Þjóðviljinn - 16.03.1960, Blaðsíða 1
VILIINN
Bœjarbruni
1 fyrrakvöld kviknaði í Aust-
urhúsi í Höfnum. Slökkvilið
Keflavíkur og Keflavíkurflug-
vallar voru til kvödd, en hús-
ið, sem var timburvarið, var
þá að mestu brunnið.
Miðvikuda.gur 16. marz 1960 — 25. árgangur — 63. tölublað.
Yfirlýst stefna ríkisstjórnarinnar oð innlimo
ísland í kreppukerfi Vestur-Evrópu og Ameríku
Skipulagning fátœktarinnar
versta verk sem unni3 hefur
veriS á íslandi í áratugi
Við 1. umræðu söluska t csfrumvarpsins í neðri deild
iýsti fjármálaráðherra Gunnar Tlióroddsen yfir því, að
það væri stefna ríkisstjórn? rinnar nú og yrði á næstu
árum að lækka beina skatía, gefa verzlunina frjálsa og
reyna að koma íslandi inn í íríverzlunarsvæöi eða banda-
lög.
Einar Olgeirsson lagði álierzlu á að framkvæmd þess-
arar stefnu jafngildi að innlima ísland í kreppukerfi
Vestur-Evrópu og Ameríku og hlyti að leiöa yfir íslend-
inga fátækt og atvinnuleysi.
7'*' Söluskattsfrumvarpið var af-
greitt úr efri deild á þriðja
tímanum í fyrrinótt.
Við 2. umræðu gerðu stjórn-
arandstæðingar harða hríð að
ríkisstjórninni og varð fátt
um varnir, en ekki töluðu aðr-
ir af stjórnarliðinu en Ölafur
Björnsson og Gunnar Thórodd-
sen.
IJUIIIIIIIIimilllllllllillllllllllllltllllH!
|Frumherji V.|
| leggur upp í |
| geimförina |
= Þessi mynd var tekin á =
E Canaveral-höfða í Florída =
E í þann mund, er „Frum- E
E herji V.“ var að hefja för f
= sína út í geiminn. Það var E
= þriggja feta eldflaug, sem E
E bar gervitunglið á loft, nær =
= 30 metra há og af gerð- =
= inni Thor Able. =
Tiilögur Björns og
Alfreðs felldar
Við atkvæðagreiðsluna voru
allar breytingartillögur þeirra
Björns Jónssonar og Alfreðs
Gíslasonar felldar. Breytingar-
tillögum Björns er lýst í fram-
söguræðu hans sem birt er öll
hér í blaðinu í dag. Alfreð
lagði m.a- til að bækur frum-
samdar af Islendingum og
nauðsynlegustu lyf yrðu und-
anþegin söluskatti, en einnig
þær tillögur voru felldar af
öllum þingmönnum stjórnar-
flokkanna í deildinni gegn at-
kvæðum þingmanna Alþýðu-
bandalagsins og Framsóknar.
Forseti setti nýjan fund um
kl. 2.30 í fyrrinótt og var
málið þá afgreitt umræðulaust
úr deildinni, og skiptust at-
kvæði eins og um breytingar-
tillögur Björns og Alfreðs,
11:8. (Einn þingmaður, Her-
mann Jónasson, var fjarver-
ar.idi).
Framhald á .3. siðu
= Myndin af brezkum tog- =
= ara, sem er að sigla út af j2
= veiðisvæðinu við Eldey síð- =
= ari hluta dags hinn 14. þ.m. =
= Myndina tók Guðmundur =
2 Kjærnested, skipstjóri, E
— gæzluflugvélinni Rán. E
= Enginn brezkur tögari E
2 var innan fiskveiðimark- =
E anna í gær. =
fflllllllllllllllllilllliiiillllliiiiiiiiiiiuT
Tóbaksverðið
hœkkar brótt
Skrifstofur Tóbakseinkasölu
ríkisins eru lokaðar vegna þess
að allsherjar verðhækkun á
tóbaksvörum stendur fyrir dyr-
um.
Sigurður Jónasson forstjóri
sagði Þjóðviijanum í gær, að
hann teldi ekki vera um mikla
hækkun að ræða, mun minni en
sögusagnir manna á meðal
hefðu hermt.
Stefnt er að því að hefja af-
greiðslu á hækkuðu tóbaki á
föstudaginn.
BILSTJORAR TRYGG-
IÐ SIGUR B-LISTANS
Afvopnunarráðstefna austurs
og vesturs hófst í Genf í gær
Krústjoff og Eisenhower sendu boðskap
I gær hófst í Genf ráðstefna
vestfur- og austurveldanna iim
afvoþnun. Á ráðstefnunni eiga
sætj 5 fulltrúar frá sósíalisku
ríkjunum óg 5 fulltrúar frá
vestin-veldumim. Þe‘ita er í
fyrsta sinn að fundnr, sem
skipaður er að jöfnu fulltrúum
frá axistri og vestri, er hald-
inn xxm þessi mál.
Krústjoff og Eisenhoxver
sendu báðir bréf til ráðstefn-
unnar, og voru |>au lesin við
setningu hennar.
Eisenhower hvetur fulltrúana
til bjartsýni, og segir, að enda
þótt samningar um þessi mál
hafi oft gengið stirðlega, þá
skuli fulltrúar ganga vongóðir
til starfs, enda sé nú friðvæn-
legra í heiminum en áður.
Krústjoff segir í boðskap
sínum að Sovétríkin muni
Framhald á 2. siðu.
Kl. 9 í kvöld lýkur stjórn-
arkjöri í Bifreiðastjórafélaginu
Frama. Fyrir þann tíma þurfa
því allir a'ivinnubílstjórar, sem
skilja nauðsyn ötullar og ein-
arðrar forystu í stéttarfélag-
inu nú vegna hinna s'tórfelldu
árása á afkomu stéttarimiar,
að fjölmenna á kjörstað og
tryggja sigur B-lis«ians.
I gær kusu 187' af 438 á
kjörskrá. 1 dag verður kosið
frá klukkan 1 s'íðdegis- til 9,
en þá er kosningunni lokið,
Fulltrúi ríkisstjórnarinnar eða
formaður sté*ttarfélags?
Fyrri hluti aðalfundar Bif-
reiðastjórafélagsins Frama var
haldinn í fyrrakvöld. Vakti
málflutningur formanns félags-
ins, Bergsteins Guðjónssonar,
sérstaka athygli á fundinum
vegna þaes, að fundarmenn
gátu verið fullkomlega í vafa
um hvort hann talaði sem
sérstakur fulltrúi eða trúnað-
ormaður ríkisstjórnarinnar eða
formaður stéttarfélags atvinnu-
bílstjóra. Stakk málflutningur
Bergsteins og félaga hans mjög
í stúf við rökfastar ræður Jón-
asar Sigurðssonar, formanns-
cfnis B-listans, og Steingríms
Aðalsteinssonar.
Á fundinum var lögð frám
tillaga, þar sem mótmælt er
efnahagsaðgerðum ríkisstjórn—
arinnar Verður tillagan af-
greidd á síðari hluta aðalfund-
arins.
SOSIALISTAFÉLAG
REYKJÁVÍKUR tiikynnir:
Félagar! Komið í skrifstof-
una og greiðið félagsgjöldin.
— Ný skírteini afhent.
Skrifstofan opin í dag og
á morgun ki. 10—12 árdeg-
is og' 2—7 síddegis.
Hrísgrjón og
hveiti hœkka
Hver dagur færir sínar
verðhækkanir, jafntánauð-
s.vnlegum vörum og ónauð-
syniegum, vegna ,.viðreisn-
arráðstafana" ríkisstjórnar-
innar.
Hveiti. pakkað hér á
landi. er hækkað úr kr.
12,00 í 16,05 fimm enskra
punda pakki. Hækkunin er
kr. 3,85.
Hrísgrjón í pökkum háfa
einnig hækkað úr 3,85
pundið í 4,40.
Þessi hækkun kemur á
verð kornvöru, enda þótt
ríkisstjórnin hai'i ákveðið'
að greiða það niður um
18,6%, og' er það í íyrsta
skipti sem innfluttar vörur
eru greiddar niður.
Launþegar fá engar bæt-
ur fyrir þessa ‘hækkun á
verði nauðsynja, ’.því að
vísitöluuppbót á kaup hef-
ur verið afnumin með laga-
setningu ríkisstjórnarinnar.