Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1995, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.1995, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 2. MARS 1995 Fréttir DV Dregið úr flárveitingu til heilbrigðismála: Uppsagnir og samdrátt- ur hjá sjúkrahúsunum - óhjákvæmilegt að draga úr þjónustu, segja forstöðumenn sjúkrahúsanna „Vegna niöurskurðar á fjárveiting- um, sem nemur um 125 milljónum króna á þessu ári, verðum við að draga verulega saman seglin. Niður- skurður á launaiið er á milli 40 og 50 milljónir króna og því verðum við að fækka starfsfólki sem nemur 40 stöðugOdum. Það verður gert með þvi að ráða ekki í störf sem losna. Það mildar nokkuð þessar aðgerðir. Hins vegar neyddumst við til að segja upp 10 manns um mánaðamótin," sagði Jóhannes Pálmason, fram- kvæmdastjóri Borgarspítalans. Hann er hér að tala um Sjúkrahús Reykjavíkur sem er Landakot og Borgarspítahnn. Hann sagði að reynt yrði að dreifa niðurskurðinum á alla þætti í rekstri sjúkrahúsanna. Hann sagði að þetta yrði gert í ákveðnum hlutfollum milli rekstrarþátta. Það teldu menn koma betur út og vera minni skerð- ing á þjónustu en að loka einhveijum deildum. „Viö þurfum að skera niður sem nemur 250 til 300 milljónum króna. Við höfum ekki gripið til uppsagna en við munum skera mjög niður í afleysingastörfum í sumar. Við erum að skera niður á öllum sviöum eins og við mögulega getum. Það þýðir auðvitað lokun einhverra deilda og minni þjónustu en ella,“ sagði Davíð Á. Gunnarsson, forstjóri Ríkisspítal- anna, í samtali við DV. Hann sagðist ekki þora að fullyrða að komist yrði hjá uppsögnum. Reynt yrði fyrst að spara á öðrum sviðum og þá sem fyrr segir í sumarafleys- inginn. „Við eigum að vísu eftir að fá um þaö nánari fyrirmæli frá heilbrigðis- og fjármálaráðuneytum hvað menn vilja langt í þessum samdrætti," sagði Davíð Á. Gunnarsson. Jönköpingmálið: Gatenga skýringu gefiðá háttemi sínu „Maðurinn gat enga skýringu gefið á háttemi sínu um kvöldið og mundi reyndar minnst af því sjálfur sem hafði komið fyrir. Hann er í jafnvægi núna og rámar 1 aö hafa verið boðið inn til konunnar sem býr á móti hon- um. Bæði búa þau í leiguhúsnæði. Hann var drukkinn þegar hann var handtekinn og háttemi hans gaf til kynna að hann hefði neytt annarra vimuefna," segir John Henrik Stigemir, yfirmaður rannsóknarlög- reglunnar í Jönköping. Akvörðun saksóknara lá ekki enn fyrir í morgun um hvort krafist yrði gæsluvarðhaldsúrskurðar yfir manninum sem lagði tvær íbúðir í Jönköping í Svíþjóð í rúst og hótaði konu lífláti með hníf á lofti. Hann verður þó í haldi í dag. Við yfirheyrslur sagði konan, sem maðurinn réðst á, að þau hefðu drukkið vín og sterkan bjór og síðan hefði maöurinn tekið inn róandi lyf. Maðurinn komst yfir flösku í íbúð konunnar sem Stigemir sagði að hefði ekki innihaldið vín heldur sterkt áfengi blandað einhverju. Innihald flöskunnar var sent í efna- greiningu í gær og lá niðurstaöa hennar ekki fyrir í morgun. íbúðin, sem maðurinn bjó í, er gjör- samlega í rúst. Hún er í eigu annars íslendings sem ekkert vildi tjá sig um málið þar sem leigjandinn var vinur hans. Ekki er vitað til þess að maöurinn, sem missti stjóm á skapi sínu með þessum afleiðingum, hafi fyrr gert það né komið við sögu lög- Þrír ungir sveinar brugðu undir sig betri fætinum í gær á öskudaginn og klæddust gervi ræningja í Húsdýragarðin- um. Tveir þeirra voru heldur glæpalegir og brugðu nælonsokk yfir höfuöið og báru merki og töskur frá Skeljungi. Nöfn liggja ekki fyrir en skyldi rannsóknarlögreglan vita af þessu? DV-mynd BG Ellilífeyrisþegi fékk milljómr í GuUpotti: Ætlar að kaupa bfl fyrir peningana reglu. Hann mun hafa flutt til Sví- þjóðar fyrir um mánuöi. -PP „Hann var að spjalla við okkur í klukkutíma og ákvað að eyða 2.000 kalli. Hann fór i kassa sem heitir Þú getur svaraö þessari spurningu meö því aö hringja í síma 99-16-00. 39,90 kr. mínútan. já iij We/ Sl r ö d d FÖLKSINS 99-16-00 Hefur Norðurlandaráð enn hlutverki að gegna? Alllr i statræna kerflnu m»t t6n»al»»lma gata nýtt »ér þ«««« þjftiustu. Davið Oddsson og fékk 287.450 krón- ur úr honum. Hann gleymdi náttúm- lega búðarferðinni og náði í pening- ana en kom aftur til að segja okkur að hann hefði fengiö þetta borgað út og ákvað að skipta 600 krónum í við- bót. Hann setti þær í annan kassa og fékk 8.049.000 krónur. Karlgrey- inu bara dauðbrá,“ segir Magnús Halldórsson, veitingamaður í Ölveri í Reykjavík. Ellilífeyrisþegi á níræðisaldri þurfti aö skjótast í 10/11-búðina í Glæsibæ skömmu eftir hádegi á þnðjudag. Maöurinn er málkupnug- úr veitingamönnunum í Ölveri og fór þangað í kaffisopa. Eftir klukkutíma stopp setti hann peninga í spilakassa og hafði silfurpottinn upp úr krafs- inu. Maðurinn fór og leysti pening- ana út og kom aftur til að fara 1 búð- ina og láta kunningja sína vita að hann væri búinn að jafna sig. í leiö- inni fór hann í spilakassann Ross Perot, sem heitir eftir bandarískum ■ forsetaframbjóðanda, og hafði átta milljónir í vinning. „Hann hafði orð á þvi að hann ætl- aði að kaupa sér nýjan bíl úr kassan- um í fyrsta skipti því það væri svo mikið viðhald á tíu ára gömlum bíl sem hann á. Hann sagöist aldrei ætla að koma nálægt spilakössum meir. Hann væri allt í einu orðinn svo nísk- ur eftir að hafa unnið allar þessar milljónir," segir Magnús. Gullpotturinn hefur aldrei áður komið upp í spilakassa í Ölveri en 56 silfurpottar hafa gengið þar út. Það er rúmlega 12 prósent af öllum silfurpottum sem hafa komið upp í spilakössum frá því spilakassarekst- ur Gullnámunnar hófst. Skíöasvæöið í Bláfjöllum: í athugun að sprengja hengjurnar - segir fólkvangsvöröurinn „Það er í athugun hvort hægt er að sprengja niður hengjurnar eða með hvað hætti er hægt að bægja hættunni frá. Snjóflóðasérfræðingur Veðurstofunnar er að skoða það ásamt okkar mönnum til hvaða ráða sé hægt að grípa,“ segir Þorsteinn Hjaltason, fólkvangsvörður á skíða- svæðinu í Bláfiöllum. Lokað hefur verið ótímabundið tveimur svæðum innan skíðasvæöis- ins vegna snjóflóðahættu. Þau eru sunnan við topplyftu Ármanns og í Eldborgargili og verða lyftur ekki keyrðar þar. Þorsteinn segir snjóflóð sem féll innan svæðisins hafi orðiö til þess að menn hafi endurmetið öryggis- þáttinn á svæðinu. „Eftir að snjóflóðið féll eftir hádegi á sunnudag -verðum við aö reikna með að hætta sé á ferðum þar sem við höfðum áöur talið að öryggi væri tryggt. Aðalatriðið er aö tryggja ör- yggi fólks á svæðinu," segir Þor- steinn. -rt Stuttarfréttir HættíráPóstinum Páll Magnússon hefur sagt upp störfum sem annar ritstjðri Morgunpóstsins. Um leið hættu tveir blaðamenn einnig. harðar refsiaögeröir Evrópusam- bandsins ef síjómvöld sam- þykkja ekki tilskipun sambands- ins um takmörkun vinnutíma. Stöð 2 greindi frá þessu. Lán til álvers Sighvatur Björgvinsson iðnað- arráðherra hefur rætt við Jón Sigurösson, bankasljóra Nor- ræna fiárfestingarbankans, um lán til stækkun álversins í Straumsvík. Frjálsræðiiflugi Lokahönd verður lögö í dag á samninga milli íslands og Banda- ríkjanna um frjálsræði í flugi. Þetta kom fVam á Sjónvarpinu. Leiðtogi danskra íhaldsmanna segir að Norðurlandaráðsþingið í Reykjavík sé algjörlega mis- heppnað.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.