Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 25.11.1994, Blaðsíða 17
FÖSTUDAGUR 25. NÓVEMBER 1994 25 Iþróttir Jóhannes R. Jóhannesson vann heimsmeistara unglinga í snóker: „Stærsti sigur á mínum ferli“ - Jóhannes í 4-manna úrslit á HM en Kristján er úr leik „Þetta var hörkuspennandi leik- ur og ég er alveg í sjöunda himni yfir þessum árangri. Þaö er ekki á hverjum degi sem ég sigra heims- meistara í snóker og þetta er án efa stærsti sigur minn á ferlinum til þessa,“ sagði Jóhannes R. Jóhann- esson í samtali við DV í gærkvöldi. Jóhannes sigraði Quenten Hann frá Ástralíu í gær í 8-manna úrslit- um á HM áhugamanna í snóker en Hann þessi er nýbakaður heims- meistari unghnga. Kristján Helga- son tapaði viðureign sinni í gær en hann mætti keppanda frá Pakistan og lauk viðureign þeirra 3-5. Jóhannes er þar með kominn í undanúrsht á heimsmeistaramót- inu en hann sigraði Quenten Hann, 5-3. „Ég komst í 2-0 og var síðan 4-2 yfir. Næsta ramma tapaöi ég naumlega á svörtu kúlunni og stað- an því 4-3 en lokarammann vann ég örugglega," sagði Jóhannes sem er eini Evrópubúinn sem keppir í undanúrshtunum. Kristján byrjaöi vel í sínum leik, komst í 2-1 og 3-2 en tapaði síðan þremur síðustu römmunum og er úr leik. Geri mitt besta Jóhannes mætir mjög sterkum andstæðingi í dag en það er Tæ- lendingur sem heitir Kuntawung en honum er spáð sigri á mótinu og hefur unnið alla andstæðinga sína frekar auðveldlega. Róðurinn verður þvi þungur hjá Jóhannesi í dag en sá kemst í úrshtaleikinn sem fyrr vinnur 8 ramma í stað 5 fram að þessu. „Þetta verður mjög erfitt en ég mun gera mitt besta,“ sagði Jóhannes í gærkvöldi. Borga allt sjálfir Árangur þeirra Jóhannesar og Kristjáns er frábær og besti árang- ur íslenskra snókermanna erlendis hingað til. Þeir hafa æft mjög vel undanfarið og árangurinn hefur þegar skilað sér. En ferðalagið til Suður-Afríku er dýrt og þeir félag- ar hafa þurft að greiða allan kostn- að vegna fararinnar á HM úr eigin vasa. Kostnaður hvors um sig nem- ur á bilinu 150-200 þúsund krónum. „Auðvitað er það erfitt að þurfa að greiða þetta allt sjálfur en ég hef notið mikillar velvildar vinnuveit- anda míns, Eiríks Sigurðssonar í verslununum 10-11, og það hefur hjálpað mér mikið.“ Atvinnumennskan freistandi Nú er ljóst aö Jóhannes mun í það minnsta hafna í 4. sæti á mótinu í S-Afríku og að hans sögn á það sæti að gefa honum tækifæri í at- vinnumennsku: „Ég kem heim til íslands eftir mótið og mun hugsa þetta mál vandlega. Atvinnumennskari freistar vissulega mikið. Það er þó mjög dýrt að byrja í atvinnu- mennskunni. Ég reikna með áð það muni kosta mig um 3-500 þúsund krónur," sagði Jóhannes. • Jóhannes R. Jóhannesson, til vinstri, og Kristján Helgason. Árang- ur þeirra á heimsmeistaramótinu i snóker hefur vakið mikla og verð- skuldaða athygli. DV-mynd Hson íslendingarnir gera það gott í Portúgal - sveit GR15. sæti á Evrópumóti félagsliða í golfi Pacers jandaríska körfuknattleiknum í nótt. Indi- ■ðu 123-96. Hollendingurinn Rik Smits var nest, alls 21 stig. Indiana er efst í miðriðli ur unnið sjö leiki en Phoenix Suns er þar í ði sig ekki mikið í frammi í leiknum í nótt. :nir 23 leikir, tæplega helmingur þeirra fer naramálin: lögunum rana til? ur. „En gáðu að, sóknarmaður sem ekki hittir markið eða markvörður sem sleppir inn bolta, eru það ekki mistök? Venjulegast er afsökunin sú að hann eða hinn hafi ekki verið í formi, átt slæman dag, mætt óvænt mótstöðu eða ekki verið kominn í rétt leikform. Ná- kvæmlega það sama gildir um dómara. Þeir þurfa að sjá allt, heyra allt og gera allt rétt. Og þeir reyna, þeir eiga að gæta hlutleysis, láta hvorki leikmenn, þjálfara né áhorfendur hafa áhrif á störf sín. Þetta er vandasamt og ábyrgðar- fullt. En þeir eru mannlegir eins og yið hin og geta gert sín mistök. Kannski éru þeir einfaldlega ekki betri en þetta. Er sökin þá ekki hjá félögunum sem leggja þá til?“ spyr Ólafur B. Schram. Kvennakarfa: Breiðablik enn taplaust Ingibjörg HmrQcsdóttir skrifer Breiðablik er enn taplaust í 1. deild kvenna en Blikastúlkur sigruöu Grindavík í Smáranum í gær, 80-71, staðan í hálfleik var 42-34. Leikurinn var harður, hraður og spennandi á að horfa. Bhkarn- ir byrjuðu betur en um miðjan fyrri hálfleik jöfnuðu Grindvík- ingar, 13-13, og komust síðan yf- ir, 17-25. Þá bættu Blikarnir í og voru 9 stigum yfir í hálfieik. Grindvikingar komu ákveðnir til síðari hálfleiks og jöfnuðu, 49^19, en lentu í villuvandræðum og Bhkarnir unnu aftur upp það 9 stiga forskot sem þeir höfðu í hálfleik. „Þær komu brjálaðar til leiks enda unnum við þær í Grindavík og þær hafa senniiega ekki viljaö tapa fyrir okkur tvisvar,*' sagðí Erla Hendriksdóttii', leikmaður Breiðabhks, eftir leikinn, Penni Peppas var stigahæst í höi Breiðabliks með 37 stig, Hanna Kjartansdóttir skoraöi 16 og Erla Hendriksdóttir 9. Anna Dís Sveinbjörnsdóttir var allt í öllu í liði Grindavíkur og skoraði 30 stig, en hún þurfti að fara út af með 5 villur þegar tæpar 8 raínút- ur voru til leiksloka. Sveit Golfklúbbs Reykjavíkur er í 5. sæti eftir tvo daga á Evrópumóti félagshða í golfi en mótið fer fram á Vhamoura golfvellinum í Portúgal. Sveit GR sigraði í sveitakeppninni hér heima í sumar og ver því heiður íslenskra kylfinga á mótinu. íslenska sveitin er á 298 höggum og aðeins fimm höggum á eftir Skot- um sem eru í 1. sæti á 293 höggum. Danir eru á 295 og Frakkar og Spán- veijar á 296. Næstir á eftir íslending- unum eru írar og Norðmenn á 301 höggi, Portúgahr á 303 höggum, Sviar á 304 og Englendingar á 308 höggum. Sigurjón Arnarsson hefur leikið á 73 og 74 höggum, Þorkell Snorri Sig- urðsson á 76 og 75 og Sigurður Haf- steinsson á 82 og 79 höggum. Alls taka 22 þjóðir þátt í mótinu. Sigurjón Amarsson hefur leikið mjög gott golf það sem af er og er hann í 7. sæti í einstaklingskeppni mótsins. Larus Orri til Stoke „Við höfum komistað samkomu- lagi við Stoke um að Lárus Orri gangi til liðs við félagið,*' segir Kristján Kristjánsson, formaður knattspymudeildar Þórs á Akur- eyri. Þar með virðist lokið þeirri óvissu sem rikt hefur um málefni Lárusar Orra Sigurðssonar aö und- anfbmu. Hann hélt utan í morgun til að ganga frá samningi sinum viö Stoke og mun því væntanlega leika við hlið Þorvaldar Örlygssonar áð- ur en langt um líður. Lárus Orri æfði meö hðinu í 3 vikur og var þá boðinn samningmr ; en samningar tókust ekki i þeirri lotu og á tímabili virtist málið vera úr sögunni.. í vikunni settu Stoke-menn sig í samband viö Þór, félag Lárusar, og náðu samkomulagi við liðið og í kjölfari lá beinast fyrir Láms Orra að halda utan og ganga frá samn- ingi sem að honum lýtur.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.