Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 28.04.1995, Blaðsíða 12
12 FÖSTUÐAGUR 28. APRÍL 1995 Spumingin Ertu búin/n að setja sumar- dekkin undir bílinn? Ásta Sigríður Kristinsdóttir, starfs- maður Nóatúns: Nei, maðurinn minn sér um það. Brynhildur Guðmundsdóttir, starfs- maður Flugleiða: Nei, ég er ekki búin að setja sumardekkin undir bílinn því ég tók þau aldrei undan. John Crawford bifvélavirki: Ég á jeppa sem eru á heilsársdekkjum svo ég þarf ekki að skipta. Jón Trausti Ársælsson sjómaður: Ég er á heilsársdekkjum og þarf því ekki aö skipta. Bragi Guðmundsson sjómaður: Nei, það er ég ekki búinn að gera en ég býst við að gera það eftir helgi. Brynjólfur Wium bifvélavirki: Nei, og ég ætla ekki að gera það. Lesendur Götuhreinsun 1 Reykjavík: Betri skipu- lagningar þörf Betra skipulag á gatnahreinsun í borginni og íbúarnir hiiðri til með þvi að færa bifreiðar sínar meðan unnið er að henni. Arnar skrifar: Reykjavíkurborg hefur nú tekið til við að hreinsa götur og gangstéttar og ekki vanþörf á eftir óvenjumikinn sandhurð vegna hálkunnar sem hef- ur haldist svo til stöðugt þar til fyrir fáum vikum. - Og það er mikið verk að losa úmferðaræðarnar við allan sandinn. Hann situr í rennusteinum og þaðan er erfitt að ná honum nema með öflugum tækjum. Á síðustu dögum hafa stórir kústa- og sprautubílar veriö að verki. Það er fylgst grannt með þessu og af til- hlökkun meðal íbúanna í hverfun- um. En það er stór galli á fram- kvæmdinni. Sumpart vegpa skipu- lagsleysis og sumpart vegna þess að íbúarnir eru ekki nógu meðvirkir og færa bifreiðar sínar ekki í burtu á meðan á þessari hreinsun stendur. Ég hef fylgst nokkuð með þessu, einkum að morgni dags þar sem ég fer ekki til vinnu fyrr en síðdegis, og mér blöskrar hve bifreiðaeigend- ur eru kærulausir að færa ekki bíl- ana á meðan hreinsun stendur yfir. Auðvitað eru margir sem skilja bíla sína eftir heima að deginum, margir eru farnir að nota meira strætis- vagna en áður, en svo er hitt, að menn sem eru heima horfa oft að- gerðalausir á þessi stórvirku tæki borgarinnar við hreinsun án þess að drífa sig út og færa bílana. Þetta má auðveldlega lagfæra. Það yrði best gert með því að gatnamála- stjóri tilkynnti fyrirfram í fjölmiðl- um daginn áður hvaða götur skyldu hreinsaðar aö morgni og léti fylgja með ósk um að bifreiðar við þær götur yrðu færðar til á meðan. Svipaðar tilkynningar heyrðust oft í morgunútvarpi hér áður fyrr þegar loka þurfti götum vegna viðgerða og gátu menn þá hagað ferðum sínum samkvæmt því. Það er brýnt að þessi regla verði viðhöfð varðandi gatna- hreinsun í borginni á þessu vori. Bílasóparnir verða að komast alveg •að rennusteinum til að ná upp sandi og óhreinindum sem safnast hafa þar yfír veturinn. Síðan þarf að sprauta kröftuglega að hreinsun lokinni. - Og það sem meira er; það verður að hreinsa niðurföllin líka því aö þau eru flest stífluð. Götur borgarinnar og gangstéttar þarf að hreinsa vel eftir veturinn og þá er von til að íbú- arnir haldi því verki áfram, hver hjá sér, yfir sumartímann. Það ætti að -vera borgaraleg skylda hvers húseig- anda að koma til móts við borgina eftir að vel hefur verið að verki stað- ið af hennar hendi. Upplausn á vinstri væng stjórnmála Sigurður Kristjánsson skrifar: Það þarf ekki glöggan mann tii að sjá og heyra að það er komin hrein upplausn á vinstri væng stjórnmál- anna hér á landi. Aö því hlaut líka að koma eftir það sem á undan er gengið. Ekki bara vegna úrslita síð- ustu kosninga, það var kominn brestur í starf og stefnu allra vinstri flokka hér löngu áður. - Fall Berlín- armúrsins og upplausnin sem fylgdi inn í raðir sósíalista, að ekki sé nú talað um kommúnistaflokkana, hafði mikil áhrif um allan heim. Hér á landi hefur fylgi flokkanna sem teljast á vinstri væng verið áber- andi dvínandi og enginn aðhyllist lengur þá stefnu sem þeir boða. Hægfara hreyfing þeirra til miðju- stefnu og allt til hægri stefnu hefur lítil áhrif.til fylgisaukningar og nú er of seint fyrir þessa flokka að boða nýja stefnu, flokkarnir munu eiga erfltt uppdráttar á nýjan leik. Forystumenn þessara flokka hér á landi eru nánast ekki lengur í sviðs- ljósinu nema þegar ljósvakamiðlam- ir draga einn og einn þeirra fram á sjónarsviðið til að fá þá til að tjá sig um nýja ríkisstjóm. Ummæli þeirra falla þó í grýttan jarðveg eftir að út- séð er um aö þeir hafi nokkur áhrif í náinni framtíð. - Það er því upp- lausn á vinstri væng stjómmálanna hér á vordögum og fáir vænta tíðinda úr þeim herbúðum, hvernig sem mál þróast í samvinnu hinnar tveggja flokka ríkisstjómar sem nú er sest að völdum. Reykingabannið í flugvélunum: Leyf ið reykingar á ný Ragnhildur skrifar: Það var mikið óheillaspor sem Flugleiöir stigu með reykingabanni í öllum flugvélum og á öllurn flugleið- um félagsins. Nú eru farþegar sem viljandi eða óviljandi brjóta bannið meðhöndlaðir sem glæpamenn og tekið á móti þeim af lögreglu við lendingu. Auk þess er þetta fyrir- komulag mun hættulegra en þegar menn fengu ákveðið svæði í flugvél- unum til að reykja. Þegar menn fara inn á salerni til að reykja er hætta á ferðum en svo var ekki þegar menn gátu setið í sæti sínu með vindling. Þegar Flugleiðir tóku upp reyk- ingabann á sínum tíma var það eflaust að fordæmi ýmissa annarra Evrópuflugfélaga, sem tilkynntu bannið um svipað leyti, þ.á m. hinna þekktu flugfélaga, SÁS og KLM. Þessi flugfélög námu þó bannið úr gildi fljótlega eftir ítrekaðar kvartanir og ábendingar farþega sem reyktu. í dag leyfa bæöi þessi flugfélög reykingar í vélum sínum í vissum sætaröðum eins og áður. SAS býður því mun betri þjónustu en Flugleiðir. Með fullkomnu loftræstikerfi í flugvélum Flugleiða er því þetta bann eins og hver önnur sérviska og hefur ekki önnur áhrif en að ergja þá farþega sem vilja ekki láta setja hömlur á frelsi sitt með því að banna sér að reykja. Litlar eða engar höml- ur eru hins vegar lagöar á neyslu áfengra drykkja um borð í vélunum og ætti það þó að vera brýnna að halda farþegum allsgáðum en að ergja einn og einn reykingamann, úr því það eru sagðir svo fáir sem reykja yfirleitt. ríkisstjórn HaUgrímur skrifar: Það voru skýr skilaboð frá kjós- endum að Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn ynnu saman í næstu rikisstjórn eftir kosningarnar. Það var því að vonum aö forystumenn þessara flokka sneru bökum saman um stjórnarmyndun. Þaö hefði veriö miður viturlegt að leggja upp í stjómarsamstarf með Alþýöu- flokknum með aðeins eins manns meirihluta. Auk þess sem Al- þýðuflokkurinn hafði ekki vilja landsmanna til að sinna kalli um inngöngu í Evrópubandalagið sem var þó aðalstefnumál Al- þýðuflokksins í kosningabarátt- unni. Nú er þörf á styrkri stjórn í aðvífandi vanda efnahagslífsins sem verður mikilvægasta verk- efnið að fást við á næstu mánuð- um. Verðugurfulltrúi ÍKína Sigurjón hringdi: Eg las í nýlegu Financial Times tilvitnun í hótelstjóra einn hiá Bejing Hilton hótelinu í höfuð- borginni þar sem hann tjáði sig mn framtíöarsýn í hótelrekstri í Kína. Það er eftirtektarvert að maður þessi er íslenskur, Halldór Briem að nafni, og er þekktur frammámaður i hótelrekstri með því að veita forstöðu hóteli svo stórrar hótelkeðju sem Hilton er og varð fyrst til að hasla sér völl í Kína. Húsnæðiskerfið- fyrstaíbúðin Ó.S.K. skrifar: Nú er í bígerð að koma til móts við hina ungu sem eignast íbúð í fyrsta sinn. Gott og vel. - Éghefði þó fremur viljaö sjá rýmri lán- veitingu til slíkra kaupa, t.d. alit að 75%, en að lengja lánstímann í 40 ár. Hið fyrrnefnda kemur hinum ungu íbúöarkaupendum miklu betur því að oft er það ein- mitt sem vantar upp á fyrstu út- borgun, því há og langvarandi húsaleiga étur upp allan sparnað. Sterkasti maður heims Ólafur Einarsson hringdi: Mér flnnst lítið gert úr keppn- inni um sterkasta mann heims sem haldin var á síöasta ári og skilaði okkur heimsmeistara í þessari íþróttagrein. Sjónvarpið sýndi nýlega erlendan þátt (mér skilst frá Ástralíu) þar sem keppnin var sýnd í heild. Þetta var afar skemmtilegur þáttur og sýndi hvilíkt þrekvirki var aö vinna þessa keppni. Magnús Ver Magnússon er líklega okkar þekktasti íslendingur í dag. Hann á mikíð lof skilið fyrir framgöngu sina og ætti fremur að fá fálka- orðu en sumir sem minna verki hafa skilað. Tilboðsverð ájólaköku Starfsmaður i Kjötbúri Péturs hringdi: Vegna lesendabréfs i DV mánu- daginn 24. april sl. um verð á jóla- köku í Kjötbúri Péturs í Austur- stræti vfl ég taka þetta fram: Hjá okkur er tilboðsverð á Gullkorns- jólakökum og kosta þær 199 kr. Rétt er aö þær hafa hækkað en verðbreytinguna má rekja til þeirra sem framleiða kökuna, þjá þeim hefur orðið hækkun. Einnig vil ég geta þess að við höfum ekki selt jólakökur á 222 kr. eins og haldið var fram í bréf- inu. Hins vegar seljum við jóla- kökur frá MS á 235 kr.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.