Þjóðviljinn - 14.09.1960, Blaðsíða 1
VIIJINN
Miðvikndagur 14. septeinber 1960 — 25. árgangur — 205. tbl.
Mesta hækkun vísitölu bygg-
ingarkostnadaríns sídan 1939
Timbur, ]árn, semení hafa
hœkkaS i verSi um 50-75%
Áhrifa „viöreisnarinnar" á byggingarkostnað er nú
mjög farið að gæta eins og þeir vita bezt, sem eru að
byggja yfir sig. í nýútkomnum Hagtíðindum er birt vísi-
tala byggingarkostnaðar fyrir júlí til október þessa árs,
en hún er reiknuð út eftir verðlagi í júní s 1. Byggingar-
kostnaðarvísitalan er nú 148 stig miðað við grunntöluna
100 1. oktöber 1955 og hefur hún hœkkað um 16 stig
frá pví hún var reiknuð út síðast, en pað var í fgörúar
s.l. Nemur pessi hœkkun rúmlega 12%.
í Hagtíðindum segir, að hækk-
unin á einstökum liðum bygg-
ingarvöruvísitöiunnar sé mis-
munandi mikil. Langniest er
hækkunin á hreinum cfnisliöum
eða 50—70% á timbri, járni
og sementi svo að (læmi séu
nefnd. Stafar þessi mikla hækk-
un af gengisfellingunni í febr.
si. svo og af hækkun innflutn-
ingssöiuskatts úr 7.7% í 16.5%
og nýja 3% sölusk. af veltu.
Verðhækkanirnar á þessum
lireinu efnisliðum hækka vísitöl-
una í heild um 15% eða 19,6
stig.
Friðrik og Ingi
gerðu jafntefli
í gær var tefld fyrsta iim-
ferðin í minningarmóti Gilfers.
Úrslit urðu þau, að Svein Jó-
hannssen vann Kára Sómund-
arsop, Friðrik og Ingi R. gerðu
jafntefli og Ólafur Magnússon
vann Gunnar Gunnarsson.
Þrjár skákir fóru í bið. Benó-
ný á mun betra gegn Guð-
mundi Lárussyni, Ingvar Ás-
mundsson betra gegn Jónasi
Þorvaldssyni og Guðmundur
Ágústsson gegn Arinbirni Guð-
mundssyni.
1 kvöld verður 2. umf. tefld
: i sjómannaskólanum og eigast
þá m.a. við Ingi og Sveinn
Frið :ik og Ólafur.
Enga skerð-
ingu á 12 m.
landhelginni!
Suðureyri. Frá frétta-
ritara Þjóðviíjans
Hér virðast allir á einu
máli, bæði útgerðarmenn
og sjómenn, hvar sem
lieir annars standa, að
hverskonar skerðingu ,4
12 mílna landhelginni
beri eindregið að for-
dæma, hvort heidur sem
sú skerðing yrði til lengri
eði skemmri tíma.
Á móti þessari miklu hækkun
efnisiiða byggingarvísitölunnar
kemur það, að hreinir vinnu-
liðir hafa lækkað nokkuð vegna
niðuríellingar 9% söluskatts og
í'ramleiðslugjalds af byggingar-
vinnu þannig að heildarhækkun-
in verður eins og áður sagði
rúmlega 12% eða 16 stig.
Hækkun einstakra
efnisliða
í Hagtíðindunum eru sundur-
greindar breytingar á einstökum
liðum byggingarvísitölunnar og
reiknuð út vísitala þeirra hvers
um sig. Vísitala timburs var i
febrúar s.l. 134 stig en hækkai
nú í 206 eða um 72 stig. Vísi-
tala hvers konar járns til bygg-
inga hækkar einnig um 72 stþ
eða úr 141 stigi í 213. Litlu minn;
er hækkunin á saum. gleri og
pappa. Vísitala þeirra vöruteg-
unda var 153 stig en er nú 210.
Hækkun 57 stig. Vísitala sem-
ents, steypu- og einangrunarefn-
is var 115 stig en er nú 154.
Hækkun 39 stig. Þar sem sem-
entið er innlend framleiðsla og
vinnulaun hafa staðið í stað
hækkar það ekki eins mikið og
erlenda byggingarefnið.
Þeir iiðir byggingarvísitölunn-
ar, sem eru blandaðir efnis- og
vinnuliðir hafa allir hækkað
talsvert en mjög mismunandi
mikið eða frá 8 st. (málun) upp í
65 stig (teikningar, smávörur o.
fl.) eftir því hve efniskostnaður-
inn er mikill hluti aí heildar-
upphæð hvers þeirra um sig. í
■ic.mbandi við liðinn teikningar
j og smávörur er rétt að geta
I þess, að mikil hækkun hans
stafar að nokkru aí því, að nú
j er hið nýja gatnagerðargjald
| Reykjav kurbæjar tekið með i
I þann lið en það nemur rösklega
Framhald á 2. síðu
Nehru, Castro og
Makarios til alls-
herjarþings
Blöð í Indlandi skýrðu frá
því í gær, að Nehru, forsætis-
ráðherra myndi leggja af stað
tli New York hinn 23. þ.m. og
verða þar fulltrúi lands síns
á allsherjarþingi Sameinuðu
þjóðanna.
í gær bárust fréttir um að
Makaríos erkibiskup og forseti
hins nýstofnaða lýðveldis, Kýp-
ur, verði formaður fyrstu
sendvnefndar Kýpur á allsherj-
arþinginu. Þá hefur Fidel
Castro, forsætisráðherra Kúbu,
tilkynnt að hann muni verða
formaður sendinefndar á alls-
herjarþinginu. Þingið hefst 20.-
þ.m.
Fund Öryggisráðs
þegar í stað!
Sovétstjórnin hefur krafizt
þess, að Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna komi saman þegar í
stað til að ræða Kongómálið. í
tilmælum til forseta ráðsins seg-
ir fulltrúi Sovétríkjanna að á-
standið í Kongó verði aivarlegra
með hverri klukkustund sem líð-
ur. Þá var Hammarskjöld einn-
ig sakaður um að haía misbeitt
ákvörðun Öryggisráðsins varð-
andi Kongó í þágu þeirra sem
vilja kæfa hið Unga Kongólýð-
veldi i fæðingunni og ræna
sjálístæði þess.
Brezka útvarpið taldi í gær-
kvöldi, að fuiltrúar vesturveld-
anna myndu þverskallast við að
halda fund a.m.k. í 24 stundir.
Fundi Öryggisráðsins var frest-
að í fyrrakvöld, að beiðni vestur-
veldanna sem óttast vaxandi and-
stöðu Aíríkuþjóðanna við stefnu
Hammarskjölds og aðgerðir her-
liðs S.Þ. í Kongó.
Afríkuþjóðir snúost gegn mis-
beitingu valds S.Þ. í Kongó
Átökin um völdin í Kongó hörðnuöu enn í gær. Lum-
umba forsætisráöherra virðist nú hafa treyst aðstööu
sína á ný. Hermenn hans hafa tekiö útvarpsstööina í
Leopoldville herskildi. Afríkuþjóöir, sem eiga liö í Kongó
á vegum S.Þ. hafa tekið liö sín undan stjórn SÞ vegna
misbeitingar á valdi Sameinuöu þjóöanna.
Kasavúbú íorseti undirritaði í
gær enn eina íyrirskipun um að
Lumumba skyldi handtekinn og
s.ex ráðherrar hans sömuleiðis.
í fyrradag mistókst Kasavúbú
að iáta handtaka Lumumba vegna
fylgis hins síðarnel'nda meðal
hersins.
Upplýsingamálaráðherrann í
hinni ólögiegu stjórn Ileos. sem
Kasavúbú hefur skipað, til-
kynnti hina 'nýju handtökuskip-
un í útvarpi frá útvarpsstöðinni
: Leopoldville og sagði ennfrem-
ur að Lumumba og fylgismenn
hans yrðu látnir sæta refsingu
fyrir „glæpi". Þetta skeði eftir
að herstjórn S.Þ. í Kongó hafði
ópnað .útvarp .stöðina aftur með
þvi skilyrði að þar yrði ekki
rætt um stjórnmál eða æst til
úlfúðar.
Meðan ráðherrann var að
flytja ræðuna umkringdu her-
menn Lumumba útvarpsbygging-
una. Ráðherranum tókst að kom-
ast undan. Hann safnaði herliði
og hugðist ryðjast al'tur inn í
útvarpsstöðina. Hermenn Lum-
umba vörnuðu honum inngöngu
og stugguðu honum og herliði
hans á flótta. Kongóskir her-
menn hafa byggt vélbyssuvígi
fyrir utan hinn opinbera bústað
Lumumba.
Nkrumah. forseti Ghana. hef-
Framhald á 2. siðu.
Lúðvík Jósepsson héldur áfr am fundum um landhelgismálið
Lúðvík Jósepsson heldur
aí'ram fundahöldum sínum
um landhelgismálið á Aust-
íjöitSum.
S.l. fimmtudag hafði Lúð-
vík fund á Reyðarfirði; á
Djúpavogi var fundur á
mánudagskvöld, en Þjóðvilj-
inn hefur áður skýrt frá
fundum sem fyrr höfðu verið
haidnir. Hafa fundir þessir
verið vel sóttir, þar hafa ver-
ið mættir fulltrúar allra
f.okka og einróma samþykkt-
ir veriö gerðar þar sem vítt
er samningamakk ríkisstjórn-
arinnar við Breta og því
mótmælt afdráttarlaust að í
nokkru verði hvikað frá 12
mílna landhelgi íslendinga.
I gærkvöld var fundur um.
landhelgismálið á Höfn í
Hornafirði, en Þjóðvilinn
hafði ekki haft fregnir af
honum þegar blaðið fór í
prentun. _ j