Þjóðviljinn - 06.07.1944, Blaðsíða 3

Þjóðviljinn - 06.07.1944, Blaðsíða 3
WÖ&TILJIHM 3 Fimmtudagur 6. júlí 1944. RIT8TJÓRI: BANNVEIG KRISTJÁNSDÓTTIB Rödd sveitakonunnar r Frá Landspingi Kven- Viðtal við Ingibjörgu Þorgeirsdóttur r félagasambands Islands Aukalandsþing Kvenfélaga- sambands íslands, sem haldið var 26. til 28. júní tók til með- ferðar skipúlagningu sambands 'ins, en það hefur nú fengið fé til umráða er gerir því kleift að hafa fastan starfsmann og skrif stofu, og hefur þegar verið ráð- inn framkvæmdastjóri. Heim- ilisráðunautur og fleiri starfs- menn verða ráðnir 'þegar fjár- hagsástæður leyfa og þörf kref- ur. * Rætt var um húsmæðra- fræðslu, og nefndir, er áður höfðu verið kosnar til þess að gera tillögur um þessi mál, lögðu fram ítárlegt álit um framtíðarskipulag, húsmæðra- fræðslunnar og var samþykkt með nokkrum viðbótartillögum. Þingið samþykkti áskorun til Alþingis um að láta rannsaka hvaða vélar væru hentugar til eflingar ullariðnaði á heimil- um og í smáiðju og hvernig bezt væri að afla þeirra. Ennfremur var samþykkt á- skorun til Alþingis um afnám tolla á vélum og áhöldum er létt geta störf heimila til sjávar og sveita. Rannsóknastofnun heimilanna Loks var samþykkt að fara fram á að konur verði skipað- ar í nefnd þá, sem endurskoða á tollalögin. Undanfarin ár'' hafa víða verið gerðar ýmsar rannsóknir á aðstöðn og starfi húsmóðurinnar. I Svíþjóð liafa nú um 5000 húsmæður fyllt út spurningaeyðublöð um allt mögulegt sem að heimilisstörfun- um lýtur, og eiga nú svör þeirra og athugasemdir að verða grund- völlur að áframhaldandi rannsókn- um og tilraunum til endurbóta á sviði heimilanna. í maí síðastliðnum var svo kom- ið á fót sérstakri stofnun sem hef- ur þessi mál með höndum, og nefn- ist hún llannsóknarstofnun heim- ilanna. Að stofnun þessari stendur hin svokallaða „samvinnunefnd húsmæðranna“ og í henni eiga sæti fulltrúar frá húsmæðrafélögunuin, húsmæðrakennurum og heimilis- xáðunautum. Tilgangur stofnuná’r þessarar er að fást við rannsóknir á öllu því er lýtur að tækni á heimilum, heilsuvernd og fjárhag heimil- anna. Þar að auki á hún að taka til meðferðar hin sálfræðilegu og félagslegu vandamál heimil- anna. Við stofnun þessa eru ráðíiir sérfræðingar í ýmsum greinum, svo sem húsmæður, hússtjórnarkenn- arar, skólastjórar, heimilisráðu- nautar, húsameistarar og vísinda- menn í sálar- og félagsfræði. Fé til starfseminnar er veitt af ríki og sambandi samvinnufélag- anna (Kooperatire förbundet). Er gaman að heyra um þetta nú, því að Kvcnréttindafélag ís- lands er í raun og veru að undir- búa hliðstæða stofnun með því að ráða sér skrifstofustjóra og ráðu- naut og beina kröfum til ríkis- stjórnarinnar um rannsóknir á hagkvæmum vélum til heimilis- þarfa. Rsstiskápyr Mjög hagkvæinlega innrétt- aður ræstiskápur. Til þess að skápurinn komi að fullum not- um verður hann að vera það stór að í honum rúmist öll þau áhöld sem notuð eru við ræst- ingu heimilisins. Skápurinn má ekki vera minni en stærð sú sem hér er gefin: 55x55 cm. hæð: 1.70 m. Með þessari stærð sé plássið réttilega notað, er hægt að geyma öll, nauðsynleg ræsti- áhöld á hverju venjulegu heim- ili. Mjög mikils um vert er að slíkir skápar, sem þessi, séu með loftræstingu og er mjög auðvelt að koma henni fyrir, takið eftir götunum á hurðinni. Ingibjörg Þorgeirsdóttir á Höllu- stöðum í Reykhólasveit er stödd hér í bænum, og hefur setið auka- landsþing kvenna, það er haldið var í Skíðaskálanum fyrir nokkru. Ingibjörg er fædd og uppalin þarna í sveitinni, hafði þar kennslu á hendi nokkra hríð en sinnir nú bústörfum með bróður sínum á Höllustöðum. Fyrir ykkar og mína hönd lang- ar mig til að fá að heyra ofurlítið um hvernig það er heima í sveit- inni þar sem hún býr og tek hana því tali. — Hvernig háttar til þarna í sveitinni? — Það eru 30 bæir í Reykhóla- sveit, en á Nesinu 10 bæir, þetta 10—20 mín. gangur á milli bæja. Margar stórar jarðir eru þar, með- al annars Reykhólar,. sem nú er ríkiseign og mikið stendur nú til að gert verði með. — Er fátt fólk eins og annars- staðar er kvartað undan? . — Nei, það virðist sem fólkið vilji vera í Reykhólasveitinni, en möguleikarnir eru oft ekki miklir fyrir unga fólkið, að útvega sér jarðnæði, því allar jarðir eru full- setnar. A Reykjanesinu er víða tvíbýli 4—8 manns á hvoru búi. BY GGÐAHVERFI — Hefur nokkuð verið rætt um byggðahverfi eða samvinnubyggð þarna? — Ekki held ég á hinum hærri stöðum, en menn hafa stundum verið að rabba um það sín á milli, og slíkt gæti áreiðanlega komið til greina staðháttanna vegna. Reykjanesið væri að mörgu leyti vel til þess fallið, því að þar er tal- ið að vera annað stærsta graslendi á Vestfjörðum, og er þá Reykhóla- land innifalið í því, en land Reyk- hóla er talið hundrað1 hundruð að fornu inati, með ótal eyjum, hólmum og skerjum úti fyrir, dún- tekju, jarðhita og hverskyns hlunn indum. En um Reykhóla cru nú miklar fyrirætlanir. Þar er gert ráð fyrir að rísi tilraunabú og vinnuskóli, gróðrarhús og heima- vistarskóli. Læknissetur og prest- setur er þar þegar, en þó að Reyk- hólaland verði þannig notað er töluvert land eftir á nesinu fyrir utan og innan og gæti þar áreiðan- lega risið blómleg samvinnubyggð. AFKOMA — Hvernig er afkoma fólksins? — Núna sæmileg, en mest er þar notað gamla búskaparlagið. Mjólkin er ekki seld — þó er til smjörsamlag á Króksfjarðarnesi, sem tekur við smjörinu ósöltuðu, Tak‘ið eftir að sópurinn er hengdur á tvo snaga í stað hinna venjulegu hanka sem alltaf eru að slitna í sundur. pakkar það og selur sem böggla smjör, en sökum samgangnaskorts geta ekki allir notað sér þetta. Við getum það t. d. ekki nema að litlu leyti, og verðum því að safna smjörinu saman og selja það salt- að. Talsverð garðrækt er nú stund- nð. Við ræktum kartöflur og róf- ur og sumstaðar kál. en það gæti verið miklu meira. HÚSAKOSTUR OG ÞÆGINDI — Hvernig eru byggingar þarna? — Það eru þó nokkuð víða góð nýleg hús, en sumstaðar dálítið ó- hentug eins og oft hefur orðið um byggingar i sveitinni — sumstaðar eldhús í kjallara og stofur á efri liæð, og er það auðvitað <lálítið óþægilegt fyrir húsmóðurina. Á flestum eða ölluin bæjum er vatnsleiðsla og frárennsli og er að því mikil bót, en því miður eru vatnssalerni ekki nema á fáunn Veruleg þvottahús eru líklega ekki nema á tveim bæjum í sveitinni en þvottapottar eitthvað víðar. Ég hef nú stundum verið að láta mig dreyma um að i framtíðinni kæmi þvottahús og brauðgerðarhús á Reykhólum — það er áreiðanlega ekki frágangssök þegar vegirnir batna. FÉLAGSLÍF — Hvernig er félagslífið hjá ykk ur? — Það hefur nú oft á tíðum ver ið heldur ófulkomið og slitrótt. Unga fólkið er dálítið lausara við sveitina á vetrum, en við það bíð- ur félagslífið hnekki. Kvenfélagið hjá okkur er þriggja ára, en nær aðeins yfir Reykjanes- ið. (Sveitin er annars þrískipt — Reykjanesið, Innsveitin og Þorská- fjörðurinn). Starfsemin hjá okkur hefur nú ekki verið svo mikil. Við höfum þó lialdið saumanámskeið, ein konan í Kvenfélaginu hefur haft gróðrarreit og alið upp plöntur á vorin, en margar hinna félags- kvennanna hafa notið góðs af og 'fengið hjá henni plöntur. Handa- vinnusýning hefur einu sinni ver- ið haldin, og var þar aðallega sýnd fínni ullarvinna, þvi að ennþá eru í sveitinni þó nokkrar konur er kunna vel til verka á því sviði. Má þar t. d. nefna Ólínu Snæ- björnsdóttur á Stað. Tvívegis hafa konur kvenfélags- ins sent dálítið af prjónlesi til Reykjavíkur, en annars stendur það tóskapnu,m mikið fyrir þrifum að ekki er hægt að kemba ullina nema. hér fyrir sunnan eða norð- ur á Akureyri hjá Gefjun, og kcm- ur hún þá stundum ekki aftur fyrr en mjög er út á liðið og orðið seint að hugsa til mikillar ullarvinnu. — Hverjar eru fremstu óskir hús- mæðranna um þægindi og léttir við heimilisstörfin? — í sjálfu sér ekki svo miklar og margvíslegar, en ég hugsa, að þessar verði efstar á blaði hjá flest- um: Vatn og frárennsli (sem flestar húsmæður í Reykhólasveit hafa), rafmagn til Ijósa, þægilegri eldavél- ar, sem ekki óhreinka eins mikið og ekki þarf eins oft að bæta í, og svo einhverja möguleika til að kæla matvæli og geyma um lengri eða skemmri tíma, og að síðustu þægi- legri húsaskipun, því að óheppilegt fyrirkomulag veldur húsmæðrun- um oft mörgum óþarfa sporum, og er það mun leiðinlegra þar sem slíkt oft stafar af fáfræði en ekki fátækt. EIN KONA í SKÓLANEFND. — Hvaða afstöðu finnst þér kon- urnar þarna í kringum þig hafa til J>átttöku kvennanna í almennum þjóðfélagsmálum, og taka jiær nokkra afstöðu til kvenréttinda- mála? — Margar hverjar gera sér held- ur litla grein fyrir slíkum málum, þó virðist áhuginn lieldur vera að glæðast, sumar ræða þau mál sín á milli, en um beina J)átttöku í op- inberum málum er ekki að ræða, þó má nefna að við höfum eina konu í skólanefnd. — Ingibjörg lætur ekki mikið yfir sér eða konunum í sinni sveit, en ef nokkuð má ráða af J)ví að ræða við hana sjálfa, þá leynist á bak við heimafyrir, meiri áhugi og víð- sýni en hún vill vera láta. Um Fjallkonuna Vegna þess að mér hefur borizt til eyrna að Fjallkona lýðveldis- hátíðarinnar hafi tekið sér oitt- hvað nærri grein þá er birtist hér á Kvennasíðunni fyrir nokkru, vil ég taka það fram, að J)að var alls ekki tilætlunin að særa hana eða kasta skugga á hina ungu stúlku, sem átti að bera gerfi Fjallkon- unnar. Enda var hvergi í grein- inni minnst á hana persónulega, heldur aðeins talað um „symbol“- táknið Fjallkonuna og skilning eða skilningsleysi karlmannanna á J)ví tákni og þar af leiðandi alls ekki gert ráð fyrir að táknið sjálft gæti haft nokkur áhrif á gang málanna. Karlmennirnir voru af mér tald- ir hinir einráðu gjörendur liátíðar- innar, og því alls ekki gert ráð fyrir að nokkur kvenleg vera hefði þar nokkurt áhrifavald — allra sízt Fjallkonan sjálf (unga stúlk- an), enda hef ég fengið um Jmð upplýsingar hjá hátíðarnefnd, að stúlkan sat í bíl sínum og beið, og átti því enga sök á Jíví að hún kom ekki fram. En þeir, sem að fánahyllingunni stóðu, vissu ekki Framh. á 6. «í8u.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.