnd. öku- maður missti stjóm á bflnum með þeim afleiðingum að hann lenti út af veginum og hafnaði í árbakka á svonefndri Höfðaá. Við útafaksturinn lærbrotnaði ökumaður bifreiðarinnar, en farþegi sem var í bflnum slapp svo til ómeiddur. Bfllinn er mjög illa farinn. SBG Loðnuvertíðinni að ljúka: Rúm 100 þúsund tonn eftir afkvóta - „ég heíði viljað sjá einhverja þrauka fram í apríT

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.