Þjóðviljinn - 21.04.1949, Blaðsíða 1
Bardagar blossa upp í Kína
Bsezk Iterskip á langitse í viðuzeign við slorskcta-
lið annasshvors aðila
Bardagar blossuðu upp meðfram endilöugu Jangtse-
fljóti neðar.verðu í Kína síðdegis í gær, eftir að tilkynut
hafði verið að Kuomintangstjórnin hefði hafnað friðar-
kostum kommúnista.
Kröfur kommúnista um að
fá að fara í friði með her sinn
suðuryfir Jangtsefljót og um
endurskipulagningu Kuomin-
tanghersins vildi Lí Tsúngjen
og stjórn hans ekki fallast á,
þótt Lí hefði fyrir nokkru lýst
yfir, að hann myndi fúslega
láta sjóða sig í olíu, ef það gæti
greitt fyrir friði!
Kuomintangstjórnin býst á
hverri stundu við að kommún-
istar ráðist til yfirferðar yfir
Jangtse og bíða flugvélar til-
búnar í Nanking eftir að flytja
stjórnina til Kanton. Kuomin-
tangher hefur enn allmarga
brúarsporða á norðurbakka
Jangtse og sækja kommúnistar
nú að þeim.
Brezka flotasnekkjan Ame-
thyst varð fyrir stórskotahríð
á Jangtse milli Sjanghai og
Nanking í gær. Kviknaði í skip-
inu og það strandaði. Talið er
Framhald á 12. síðu
Fjársöfnun iiafin fyrir heiniii Iristé-
Paul Hoffnian, sem hefur yfiru msjón með efnahagshliðinni á undirokun Vestur-Evrópu undir
Bandarikin (Marshalláætluninn i) bendir sigri hrósándi á yzstu mörk veldLs síns í norðri og
suðri, ísland og Grilildand. I þeim löndum þykist hann víst eiga auðsveipastar leppstjórnir.
Styrjöld yrÖi svaraÖ meÖ almennri upp—
reisn i árásarrikjunum, segir Nenni
Takmark alira íramíaraaíla mannkynsins verður
að vera að hindra nýja styrjölcl, sagði Frédéric Joli-
ot-Curie, yíirstjórnandi íranskra kjarnorkurann-
sókna, er hann setti friðarþingið í París í gær. Joliot-
Curie, sem hlotið heíur Nóbelsverðlaunin fyrir vís-
indastörf sín, sagði að Atlanzhafsbandalagið væii
freklegt brot á anda og bókstaf sáttmála SÞ cg
Marshalláætlunin hefði hindrað verzlun og við-
skipti í Evrópu.
Annar aðalræðumaðurinn á
fundi friðarráðstefnunnar í gær
var Pietro Nenni foringi
ítalskra sósíaldemókrata.
Nenni lagði til, að ráðstefnan
kysi fast friðarráð, sem hefði
á hendi stjóm baráttunnar fyr-
ir friði, til að vega upp á móti
stríðsstefnu hins fasta herráðs
Atlanzhafsbandalagsins.
Nenni lýsti yfir, að ef ófrið-
aröflin yrðu ekki stöðvuð með
öðru móti yrði styrjöld svaxað
með almennri uppreisn í árás-
arríkjunum.
Bandaríski söngvarinn Paul
Robeson, sem var kjörinn einn
af varaforsetum friðarráðstefn-
unnar, sagði að bandarískur al-
menningur óskaði eftir friði
engu síður en alþýða annarra
landa.
Það hefur vakið sérstaka
gremju fjandmanna friðarráð-
stefnunnar, að Elísabet ekkju-
drottning í Belgíu, sem nýtur
enn mikillar virðingar og vin-
sælda bæði í heimalandi sínu
og Frakklandi fyrir líknarstarf-
semi í heimsstyrjöldinni fyrri,
hef ur lýst yfir opinberlega
stuðningi sínuna við þingið og
mar'kmið þess.
Gerizt áskrifend
m ú Þjóðvilj-
aaHM
10 dagai eftii.
HeiSIð söfEUKtiia
Nú eru aðeins 10 dagar effc
ir. Þær cleildir sem ekki hafa
enn náð sínu takmarki þurfa
að gera nú þegar ráðstafanir
til þess að því verði náð fyr-
ir 1. maí. Vlnnið ötullega að
útbreiðslu Þjóðviljans. Til-
kynnið nýja áskrifendur á
skrifstofu Þjóðviljans Skóla-
vörðustíg 19 sími 7500 eða
skrifstoíu Sósíalistaflokksins
Þórsg. 1 sími 7511. Allir Is-
Iendingar sem fylgjast vilja
með stjórnmálabaráttunni
þurfa að lesa Þjóðviljann.
Takmarkið er 500 nýir áskrif
endur fyrir 1. maí.
i
Kristófer Síurlusyni er
enn hnldið án saka í fang-
elsi. Hann hefur nú verið
lokaður inni á þriðju viku.
Þjóðviljinn liefur áður slcýrt
friá heimilisástæðum hans.
Hann er eina fyrirvinna
konu og þriggja ungra
barna, og heimili hans er
bjargarlaust. Þegar kona
Kristófers skýrði fulltrúa
„réttvísinnar“ frá því um
daginn svaraði hann: Það
kenuir okkur ekkert við, þaiT
er hans að sjá um það!, og
þegar kona Kristóíers ætl-
aði að lala við þennan sama
fulltrúa „réttvísinnar" í gær,
sem hefur með mál Ivristó-
fers að gera, neitaði hann
að taia við hana.
Vegna þess að óvíst er
hve lengi „réttvisinni“ þökn-
ast að halda Krlstófer í
fangelsi vegna upploginna
saka, hefur verið ákveðið að
liefja fjársöfnun fyrir heim-
ili lians sem nú er bjargar-j
laust vegna réttarofsókna.
Afgreiðsla Þjóðviljans tek-
ur á móti framlögum í þessu
skyni.
Kristófer Sturluson er
fædd'ur 22. febrúar 1925 á
Lambeyri við Tálknafjörð.
Hann flutti til Reykjavíkur
um 1940 og hefur lengst af
verið sjómaður eða þar til
fyrir jólin 1947, en þá fór
hanu að vinna í Blikksmiðj-
unni Gretti, en síðan fór
hann að vinna á bílaverk-
stæði hjá Kristófer Kristó-
ferssyni.
Forrestal „át- '?
taugaðor“
James Forrestal, sem varð
brjálaður og hélt, að Rússar
hefðu gert innrás í Bandaríkin,
fáum dögum eftir að hann lét
af embætti sem hermálaráð-
herra Bandaríkjanna um síð-
ustu mánaðamót, var lagður inn
á sjúkrahús bandaríska flotans
í Bethseda, Marylandríki, segir
„New York Times.“ Kom flug-
vél þangað með Forrestal. í
fyrstu var tilkynnt, að Forre-
stal væri aðeins á sjúkrahúsi
„til venjulegrar læknisskoðun-
ar.“ en síðar var látið uppi a3
hann væri „úttaugaður á sál og
líkama.“