Þjóðviljinn - 13.05.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 13.05.1962, Blaðsíða 1
Stjórnar- kreppa & ný í Argentínu BUENOS AIRES 12/5 — Sterk- ur órðrómur er uppi um það í Buenos Aires að ný stjórnar- kreppa sé í uppsiglingu í Argen- tínu. Fullyrt er að 4 ráðherrar muni segja aí sér, innanríkis- ráðherrann, utanríkisráðherr- ann, varnarmálaráðherrann og | menntamálaráðherrann. Ástaéðan fyrir stjórnarkrepp- unni á að. vera hinn mikli á- greiningur innan ríkisstjórnar- nnar um það hvort efna skuli til nýrra kosninga og hvernig eigi að framkvæma bær. Juan Baptista Lo.za hermálaráðherra gaf í gær út yfirlýsingu um það, að herinn hafi skuldbundið sig til að styðja ríkisstjórnina. Jarðskjólfti olli skelfingu MEXICO CITY 12/5 — Fimm manns fórust Og 50 meiddust í miklum jarðskiálfta, sem varð hér í gær. Skelfing greip um sig meðal borgarbúa, sem þustu út undir bert loft. Tveir menn sem fórust í höfuðborginni dóu báðir af hjartaslagi. Sagt er að myndast hafi eld- fjall hjá bænum Luzco og sé það afleiðing af jarðskjálftun- um. -------------------------<$> ■ív: ■ mmmmÉM Andi borgarstjórans svífur yfir bröggunum Myndin, scm hér birtist, cr „leyniniynd“ úr fórum borg- arstjórnarmcirihluta íhalds- ins. Mun hún hafa átt að birtast í Bláu bókinni í ár cn því miður fallið niður í prcntuninni af einhvcrjum dularfullum ástæðum og komst Þjóðviljinn yfir hana. Myndin mun hafa átt að birt- ast í þcim kafla Bláu bókar- innar, sem f jallar um „orð, efndir og framtíðarverkefni“ borgarstjórnarmeirihlutans í sambandi viö útrýmingu bragga og annars heilsuspill- andi húsnæðis í Kcykjavík. Et flett er Bláu bókum undan- farandi kosningaára geta menn fundið orðin. Mcðfylgj- andi mynd er hins vcgar eitt af táknrænum dæmum um efndirnar. Þess vcgna er það cnn eitt af framtíðarverkefn- um borgarstjórnarmeirihluta íhaldsins undir foruslu Geirs Hallgrímssonar að brúa djúp- ið milli orða og cfnda, ekki aðeins í þcssu máli- heldur og mörgum öðrum. Það er von, að borgarstjórinn sé alvörugefin og ábyrgðarfullur á myndinni, þegar andi hans svífur yfir borginni, yfir bröggum, skúrum, ógerðum götum o.s.frv. o.s.frv., og sér allt, sem er vanrækt og ógert. 1» <> f Við úthlutun listamanna- fjár 1962 hefur veriö geng- iö fram hjá mörgum kunn- um listamönnum, og lýsti fulltrúi Alþýöubandalags- ins í nefndinni sig ósam- þykkan úthlutuninni, meö þeim rökstuöningi aö ENG- [N breytingatillagna hans um tilfærslur eöa nýja menn heföu náð samþykki, og væri hann einnig and- vígur mörgum öörum ráð- stöfunum meirihluta nefnd- arinnar. Helztu breytingarnar frá út- hlutun 1961 eru þær að Guð- mundur Ingi Kristjánsson, Jó- hann Briem, Sígurður Einarsson (!), og Þorvalcíur Skúlason flytj- ast í næstefsta ílokkinn. Úr næsta flokki voru m.a. felldir Gunnar M. Magnúss, Hanncs Sigfússon og .íón Dan. Listi yfir úthlutunina í heild er birtur á 2. síðu. Sigurður Guðmundsson rit- stjóri,. fulltrúi Alþýðubandalags- ins í nefndinni lét bóka eftir- farandi á síðasta íundi nefndar- innar: „Ég tel enn sem fyrr óliæít með öllu núverandi fyrirkomu- lag á úthlutun listamannafjár, að nefnd kjörinni til eins árs er falin úthlutunin, án þess að hafa nokkurn lagastaf eða reglugerð að íara eftir. Þau sextán ár, sem þetta fyrirkomulag hefur við- gengizt| hefur það átt að heita til bráðabirgða og löggjöf um málið boðuð og lofað, milliþinga- nefndir starfað og skilað viða- miklum álitum, frumvörp verið lögð fyrir Alþingi, en til þessa dags hefur Alþingi brugðizt þeirri skyldu að koma festu á þessi mái með skynsamlegri löggjöí. Verður ekki lengur undan því vikizt. Það er þó aðeins önnur hlið vandans. Jafnframt verður að stórauka f járveitinguno til listamanna, því segja má að það sé að verða háðung en ekki heið- jr, að Alþingi skuli veita tveim- ur höfundum einar 33 320 krónur sem „sérstök heiðurslaun“. og núverandi fjárveiting sníður hvaða úthlutunaraðiia sem væri þröngan stakk. Um úthlutun þessa árs vil ég taka fram, að ég tel. mig ósam- þykkan í heild úthlutuninni, nema í efsta flokknum sem er óbreyttur frá sl. ári. Ber það til, að engin einasta breytingar- tillagna minna um tilfærslur milli flokka og nýja menn náðu samþykki, en þar á meðal voru tillögur um Halldór Stefánsson, Stefán Jónsson, Jón Helgason, Svavar Guðnason og Karl O. Runólfsson í 21 þús. kr. Ég er ó- samþykkur meirihluta nefndar- innar í því, að ganga svo frá úthlutuninni að gengið sé fram hjá Gunnari Benediktssynij. Gunnari M. Magnúss, Jónasi Árnasyni, Jakobínu Sigurðardótt- ur, Hannesi Sigfússyni, Jóni Óskar, Kristjáni Bender, Sig- fúsi Daðasyni, Jóhannesi Helga, Þorsteini Jónssyni frá Hamri, Einari Braga, Geir Kristjánssyni, Elíasi Mar, Jóni Dan, Sigurði Róbertssyni, Friðjóni Stefánssynii, Vilhjáimi frá Skáholti, Karli Kvaran, Kjartani Guðjónssyni, Hjörleifi Sigurðssyni, svo nokkr- ir séu tilnefndir. Einnig tel ég að meira rúm hefði átt að gefa hinum efnilegustu í hópi yngstu listamannanna. Af þessum sökum og eins hinu, að ég. tel ýmsar hækkanir og samþykktir meirihlutans í hæpn- asta lagi, tel ég mig ósamþykk- an í heild úthlutuninni í þremur flokkunum, enda þótt ég hafi að sjálfsögðu greitt atkvæði með mörgum einstaklingum þeirra, cg und.irrita úthlutunina með þeim fyrirvnra“. Hörkudeilur innan EBE Brússel 12/5 — Mikil óeining' er nú ríkjandi í aðalstöðvurrn Efnahagsbandalags Evrópu S Brússel. Verið er að ræða um- sókn Bretlands um aðild a©- bandalaginu, og eru miklar deilur í ráðherranefndinni um. það hver réttindi Bretlands. skuli vera innan bandalagsins; Formaður ráðherranefndarinn- ar, Coiombo frá Ítalíu, kvaðstt gera sér vonir um að samkomu- lag næðist um aðild Bretlands> fyrjr lok júlímánaðar. Dómur í máli: Eichmanns TEL AVIV 12/5 — Hæstaréttar- dómur verður kveðinn upp yf- ir Adolf Eichmann í byrjunt. júnímánaðar. Undanfarið hefur kanadískur klerkur, W.lliamt Hull að nafni, heimsótt Eich-- mann 7 sinnum í fangelsið. eni. það er í Ramlah í nágrenni Tell. Aviv. , Eichmann á að hafa sagt, a5 prestinum muni aldrei takast að' gera sig að sannkristnum manni, en Hu]I segist hinsvegar hafa.. góða von um að geta bjargaðS- sál Eichmanns.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.