Þjóðviljinn - 12.05.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 12.05.1962, Blaðsíða 1
Flóttamenn snúa heim til Alsír Lóðaúthlutun dregin from yfir kosningar • Fullvíst má nú telja að ekki verði gengið frá úthlutun byggingalóða hér í Reykjavík fyrr en eftir borgarstjórnarkosningarnar. Ástæðan mun vera sú, að borgarstjórnaríhaldið óttast móðgun ýmissa umsækjenda um lóðirnar þegar úthlutun verður birt og telur sér því henta bezt að fresta henni fram yfir kjördag. Nokkur byggingasvæöi á borg- arlandinu ha£a verið lilbúin til lóðaúthlutunar í nokkrar vikur og jafnvel mánuði. Um er að ræða svæði, sem ætluð eru und- ir tvíbýlis- og sambýlishús aust- an við Sjómannaskólann, svo og svæöi sunnan Miklubrautar, aust- ur ai' Hlíðunum. Þá er einnig t.ilbúið einbýiishúsnæði við Sundlaug Vestu.rbæjar. Er gerl ráð fyrir að þar rísi um 20 ein- býlishús. Byggingatímanuni stórspillt Dráttur á úthlutun byggingar- lóða kemur húsbyggjendum að Ejálfsögöu afar illa, því að bygg- inngartfmanum er af. þeim sök- um stórspillt. Þó að. allt gangi, með eðlilegum hæfti þegar lóða- úthlutun ei' loki/’i er óhugsandi aö húsbyggjendu.r geti hafið ft’amþvæmdir fyrróen í júlí eða ágústmánuði í fyrsta lagi. ef út- hlutun lóðanna er dreginn fram yi'ir kosningar. Bezta byggingu- tímanum á miðju sumri er því á glæ kastaö, menn verða að nota hai'.st- og vetrarmánuðina til að steypa húsin upp í stað sumartímans þegar veðráttan er bezt fallin til allrar útivinnu. Dráttur á lóðaúthlutun er svo sem engin ný bóla hjá borgar- stjórnaríhaldinu; ár eftir ár eru húsbyggjendur látnfr gjalda van- rækslu, skeytingarleysis eða póli- tískrar hentisemi íhaldsins í þessum efnum. Framhald á 10. sið' Algcirsborg 11 '5 — Morðingjar OAS í Alsír óðu uppi í dag sem fyrr, og höfðu þeir myrt 16 serki, þar af fjórar konur, og sært 12 í kvöld. í gær myrtu OAS- morðvargarnir 55 menn í Alsír og 32 urðu sárir. Þjóðaratkvæðagreiðslan um framtíð Alsír mun fara fram i júní eða byrjun júlí, hvað sem fyrir kann að koma þangað til, sagði Fouchet yfirhershöfðingi í Alsír. Jafnframt sagði hann að gerðar yrðu ráðstafanir til að efla baráttuna gegn OAS. Fólk verður að vel.ja á milli þess hvort það vill hjálpa morðingj- unum eða styðja þá sem fram- fylgja lögum og rétti og vilja koma á friði. sagði hann. Fouchet sagði að 50 mönnum hefði verið vísað úr landi í dag, þar á meðal forstjóra alsírska flugfélagsins og fleiri háttsett- um mönnum sem stutt hafa OAS. í dag var yfirmaður OAS f mið*" hluta Alsír, Bernhard, handtek- inn. Hann heíur stjórnað meirf- en 200 morðárásvjm. Fyrstu 200 serknesku flótta- mennirnir, sem dvalið hafa i' Marokkó, komu aftur heim tib Alsír í gær. Fleiri koma næstir daga. Fyrstu flóttamannahóparn ir, sem dvalið hafa í Túnis, komt- heim 25. þ.m. í kvöld fer fram hin árlega. fegurðarsamkeppni. — Keppnin hefst klukkan sjö í Auslurbæjar- bíói, þar sem sex stúlkur koma fram. og keppa um titilinn ung frú ísland og ungfrú Reykjavítt. 1962. Síðar um kvöldið verðuP haldin krýningarhátíð í Nætur- klúbbnum. þar sem Sigríðut, Geirsdóttir mun krýna hinap nýju fegurðardísir. Hvenœr fó þeir að undir- rita sina eigin samninga? Morgunblaðið hefur nú tvo daga í röð birt ljósmyndir af frainkvæmdum sem hafa stöðvast vegna járnsmiðadeil- unnar. úr vélsmiðju i Reykja- vík og frá síldarverksmiðj- um á Neskaupstað og á líúð- areyri. Segir blaðið að ekki sé „beðið eftir iiðru með frek- ari framkvæmdir, en að verk- fall járniðnaðarmanna Ieys- ist”. En hvernig væri þá að leysa deiluna umsvifalaust? Málavextir eru sem kunnugt er þeir að meistarar og járn- iðnaðarmenn bafa náð sam- komtilagi. Síðan var meist- i'.rnm banirað pf Vinnúvnit- endasambandi fslands og rík- isstjórninni að undirritu samninga sem þegar liöfð»' verið samþykktir af báðua> aðilum! Vandamálið er þamiiy afar einfalt: Hvenær ætlat Vinnuveiendasainband Island^ að leyfa meisturum að undir- rita þá samninga sem þei® hafa þegar gert? Eftir þvf^ einu er beðið Við lofuðum því í gær að halda áfram að leiða lesend- ur okkar um bot’gina og sýna þeim eitt og annað, sem á- reiðanlega verður ekki sýnt í pistlinum „Borgin okkar“, sem öðru hvoru birtist undir rauðri fyrirsögn í Morgun- blaðiriu. Það er nefnilega svo með þá staði sem við mun- um heimsækja, að þeir eru einsog óhreinu börnin hennar Evu, Auður Auðuns myndi aldrei við þá kannast. XXX Við sjáum hér mvnd innan úr Laugarneshverfi. Braggarn- ir og skúrarnir sem þar eru, voru reistir á fyrstu stríðs- árunum og ætlaðir sem Ohreinu börnin hennar Auðar skammær íverustaður her- þræla. Þarna hefur samt alizt upp talsverður hluti æsku borgarinnar, í kulda, sagga og olíureyk og undir glósum barna betri borgaranna. XXX Að alast upp í-bragga hef- ur reynzt mörgu barni dýr- keyptur skóli og stórvafa- samt að nokkurt þeirra bíðði þess nokkru sinni bætur. Og enn eru börn að alast upp í þessum gömlu bárujárnsskýl- um. XXX Enskt íhald tapar í kosningunum LONDON 11/5. — íhalds- flokkurinn beið mikið afhroð í bæjarstjórnarkosningum á Bretlandi í gær, en Verka- mannaflokkurinn og Frjáls- lyndi flokkurinn unnu á. Kosið var í þriðjungi kjör- dæma í Englandi og í Wales, samtals 428 kjördæmum. Þegar talið hafði verið í öllum kjör- dæmum nema þrem í gær, hafði íhaldsflokkurinn tapað 560 sæt- um í bæjar- og sveitarstjórnum, en unnið aðeins 13 sæti. Flokk- urinn missti meirihluta í 36 kjör- dæmum. Verkamannaflokkurinn vann 364 sæti og tapaði 75, Frjáls- lyndi flokkurinn vann 339 sæti og tapaði 12, en óháðir töpuðu 122 sætum og unnu 53. Sigur Verkamannaflokksins var stærstur í London og þar var tap íhaldsins einna mest. Ihaldsflokkurinn missti meiri- hluta í kjördæmunum Sainf'' Pancras og Wandsworth í Lond> on. Fyrir kosningarnar hafðf Verkamannaflokkurinn meiri- hluta í 19 af 28 kjördæmur® í London. Nú hefur flokkurinft- fengið meirihluta í 21 kjördæmL í borginni. Er það mesti styrk. ieiki flokksins í London síðaii 1949, en þá hafði hann meiri- hluta í 23 kjördæmum borgar- innar. Frjálslyndi flokkurinn haf$’ nú í’úmlega 1500 frambjóðendut, og jók styrkleika sinn um þriðj- ung frá síðustu bæjarstjórnar* kosningum. Ihaldsflokkurintt, missti meirihluta sinn m.a. í iðn* aðarborginni Bradford, í Maiden. head og í háskólanum Oxforá,' Frjálslyndi flokkurinn van® meirihluta i Pudsey í Yorkshire. Margir áhangendur íhalds- flokksins óttuðust fyrirfram mik*. ið tap vegna stefnu íhaldsstjóm- arinnar í efnahagsmálum.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.