Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 11.11.1994, Blaðsíða 14
14 FÖSTUDAGUR 11. NÓVEMBER 1994 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjóri: ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGOLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI 11, blaðaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI 14, 105 RVlK. SlMI (91)63 27 00 FAX: Auglýsingar: (91 )63 27 27 - aðrar deildir: (91 )63 29 99 GRÆN NÚMER: Auglýsingar: 99-6272 Askrift: 99-6270 AKUREYRI: STRANDG. 25. SÍMI: (96)25013. BLAÐAM.: (96)26613. FAX: (96)11605 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 1550 kr. m/vsk. Verð í lausasölu virka daga 150 kr. m/vsk. - Helgarblað 200 kr. m/vsk. Þetta gera menn ekki Umræðan um bamaskattana tók dramatíska en ánægjulega kúvendingu á einni svipstundu. Davíð Odds- son forsætisráðherra kom á sjónvarpsskjáinn í fyrra- kvöld og sagði einfaldlega, aðspurður um skattlagning- una: Þetta gera menn ekki. í framhaldi af þessu snaggarlega svari barst fréttatil- kynning frá flármálaráðuneytinu að skattlagning bama verði endurskoðuð á næstunni og frumvarp lagt fram á Alþingi nú í mánuðinum til að breyting geti tekið gildi um áramót. í fréttum DV á þriðjudaginn var frá því skýrt að inn- heimta á skatti af söluþóknun barna sem selja dagblöð, merki og happdrættismiða, mundi hefjast um næstu ára- mót. Hér er annars vegar um að ræða böm og unglinga sem selja dagblöð og sem taka að sér sölu á merkjum og happdrættismiðum fyrir ýmis góðgerðar- og íþróttafé- lög hins vegar. Hvorutveggja til að ná sér í vasapeninga og létta undir með heimilisrekstrinum. Frá því 1988 hafa lög kveðið á um skattskyldu af slík- um tekjum en skattayfirvöld hafa ekki gengið eftirjjeirri innheimtu og fyrrverandi hármálaráðherra, Olafur Ragnar Grímsson, hefur sagt að hann hafi á sínum tíma gefið fyrirmæli um að skattheimtan yrði látin kyrr hggja. Aðspurður gaf núverandi íjármálaráðherra, Friðrik Sophusson, þau svör að hann hefði ekki haft nein áhrif á þessa framkvæmd skattalaganna en hann teldi hins vegar eðlilegt og sanngjamt að skattar af söluþóknun væm innheimtir enda ætti jafnt yfir alla að ganga. Ráð- herrann bað síðan um utandagskrárumræðu á Alþingi til að ítreka þessa skoðun sína og spyrja Ólaf Ragnar hvort hann hefði með afskiptum sínum af máhnu reynt að hafa áhrif á að lög væm ekki framkvæmd og skattur- inn innheimtur. í viðtah við DV kom og fram að Friðrik taldi öh tormerki á að breyta lögunum og feha niður skattheimtu hjá sölubörnum. Umræðan í þinginu snerist í höndum ráðherrans. Ah- ir þeir þingmenn sem til máls tóku vom þeirrar skoðun- ar að bamaskattar af þessu tagi væru óeðlilegir. Þing- heimur vildi breyta lögunum og það strax. Haft er fyrir satt að þingflokkur sjálfstæðismanna hafi tekið undir þá skoðun. Formaður flokksins og for- sætisráðherra afgreiddi síðan máhð endanlega með snaggarlegri yfirlýsingu sinni: Þetta gera menn ekki. Þegar þessi staða lá fyrir gaf fjármálaráðherra út th- kynningu sína um endurskoðun á lögunum. Þetta em ánægjuleg sinnaskipti. Reynslan er því mið- ur sú að kerfið tekur aha jafna seint við sér og stjóm- málamenn geta verið afar svifaseinir og þverir þegar vakin er athygh á ranglæti eða seinheppnum ákvörðun- um stjómvalda. Kemur þar bæði th að embættismenn hafa thhneigingu th að festa sig í aukaatriðum og tækni- legum útfærslum og stjómmálamenn eiga erfitt með að játa á sig mistök. í þessu thviki vakti frétt DV réttláta hneykslan enda er löng hefð fyrir því hér á landi að böm vinni sér inn vasapeninga með blaðasölu án þess að skattakrumlan sé á eftir þeim smáaurum. Viðbrögðin í þinginu voru sömuleiðis sterk og eindregin og svör formanns Sjálf- stæðisflokksins og forsætisráðherra vom skjót og afdrátt- arlaus. Svona eiga formenn að vera/Engar vífhengjur, ekkert snakk. Hér hefur slysi verið afstýrt. Hér náði skynsemin að sigra' Ehert B. Schram segir m.a. i grein Gunnars. Símamynd Reuter Kjósendur hafa fengiö sig fullsadda, skilja ekki neitt í neinu Uppreisn til hægri Það er ekkert nýtt að bandarísk- ur almenningur missi traust á leið- togum sínum. Allir þeir sex forset- ar sem setið hafa á undan Clinton síðan 1963 hafa glatað trausti al- mennings, og enginn nema Reagan hefur setið full tvö kjörtímabil. En í þetta sinn er óánægja kjósenda af öörum toga. Hún beinist ekki fyrst og fremst að gerðum þess flokks sem er við völd, hún beinist að valdhöfum yfirleitt. Kjósendur eru búnir að fá sig fullsadda af pólitíkusum, þykir þeir ekkert gera af viti, allt sé á niður- leið og pólitíkusar geri ekkert ann- að en skara eld að eigin köku milli þess sem þeir níða andstæðinga sína á rætinn og persónulegan hátt. Hafi einhvern tímann verið barist í svaðinu í bandarískum kosning- um þá var það núna. Hugmyndafræði Þessi gríðarlega sveifla til hægri er ekki hugmyndafræðileg svo mjög sem tilfinningaleg og hún er ekki bundin við Bandaríkin ein. Minna má á að ráðandi flokkar hcifa nær þurrkast út í Kanada, Frakklandi, á Ítalíu, rétt héldu völdum í Þýskalandi og allt bendir til að íhaldsflokkurinn í Bretlandi tapi næstu kosningum. Alls staðar eru kjósendur að gera uppreisn gegn ríkjandi ástandi og kenna pólitíkusum um allt sem aflaga fer. Hluta skýringarinnar má rekja til þess að pólitísk hugmyndafræði dó með kommúnismanum, heim- urinn skiptist ekki lengur í svart og hvítt, og hinn gráa raunveru- leika er ekki lengur hægt að fela á bak við stór slagprð og krossferðir gegn hinu illa. í Bandaríkjunum hefur aftur á móti komið upp ný tegund af hægri stefnu, afturhalds- stefna kristilegra bókstafstrúar- manna, sem hampa því sem þeir KjaUarinn Gunnar Eyþórsson blaðamaður kalla biblíulegan sannleika á svip- aðan hátt og strangtrúarmenn múslíma hampa Kóraninum. Þetta er áhrifameira en ætla mætti á stórum svæðum, einkum í Suður- og Suðvesturríkjunum. Fjölskyldugildi svokölluð eru nýtt vígorð repúbhkana, í því felast meðal annars andstaða gegn fóst- ureyðingum, dulin andstaða gegn jafnrétti kynjanna, meira og minna opinskátt kynþáttahatur og fjand- skapur við innflytjendur. Þessu fylgir eins konar púrítanismi i fjár- málum, eins og felst í því kosninga- loforði repúblikana nú að breyta stjómarskránni, þannig að skylt verði að afgreiða hallalaus fjáriög. Öngþveiti Ekki svo að skilja að repúblikan- ar hafi ekki haft næg tækifæri til að koma sínum málum fram. Þeir hafa átt forseta í 20 af síðustu 26 ámm og á þingi hafa þeir myndað bandalag með íhaldssömum demó- krötum, sem í raun hefur getað ráðið því sem þaö vildi. Samt féll Bush 1992. En nú munu þeir ráða öllu, öllum þingnefndum og verk- efnaskrá beggja þingdeilda. Það mun þýða að Clinton mun ekki geta komið neinu sinna stefnumála í framkvæmd, allt frumkvæði mun verða hjá repúblikönum og Clinton getur ekki annað en beitt neitunar- valdinu óspart. Út úr slíku stjórnarfari hlýtur að koma öngþveiti, sem boðar ekki gott fyrir Clinton í kosningunum 1996. En í rauninni snýst þessi óánægja ekki fyrst og fremst um neinn einstakan mann eða leiðtoga. Þetta virðist vera uppreisn gegn sjálfu kerfinu. Kjósendur hafa fengið sig fullsadda, skilja ekki neitt í neinu og láta reiði sína bitna á hverjum þeim sem er í skotlín- unni. Gunnar Eyþórsson „Kjósendur eru búnir aö fá sig fullsadda af pólitíkusum, þykir þeir ekkert gera af viti, allt sé á niðurleið og pólitíkusar geri ekkert annað en skara eld að eigin köku...“ Skoðardr aimarra Útgerð og lögsaga „Norömenn hafa nú eitt sinn sannað að þeir eru frekir til fjárins og láta sér ekki allt fyrir brjósti brenna. Ég tel að miklu eðlilegra væri að ef leyfa ætti annarri þjóð veiðar innan fiskveiðilögsögu ein- hvers ríkis að slík útgerð væri í því ríki. Ef t.d. Islend- ingar fá leyfi til veiða við Kamtsjatka, þá ætti slík útgerð að vera þar, en ekki á íslandi: Sama ætti að gilda um Norðmenn á Grænlandi." önundur Ásgeirsson, fyrrv. forstj., í Mbl. 10. nóv. Enginn gæðastimpill „Svo virðist sem bæði forráðamenn fyrirtækja og íjölmiðlar líti á skráningu á Verðbréfaþingi sem ein- hvers konar gæðastimpil á fyrirtækið. Ekkert er jafn fjarri lagi. Skráning hlutabréfa á þinginu hefur ekk- ert með það að gera hvort fyrirtækin standa vel eða illa, eða hvort hlutabréf í fyrirtækjunum þykja traust eða ekki. Það eina sem gerist er að tekin er upp opin- ber skráning á gengi hlutabréfanna um leið og fyrir- tækin skuldbinda sig til að uppfylla ákveðna upplýs- ingaskyldu.“ Úr forystugrein Viðskiptablaðsins 9. nóv. Fórnarlömb launapólitíkur „Oddvitar sjúkraliða fullyrða, að ríkisvaldið ætli að brjóta baráttu þeirra á bak aftur til þess að koma í veg fyrir að aðrir hópar setji fram of miklar kröf- ur. Sjúkraliðar séu þannig fórnarlömb launapólitík- ur ríkisins; þeir verði notaðir öðrum til viðvörunar. Framganga samninganefndar ríkisins á ótal árang- urslausum fundum uppá síðkastið styður þessa kenningu. Þannig ber ríkisvaldið ábyrgð á því ófremdarástandi sem skapast mun á sjúkrastofnun- um.“ Úr forystugrein Alþbl. 10. nóv.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.