Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994
5
Fréttir
Greiðslurnar
hærri en
sektin
Samt. 3.600.000
Áætia&ir
vextir
3.000.000
Sekt v. skattsvika 2.900.
Greiðsla
v/skýrslu
Greiðsla v.
uppsafnaðs
námsleyfis
UmdeMar greiöslur til Bjöms Önundarsonar:
Opinberar greiðsl-
ur hærri en sektin
fyrir skattsvik
Athygli vekur að opinberar
greiðslur til Björns Önundarsonar,
fyrrverandi yfirtryggingalæknis hjá
Tryggingastofnun ríkisins, eftir að
hann hætti störfum hjá Trygginga-
stofnun vegna skattarannsóknar eru
mun hærri en sú sekt sem hann var
dæmdur til aö greiða samkvæmt
dómi Héraðsdóms Reykjavikur í
seinustu viku.
Björn var dæmdur í þriggja mán-
aða skilorðsbundið varðhald fyrir að
svíkja á sjöundu milljón undan skatti
árin 1988 til 1990. Þá var hann dæmd-
ur til að greiða samtals 3 milljónir
króna í sekt.
Á seinasta ári fékk Björn hins veg-
ar umdeildar greiðslur frá ríkissjóði,
samtals 3,3 milljónir. Um var að ræða
um 2,9 milljónir úr ríkissjóði vegna
námsferða sem hann fór ekki í á
meðan hann starfaði hjá Trygginga-
stofnun. Fjárhæðin náði til greiðslu
launa og dagpeninga í sex mánuði
og kostnaðar við eina utanlandsferð.
Frá samningnum var gengið í tíð
Guömundar Áma Stefánssonar í
heilbrigðis- og tryggingaráðuneyt-
inu.
Greiðslan er mjög umdeild í ljósi
þess að kjarasamningur lækna gerir
ráð fyrir því að þeir geti ekki safnað
upp ónotuðum rétti til námsferða,
nema til tveggja ára. Uppi eru raddir
meðal fjölda lækna, sem ekki hafa
átt þess kost árum saman að nýta sér
umsamin námsorlof, að gera kröfur
til hins opinbera um að njóta sömu
vildarkjara og Bjöm.
Guðmundur Árni fékk enn fremur
Bjöm til aö vinna skýrslu um álit
hans á skýrslu Ríkisendurskoðunar
um laun lækna. Fyrir það verkefni
fékk Björn greiddar samtals 400 þús-
und krónur.
Samtals er því um að ræða 3,3 millj-
ónir króna en um 3,6 milljónir ef tek-
ið er mið af raunávöxtun greiðsln-
anna á einu ári. Umdeildar greiðslur
frá ríkissjóöi, auk vaxta, era því um
600 þúsund krónum hærri en sektin
sem Björn var dæmdur til að greiða
til ríkissjóðs fyrir skattsvik.
Björn var einnig fenginn til að
vinna skýrslu um sérfræðiþjónustu
við landsbyggðina og skilaði hann
inn reikningi til heilbrigðisráðuneyt-
isins upp á sjöunda hundrað þúsund
krónur fyrir það verkefni. Sighvatur
Björgvinsson, sem kom til starfa í
ráðuneytinu á ný eftir að Guðmund-
ur Árni hafði úthlutað verkefninu til
Bjöms, stöðvaði hins vegar greiðslu
reikningsins til Björns og hefur hann
enn ekki verið greiddur.
Ekki hefur enn verið tekin ákvörð-
un um hvort dómi héraðsdóms í
máli Björns verður áfrýjað til Hæsta-
réttar.
iborgtff;
ISyr breyttvir og
ri/ betri staður
CoWe
með nýj um
I eigendum!
I *££&*>
so\o" 09
B«tt«s
ogso\ot»lU
k». 399
Ármúli 42 - simi 883090
11RASHR
skv. verökönnun Mbl. 10.nóv.’94
uvs-
Fmmm&iLMm
\Wm E í)1 A
I 'Kí / )
(sama verð fyrir 24 og 36 mynda framköllun)
MÓTTAKA:
AUÍiASETTi
Wmu lcr.399
—um fe/ð pg framkaUaK.
Austurstræti - Kringlunnl - Hallarmúla
*3-7 vlrkum dögum eftir aö fllmu er skilaö í verslanlr Pennans
■
__________________________________________________________________•
UTSALA
Opid 10-18 |
virka daga og
12-16 laugard. I
Chevy Monza
1987, ek. 150 þús. Útsala kr.
220.000 stgr.
Mazda 626
1987, ek. 180 þús., skiptivél. Á
útsölu kr. 220.000 stgr.
BMW 320i
1989, ek. 72 þús. Útsöluverð að-
eins kr. 990.000 stgr.
Mazda 323F
1992, ek. 66 þús. Aðeins kr.
990.000 stgr.
Saab 900i
1987, ek. aðeins 78 þús. Útsölu-
verð kr. 640.000 stgr.
MMC Lancer GLX
1987, ek. 110 þús. Aðeins kr.
390.000 stgr.
Ford Fiesta
1989, ek. 110 þús., einn eig. Verð
kr. 250.000 stgr.
Ford Escort
1987, ek. 97 þús. Kr. 240.000 stgr.
Einnig á staðnum m.a.:
Lada 1500 st. Arg. Stgr. 1991 Gjafverð 250.000
Renault 11 1984 190.000
Ford Sierra 1986 Útsala kr. 220.000
VWGolf 1990 540.000
Fiat Uno45 S 1987 170.000
Hyundai Pony 1994 Útsala 790.000
BMW520ÍA 1982 250.000
Mercedes Benz 1984 650.000
230E Audi 100 CC 1986 590.000
Euro og Visa
raðgreiðslur.
Skuldabréf til allt
að 36 mánaða.
Bílaumboöiö hf. Krókhálsi 1, Reykjavík, sími 876633 Bílasaian KrÓkhálSÍ, Krókhálsi 3, Sími 676833
/