Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.1994, Blaðsíða 34
49.
LAUGARDAGUR 5. NÖVEMBER 1994
Kerskni
Ég er á leiðinni heim, Inga. Farðu út á svalir og gáðu hvort það
er laust stæði einhvers staðar í grenndinni.
Við eru nákvæmlega hálfnuö svo að ef við eigum að komast
heim áður en friið er búið verðum við að snúa við núna.
///////////////////////////////
JÓLAGJAFA-
HANDBÓK
1994
Miðvikudaginn 7. desember mun hin árlega jóla-
gjafahandbók DV koma út í 14. sinn.
Jólagjafahandbók DV hefur orðið æ ríkari þáttur
í jólaundirbúningi landsmanna enda er þar að
finna hundruð hugmynda að gjöfum fyrir jólin.
Skilafrestur auglýsinga er til 25. nóvember en með
tilliti til reynslu undanfarinna ára er auglýsendum
bent á að hafa samband við Selmu Rut Magnús-
dóttur eða Ragnar Sigurjónsson, auglýsingadeild
DV, hið fyrsta í síma 632700 svo að unnt reynist
að verta öllum sem besta þjónustu.
Friðrik Erlingsson fékk verðlaun fyrir Hrein Svein í Sviss:
Hafði rétt tíma
tilað
strauja fínu fötin
- áður en flugvélin fór í loftið
Bryndís Hólm, DV, Gen£
„Ég er skrifari og stefni að því að
verða ritöfundur," segir Friðrik Erl-
ingsson sem nýlega vann til sér-
stakra verðlauna evrópskra útvarps-
og sjónvarpsstöðva í Genf í keppn-
inni Prix Genve Europe fyrir sjón-
varpshandrit sitt, Hreinn Sveinn.
Keppninni var komið á til að draga
fram í dagsljósið efnilega höfunda
sem ekki höfðu áður skrifað fyrir
sjónvarp. Aðalkveikjan var reyndar
sú staðreynd að bandarískt sjón-
varpsefni var að drekkja evrópskri
menningu og nú skyldi reyna að
snúa vörn í sókn með því að ýta
undir frekari framleiðslu á sjón-
varpsefni frá Evrópu.
Fyrir ári var Friðriki, ásamt niu
öðrum ungum evrópskum höfund-
um, veittur veglegur peningastyrkur
til að fullvinna sjónvarpshandrit fyr-
ir keppnina Prix Genve Europe sem
haldin hefur verið sjö sinnum. Aðal-
verðlaunin í keppninni í ár hlaut
franskur höfundur fyrir handrit um
afríska innflytjendur í París. Friðrik
Erhngsson hlaut sérstök verðlaun
dómnefndarinnar, en handrit hans
fjallar um 12 ára gamlan dreng sem
er að verða að manni í lok sjöunda
áratugarins. Það er óhætt að segja
að Friðriki sé margt til hsta lagt.
Hann er auglýsingateiknari að
mennt og starfaði á auglýsingastofu
í 10 ár. Síðan sneri hann sér alfarið
að skrifum bóka og handrita og hefur
starfað við það í 4 ár.
Og á menningarsviðinu hefur hann
ekki bara náð góðum árangri með
skrifum sínum, heldur hefur hann
einnig látið til sín taka á tónhstar-
sviðinu. Á unghngsaldri gekk hann
til hðs við og lék með hljómsveitinni
Kukli og síðar varð hann einn af
meðhmum hinna frægu Sykurmola.
Friðrik segir reyndar að tónhstar-
kafla sínum sé alveg lokiö. „Það var
mikið ævintýri að taka þátt í Sykur-
molunum en ég hætti með þeim þeg-
ar þeir voru komnir hálfa leið út í
atvinnumennsku. Spilamennskan
varð of tímafrek fyrir mig og ferða-
lögin aht of löng. Eg fann að ég vhdi
beina kröftum mínum í aðrar áttir
þannig að ég hætti alveg að spila. Ég
hef ekkert sphað í mörg ár, heldur
einbeitt mér að skrifum. Og ég stefni
ekki að því að spha með hljómsveit-
um í framtíðinni. Ef ég gríp í hljóð-
færi þá er það bara til að hjálpa mér
aö finna rytmann í skrifunum."
Friðrik fékk nánast engan tíma til
að búa sig undir ferðina th Genfar
og taka við verðlaununum fyrir
handrit sitt Hreinn Sveinn. „Það var
hringt í mig rétt fyrir hádegi á laug-
ardegi og ég þurfti að ná vél sem átti
að fara í loftið klukkan hálfþrjú frá
Keflavíkurflugvelh. Þannig að ég rétt
hafði tíma th að strauja fínu jakka-
fotin mín. Innst inni hvarflaði það
reyndar að mér að ég fengi þessi
verðlaun. Ég var ánægður með sög-
una, ég hafði gert mitt besta við
handritið og taldi mig því eiga jafn-
mikla möguleika og hinir keppend-
urnir."
- En hvað er Friðrik Erhngsson með
fleira í pokahorninu þessa dagana?
„Það hafa staðið yfir tökur á mynd-
inni Benjamín dúfu sem er gerð eftir
samnefndri barnabók minni og hef
ég verið að fylgjast með þeim. Og
einnig er ég að skrifa fyrstu drög að
handriti fyrir Ingu Lísu Middleton,
sem vonandi fer í framleiðslu á
næsta ári ef aht gengur að óskum.
Ég eyddi síðan sex vikum á Eistlandi
í sumar þar sem ég vann við hand-
ritsgerð á jóladagatali Sjónvarpsins.
Þar var ég innhokaður í smákytru í
yfir 35 stiga hita og gerði ekkert ann-
að en að skrifa.“
- Langaði þig aldrei að gefast upp
við aðstæðumar í Eistlandi?
„Alls ekki, hefði ég gert það ætti
ég ekkert erindi í þetta starf. Það
reyndi auðvitað á einbeitingu og út-
haldið hjá mér, en shka þætti verður
maður að hafa í lagi þegar koma á
orðum og góðum hugmyndum yfir á
blað.“
- Hvað er það við ritstörfm sem
heillar Friðrik Erlingsson?
„Ætli það sé ekki sú staðreynd að
ég nenni ekki að vinna í 9-5 starfi
þar sem þarf að stimpla sig inn og
út. Mér finnst svo þæghegt að sitja
heima hjá mér og skrifa allan dag-
inn, nenni helst engu öðru. En skrif-
in hafa auðvitað þróast hehmikið hjá
mér og eftir að bókin mín um Benja-
mín dúfu kom út hef ég í raun haft
miklu meira að gera heldur en í öðr-
um störfum sem ég hef sinnt."
Friðrik Erlingsson hefur haft nóg að gera undanfarið við að fylgjast með
upptökum ð kvikmyndinni Benjamin dúfu, hann hefur skrifað handrit
fyrir jóladagatal Sjónvarpsins og handrit að stuttmynd. DV-mynd Þök
- Hvaða kosti þurfa góðir rithöf-
undar að hafa th að bera?
„Góðir skrifarar og rithöfundar
verða að búa yfir góðu hugmynda-
flugi. Hjá sönnum rithöfundum eru
slíkir eiginleikar meðfæddir en
vissulega er hægt að þroska þaö eins
og aðra eiginleika. Einbeiting og út-
hald skipta lfka gríðarlega miklu
máli, að sitja við og gefast ekki upp
þótt á móti blási. Allir sem skrifa
upplifa ákveöna erfiöleika þar sem
reynir á alla þessa þætti. Þegar mað-
ur er kominn yfir miðjuna og lokin
blasa við í skrifunum er maður oft
eins og sprimgin blaðra. Þá reynir
virkhega á mann og það er í raun
sigur að klára verk með sóma. Ég
vil taka það fram að mér finnst mik-
hl munur á skrifara og rithöfundi.
Rithöfundur er eitthvað sem skrifari
á að stefna að að verða. Þaö er ákveð-
in viðurkenning fólgin í því að vera
rithöfundur, kemur eftir 3-A skáld-
sögur og er staðfesting á því að al-
menningur les það sem skrifað er.
Ef almenningur kaupir ekki bækur
þess sem kahar sig rithöfund er sá
hinn sami á köldum klaka. Ég er
skrifari og auðvitað er það mitt
markmið að verða rithöfundur."