Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 18.01.1955, Blaðsíða 8
8) — ÞJÓÐVILJINN — Þriðjudagur 18. janúar 1955 4 ÍÞRÓTTIR RlTSTJÓRl FRtMANN HELGASON Frá mshuþlngi M,S.Í. íslcmd helur tllkynnt þátttöku í knattspyrnukeppni næstu OL VerSur keppt ví'Ö Fínna i haust? Geng/3 frá deildaskiptingu I. fl. I byrjun þingfundar sl. laug- ardag gaf form. sambandsins Björgvin Schram, bráðabirgða- skýrslu um störf stjórnar KSl frá því á aðalþinginu í nóvem- ber. Kom margt merkilegt fram í skýrslunni og sýndi hún að stjórn KSÍ hefur mörg járn í eldinum. Það kom líka greini- lega fram að stjórn KSl er orðið ljóst að allir milliríkja- samningar verða að miðast við aðgerðir langt fram í tímann (2-3 ár). Þátttaka í forkeppni ÓL í haust? Björgvin upplýsti að Olymp- íunefnd hefði fallizt á að til- kynnt yrði þátttaka í forkeppni ólympíuleikanna. Þó með þeim fyrirvara að keppnin fari fram á þeim stað í heiminum sem tiltök eru að sækja hana. Full- yrt er að aðeins úrslit knatt- spyrnukeppninnar fari fram í Ástralíu 1956. ('Er ekki ólík- legt að fyrirkomulag forkeppn- innar verði svipað og var fyrir HM sl. sumar, gæti þá svo far- ið að Island yrði í hópi norð- lægra landa í Norðurálfu). — Björgvin upplýsti ennfremur að forkeppni þessi mundi byrja á komandi hausti. Svo knatt- spyrnumenn vorir hafa því að nógu að vinna á nýbyrjuðu ári Tandsleikur í haust? Finnlandi Formaður skýrði frá því að Ragnar Emilsson hefði mætt á 50 ára afmæli sænska knatt- spyrnusambandsins í nóv. sl. Þar hefði Ragnar komizt í per- sónulegtr samband við fulltrúa frá Finnlandi og rætt þann möguleika að taka upp aftur sambandið í knattspyrnumál- um, en Finnar kepptu hér sem allir muna og töpuðu 2:0. Hóf- ust nú bréfasamskipti og sagði síðast að ákvörðun myndu Finnar tala um miðjan janúar eða um þetta leyti. Mátti heyra að líkur væru meiri til þess að úr þessu yrði. Stjórn KSÍ hefur einnig ver- ið í sambandi við Austurríki sem er reiðubúið að senda hing- að úrvalslið en ekki minnzt á landsleik í Austurríki. Enn- fremur hefur verið haft sam- band um framtíðarsamstarf við Holland, Luxemburg og Belgíu. Svar Belga var neikvætt en hinar þjóðirnar höfðu áhuga fyrír samstarfi. Þá sagði Björgvin frá þvi að Bandaríki Norðurameríku hefðu óskað eftir samstarfi í knattspyrnu og er það mál í frekari athugun. Ráðinn landsþjálfari Formaðurinn gat þess að yf- ir stæðu samningar við Karl Guðmundsson um það að taka að sér aftur störf landsþjálfara er starfaði á svipuðum grund- velli og sl. ár. En við höfum, sagði Björgvin, fullan hug á að efla kennsluna og þjálfunina. Hann kveið fjársliortinum og gerði ráð fyrir að félögin yrðu að greiða allverulegan hluta af kaupinu, ef vel á að fara. Þá hefur stjórnin gert tilraunir til að útvega kennslufilmur handa félögum og lítur allvel út með það. Deildasldpting samþykkt Aðal verkefni þessa auka- þings var að ganga frá tillög- um sem fulltrúar frá þeim að- ilum er sóttu þingið í haust og stjórn KSl var falið að vinna að. í stórum dráttum eru tillög- urnar á þessa leið: 1. Fyrsta deild er skipuð þeim aðilum er þátt tóku í íslands- móti meistaraflokks 1954. 2. Annarri deild er fyrst skipt í þrjú keppnissvæði, og hafa öll félög á hverju svæði sem ekki eiga lið í mistara- flokki heimild til að keppa. Efstu liðin- á hver-ju svæði keppa svo til úrslita um það hvert fer upp í I. deild. 3. Landinu er þannig skipt í keppnissvæði: 1. sv: V-Skafta- felssýsla-Dalasýsla að Vest- mannaeyjum meðtöldum. 2. sv: Barðastrandasýsla-S-Þingeyj- arsýsla. 3. svæði: Norður-Múla- sýsla-Austur-Skaftafellssýsla. 4. Verði 2 efstu félögin jöfn að stigum í I. og H. deild og 2 næstu í I. deild verða þau að keppa 'þar til úrslit fást. Neðsta félagið í I. deild færist niður í n. deild en efsta liðið úr H. deild færist upp í I. deild sjálfkrafa árið eftir. 5. Landsmót I. flokks fellur niður. Urðu nokkrar umræður um tillögurnar sem einkenndust af áhuga fyrir leit að fyrirkomu- lagi sem hægt væri að binda öll knattspyrnufélög landsins í eitt samhangandi keppniskerfi. Mönnum var ljóst að varla Framhald á 11. síðu. Greinargerð Nýja myndlistarféi. FíHlKrao-^íio-Kmíi RúmleVa 200 dlímumenn tóku 1 juuji agimgiiiiia pp^ f SOvézku meistarakeppn- inni í fjölbragðaglímu, sem háð var í Leningrad nýlega. í sveitakeppninni sigraði Dynamo, en Spartak varð nr. 2 og Iskra nr. 3. Myndin er frá úrslitggíímunni í léttþunga- vigt milli B. Kulaéff og V. Gorskoff. Kulaéff sígraði. Framhald af 4. síðu. ræna listbandalagsins og skipi sýningarnefndir, eins og tíðk- ast hjá hinum Norðurlanda- þjóðunum. Hvort þeir 10 menn sem nú skipa Nýja myndlistar- félagið og félagið Óháðir listamenn, ættu þar 3 á móti 12 frá Félagi ísl. myndlistar- manna skal ekki deilt hér. Ef til vill verður hægara að átta sig á því er birt hefur verið opinberlega meðlimaskrá Fé- lags ísl. myndlistarmanna eins og hin félögin hafa gert. Frá því er sagt að Jóhannes Kjarval og Tómas Guðmunds- son, form. Bandalags íslenzkra listamanna, hafi brugðizt vel við málaleitunum um meðmæli með umsókn um styrk til sýn- ingarinnar. Er það varla meira en hver og einn annar mundi hafa gert, gerandi ráð fyrir að samkomulag yrði um val mynd- anna, eins og þessir menn munu vafalaust hafa, treyst, þar sem þá hafði ekkert kom- ið fram opinberlega um deilur félaganna. Um val mannanna í sýning- arnefndina er ástæðulaust að vera langorður þar sem Þor- valdur Skúlason, Gunnlaugur Scheving og Svavar Guðnason eru allir þekktir málarar, og sem eins og réttilega er bent á í greinargerð Félags ísl. myndlistarmanna, að við höf- um oft leitað til sjálfir til að aðstoða okkur við myndaval og annað. Hitt er jafnótvírætt að tveir þeirra af þremur og tveir af fjórum, ef undirritað- ur hefði tekið þátt í nefndinni eins og ráð var fyrir gert, eru fulltrúar „abstraktmálara“, og viljum við alls ekki fallast á að yfirlitssýning síðustu fimmtíu ára eigi að minnsta kosti helmingur myndanna að túlka þá stefnu í myndlist okk- ar, eins og val nefndarmann- anna gefur ákveðið til kynna. Á það er bent óþarflega há- tíðlega, að Félag ísl. myndlist- armanna hafi kostað sýningu þeirra Jóns Stefánssonar, Jó- hannesar Kjarval og Ásgríms Jónssonar á sinum tíma til Stokkhólms. Þetta boð frá Sví- þjóð um að sænska deildin sæi um sýningu verka þessara þremenninga er í fullu sam- ræmi við lög bandalagsins, og mun Félag ísl. myndlistar- manna ekki hafa átt frum- kvæði um þá sýningu heldur Svíarnir sjálfir. Er næsta ó- viðfeldið að minna elzta mál- ara landsins, brautryðjandann í íslenzkri málaralist og um fé- lagsmál íslenzkra málara, á, að félag það er hann hefur öðrum fremur komið á örugg- an fjárhagsgrundvöll, telji eft- ir að greiða kostnað við send- ingu á myndum hans til Sví- þjóðar, kostnað sem félaginu mistókst að fá greiddan af op- inberu fé, eins og eðlilegast hefði verið. Að sinni skal ekki um það rætt hve brýn nauðsyn hafi verið fyrir núverandi meðlimi Nýja myndlistarfélagsins að grípa til þess ráðs að hverfa frá öllum eignum sínum í Fé- lagi ísl. myndlistarmanna og aðstöðu í Norræna listbanda- laginu og stofna nýtt félag. En er lesin eru niðurlagsorð greinargerðar Félags ísl. mynd- listarmanna þar sem dróttað er að alþingismönnum að þeir afgreiði óyfirveguð mál í of- boði, gæti þau ummæli gefið til kynna um aðdragandann að því að félagið klofnaði. Eg mun ekki draga einka- bréf eða einkasamtöl inn í þessar umræður, enda mundi slíkt engin áhrif hafa á úrslit málanna, sem um er deilt. Ó- viðurkvæmilegt orðbragð um afgreiðslu mála á Alþingi telj- um við ekki heppilegt í þess- um umræðum. En sem betur fer hafa allir menn hér ennþá rétt til þess að tala sínum málum, og gildir það jafnt um okkur 7 og hiha 41 meðlimi Félags ísl. myndlistarmanna. Mér hefur verið tjáð, að sýn- ingarveggir þeir, sem ætlaðir eru íslandi á norrænu sýning- unni í Rómaborg séu 144 metr- ar að lengd. Nefndin hefur nú byrjað starf sitt með því að úthluta Ásgrími Jónssyni, Jó- hannesi Kjarval og Jóni Stef- ánssyni veggrými fyrir 5 myndum hverjum, og sýnist það í fljótu bragði ekki vera tiltakanleg rausn ef vegglengd ísl. deildarinnar er eins og mér hefur verið tjáð. F. h. Nýja myndlistarfélagsins Jón Þorleifsson. NIÐURSUtíU VÖRUR T I I lí$ 9 Bi e !é ) S MIBQfiRBUR, Do° Þórsgötu 1 Vegma vfHgerða ©g endurhóla verður veit- ingastoían lokuð í nokkra daga írá ©g meS deginusn í dag. •

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.