Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 11.04.1995, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 11. APRÍL 1995 nn Er Eggert Haukdal sveitalubbi? Þeim tókst að keyra mig út Höfuömál efstu manna á lista Sjálfstæðisflokksins var að keyra mig út. Það má segja að það sé árangur hjá þeim að losna við sveitalubbana." Eggert Haukdal f DV. Við sigruðum „Það er allt sigur hjá Þjóðvaka. Við lögðum upp með ekki neitt. Hvert atkvæði okkur greitt er því sigur.“ Ásta R. Jóhannesdóttir j DV. Komnir á mölina „Þetta þýðir einfaldlega það að Framsóknarflokkurinn er kom- inn á mölina og hann er ekki lengur sérstakur dreifbýlisflokk- ur.“ Finnur Ingólfsson i DV. Ummæli Stefnulaus flokkur „Það vekur undrun mína að stefnulaus flokkur, eins og Fram- sóknarflokkurinn er, skuli vera búinn að ná eins langt og raun ber vitni." Ásta B. Þorsteinsdóttir i DV. Rotturnar flýja sökkvandi skip „En hvað varðar úrslitin þá veit ég ekki hver kaus hvað, rottumar flýja reyndar sökkvandi skip.“ Elin Antonsdóttir i DV. Kjötið verði snobb „Eina vitiö er að selja vömna dýrt og gera kjötið að hreinasta snobbi meðal Bandaríkja- manna." Gunnar Bjarnason um islenska nauta- kjötið í Mánudagspóstinum. Mesta birtan sem birtist á himin- hvolfinu er frá sprengistjörnum. Sprengistjömur Bjartasta stjama sem nokkur maður hefur augum litið frá þvi sögur hófust er taliij, hafa verið sprengistjaman SN 1006 í nánd við Beta Lupi. Þetta var í apríl 1006 og blossaðj hún í tvö ár. Leif- ar hennar em taldar vera út- varpsbylgjuuppsprettan G.327,6 + 14,5 í nærri 3000 Ijósára fjar- lægð. Aðrar sprengistjömur sem blossað hafa upp og vitað er um Blessuð veröldin sáust árin 1054, 1604, 1885 og nú síðast 1987 þegar Ian Sheldon kom auga á stjömu þá sem nefnd er -69,202 í Stóra Magellanskýinu í 170.000 ljósára fjarlægð. Sú stjama sást með beram augum í maí 1987. Margt þykir benda til þess aö tifstjaman sem tíl varð við sprenginguna snúist 1968,629 sinnum á sekúndu, sem er nálægt hámarkinu 2000, en við þann snúning er talið að tifstjama splundrist. Svo er að sjá sem um þessa tifstjömu gangi hnöttur á stærð við Júpíter, sem gæti hafa orðið til við sprenginguna. Rigning, slydda og snjókoma í dag verður norðaustan og austan kaldi eða stinningskaldi með rign- ingu sunnan- og austanlands en snjó- Veðrið í dag komu eða slyddu norðan- og norð- vestanlands í fyrstu en gengur síðan í norðaustan og norðan stinnings- kalda með slyddu eða snjókomu norðanlands en léttir til syðra. I kvöld lægir um allt land en aftur vaxandi sunnan átt og rigning suð- vestanlands í kvöld og nótt. Hiti frá 5 stigum í 3 stiga frost. Á höfuðborg- arsvæðinu léttir til síðdegis. Vaxandi sunnan- og suðaustanátt og rigning þegar líður á kvöldið en hvass sunn- an og súld eða rigning í nótt. Hiti frtá 4 stigum í 1 stigs frost. Sólarlag í Reykjavík: 20.48 Sólarupprás á morgun: 6.08 Síðdegisflóð í Reykjavík: 15.50 Árdegisflóð á morgun: 3.16 Heimild: Almanak Hóskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyrí alskýjað 0 Akumes rigning 5 Bergsstaöir úrkoma í grennd 0 Bolungarvík snjóél -1 Keda víkurflugvöllur rigning 2 Kirkjubæjarklaustur rigning 2 Raufarhöfn þoka 1 Reykjavik rigning 3 Stórhöfði rigning 4 Helsinki snjókoma 0 Kaupmannahöfn súld 4 Stokkhólmur hálfskýjað 3 Þórshöfn skýjað 8 Amsterdam þokumóða 7 Berlín rigning 3 Feneyjar þokumóða 5 Frankfurt rigning 8 Glasgow skýjað 9 Hamborg þokumóða 7 London mistur 6 Lúxemborg þokumóða 6 Mallorca þokumóða 7 Montreal heiðskirt -1 Nice hálfskýjað 9 París þokumóða 5 Róm skýjað 9 Vín snjókoma 1 Washington alskýjað 8 Winnipeg skýjað -3 vim eni Ægir Már Kárasan, DV, Suöumesjum: „Ég er búinn að vera það mikið í tengslum við leikmennina og fólk- iö í Njarövík að það verður erfitt fyrir mig að fara héðan. Ég á eftir aö sakna fólksins mikið, enda margir orðnir góðir vinir mínir Ég á orðið fleirí vini hér en heima í Bandaríkjunum. Það eiga eftir að falla tár þegar ég verð kominn um borð í flugvélina," segir Rondey Robinson, einn snjallasti útlend- ingurinn í körfuboltanum sem hef- ur spilað hér á landi, en hann varð íslandsmeistari með liði sínu, Njarðvík, um síðustu helgi Rondey hefur ákveðið að hætta að leika hér á landi eftir að hafa leikið með Njarðyíkurliðinu síð- astliöin fimm ár. Á þessu tímabili hefur hann þrisvar orðið íslands- meistari og einu sinni bikarmeist- ari. Hann segir að sjálfsagt hefði Rondey Robinson. hann verið lengur ef Njarðvik heföi ekki unnið titilinn í ár: „Það er mun auðveldara að yfirgefa liðið á toppnum. Ef við heföum ekki náð að klára dæmið i ár hefði ég hugsað mig tvisvar um að hætta. Nú man fólkið eftir glæsilegri frammistööu okkar og þá er auðveldara að fara.“ Rondey vill ekki útiloka þaö að hann komi hingað aftur en segir það öruggt aö hann rauni ekki leika hér á landi næsta keppnistímabil. „Ég verð 28 ára í næsta mánuði, kominn er timi að reyna fyrir mér annars staöar í Evrópu áður en ég verö orðinn of gamall." Rondey segist ákveöinn að mennta sig meira. „Ég er búinn að klára fjölmiðlanám og í framtíðinni langar mig til að starfa sem íþrótta- fréttamaður en þótt ótrúlegt megi virðast hef ég einnig áhuga á að stafa sem lögreglumaður í heima- borg minni, Chicago." Liö Rondeys í NBA-deildinni er að sjálfsögöu Chicago Bulls en auk körfuboltans hefur hann mjög gaman af að veiða og hefur tvisvar farið að veiða hér á landi. Hann segir þaö erfitt fyrir sig að tala ís- lensku og telur hana erfitt tungu- mál en skilur málið nokkuð vel í dag. Myndgátan Myndgátan hér aö ofan lýsir nafnorði Páskasýning 29 listamanna Páskarnir og andi þeirra era undirtónninn á myndlistarsýn- ingu sem stendur yfir í Galleríi Sævars Karls í Bankastræti 9 Alls taka 27 myndlistarmenn þátt í þessari samsýningu, en þeir hafa allir verið með einkasýni- ingu í gafieriinu á undanförnum fimm árum. Hver listamaöur sendir eitt verk á sýninguna. Þeir upplifa páskana hver með sínum hætti og er óhætt að segja að fjölmörg verk séu afar framúrstefhuleg og veki vafalítið verðskuldaða at- hygli. Sýningin er opin alla daga nema sunnudaga. Mánudaga til föstudags frá kl. 10-18 og á laug- ardögum 10-14. Skák Viktor Kortsnoj beit hressOega frá sér á sterku móti í San Francisco fyrr á ár- inu. Kortsnoj, sem orðinn er 63 ára gam- all, varð einn efstur, fyrir ofan Gulko, Nunn, Húbner, Browne og fleiri sterka stórmeistara. Þessi staða frá mótinu er úr skák Kortsnojs sem hafði svart og átti leik gegn Húbner: Ef svartur tekur riddarann gæti teflst 14. - Kxg7 15. Dg5+ Kf8 16. Dh6+ Ke7 17. Df6+ Kd7 18. Dxh8 Db4+ 19. c3 Dxb2 20. Bb5 + ! axb5 21. 0-0 með betra tafli á hvítt en þannig tefldu Nunn og Zúger árið 1990. Kortsnoj endurbætti tafl- mennsku svarts: 14. - Db4 +! 15. c3 Dxb2 16. Hdl Dxc3+ 17. Hd2 h6!! sem tekur nauðsynlegan sóknarreit af hvltu drottn- ingunni. Eftir 18. Rge8 Re4 gafst Húbner upp. Stysta skák mótsins. Jón L. Árnason Bridge Hér er spil sem kom fyrir í sveitakeppni í Bandaríkjunum á dögunum. Á öðru borðinu gengu sagnir þannig, suður gjaf- ari og NS á hættu: ♦ 54 V 96 ♦ -- + ÁKG1097652 V Á7432 ♦ ÁD1083 + 843 ♦ ÁKDG9832 V KGIO ♦ G5 + -- Suður Vestur Norður Austur 1* 24 6+ 6* 6Á Pass Pass 74 Dobl Pass 7Á p/h W lU/b V D85 ♦ K97642 -L. TA Tveggja spaða sögn vesturs lofaði a.m.k. 5-5 skiptingu í hjarta og láglit og austur sagði 6 tígla viö 6 laufum norðurs. Norð- ur var næsta viss um að 7 tíglar yrðu aldrei marga niður og sagði því 7 spaða til að taka af sér höggið, ef ske kynni að þeir stæðu. Hjartaásinn varð eini slagur vamarinnar. Allt frekar eðlileg niður- staða í sveitakeppni, en samt varð 11 impa sveifla í spilinu. Á hinu borðinu fór norður að undirbúa sig undir sagnir þeg- ar harm leit langan lauflit sinn. Hann bjóst við að félagi í suður myndi byija á tigulsögn, hugsanlega hindrun 1 Utnum. Hann bjó sig undir að passa en taka síðar út úr dobh andstæðinganna í 5 lauf. Suð- ur hóf sagnir með þvi að opna á fjórum tíglum sem vestur passaði og norður ákvað að passa einnig. Hann áttaði sig of seint á því að opnunin var Namyats- sagnvenja sem var sterk opnun með spaðalit og því spiluðu NS fjóra tígla á 2-0 samleguna. ísak öm Sigurðsson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.