Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 4
4 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 Fréttir Reglugerð í smíðum sem gerir ráð fyrir léttari nöglum: Gæti þýtt yf ir 200 milljóna sparnað á ári - sparar viðhald á bundnu slitlagi en minnkar ekki öryggi Innan dómsmálaráöuneytisins er nú í smíðum reglugerð sem bannar notkun þeirra nagla sem nú eru not- aðir í hjólbarða. Reglugerðin verður innan skamms send til umsagnar en fyrirhugað er að hún taki gildi fyrir næsta vetur. Þó er ætlunin sú að menn fái að nota þau nagladekk sem þeir eiga og slíta þeim út. Nýju nagl- amir mega einungis vera úr áli eða harðplasti og verða þá léttari en þeir gömlu fyrir vikið. Með þessum hreyt- ingum er hugsanlegt að hægt verði að spara rúmlega 200 milljónir í við- haldsframkæmdum á bundnu sht- lagi á gatnakerfi Reykjavíkur og þjóðvegum landsins. „Sænskar rannsóknir sýna fram á að léttari naglar spara viðhald á sUt- lagi í þéttbýli um allt að helming. Enn fremur þýðir þetta minni slysa- hættu í kjölfar minni hjólfara í mal- biki vegna naglaslits. Þá eru um- hverfisáhrifin gífurleg. Tjara, sem losnar við naglasht, verður níinni í umhverfinu og loks minnkar þetta hljóðmengun. AUt eru þetta kostir við að takmarka naglastærð," segir Þórhallur Ólafsson, umdæmistækni- fræðingur Vegagerðarinnar á Sel- fossi og formaður Umferðarráðs. Hann bætir því við að rannsóknir sýni fram á að umferðaröryggi sé ekki minna þrátt fyrir minni nagla, sem muni verða á svipuðu verði og gömlu naglamir. Samkvæmt upplýsingum hjá Vega- gerðinni var 440 miUjónum varið tfi viðhaldsframkvæmda á bundnu sUt- lagi á þjóðvegum landsins á þessu ári. ÞórhaUur fullyrðir að þann kostnað mætti lækka um 20 til 30 prósent eöa um rúmlega 100 miUjón- ir. Á þessu ári var varið að minnsta kosti 200 milljónum í viðhaldsfram- kvæmdir á bundnu sUtlagi í Reykja- víki. Ef kostnaður viö þaö lækkaði um helming myndu 100 miUjónir sparast við það. Samtals yrði þvi um að ræða rúmlega 200 milljónir í Reykjavík og á þjóðvegakerfi lands- ins. Kunnugir telja þó að kostnaöur við þjónustu myndi aukast eitthvað en ekkert í líkingu við það sem myndi sparast. Kópavogur: Lækkaðir ítignog fluttir til Dómsmálaráðuneytiö hefur ákveðið, að fenginni tiUögu sýslu- manns í Kópavogi, að flytja að- stoðaryfirlögregluþjón og yfirlög- regluþjón lögreglunnar í Kópa- vogi til í starfi. Þetta er gert vegna þess óþolandi ástands sem skap- ast hefur vegna deUna tveggja umræddra manna. Báðir voru þeir lækkaðir í tign og mun aðstoðaryfirlögreglu- þjónninn gegna starfi rannsókn- arlögreglumanns hjá RLR en yf- irlögregluþjónninn mun gegna stöðu varðstjóra hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Mennimir hafa báöir verið leystir frá störfum en þó verið veittur andmælafrestur. Stjórn Lögreglufélags Kópavogs harmar að til þessa hafi þurft að koma. Kanadíska olíufélagiö Irving Oil: Vantar lóðir undir átta bensínstöðvar Kanadíska olíufélagið Irving Oil hefur lagt fram formlega beiðni hjá borgaryfirvöldum um svæði undir birgðastöð og a.m.k. 8 bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu. Fulltrúar Ir- ving Oil áttu nýlega fund með borg- aryfirvöldum þar sem þeim var gerð grein fyrir að engar lóðir undir bens- ínstöðvar væru til samkvæmt nú- gildandi borgarskipulagi og 8 vikur tæki með auglýsingu aö breyta land- notkun. Eins og sjá má á meðfylgj- andi korti eru olíufélögin þrjú, Olís, Skeljungur og Esso, meö 41 bensín- stöð á höfuðborgarsvæðinu og vil- yrði er fyrir 3 lóðum til viðbótar undir bensínstöð í Reykjavík sam- kvæmt núverandi skipulagi. Nýju lóðirnar, sem hér um ræðir, eru við Gylfaflöt og Borgarveg í Graf- arvogi og í Norðlingaholti við Rauöa- vatn. í Grafarvogi eru allar líkur á að Skeljungur verði með hensínstöö á báðum stöðunum og í Noröhnga- holti hefur Olís vilyrði um lóð eftir að félagið varð að víkja frá fyrirhug- aðri lóð við Vesturlandsveg. Irving Oil í Grafarvogi? Það kemur ekki fram á kortinu að Hagkaup hefur úthlutaða lóð við Borgarveg í Grafarvogi, í svokallaðri Spöng, þar sem auk verslunarmið- stöðvar er reiknaö með aðstöðu fyrir bensínstöð. Eins og áður hefur komið fram hefur DV heimildir fyrir því að Hagkaup og Bónus séu í samstarfi við Irving Oil um starfrækslu hens- ínstöðva. Forráðamenn fyrirtækj- anna neituðu því ekki eða játuðu þannig að svo gæti farið að ein af bensínstöðvum Irving Oil verði í Spönginni í Grafarvogi. Á fundi með borgaryfirvöldum sögðu fulltrúar Irving Oil að þeir hefðu í huga meðalstórar bensín- stöðvar á bandarískum mælikvarða, stöðvar sem byðu upp á ýmsar vörur tengdar bflaþjónustu. í bréfi frá Ir- ving Oil kemur fram að ísland sé um margt líkt þeim norðlægu slóðum sem félagið starfi á í Bandaríkjunum og Kanada. í bréfinu segir ennfrem- ur: „Fyrirtækinu er nauðsynlegt að fá aðstöðu fyrir starfsemi sína. í því sambandi er rétt að benda á að nauð- synlegt dýpi nærri aðstöðunni er 13 metrar. Einu staðirnir sem sjáanleg- ir eru nú eru við Reykjavík og Helgu- vík. Ljóst er að Helguvík kemur ekki til greina vegna fjarlægðar frá mark- aðnum enda óvíst að sú aðstaða standi til boða. Fyrirtækiö hyggst hefja starfsemi hægt og sígandi." Borgarráð íjallaði um áhuga Irving Oil á fundi sínum á þriðjudag. Ráðið vísaði máhnu til borgarskipulags en þangað munu fulltrúar Irving Oil senda hugmyndir sínar um staðsetn- ingu bensínstöðva á höfuðborgar- svæðinu. Óskiljanlegt athæf i „Þetta er glænýr bíll. Það er búið að keyra hann 14 hundruð kfló- metra. Ég skil ekki hvað fær menn til að gera svona lagað,“ sagði Gunnar Beinteinsson, handknatt- leiksmaður í FH, í samtali við DV en bíll sem hann hafði nýlega keypt sér var gjörsamlega lagður í rúst fyrir utan íþróttahús FH í Kapla- krika um síðustu helgi. Gunnar haíði skflið bflinn eftir fyrir utan íþróttahúsið á föstudag og farið með félögum sínum á Hót- el Örk í Hveragerði og ætlaði að ná í hann daginn eftir. Einhver eða einhverjir skemmdarvargar virð- ast hins vegar hafa orðið fyrri til að komast í bíl Gunnai-s og annan bíl sem stóö fyrir utan húsið og er í eigu frægs stuðningsmanns FH. Allar rúöur og bæði framljós á bíl Gunnars voru eyðilögð. Þá var gat stungið í vélarhlíf bílsins og topp, auk þess sem göt voru stungin á alla hjólbarðana. Sömu sögu er að segja af hinum bilnum Máliö er í rannsókn hjá lögregl- unni í Hafnarfiröi. Lögreglan biöur hvern þann, sem telur sig geta gef- ið upplýsingar um mannaferðir við iþróttahúsið aðfaranótt laugardags að hafa samband viö sig, en enginn er grunaður um verknaðinn. Gunnar Gunnarsson, þjálfarí Vtkings og starfsmaður tryggingafélagsins Skandia, stendur hér vlð bil Gunnars sem eins og sjá má er mjðg illa farinn. DV-mynd GVA með lögreglunni og biður alla þá sem geta gefið upplýsingar um verknaðinn að hafa samband við lögreglu. Gunnar segir bflinn hafa verið í kaskó og því takmarkist beint fjár- hagslegt tjón hans viö sjálfsábyrgð- ina. Hins vegar tekur hann undir Bensínstöðvar á höfuðborgarsvæðinu OO o f'i o Fyrirhuga^ O r\ Fyrirhugaö O Olís • Esso © Skeljungur cP o 8 • ° rn.it yf..P Hafnarfjöröur: • Reykjavíkurv. 54 # Lækjargata 46 O Vesturgata 1 © Reykjavíkurv. 58 © Kænah v/höfnina c9 Mosfellsbær: 0©Langitangi # Bjarkarholt o Fyrirhugað DV Fasteignamarkaöurinn á Akureyri: Stærri eignir hafa lækkað um allt að 10% - mikið framboö á markaðinum „Það eru bara venjuleg markaðs- lögmál sem ráða. Það er mjög mik- ið af raðhúsum og einbýlishúsum í sölu á Akureyri og þegar framboð- iö er meira en eftirspurnin þá lækkar verðið. Þetta lögmál á alveg eins við um fasteignir og bfla,“ seg- ir Pétrn- Jósefsson, sölustjóri hjá Fasteigna- og skipasölu Norður- lands á Akureyri, um verðlækkun sem orðið hefur á stærri fasteign- um á Akureyri að undanfómu. Pétur segir að nú séu e.t.v. 70-80 einbýlishús og stærri fasteinir á söluskrá á Akureyri sem sé mjög mikið í ekki stærri bæ. Verðlækk- un þessara eigna er umtalsverð að undanfömu og dæmi um að rað- hús, sem selst hefði á um 9 milljón- ir fyrir nokkmm mánuöum, fáist fyrir rúmlega 8 milljónir í dag. Pét- ur sagði e.t.v. ekki fjarri lagi að tala um 10% verðlækkun á stærri eignum. Hann lagði þó áherslu á að öllu máli skipti hvernig húsbréf menn fengju sem væm að selja, en affóll á þeim væra mjög misjöfn. Pétur sagði að verðlækkunin ætti reyndar við um flestar fasteignir á markaðnum nema tveggja her- bergja íbúðir. Kaupendahópur slíkra íbúða væri stærri, t.d. ein- stakhngar og ungt fólk sem er aö stíga sín fyrstu skref í fasteigna- kaupum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.