Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.1995, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 25. JANÚAR 1995 25 DV Heimasíða Miðheima hf. i Tæknigarði. Notendur hafa fjóra flokka til að velja um; Vefarann, Gráu síðurnar (World Wide Web), íslenskt líf og Fólk. Fleira er það sem tölvunotendur komast ekki upp með á Internetinu. Ekki er hægt að senda fólki keðju- bréf eða auglýsingar sem það hefur ekki beðið um. Róbert bendir á að hægt er að biðja viðtakendur bréfa eða skjala að kvitta fyrir sendinguna. Tölvufundir framtíðin En hver er framtíð Internetsins? Róbert segir að innan skamms tíma verði flestir tölvunotendur komnir með hljóðkort og geisladiskadrif, enda skammt í að slíkir hlutir verði „standard“-búnaður með tölvum. „Við erum að tala um búnað sem nefnist voice-mail og býður upp á tjá- skipti í tali og tónum um Internetið. Þetta er mjög vinsælt nú þegar í Bandaríkjunum," segir Róbert. Enn fremur verður þess ekki langt að bíöa að tölvunotendur heimsálfa á milli getið séð hvor annan á skján- um og haft samskipti þannig. Hér er átt við video-conferencing eða tölvu- fundi. Miðað við stöðu tæknimála á íslandi í dag er þetta ekki hægt þar sem Internetið fer til íslands á einni 128 Kb línu um gervihnött. Hraðvirk- ari og betri línu með meiri bandvídd vanti og telja Arnþór og Róbert að forráðamenn Pósts og síma verði að fara „að vakna til lífsins". „Þetta er stóra málið. Ef við ætlum að vera með í þróuninni verðum við að vera með núna. Það verður ekki aftur snúið. Þróunin er svo hörð að við verðum alltaf langt á eftir ef við afhöfumst ekkert. Það dettur engum í hug að horfa á beina útsendingu á Interneti af tónleikum Rolling Stones með 1-2 ramma á sekúndu í svart- hvítu,“ segir Arnþór. Róbert segir að hefði verið gerð könnun fyrir einu ári síðan hefði varla nema 1% svarenda vitað hvað Internet væri. í dag myndi hlutfallið verða allt annað og hærra. „Það eiga mun fleiri eftir að nýta sér Internetið og notkunin á eftir aö verða margfalt ódýrari,“ segir Ró- bert. í víking í annað sinn Arnþór segir aö nú sé tækifæri fyr- ir þjóðina „að leggjast í víking í ann- að sinn“. Internet væri að verða helsti vaxtarbroddurinn í atvinnulíf- inu með tengingu við helstu atvinnu- greinamar. Möguleikar á viðskipt- um við útlönd væm óteljandi í gegn- um netið. Jafnframt gætu fyrirtæki aukið viðskipti sín innanlands með því að bjóða þjónustu sína á Inter- neti. Dæmi um slíkt er Bóksala stúd- enta. Hún var fyrsta íslenska versl- unin til að hagnýta sér Internetið. Þar geta tölvunotendur keypt bækur, hvar sem þeir em staddir á landinu, svo ekki sé minnst á námsmenn er- lendis. Annað dæmi um notkunarmögu- leika innanlands á Intemetinu er Alþingi. Nú eru allar upplýsingar um núverandi þingmál og frumvörp komnar á netið auk upplýsinga um alla þingmenn með myndum og ræðusýnishornum með hverjum þeirra. Skjámynd sem blasir við þeim sem ná sambandi við upplýsingabanka Hvíta hússins i Washington um Veraldarvefinn á Interneti. Tækni - tölvur Windows 95 með Intemet Windows 95 er næsta meiri hátt- ar uppfærslan af Windows forrit- unum og er væntanleg í sumar. Nú er orðið ljóst að Microsoft ætlar að láta Mosaik-hugbúnað fyrir Int- ernet-tengingu fylgja með. Óhætt er að segja að mikil eftirvænting hefur ríkt eftir næstu útgáfu Windows alveg frá því 3.1 var hleypt af stokkunum fyrir nokkr- um árum. Miklar vangaveltur hafa verið um stýrikerfið nýja og þ.á m. hvernig Microsoft ætlar að bregð- ast viö hinum geysimikla áhuga á Interneti. Nú nýlega keypti Micro- soft réttindi af fyrirtækinu Spy- Glass til þess að láta Mosaik forrit fylgja með. Sem kunnugt er er Mosaik notað til að hafa aðgang að þeim hluta Internetsins sem geng- ur undir nafninu World Wide Web, eða Veraldarvefnum. Óhætt er að halda því fram aö þetta framtak Microsoft auki enn áhugann á Int- ernetinu og mikilvægi þess meðal hins almenna tölvunotanda. IBM hefur meö RAMAC Arrey andiúppsetningumafRAID-5tækj- „íjölskyldunni" kyrrnt til sögunnar um, þ.e. RAMAC Array 9394 sem nýja kynslóð beintengdra geymsl- er með innbyggðri stýrieiningu og umiðla þar sem notaðir eru hrað- RAMAC Array 9391 sem tengist virkir RAID-5 disklingar. Þessum 3990 stýrieiningu. Bajði tækin eru búnaði er ætlað að mæta auknum hugvitsamlega hannaðir skúffu- kröfum viðskiptaiífsins um vinnslu rekkar með háþróuðum, sjálfstæð- semtreystaþarfáallansólarhring- um RAID-5 disklingum sem hver inn. um sig fær afl frá sérstökum RISC- RAMAC Arrey „fjölskyldan" örgjörvum. samanstendur af tveimur mismun- Skrifstofuforritið Vaskhugi Vaskhugi sér um alla helstu þætti skrifstofuvinnu. Auk sölukerfis og fjárhagsbókhalds hefur Vaskhugi launabókhald og verkefnabókhald, sér um pantanir, birgðir, viðskiptamenn (eða félagsmenn), lánsút- reikninga, víxlaútprentanir og margt fleira. Allir þættirnir vinna sem ein heild og þarf því aldrei að tvífæra neitt. Engar takmarkanir eru á færslufjölda. Vaskhugi er lausn á skriffinnskunni. í árslok (eða hvenær sem er) prentar hann sölusögu, efnahags- reikning, rekstrarreikning fyrir hvaða tímabil sem er og ótal aðrar skýrslur. Fimm ára reynsla - Þúsund notendur Hagstætt verð - Góð þjónusta. ^V^^Vaskhugi hf. Grensásvegi 13 - Sími 568-2680 Optiskir diskar Data segulbönd ENDURSKRIFANLEGIR DC-6XXX 1/4" 3,5" - 5,25" STÆRÐ 1 28-650 MB DC-600 TIL DC-6250 PASSAR í ALLAR GERÐIR STÆRÐ 60-525MB OPTICAL DRIFA FYRIR ALLAR 5,25" STÖÐVAR Data segulbönd DC-9XXX 1/4" DC-91 20 TIL DC-9250 STÆRÐ 1 ,2-2,5 GB FYRIR IBM AS-400 O.FL. Data segulbönd DAT - 4mm HS 60-120M STÆRÐ 1 ,3-2,6 GB FYRIR DAT STÖÐVAR DlSKLINGAR 3,5" OG 5,25" Allar stærðir OG GERÐIR SUÐURLANDSBRAUT 46, 3. HÆÐ - 108 REYKJAVÍK SÍMI 581-1022 FAX 581-1033 ---------------------------------------------------------------------- BÆÐI ÓDÝRT OG data segulbönd DAT - 8MM HS 1 1 2M STÆRÐ 2,5 - 5 GB FYRIR EXAB 8MM DRIF DATA SEGULBÖND DC 2120 QIC DC-21 20 QIC FORM STÆRÐ 60 - 1 20MB

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.