Þjóðviljinn - 23.06.1944, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 23.06.1944, Blaðsíða 3
Föstudagur 23. júní 1944. ÞJÓÐVILJIMN 8 Skattar og skyldúr Eitt af því sem sjálfsagt þykir við rekstur fyrirtækja er, að þau gefi þann arð að þau standi undir rekstrinum. Geri þau það ekki, fer illa. Þjóðfélag byggir einnig tilveru sýna á því að fjárhagsafkoma þess sé örugg. Það leggur skatta á borgarana bæði beina og öbeina til að standast daglegt viðhald og framkvæmdir sem kraf- ist er. Þetta þykir eðlilegt og sjálfsagt. íþróttahreyfingunni má líkja við dálítið þjóðfélag, sem bygg- Et tilveru sína á fjárhagslegri velferð. íþróttafélögunum má líkja við fyrirtæki, sem reka verður sem allra mest fjárhagslega sjálfstætt, því félaust félag er líflaust félag. Félagarnir kalla á framkvæmdir, sem bæta aðstöðuna til íþróttaiðkana. Þeir krefjast þess, að kennarar séu fengnir og tæki séu tjl, sem nota þarf. Eini öruggi tekjustofn félaganna eru því skattarnir, sem félagarnir borga, til að standast reksturinn. Og hvað er eðlilegra en að við sem njótum þess sem félagið hefur að bjóða borgum það sem við kostum félagið. Væri það ekki óeðlilegt, að það þyrfti að gefa með mér eða þér í því félagi, sem við störfum í. En staðreyndin er því miður sú, að það mun undantekning ef það finnst félag sem hefur hærri tekjur af gjöldum félagsmanna sinna en sem nemur 15—20% af daglegum rekstri félaganna. Það Sem á vantar verða duglegir fjáröflunarmenn að afla með ýms- um ráðum og ærinni fyrirhöfn, má þar nefna, hlutaveltu, happ- cirætti, dansleiki, samskot, sýningar. Á sama tíma sem sárfáir duglegir menn í sama félagi afla því tekna á framangreindan hátt til að standast daglegan rekst- ur þess, er ekki gerð meiri krafa til félagsmannanna almennt en að greiða 5—15 kr. árstillag. Margir sem þetta lesa munu segja: ,-,Eg held þetta sé nóg tillag; ég sem keppi alltaf fyrir félagið; •ég mæti á hverja æfingu; ég aðstoða við hlutaveltur, og geri margt fleira fyrir félagið." Menn gleyma því algjörlega að það sem þeir gera, gera þeir fyrir sjálfa sig, af þeirri einföldu ástæðu, að þeir eru félagið. Því miður hefur ekki tekist betur með félags- legt uppeldi félagsmannanna en raun ber vitni um, enda hefur að ýmsu leyti verið svo að því staðið, að það er varla á betra von. Hvaða áhrif halda menn að hin takmarkalausa smölun í félögin hafi? Munu menn ekki fljótt finna það að því fylgir ekki mikil óbyrgð, að ganga í félag eða vera í félagi, það er ekki hátíðleg stimd, þar sem búast má við að dvölin þar hafi varanleg áhrif á líf einstaklinganna. Nei, það er krækt í menn á öllum aldri til þess að eignast vonina í því að þeir geti gefið stig, gefið sigur. Á -skyldur við félagið er ekki minnzt. • íþróttahreyfingin getur ekki unað þessu lengur, hún verður að gera alla þá sem að þessu vilja'vinna, hvort sem það er í stjórn eða utan, félagslega og fjárhaglega ábyrga fyrir starfseminni, og ef til vill er hægt að láta þetta haldast í hendur. Við eigum að vinna að því að sníða árgjöldin eftir því hvað daglegur rekstur er mikill. Við eigum að nota aðrar fjáraflanir til þess að bæta aðstöðuna til íþróttaiðkana, sem allstaðar vantar. Eg hef nokkuð kynnt mér hvað árgjald í félögum erlendis er, og er það frá 5—10 kr. á mánuði, eftir því hve félagið er gott og eftirsóknarvert. Okkur hér ætti því ekki að vera skotaskuld úr því að greiða 3—5 kr. á mánuði. Þetta er svo alvarlegt mál að íþróttamenn ættu að bindast samtökum um það að gera alla þá ábyrga sem vilja kalla sig íþróttamenn. Vekja almennan áhuga í félögunum fyrir þeim skyldum sem þeir bera við þau og að eðlilegt sé að skatt- ar manna séu miðaðir við eyðslu og kröfur sem við gerum til ingunni ómetanlegt gagn á mjög margan hátt. starfseminnar. Takist okkur þetta, þá vinnum við íþróttahreyf- ÍÞRÓTTIR RITSTJÓRl: PBÍHARH HBLQAS0R ■N Knattspyrnufélagið Hörður á rrj Isafirði 25 ára Þann 27. maí s.l. varð eitt öfl- ugasta íþróttafélagið á Vest- fjörðum 25 ára: Knattspymufé- lagið Hörður. Byrjaði það sem knattspymufélag en hefur nú tekið upp flestar íþróttagreinir sem það hefur aðstöðu til að iðka. Stofnstaður félagsins var í Sundstræti 41 á ísafirði, árið 1919, og voru stofnendurnir 12, þeir Þórhallur Leósson, Guð- brandur Kristinsson, Þorsteinn Kristinsson, Helgi Guðmunds- son, Ólafur Ásgeirsson, Garðar Ólafsson, Hjörtur Ólafsson, Dag bjartur Sigurðsson, Kristján Al- bertsson, Jón Albertsson og Ax- el Gíslason, en fyrsta stjórn fé- lagsins var skipuð Þórhalli Le- óssyni form., Dagbjarti Sigurðs- syni, og Helga Guðmundssyni. Fyrstu árin eru heldur dauf hvað knattspyrnu snertir, því Fótboltafélag ísfirðinga líður brátt undir lok, enda höfðu flest ir stofnendanna leikið þar „án þess að vera löglegir félagar," eins og segir í afmælisriti félags ins. Helztu leikirnir voru því við sjóliða af Beskytteren og Fylla. En árið 1926 kemur Vestfi fram á sjónarsviðið, og við það glæðist öll starfsemi félagsms. Árið 1931 er II. fl. stofnaður og sama ár verður III. fl. til, en það eru þeir menn sem mest hafa gert ísfirzka knattspyrnu sig- ursæla og fræga og má þar nefna för III. fl. til Reykjavík- ur 1936, sem var glæsileg og 1939 sigra þeir 1 landsmóti I. fl., sem var mjög vel gert. Wfo’ Árið 1933 stofnar félagið hand knattleiksdeild kvenna, og hef- ur handknattleikur verið æfður þar æ síðan. Sumarið 1937 gengst félagjð fyrir námskeiði í frjálsum íþrptt um, og er sú starfsemi orðin all- mikil þó skilyrði séu slæm. Skíðaferðir iðka Harðverjar mikið þó ekki hafi enn orðið úr iskálasmíði. Fimleikar koma á dagskrána 1940, og hafa verið iðkaðir síðan á vetrum. Félagið hefur gengist fyrir mörgum heimsóknum knattspyrnuflokka og farið margar knattspyrnu- ferðir víðsvegar um land. Feng- ið kennara í ýmsum greinum yfir lengri eða skemmri tíma nú síðastliðinn vetur í glímu, sem félagið hefur líka tekið upp. Skráin yfir knattspyrnuleiki félagsins lýtur svona út: I. fl. 44 leikir: Unnið 26, tapað 18, sett 94 mörk, fengið 55. II fl. 17 leikir: Unnið 9, tapað 8, sett 31 mark gegn 12. III. fl. 15 leik- ir: Unnið 13, tapað 2, sett 51 mark, fengið 13. Má þetta telj- ast góð írammistaða. Formenn félagsins frá byrjun hafa verið: Þórhallur Leósson til 1922, Helgi Þorbergsson 1924 —’25, Helgi Guðmundsson 1926 —1935, Sverrir Guðmundsson 1936—1942. Núverandi stjórn skipa: Karl Bjarnason, form., Pétur Þórar- insson, varaform., Guðríður Matthíasdóttir, ritari, Herbert Sigurjónsson, gj., Sveinbjörn Kristjánsson fjrit., Sigríður Hagalín meðstj., Þórður Krist- jánsson meðstj. í tilefni af afmælinu hefur félagið gefið út mjög myndar- legt afmælisrit, þar sem rakhs. er félagssagan og ýmsir gamlir félagar rifja upp „gamla daga“. Þá er þar mörg ávarpsorð, auk þess sem ritið er prýtt fjölda mynda. Íþróttasíðan náði tali af form. félagsins, Karli Bjarnasyni, sem var hér á ferð, og spurði han*. um íþróttastarfið og lífið á ísa- firði. — Við bindum miklar vonir við sundlaugina sem þegar er búið að byggja undirstöður und. ir og búningsklefa. Vonum við að geta steypt hana mikið tii upp í sumar. Hafa menn sýnt mikinn áhuga, og gefið fjölda dagsverka. Það sem bagar okkur mest er skortur á íþróttakennurum í sem flestum greinum, eða þá einn fjölhæfan fastan kennara. Þá eru það vallarskilyrðin sem mjög draga úr allri starfsemi. Þá vil ég geta þess, segir Karl, að samstarfið við Vestra er gott, og gerum við okkur von. ir um að aukið samstarf þýði aukin átök í því sem gera þarf að sameiginlegum málum og að- kallandi er. Þá vil ég geta þess hér, að í afmælishófi félagsins afhenti bæjarstjórn félaginu til ráðstöfunar 10 þús. kr., og lít ég á þetta sem viðurkenningu á starfi íþróttamanna fyrir bæjar- félagið, segir Karl að lokum. Fyrsta kapplið félagsins 1922. Ta'ið frá vinstri: Einar 0. Kristjánsson, Iljörtur Ólafsson, Matthías Sigurðsson, Karl Kristinsson, Helgi Guðmundsson, Þórhallur Leós, Jón Alherts, Guðhrandur Krist- insson, Þorsteinn Kristinsson, Dagbjartur Sigurðsson og Garðar Óafsson. Sitjandi Ólafur Kárason.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.