Þjóðviljinn - 29.04.1949, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 29.04.1949, Blaðsíða 4
4 ÞJÓÐVIL JINN Föstudagnr 29. apríl 1949. N Otseíandl: Samelnlngarflokkur alþýðu — Sósíalistaílokkurlnn Ritstjórar: Magnús KJartansson, Siguxður Guðmundsscn (áb>, Fréttarltstjóri: Jón Bjarnason. BlaBaxn.: Arl Kárason, Magnúa Tcrfi ólafsson, Jónas Árnason. Ritctjórn, afgreiSsla, auglýsingar, prentsmiðja. SkólavörBu' «tíg 18 — Sími 7C00 (þrjár línu r) Áxkrlí'arverB: kr. 12.00 & mánuðl. — I>ausasöiuver6 60 a.ur. eint. rrentsmiðja l>jó8 rtijans h. t. Sósíalxetaflokkttrinn, Þórsgötu 1 — Sími 7510 (þrjár línur) Ábyrgðiit verður ekki flúin Yfir, 20% verðlækkun á freðfiski í Bretlandi, yfir 7% verðlækkun á síldarlýsi í Bretlandi, um 30% lægri sala á síldarmjöli í Bretlandi en í gildandi samningum við Tékkóslóvakíu. Þetta eru staðreyndir brezku samninganna, hneykslanlegustu afurðasölusamninga sem gerðir hafa verið eftir stríð. Afleiðingar þessara samninga liggja einnig í augum uppi: minni gjaldeyristekjur, rninni innflutningur, aukinn vöruskortur, aukinn svartur markaður, minni framkvæmd- ir, minni atvinna, verri lífskjör. Slíkar staðreyndir ættu að vera til þess fallnar að ráðamenn þjóðarinnar ræddu málin af alvöru og gerðu al- menningi grein fyrir framtíðarhorfunum. Því fer þó viðs fjarri að svo hafi verið gert. Ætlunin \'ar að þegja um smánarsamningana, láta þjóðina ekkert vita, láta engilsaxa fremja rán sitt í skjóli þagna íslenzkra stjómarvalda. Þeg- ar Þjóðviljinn ljóstraði upp um hneykslið, varð fyrst alger þögn í stjórnarblöðunum, en eftir rúma viku geystist Bjarni Benediktsson fram á síður Morgunblaðsins í versta og ó- geðslegasta ham, og hóf upp venjuleg skrif sín, útúrsnún- inga og orðhengilshátt. En ekkert alvöruorð, engin tilraun til að sýna þjóðinni fram á hvernig málum \'æri komið. Táknrænt er m. a. að Bjarni Benediktsson hefur ekki þor- að að birta samninginn, þrátt fyrir það þótt jafnvel Tím- inn heimtaði það í blygðun yfir frammistöðu utanríkis- ráðherrans. I síðustu orðhengilsgrein sinni á annarri síðu Morg- ■unblaðsins í gær 'heldur Bjarni Benediktsson því fram að Þjóðviljinn hafi orðið tvísaga og f jallar öll greinin um það. Alit í lagi með smánarsamningana, hvað gerir það til þó þjóðin sé svipt tugum milljóna króna í erlendum gjaldeýri, Þjóðviljinn hefur orðið tvísaga, húrra! Og þetta á að heita utanríkisráðherra íslands! í því sambandi má það kallast aukatriði að Þjóðviljinn hefur öldungis ekki orðið tvlsaga. Þau atriði sem Bjarni hengir hatt sinn á eru að Þjóðviljinn hefur í fyrsta lagi hent á að það er fáránlegt að bera saman verð tveggja tímabila án tillits til aðstæðna, eins og Bjarni hefur reynt,1 og í öðrulagi að brezka verðið er ekkert heimsmarkaðs- verð heldur var stjórninni í lófa lagið að halda sama verði og í fyrra og hækka það. Þetta eru engar andstæður, held- ur sjálfsagðir hlutir. Bjarni Benediktsson heldur eflaust áfram að óhnast, knúinn af vanmetakennd sinni. Honum mun þó aldrei tak- ast að blekkja þjóðina um þær staðreyndir sem öllum eru Ijósar. Öll þjóðin veit: að Bretar einokuðu viðskiptin við Islendinga til styrj- aldarloka og greiddu þá smánarlegt verð fyrir afurð- irnar, m. a. ekki meir en 37 pund fyrir lýsið 1945; að viðskiptin við Sovétríkin og Austurevrópu sem tek- ■í in voru upp eftir stríð fyrir atbeina'. sósíalista gerðu i það að verkum að verðlag íslenzkra afurða stórhækk- í ’ aði, strax og einokun Breta lauk, ( að Bjarni Benediktsson hefur komið á einokun engil- ■I saxa á ný, með þeim afleiðingum að verðfall er orðið I á öllum afurðum okkar, þótt heimsmarkaðsverð sé í ár - síst lægra en í fyrra. Þetta eru þær einföldu en geigvænlegu staðreyndir sem iþjóðinni allri eru nú ljósar og ábyrgð þeirra staðreynda bvilir á Bjama Benediktssyni, hversu svo sem hann sprikl- jar og beitir orðhengilshætti og útúrsnúningum. Glæpamaður í gróðahug Xy skrifar: „Hin seinni árin hafa margir menn hér á landi gengið inn á næsta óvenjulegar brautir í von um veraldlegan gróða .... Þó mun síðasta dæm ið um þetta vera óvenjulegast allra hinna fyrri. Stórglæpa- maður nokkur , sem í einu ná- grannalandi okkar var sekur fundinn um dauða fjölda ungra frelsisvina og dæmdur til þungrar refsingar samkvæmt því, hyggst verða samtals 150 þús. krónum ríkari með því að höfða skaðabótamál gegn dag- blaði sem hefur sagt sannleik- ann um blóðferil hans! .... Er hægt að benda á nokkuð það sem öllu greinilegar gefur til kynna hvert nú stefnir um rétt- arfarið í þessu landi? Því það megum við vera viss um, að glæpamaður þessi hefur ekki höfðað mál fyrr en að undan- gengnum ítarlegum ráðfærslum við sér andlega skylda lögfræð- inga, og þéir hljóta að hafa gef- ið honum góðar vonir ......... Þetta er sannarlega athyglis- vert mál. — Xy“ Fílósófískar varíasjónir á tímatalinu. Einn lesandinn sendir Vík- verja kveðju guðs og sína, sér- staklega í tilefni af hugleiðing- um hans á sumardaginn fyrsta, en þar stendur þessi gulllvæga setning: „Frá og með deginum í dag er sumar á Islandi, þang- að til síðasta vetrardag í haust.“ — Gaman verður að vita hverskonar fjólur koma til með að spretta á þeirri árstíð er þá hefst og sem endist væntan- lega fram á síðasta sumardag næsta vor. ★ Ekki ofsagt af moð- hausununi. Alþýðukona skrifar: — „Mér datt í hug að ekki væri ofsagt af moðhausum Morgunblaðsins, þegar ég las útleggingu þess á tillögu Áka Jakobssonar um rannsókn á óeirðunum 30. marz. Áki talar um rannsókn óeirð- anna og þátttöku lögrcglustjóra og ríkisstjórnarinnar. — Eg býst nú við að allir nema ef til vill Moggaliðið, skilji ennþá ís- lenzku og meiningu íslenzkra orða, hafi skilið rétt orð Áka Jakobssonar, þar sem hann tal- ar um að rannsaka óeirðirnar 30. marz. En máske liefur Morg unblaðið hlaupið á sig og í ó- gáti viðurkennt það sem allir Islendingar með óbrjálaða sansa vita, að óeirðirnar 30. marz voru fyrirfram ákveðnar af ríkisstjórn og lögreglu- stjóra. „En hitt er svo annað mál að alþýða manna var svo hrekk laus að trúa því að ekki byggi illtundir þegar hún er boðuð xneð prentuðu plaggi frá ríkis- stjórninni til að mæta á Aust- urvelli sem friðsamir og góðir Islendingar. Fólk hefur sannar- lega ekki húizt við eða grunað, að þarna ætti að berja það með kylfum eða demba yíir það táragasi — Alþýðukona." Borðhald fuglanna. Hrafn skrifar: „Góði bæjar- póstur. ■— Eg sé að þú ert far- inn að gera fuglana að umtals- efni. Nú ætla ég að segja þér smásögu af borðhaldi fuglanna: Annan sumardag var tjörnin að heita mátti alísa, aðeins smá- vakir hér og hvar. Þennan morg un (eins og raunar oftar) hafði einhver góðsamur Reykvíking- ur stráð ríflegum skammti af brauði á ísinn. Fyrst komu dúf- urnar, síðan hettumáfar, sein- ast komu þrestir þjótandi sunn- an úr kirkjugarði hver á fætur öðrum og settust að réttunum. Allar þessar ólíku tegundir neyttu matar síns í fullkominni einingu eftir því er séð varð. Þó virtist sem garg og skrækir hettumáfanna þættu hinum ó- þarfa hávaði. Þetta var fjöl- breytt og merkilegt borðhald — Gefið fuglunum að borða. — Hrafn.“ ^ 1 gær voru gef- In saman í, lijónaband í Kapellu Háskól ans, , ungfrú Anna Jónsdótt- ir, Grenimel 23 og Guðmundur Karlsson, brunavörður, Bjarkar- götu 14. Nýlega opinberuðu trúlofun sína, Anna Frímanns- dóttir, símastúlka og Guðmundur Magnússon Reyðar firði. — Nýlega opinberuðu truiofun sína, ungfrú Sigurbjörg Ólafsdóttiir, Njarðar- götu 15, Vestmannaeyjum og Magnús Kiistjánsson frá Tindum. Edward Joseph Garlalnd var 9. april veitt viðurkenning sem sendiherra Kanada á Islandi með búsetu í Oslo. 18.30 Islenzkp- kennsla. — 19.00 Þýzkukennsla. 19.30 Þingfréttir. 20.20 Skíðaþáttur: 20.30 Útvarpssagr- an: „Catalína" eftir Somerset Maugham; II. lestur (Andrés Björnsson). 21.00 Strokkvartett út varpsins: Kvartétt í B-dúr eftir Mozart. 21.15 Frá útlöndum (Ivar Guðmundsson ritstjóri). 21.30 Er- indi: Vanræktir sjúklingar (Arni Óla ritstjóri). 22.05 Útvarp frá 50 ára afmælishátíð KFÚK. Hallgrímskirkja. Kvöldbænir og Passiusálmasöngur kl. 8 í kvöld. Bólusetning gegn barnaveiki heldur áfram og er fólk minnt á að láta cr.durbólusetja börn sín. Pöntunum er veitt móttaka kl. 11 —12, árdegis á þriðjudögum. O . / aOFNIN. Fylkir kom frá útlöndum i gær. Skallagrímur kom af veiðum í gær morgun, og fór áleiðis til útlanda í gær. E I M S K I P : Brúarfoss kom til Antwerpen í gærmorgun frá Rotterdam. Detti- foss var í Reykjavík, fór í morgun til Keflavíkur, lestar frosinn fisk. Fjallfoss er í Antwerpen. Goðafoss fór væntanlega frá N. Y. í gær til Rvíkur. Reykjafoss fór frá Gautaborg í fyrradag til Kaup- mannahafnar. Selfoss fór frá Lcith 2. 4. til Rvíkur. Tröllafoss kom til Rvíkur 2. 4. frá N. Y. Vatnajökull er í Vestmannaeyjum. Laura Dan fór frá Antwerpen 25. 4. til Ijeykjavikur. Einarsson & Zoega: Foldin er á Vestfjörðum, lestar írosinn fisk. Spaarestroom er í Rvík. Lingestroom fermir í Amst- erdam 5. n. m. BIKISSKIP: Esja er í Reykjavík. Hekla er væntanleg til Rviíkur um hádegi í dag að austan úr hringferð. llerðubreið er á Austfjörðum á suðurleið. Skjaldbreið fór frá Rvik kl. 21 í gærkvöld til Snæfellsness- og Breiðafjarðarhafna. Þyrill er í Keflavík. Baldur fór frá Reykja- vik í gærkvöld til Búðardals. Geysir fer til Lon- don á laugardag- inn. Hekla er í Reykjavík. 1 gær var flogið frá Loftleiðum til Ak- ureyrar. Gullfaxi fór til London kl. 8 í morgun. I gær var flogið frá Fiugfélagi íslands til Akureyr- ar, Isafjarðar, Patreksfjarðar, Hólmavíkur og Vestraannaeyja. SjómannabalSið Víkingú'r 4. tbi. 1949, er komið' út. Efni m.: Réttlætismál; Eftir togaradeil una (forustu- grein); Eyjar á Breiðafirði, eftir Odd Valdimars- :son, haf nsögumann; Hallveig Fróðadóttir; Aflaleysi; Rannsókn- ir sjávarbotnsins i Hvalfirði eftir Árna Friðriksson fiskifræðing; Guðbj', rtur Ólafsson sextugur; Bar áttan við óregluna; Jock, smá- saga; Fréttir í stuttu máli og fram haldssaga. Hjónunum Frið- / mey Eyjólfsdóttur y ,.i og Ástgeir Ölafs- ! \ syni (Ása í Bæ) W i- fæddist 16 marka sonur 23. apríl. Húsniæðrafél. Reykjavíkur held- ur sumarfrjgnað í Tjarnarcafé þriðjudagskvöldið 3. maí n. k. Félag ísl. Iiljóðfæraleikara heldur áríðandi félagsfund í skrifstofu Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna I dag kl. 4,30 \' I / Ferðafélag íslaúds ráðgerir að fara skemmtiferð suður með sjó n. k. sunnudag. Eitið út á Garðskaga og Stafn- nes, en gengið þaðan í Iiafnir. Komið við í Keflavík og Sand- gerði. Lagt af stað kl. 9 árd. frá Austurvelli. Farmiðar seld- ir í skrifstofu Kr. ’Ó. Skag- fjörðs, Túngötu 5 til kl. 4 á laugardag. Glímuæling í kvöld kl. 8,30 í Miðbísjar'- skólanum. Glínoudeild K.R.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.