Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 26.11.1994, Blaðsíða 37
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER 1994 45 Sérstæð aukabúgrein í Önundarflrðinum: Elísabet Pétursdóttir býr til seli úr ekta skinni til aö stytta sér stundir dimmustu mánuði ársins og hefur þar með komið sér upp sérstæðri aukabúgrein. DV-mynd GVA Hafnarfjarðarbær - Lóðir Hafnarfjarðarbær hefur lóðir til úthlutunar og afhendingar nú þegar: íbúðarhúsalóðir í Mosahlíð, á Hvaleyrarholti og víðar. Atvinnulóðir í Hellnahrauni og á Hvaleyrarholti. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu bæjarverkfræð- ings, Strandgötu 6. Umsóknum skal skilað á sama stað eigl síðar en þriðjudaginn 6. desember nk. Eldri umsóknir ber að endurnýja eða staðfesta. Bæjarverkfræðingur LÁTTU EKKI OF MIKINN HRAÐA VALDA ÞÉR SKAÐA! Mest seldu amerísku dýnurnar Marco HÚSGAGNAVERSLUN Langholtsvegi 111, sími 680 690. Býr til seli úr ekta selskinni „Mig langaði til að gera eitthvað meðfram bústörfunum enda lítið um að vera í sveitinni á vetrum og stöðugt verið að klípa af okkur kvóta. Ég er bóndi á Sæbóli II á Ingjaldssandi í Önundarfirði. Það er mjög langt frá þéttbýbnu og því kom ekki til greina að hlaupa á annan stað í vinnu,“ segir Elísabet Pétursdóttir sem hefur náð góðu lagi við að búa til minjagripi úr selskinni. Elísabet segist hafa veriö mikið fyrir handavinnu alla sína tíð og því hafi legið beinast við að leita sér að starfi sem tengdist því áhugamáb. í fyrstunni hafi hún verið aö dunda við annars konar skinn en það hafi ekki gengið nógu vel. „Ég hafði hugsað mér að flá sauðalappir og nota skinnið af þeim í litlar buddur eða nælur en það var mjög seinlegt og erfitt að verka skinnið. Ég fór síðan á fund á ísafirði þar sem Ámi Snæbjörnsson hjá Bún- aðarfélagi íslands var að sýna sel- skinn og fékk prufur hjá honum. Úr þessum prufum bjó ég til sýnis- hom af selunum og lá síðan með þau heima hjá mér í marga mánuði og gerði ekkert til að koma þeim í sölu. í fyrravor kom ég til Reykjavíkur og kannaði máhð betur og þá fór þetta í gang hjá mér,“ segir Ehsa- bet. „Ég hafði þá aftur samband við Árna og sýndi honum og Eggert feldskera það sem ég hafði verið að gera og þeim leist mjög vel á. Það var eiginlega Eggert sem ýtti á mig að halda áfram við þetta en ég fæ skinnin hjá honum. Selina bý ég til í þremur stærðum og sá stærsti er 45 sm en hann geri ég einungis eftir pöntun. Úr af- göngunum bý ég síðan til htla skó og eyrnalokka. Ég seldi seh í Hús- dýragarðinum í sumar, Eggert er með nokkra og einnig hef ég selt þá á Isafirði, Þingeyri og Flateyri. Þaö kom skemmtiferðaskip til Isa- fjarðar í sumar og þá seldust heil- margir af miðstærðinni en minnstu selimir hafa verið vinsælir til að senda fólki sem vinargjaflr til út- landa. Ömmur hafa líka keypt handa bamabörnum sínum þvi börn virðast vera mjög hrifin af selunum," segir Elísabet. Mikh vinna hggur að baki hverj- um sel og segir Elísabet að þetta sé mikið nákvæmnisverk auk þess sem hráefniskaup séu dýr. Selur- inn er allur handunninn en augu og nef kaupir hún frá Danmörku. Höggvið á kvótann „Það er alltaf verið að höggva á kvótann hjá okkur í sveitinni og maður liflr ekki af landbúnaði nema hafa eitthvað með. Við búum mjög afskekkt og erum lokuð inni í að minnsta kosti sex mánuði á ári. Það er fámennt í kringum okk- ur; móðursystkin mín búa á Sæ- bóh III, en næsti bær, Hraun, fer í eyði eftir áramótin. Þá verða aðeins tveir bæir eför í sveitinni og ef ég gefst upp þá fer aht í eyði og þaö ætla ég ekki að láta gerast,“ segir Ehsabet. Hún segir að selagerðin sé skemmtilegt starf vegna þess aö ekkert dýr verði eins. „Sehrnir eru misfríðir og skinnin em aldrei eins. Veturinn er oft dauður tími og þetta styttir manni stundir," bætir hún við. Elísabet og maður hennar era með 250 ærgildi, einá kú fyrir heim- ihð og kálfa þannig að búið er ekki stórt. Þau eiga eina dóttur sem er viö nám á Hvanneyri. „í framtíð- inni langar mig aö hengja á sehna mína upplýsingar um þetta dýr, t.d. um muninn á útsel og landsel og hvað þeir borða mikinn fisk á hveijum degi og-þess háttar," segir þessi duglega bóndakona. OPNUM [ DAC m.a. með eftirtalin vörumerki: Sjónvarpstœki Hljómtœki Myndbandstœki Ferðatœki OFISHER Myndbandstœki Hljómtœki Ferðatœki AKAI Sjónvarpstœki Myndbandstœki Hljómtœki Ferðatœki GRUnDIG Sjónvarpstœki Myndbandstœki Hljómtœki TENS21I Sjónvarpstœki Ferðatœki Utvarpsvekjarar Geislaspilarar Cö RIOIXIŒER Hljómtœki Sjónvarpstœki Geislaspilarar Sjónvarpstœki Myndbandstœki Hljómtœki Ferðatœki ^AudioSonic Ferðatœki Vasadiskó Ú tvarpsvekjarar Sjónvarpstœki nesco bosch Ferðageislatœki GSM farsímar SKC Myndbandskassettur Hljómkassettur Opið pessa helgi og afsláttartiiboð í gangi laugardag og sunnudag 1 .llllll I It III V ítengslumvið Poteri* cuHjiairr eldföstu mótummi aðeins þessa helgi: 20% afsláttur af 20% afsláttur af ^ íinCl0Sir kæliskápum 20% afsláttur af 9 EFAL raftækjum og pottum 20% afsláttur af Ébrabarrtiá snávörum fyrir heimilið — nýju vörunni, sem kynnt er í fyrsta skipti Opið laugardag frá kl. 10-17 Opið sunnudag frá kl. 13-17 B R Æ Ð U R N I R ORMSSONHF Lágmúla 8, Sími 38820
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.