Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 12

Þjóðviljinn - 30.01.1955, Blaðsíða 12
Fyrir 10 dögum baö ríkisstjórnin stjórn Alþýöusam- bandsins aö beita sér fyrir því að verkamenn færu ekki íram á kjarabætur, segðu ekki upp samningum. Kvaðst ríkisstjórnin þá myndu ræða við nokkur fyrirtæki um verðlækkun. Hinsvegar fékkst ríkisstjórnin ekki til að lofa neinum verðlækkunum. Tilmæli þessi voru lögð fyrir verkalýðsráðstefnuna, er svaraði þeim þannig að hvetja eindregiö til uppsagn- ar samninga. — Verkalýðssamtökiri krefjast raunveru- legra kjarabóta en ekki sýndaraðgerða. Ríkisstjórnin hefur nú til- kynnt stjórn Alþýðusambands- ins að hún hafi boðað fulltrúa Eimskipafélags íslands, Fél. is- lenzkra iðnrekenda, Fram- leiðsluráðs landbúnaðarins, Sambands ísl. samvinnufélaga, Verzlunarráðs íslands og olíu- félaganna til fundar um æski- legar ráðstafanir í verðlagsmál- um. Það er vonum seinna að rík- isstjórnin rumskar til þeirrar vitneskju að það sé í hennar verkahring að halda niðri vöru- Múrarafélag Reykjavíkur segir Múrarafélag Reykjavíkur sam- þykkti að segja upp gildandi kjarasamningi sínum við Múr- arameistarafélag Reykjavíkur frá og með 1. febr. n'. k. þannig að hann renni út 1. marz. Var uppsögn þessi samþykkt að við- hafðri allsherjaratkvæðagreiðslu sem fram fór í skrifstofu félags- ins í fyrradag og gær Sósíalistafélags- fiindur á þriðju- daginn Sósíalistafélag Reykjavíkur heldur félagsfund á þriðju- daginn — sjá auglýsingu á 3. síðu í dag. Félagsmenn eru hvattir til að fjölmenna á íundinn. Ríkisstjórnin efn- ir loks 3ja ára gamalt beit Fyrir skömmu náðist sam- komulag milli verkamanna og atvinnurekenda í Vestmanna- eyjum um kaup og kjör, eins og áður hefur verið frá sagt. Samkomulag þetta var þó bundið því skilyrði að ríkis- stjórnin uppfyllti loforð sitt frá 1952 um að Vestmanna- eyingar fái mjólkina á réttu verði. Ríkisstjórnin var þó ekki viðbúin því að efna þetta lof- orð og velti málinu fyrir sér undanfarna daga. í gærkvöldi tilkynnti þó landbúnaðarráð- herra að ákveðið hefði verið að efna nú loks þetta loforð og gengur því í gildi það samkomulag er sjómenn og útvegsmenn náðu í Vest- mannaeyjum. verði og dýrtíð í landinu. Ráð- stafanir hennar og stefna í verki hefur hinsvegar verið sú að auka dýrtíðina. Á Alþingi í haust flutti Hanníbal Valdi- USA-skip innan 206 mílna línu Bandaríski- sendiherrann í Lima gekk i gær á fund utan- ríkisráðherra Perús og afhenti honum mótmælaorðsendingu frá Bandaríkjastjórn, sökum þess að bandarísk fiskiskip hafa verið tekin af varðskipum og flutt til hafna í Perú. Skipin voru innan 200 mílna landhelginnar, sem stjórnir Perús, Ekvadors og Chilis hafa lýst yfir. Bandaríkja- stjórn segist ekki viðurkenna rétt þessara landa til að ákveða svo stóra landhelgi. Uppsögn loft- ferðasamn- ings mótmœlt Fundur var í Norðurlandaráði í Stokkhólmi síðdegis í gær. Sig- urður Bjarnason, formaður ís- lenzku nefndarinnar, flutti ræðu þar sem hann gagnrýndi þá á- kvörðun sænsku stjórnarinnar að segja upp loftferðasamningn- um við ísland. Sagði hann, að Xslendingár legðu mikið kapp á að bæta samgöngur við Norður- lönd og ákvörðun sænsku stjórn- arinnar hefði því valdið þeim vonbrigðum. íslendingar vonuð- ust til að samningurinn yrði endurnýjaður, þeir gætu ekki trúað að jslenzkum flugvélum yrði bannað að flytja farþega til Stokkhóims og þaðan. -------------1—■—------ Fundur í Sósíal- istafélagi Kópa- vogshrepps á morgun Sósíalistafélag Kópavogs- hrepps heldur fund að Snæ- landi mánudaginn 31. janúar kl. 8.30 síðdegis. Á fundin- um verður rætt um félags- starfið og önnur aðkallandi mál. Einnig flytur Helgi J. Hall- dórsson mag. erindi um ljóð ungra skálda. Félagar eru hvattir til að fjölmenna og mæta stundvís- lega. Ffórveldaviðræður í stað hervæðingar Avarp til þýzku þjóðazinnar samþvkkt á iundinum í Pálskirkju í Frankfurt Á fundi andstæöinga hervæðingarinnar í Pálskirkju. í Frankfurt am Main í gær var samþykkt ávaip til þýzku. þjóðarinnar, þar sem því er lýst yfir að viðræður stór- veldanna um sameiningu Þýzkalands veröi að ganga fyrir hervæðingu V-Þýzkalands og þátttöku þess í Atlanz- bandalaginu. marsson tillögu um slíkar við- ræður, en áhugi ríkisstjórnar- innar var þá slíkur að sú til- laga er eitt þeirra mála sem ekki hefur verið tími til að ræða á þinginu!! Verklýðssamtökin munu að sjálfsögðu fagna hverri raun- hæfri ráðstöfun til að lækka verðlagið, en þau hafa langa rej'nslu af sviknum loforðum ríkisstjórnarinnar. Verklýðs- samtökin eru að sjálfsögðu fús til viðræðna um raunhæfar verðlækkanaráðstafanir, en þau sætta sig ekki við neinar sýnd- arráðstafnir, þau krefjast raun- verulegra kjarabóta. —-------------------—— Æfila þesr enn að ræna af sjómönnnm? f fyrrakvöld var umræðu- fundur milli fulltrúa- sjó- manna og útgerðarmanna í Vestmannaeyjum. Útgerðarmenn og sátta- semjari höfðu ekkert til mál- anna að leggja á þeim fundi. Sjómenn spurðust fyrir um það á fundinum hvort þeim yrði ekki talið heimilt að fá úrskipt sínum aflahlut og annast. sölu á honum sjálfir til frystihúsanna. Fyrirspurn þessari var dauflega tekið af hálfu út- gerðarmanna og báðu þeir lun frest til að svara þessari fyrirspurn. — Er þó erfitt að að sjá hvers vegna útgerðar- mönnum ætti að vera slíkt á mótl skapi — sé tilgangur út- gerðarmanna ekki sá að ræna af hlut sjómannanna. Ávarpið til þýzku þjóðarinn- ar var samþykkt með atkvæð- um allra fundarmanna nema sex, en á fundinum voru full- trúar sósialdemóki'ataflokksms, alþýðusambands Vestur-Þýzka- lands og þýzku mótmælenda- kirkjunnar. Parísarsamnlngarnir hindra sameiningu Erich Ollenhauer, leiðtogi sósíaidemókrata, flutti ræðu á fundinum og sagði m.a. að ef Parísarsamn- ingarnir yrðu fullgiltir, myndu þeir koma í veg fyrir samein- ingu þýzku landshlut- anna um langt skeið. Það yrði því að reyna til þrautar hvort samkomulag gæti tekizt milli stórveldanna um sameiningu landsins, áður en samningarnir yrðu endanlega afgreiddir. Það yrði að ganga úr skugga um hvort sameinað, frjálst og lýðræðissinnað Þýzka land gæti tekið þátt í öryggis- bandalagi Evrópuríkja á grund- velli sáttmála Sameinuðu þjóð- anna, og þess vegna yrði að leita samninga við Sovétríkin. Þ jóðaratkvæðagrei ðsla Reuter, varaformaður vestur- þýzka alþýðusambandsins, sagði að Parísarsamningarnir væru of mikilvægt mál til þess að sambandsþingið í Bonn, f jallaði eitt um þá. Það yrði að hera samningana undir þýzku þjóð- ina og leita álits hennar á þeim. með þjóðaratkvæðagreiðshi. Japan vffl ræða víi Sovétríkin Shigemitsu, utanríkisráðherra Japans, sagði í gær, að Japans- stjóm væri reiðubúin að taka upp viðræður við sovétstjórnina um stjórnmálasamband og eðli- lega sambúð milli landanna, Tilefni þessarar yfirlýsingar er orðsending, sem sovézkur stjórnarerindreki afhenti jap- önsku stjórninni fyrir nokkru, þar sem sovétstjórnin lýsti sig fúsa til slíkra viðræðna. Loftleiðir festa kaup á nýrri 54 farþega skymasterflugvél Með komu nýju vélarinnar verður flugferðum rnilli Evrópu og Amer- íku f jölgað úr 3 i 5 á viku hvcrri — Ferðir til Luxemburg teknar upp Að undanförnu hefur stjórn Loftleiða h.f. undirbúið kaup á nýrri 54 farþega skymaster-flugvél og standa vonir til, að hægt verði að taka hana í notkun á flug- leiðum félagsins í vor. Eru kaup þessi gerð vegna auk- innar efth’spurnar eftir fari með flugvélum félagsins á komandi sumri, en þá er ráðgert að fjölga ferðum milli Evrópu oj^ Ameríku úr 3 í 5 á viku hverri. Stjórn og framkvæmdastjóri vegna lántöku til greiðslu vélar- Loftleiða h.f. skýrðu blaðamönn- innar, en heimild til ríkisábyrgð- um frá þessu í gær. ar var endurnýjuð af Alþingi 1954. Beðið eftir nauðsynleguni leyfum Það var í nóvember s. 1. sem stjórn félagsins fór til Banda- ríkjanna til að kynna sér nánar þau 15 tilboð, sem þaðan höfðu borizt varðandi kaup á skymast- ervélum. Ennfremur höfðu borizt t.ilboð frá Noregi og Frakklandi, og að öllu athuguðu virtist til- boð frá Braathens S.A.F.E. í Osló aðgengilegast. Hefur félagið nú sótt um gjaldeyris- og innflutningsleyfi fyrir þessari vél, auk þess sem sótt hefur verið um ríkisábyrgð Hin nýja flugvél verður sam- bærileg að öllu leyti við flug- vélamar Heklu og Eddu (af gerðinni DC4), en þó mun minna notuð en þær vélar. Eftir að nauðsynleg leyfi og lán hafa fengizt fyrir flugvélinni verða framkvæmdar á henni breyting- ar, en gert er ráð fyrir að hún verði tiibúin nokkru áður en sumaráætlun félagsins hefst, um miðjan maí. Voráætlun — þrjá ferðir í stað tveggja Voráætlun Loftleiða hefst 1. apríl n. k. og verða þá famar 3 ferðir í viku milli Ameríku og Evrópu. Ein ferðin verður frá Hamborg um Gautaborg, Osló, Reykjavík, til New York og sömu leið til baka. Önnur ferð verður frá Hamborg um Kaup- mannahöfn, Reykjavík, New York, Reykjavík, Osló og til Stafangurs. Þriðja ferðin verður Stafangur — ;Osló — Reykjavík — New York — Reykjavík — Kaupmannahöfn — Hamborg. Sumaráætlun — Luxem- burg nýr viðkomustaður Ráðgert er að sumaráætlun félagsins hefjist 19. maí n. k. og standi yfir til 15. október. í viku hverri verða farnar milli Evrópu og Ameríku fram og til baka 5 ferðir í stað 3 áður. Viðkomustaðir verða Stafangur, Osló, Reykjavík, New York, Luxemburg, Hamborg, Kaup- mannahöfn, Gautaborg. Ferðir til Luxemburg eru nú Framhald á 3. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.