Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 25

Dagblaðið Vísir - DV - 03.11.1994, Blaðsíða 25
FIMMTUDAGUR 3. NÓVEMBER 1994 37 Sigurður Karisson og Jón Hjart- arson í hlutverkum sínum í Leynimel 13. Ónotuð herbergi ríkisbubba tekin eignamámi Leikfélag Reykjavíkur sýnir um þessar mundir í Borgarleik- húsinu gamanleikinn Leynimel 13 sem var sýndur við miklar vin- sældir fyrir mörgum árum. Höf- undar leikritsins eru þrír og köll- Leikhús uöu þeir sig Þrídrang en það voru þeir Indriði Waage, Haraldur Á. Sigurðsson og Emil Thoroddsen. Þeir stóðu um árabil fyrir sýning- um á forsum og gamanleikjum í Iðnó. Hugmyndin aö Leynimel 13 er sótt í þá staðreynd að á þeim árum sem leikurinn gerist var gífurlegur húsnæðisskortur í Reykjavík og Alþingi setti lög þar sem meðal annars var bannað að taka íbúöarherbergi til annarra nota en íbúðar. Sú saga komst á kreik að húsaleigunefndir myndu fá heimild til að leigja ónotuð herbergi í íbúðum fólks. í helstu hlutverkum eru Þröst- ur Leó Gunnarsson, Guðlaug E. Ólafsdóttir, Guðmundur Ólafs- son, Guðrún Ásmundsdóttir, Hanna María Karlsdóttir, Jakob Þór Einarsson, Jón Hjartarson, Karl Guðmundsson og fleiri. Leikstjóri er Ásdís Skúladóttir. Næsta sýning á Leynimel 13 er í kvöld. Talið er að 1,6 milljónir sjón- varpsáhorfenda hafi horft á Live-Aids tónleikana í Fíladelfíu og London. Tónleikar til fjáröflunar Tónleikar til fjáröflunar fyrir góð málefni eru oft mjög vel sótt- ir enda eru slíkir tónleikar yfir- leitt vel skipaðir af frægum stjörnum. Stærstu góðgerðartón- leikamir eru Live Aid tónleik- amir í Fíladelfíu og London, 13. júlí 1985. Skipuleggjendur tón- leikanna vom Bob Geldof og Bill Graham og komu fram sextíu heimsfrægir söngvarar og hljóm- sveitir. Tekjur af tónleikunum námu 35 milljónum sterhngs- punda. Talið er aö 1,6 milljarðar áhorfenda hafi fylgst með tón- leikunum en það var þriðjungur mannkyns. Blessuð veröldin Hæsta fjársöfnun í göngu og hlaupi Hæsta upphæð er safnast hefur í göngu eða hlaupi sem sérstaklega er efnt til í góðgerðarskyni er 24,7 milljónir dollara. Þetta fé safnað- ist er Kanadamaðurinn Terry Fox (1958-1981) hljóp frá St. John á Nýfundnalandi til Thunder Bay í Ontario í Kanada, 5373 kíló- metra vegalengd á 143 dögum, 12. apríl til 2. september 1980. Terry Fox var með gervifót. Keanu Reeves og Sandra Bullock á fullri ferð í strætó. Fullur strætó af fólki og sprengiefni Bíóhöllin hefur undanfarið sýnt við miklar vinsældir spennu- myndina Hraði eða Speed eins og hún heitir á frummálinu. í aðal- hlutverkum eru Keanu Reeves', Sandra Bullock, Dennis Hooper og Jeíf Daniels. Lögreglumaðurinn Jack Tra- ven starfar í sérsveitunum. Þekk- ing á þankagangi glæpamanna, hugrekki og heppni hefur haldið honum hangandi og honum veitir ekki af allri sinni kunnáttu eigi hann aö komast í gegnum það að vera fastur í strætó sem hefur verið útbúinn á þann veg að fari hann niöur fyrir 90 kílómetra hraða springur hann í loft upp. Myndin hefur fengið mikið hrós fyrir áhættuatriðin, enda var ekkert til sparað að géra þau sem raunverulegust úr garði. Notaðir Lög afLand- sýn í nýjum búningi Djassinn mun hljóma á Fógetandum í kvöld en þar mun tríó Tómasar R. Einarssonar leika. Þaö mun kveða við nokk- uð nýjan tón hjá Tómasi í kvöld, hljóðfæraskipanin er nokk- uð óvenjuleg, bassi, básúna og píanó, og bassi Tómasar verður meira í einleikshlutverki en áður hjá honum. Þeir sem leika með Tómasi eru Gunnar Gunnarsson á píanó og Guðmundur R. Einarsson á básúnu. Á eflússkránni eru lög af nýjustu plötu Tómasar, Land- sýn, sem kom út siðastliðið sumar og hefur fengiö lofsamleg- ar viðtökur. Á Landsýn voru margir söngvarar Tómasi til aðstoðar en að sjálfeögðu verða lögin í nýjum búningi í kvöld. Þá verða einnig flutt lög eftir Charles Mingus, Sonny Rollins, Charlie Parker og fleiri. Tónleikamir heflast kl. 22.00. Bassinn mun fá að njófa sín í kvöld i meðförum Tómasar R. Einarssonar. Mosfellsheiði aðeins jeppafær Nokkur hálka myndaðist á höfuð- borgarsvæðinu í morgun og eru ein- staka götur varasamar. Á Hellisheiði Færðávegum og í nágrenni eru vegir hálir. Mos- fellsheiði er aðeins jeppafær en Gjá- bakkavegur, á milh Þingvalla og Laugarvatns, er lokaður. Breiðdals- heiði er þungfær. Þá eru einnig margir vegir sem liggja hátt illfærir. Annars eru flestir vegir á láglendi færir en víöast er þó mikil hálka og bílstjórar sem eiga leið um þjóðvegi landsins ættu að fara varlega. Astand vega O Hálka og snjór 0 Vegavinna-aögát H Öxulþungatakmarkanir v. f"^retööu Œl Þungfært <£>^ært fjallabilum________________ Hinn 17. október fæddist Ellisif Katrínu Björnsdóttur og Gísla Reyr Stefánssjmi dóttirin Una Valgerð- ur. Una Valgerður er fyrsta barn þein-a Ellisiflar og Gísla. Hún reyndist vera 3575 grömm og 51 sentímetra Iöng. Kvikmyndahúsin voru tíu strætisvagnar, enda má segja að strætó sé í stærsta hlut- verkinu. Leikstjóri myndarinnar er Jan De Bont sem hefur ekki áður leikstýrt kvikmynd en er þekktur kvikmyndatökumaður og stjórnaði meðal annars kvik- myndatökum á Basic Instinct, Die Hard og Lethal Weapon 3. Nýjar myndir * Háskólabíó: Isabelle Eberhart Laugarásbíó: Gríman Saga-bíó: Forrest Gump Bíóhöllin: Bein ógnun Stjörnubíó: Það gæti hent þig Bíóborgin: I blíðu og stríðu Regnboginn: Reyfari Gengið Almenn gengisskráning LÍ nr. 253. 03. nóvember 1994 kl. 9.15 Eining Kaup Sala Tollgenpi Dollar 66,560 66,760 66,210 Pund 108,060 108,390 108,290 Kan. dollar 49,030 49,220 49,060 Dönsk kr. 11,2320 11,2770 11,3020 Norsk kr. 10,0790 10,1200 10,1670 Sænsk kr. 9,1240 9,1600 9,2760 Fi. mark 14,2880 14,3460 14,4730 Fra. franki 12,8220 12,8740 12,9130 Belg. franki 2,1370 2,1456 2,1482 Sviss. franki 52,6600 52,8700 52,8500 Holl. gyllini 39,2200 39,3800 39,4400 Þýskt mark 43,9700 44,1100 44,2100 it. líra 0,04273 0,04295 0,04320 Aust. sch. 6,2420 6,2730 6,2830 Port. escudo 0,4296 0,4318 0,4325 Spá. peseti 0,5268 0,5294 0,5313 Jap. yen 0,68330 0,68540 0,68240 írskt pund 106,450 106,990 107,000 SDR 98,66000 99,16000 99,74000 ECU 83,7200 84,0600 84,3400 Símsvari vegna gengisskráningar 623270. Gildran er spennt ef ökumaður rennir einum snafsi inn fyrir varir sinar ei aki nemn! Eftir emn UMFERÐAR RÁÐ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.