Þjóðviljinn - 17.10.1961, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 17.10.1961, Blaðsíða 9
Það cr mikil hreyfing í myndinni. Þórður Jónsson er búinn að gefa knettinum gott spark og mark- maður og varnarleikmaður Keflvíkinga virðast báðir ætla að verja með höoSunum, en knötturinn ÍA vonn ÍBK 2:1 og leikur því til úrslita gegn KR London 15 10 — Brezki hlaup- arinn Gordon Pirie, sem er -orðinn atvinnumaður, var spurður að því í blaðaviðtali -«> Undanúrslit Bikarkeppninnar fóru fram á Melavellinum á sunnudaginn, en þar áttust við Akurnesingar og Keflvík- ingar. Akurnesingar sigruðu mcð 2 mörkum gegn 1, og leika þeir því úrslitaleikinn við KR á sunnudaginn kemur. Þar sem mikil rigning hefur verið undanfarna daga, þá var Melavöllurinn pollóttur og hálf leiðinlegur til keppni. Ekki hafði iþó myndazt nein leðja, eins og oft vill verða þegar mikil rigning hefur herjað á völlinn. Fyrri hálfleikur (1:0) Keflvíkingar voru meira í sókn í fyrri hálfleik, en nýttu illa tækifærin sem þeim tókst að skapa sér. Samleikur þeirra var of tilviljanakenndur, og allt fór í strand þegar þeir komtibt iriri f vítateiginn hjá Akurnesingum. Róm 15/10 — ítalinn Morale bætti Evrópumetið í 440 jarda hlaupi og 400 m grindahlaupi á frjálsíþróttamóti sem haldið var í Róm í dag. (Vegna trufl- unar á fjarskiptasendingunni er ekki hægt að sjá hvaða tíma hann fékk). Preussger: 4. Berlín 15/10 — Manfred Prauss- ger Austur-Þýzkalandi setti á laugardag nýtt Evrópumet í stangarstökki er hann stökk 4.70. Hánh átti sjálfur fyrra metið — 4.67. fsruel 4:2 Tel Aviv 15/10 — Italía vann ísrael með fjórum mörkum 'gegn tvéím (2:0) í undirbún- ingskepþni fyrir HM. Löndin keppa aftur I næsta mánuði. Akurnesingar léku aftur á móti betur saman, en voru ekki að sama skapi jafn harðir af sér og Keflvíkingar. Kefl- víkingar fengu tvö góð tækifæri snemma í leiknum, Helgi Dan bjargaði í fyrra skiptið með úthlaupi, en í síðara skiptið var Páll h.úth. einn fyrir innan og spymti framhjá. Akurnesingar settu eitt mark í fyrri hálfleik. Markið kom þannig að Jóhannes h.úth. sendi til Þórðar Jónssonar, sem staddur var inn við vítapunkt og spyrnti hann viðstöðulaust neðarlega í horn marksins, 1:0. Seinni hálfleikur. 1:1 Keflvíkingar jöfnuðu á 10. mín. síðari hálfleiks og var þar Hólmbert að verki. Er þeir höfðu jafnað, fór meiri hluti liðsins í vörn og misstu þeir við það undirtökin í leiknum, því nú fengu Akurnesingarí* meira svigrúm og var um tíma allmikil pressa á mark Kefl- víkinga og greip markvörður i þeirra oft vel inní. Langspyrnur Keflvíkinga fóru aítur í gang og þeir sköp- uðu sér góð taskifæri, en þau runnu út í sandinn, flest hjá miðherjanum Jóni Jóhannes- syni, sem þrívegis „fraus“ í dauðafæri á markteignum. Akurnesingar settu sigur- mark sitt á 30. mín og var þar aftur að verki Þórður Jónsson með gott skot. Liðin. Lið Akurnesinga var fremur lint í þessum leik og að mörgu leyti heppið að fara með sigur af hólmi í viðureigninni við Keflvíkinga, miðað við mark- tækifæri þeirra. Aftur á móti er lið þeirra skipað betri ein- staklingum og sumir þeirra hafa fjölda landsleikja að baki, en það hefur mikið að segja gegn jafn reynslulitlu liði sem Keflvikingarnir eru. 1 liði Ak- urnesinga bar mest á Helga Daníelssyni, Kristni Gunnlaugs- syni og Þórði Jónssyni. Sigurhorfur þeirra á sunnu- daginn, gegn KR í úrslitaleikn- um, tel ég afar litlar, ef þeir sýna ekki betri leik en nú. En ekki er gott að segja hvernig úrslitaleikurinn fer, ef maður hefur í huga orð Ríkharðs Jónssonar frá því í sumar, er KR og ÍA léku úrslitaleikinn í fslandsmótinu: „Þessi lið vinna ekki hvort annað tvisvar í röð“, en það hafa þau ekki gert s.l. 10 ár. En allt getur skeð í knattspyrnu og hver veit nema KR vinni nú ÍA í annað sinn í röð „því allt getur skeð í knattspyrnu". Lið Keflvíkinga var fullt af baráttuhug og var það nærri búið að færa þeim sigur í leikn- um. Annars fóru þeir illa með tækifærin sem þeir fengu og samleikur þeirra og leikni er langt frá því að vera eins og bezt gerist hjá okkur. Framlín- an var bitlaus, og ekki skerpt- ist hún við að Páll Jónsson h.úth. yfirgaf völlinn seint í fyrri hálfleik. Bezti maður liðs- ins var innh. Hólmbert, sem var sívinnandi og hafði jákvætt auga fyrir samleik. Dómari var Magnús V. Pét- ursson, og dæmdi hann vel. H. e- • • •• Finnland Kaupmannahöfn 15/10 — í dag sigraði HTtffimörk Finnland með níu mörkum gegn einu á A- landsleik í knattspyrnu. Leik- ui'inn fór fram í Kaupmanna- höfn að vistöddum 35.600 á- horfendum. Dönsku blöðin sögðu að finnska liðið hefði verið mjög veikt. Danmörk vann einnig unglingalandsleikinn 5:0. Þai var í 4. lotu Vín 15/10 — 1 dag sigraði ung- verski millivigtarhnefaleikar- inn Laslo Papp þýzka hnefa- leikarann Peter Mueller á KO í fjórðu lotu. Keppnin átti að vera 10 lotur. Papp er olym- pískur meistari í millivigt. Þessi mynd var tckin þegar Mathews hélt upp á 45 ára afmæli sitt 1. febrúar 1960. I»á var hann varamaður Blackpoolsliðsins, sem hann er nú að kveðja. Mathews ætlar að hressa uppá sitt gamla félag London 16/10 — Sir Stanley Mathews, hinn 46 ára gamli knattspyrnumaður, ætlar að koma aftur til síns gamla fé- lags Stoke, en hjá því byrjaði hann sinn ævintýralega feril sem knattspyrnumaður fyrir 30 árum. Mathews fer frá Blackkpool til Stoke og væntir Stoke þess að Mathews muni draga til sín áhorfendur, en Stoke er í 2. deild og fjár- hagurinn mjög slæmur. í dag hvort sú staðhæfing værl rétt að Vladimir Kuts hefðL verið undii' áhrifum örvandi lyíja er hann hljóp hið fræga 5000 m hlaup á OL í Melbourne 1956. Pirie sagði að það væri staðreynd að slík örvandi lyf væru notuð af frjálsíþrótta- mönnum í dag, en það væri skoðun sín að Kuts hafi ekkL notað slík lyf, a.m.k. ekki í þessu hlaupi. Eins og kunnugt er var Piris- i öðru sæti í þessu umrædda hlaupi, og Kuts sló þarna. heimsmet Piries. 10 þjéðir hafa til kynnt þátttöku í HM á skíðum Varsjá 16/10 — Nú þegar hafa, 10 þjóðir tilkynnt þátttöku í heimsmeistarakeppni skíða- manna er fram fer í Zakopane. Svíar hafa tilkynnt 24 þátttak- endur, Japan 10, Kanada 8* Júgóslavía 15, Finnland 34* Italía 15, Sovét 25, Tékkó- slóvakía 17, V-Þýzkaland 26 og. Rúmenía 8. oii slökun" Benedikt Jakobsson, íþrótta- kennari, ætlar að halda nám- skeið fyrir húsmæður í „stæl- ing og slökun“ og hefst það í dag. Kennslan fer fram tvisv- ar í viku. Kenndar verða 20 stundir. Á námskeiðinu verður fjall- að um: Likamann og starfs- hætti hans — Hagkvæmar og óhagkvæmar stöður og stell- ingar — Skófatnað — Um næringarþörf og efnaskipti likamans í hvíld og við störf. — Að hreyfa sig rétt — Um hvíld. Kenndar verða ýmsar æf- ingar, sem miða að því að auka á starfshæfni hinna ýmsu líffæra og líkamans í heild. Hver þátttakandi fær sérstakar leiðbeinngar við hæfi. Námskeiðið er ætlað fyrir konur á ýmsum aldri og einkum þær, sem finna til þreytu og óþæginda í fótum. baki og öxlumf/°úí'ti “þtgyttar og í þyngra lagi. Allar nánari upplýsingar um námskeiðið eru gefnar í síma 1039Q kl. 10—12 f.h. dag- lega. Ríkharðssöfnunin. Frá nokkrum vinnufélögum í vöruskemmu hjá Ríkisskip kr. 600.00. ritstjóri: Frímann Helgason Þriðjúdagur 17. október 1961 — ÞJÖÐVILJINN — (Q:

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.