Þjóðviljinn - 19.08.1962, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 19.08.1962, Blaðsíða 1
Plánetur heimsótkr Moskvu 18/8. — Sovézki vís- indamaöurinn Leonid Sedoff, sem kallaöur hefur verið „faö- ir spútnikanna" sagði í gær, að sá tími vaeri nú skammt undan að sovézkir geimfarar myndu stýra geimskipum sín- sínum til annarra plánetna í sólkerfinu. — Við höfum stigið risa- skref á þeirri braut að leysa þau vandamál að koma upp millistöðvum í geimnum. Slík? ar stöðvar eru nauðsynlegar fyrir ferðir til annarra hnatta og þær verða byggðar áðuí en langt líður. Millistöðvarn- ar munu leiða til ótrúlegustu afreka í geimferðum. Þetta verða einskonar byggðahverfi jarðarbúa. í stöðvunum munu búa og starfa sérfræðingar á mörgum sviðum. Þeir munu annast þar margskonar rann- sóknir og aðstoða geimför á leið þeirra um geiminn. VllrJINN Sunnudagur 19. ágúst 1962 — 27. árgangur — 184. tölublað. 011 landhelgi Noregs ofur seld að dtto drum liðnum Fjörutíu þúsund saltaðar á Sayðisfirði Seyðisfirði 18/8. — Um hádegi í dag var búið að salta hér á Seyðisfirði 40.638 tunnur sh'dar, voru saltaðar 3929 tunnur frá miðnætti í nótt til hádegis í dag en þá var söltun hætt. Hæstu plönin eru Hafaldan með um 10 þús. tunnur, Ströndin 9 þús. og Sunnuver 6 þús., en alls eru plönin 7 aö tölu. I fyrra voru Framhald ' á 5. síðu. • Gangi Ncregur í Efnahagsbandalagið verður öll landhelgi Noregs almenningseign fiskiflota Vestur-Þýzkalands, Frakklands, Ítalíu, Belgíu og Hollands að átta árum liðnum, að viðbættum brezka fiskiflotanum, ef tekst að þvæla Bretlandi í Efnahagsbandalagið! Og atvinnurekendur í þess- um löndum fá þá sama rétt og Norðmenn sjálf- ir til þess að stunda atvinnurekstur í Noregi, setja þar fyrirtæki á stofn og flytja þangað er- lenda verkamenn í tugþúsunda eða hundraða þús- unda tali. Þetta eru þær íramtíðarhorfur sem blasa við norsku þjóðinni ef hún lætur misvitra valdamenn sína koma í kririg innlimun í Eínahagsbandalagið. ingar á Rómarsamningnum í trétt sem norska sjávarút- vegsblaðið „Fiskaren" birti ný- lega er skýrt frá viðræðum I norskra • fulltrúa í Briissel við ★ Ncrcgur biður ekki um breyt- 'ráðamenn Efnahagsbandalagsins. Var 1 Brússel birt yfirlýsing þar sem lýst er vilja norsku stjórn- arinnar til að efla efnahagslega og stjórnmálalega samvinnu Evr- ópuríkjanna, og muni Noregur ekki fara fram á breytingar á Rómarsáttmálanum. En því jafn- framt haldið fram að ýmsar samþykktir sem Eínahagsbanda- lagið hafi gert á grundvelli Róm- arsamningsins virðast ekki eiga sem bezt við ef þeim yrði beitt óbreyttum við Noreg. ★ Átta ára gálgafrcstur Fiskaren segir að líklegt sé að fremsti séríræðingur Efna- hagsbandalagsins á sviði land- búnaðar og fiskveiða, dr. Mans- holt komi í opinbera heimsókn til Noregs í september. Blaðið segir ennfremur að í sjónvarps- viðtali, sem þessi dr. Mansholt hafi haldið snemma í júlí, hafi hann rætt um Noreg og Efna- hagsbandalagið. „Dr. Munsholt sagði að sjálfsagt yrði veitt að- Skipar Efnahagsbandalagið íslend- jngum að hœtta austurviðskiptum? Er það að gerast bak við tjöldin að valda- menn Efnahagsbanda- lagsins hafi skipað ís- lenzku ríkisstjórninni að ganga rösklega fram í því að eyðileggja austur- viðskiptin, hverjar svo sem afleiðingarnar yrðu fyrir atvinnulíf og fram- leiðslu íslendinga og á- róðurskastið um sl. helgi sé eins og fyrstu tilburð- irnir til að hlýðnast þeirri fyrirskipun og undirbúa almennings- álitið? Morgunbl. hefur það i fyrrad. eftir efnahagsmálaráðherra Hol- lands, Willem de Pous, að innan Efnahagsbandalagsins væru Hol- lendingar talsmenn frjálsra við- skipta við lönd utan bandalags- ins, en „hins vegar ætti sú stefna ekki fylgi að i'agna meðal allra bandalagsríkjánna." Ráðherrann svaraði þannig spurningu um afstöðu Efnahagsbandalagsins til viðskipta við sósialistísku löndin. Hér mun vægt til orða tekið og stefna Hollands lítils metin af I „hinum stóru“. Islendingar hafa fengið að vita, að eitt það sem íslenzkir ráðherrar og „sérfræð- ingar“- þeirra hafa verið . að blaðra urn við valdamenn Efna- hagsbandalagsins sé „vandamál" hinna tiltölulega miklu austur- viðskipta Islendinga. Samstillt á- róðurskast stjórnarblaðanna um síðustu helgi móti austurvið- skiptunum hefur sennilega verið skipulagt vegna þess að bak- tjaldamakk íslenzku ráðherranna við Efnahagsbandalagið cr að komast á nýtt stig, eins og á- byrgðarlaust kjaftæði Emils Jóns- sonar við erlcnd blöð bcndir einnig til, og þá ekki síður und- irtektir annars aðalblaðs ríkis- stjórnarinnar, Vísis, við það kjaftæði. Líklegt má telja að menn sem innangengt eiga í stjórnarher- búðirnar, eins og stjórnendur Sölumiðstöðvar hraðfrystihús- anna, hafi rennt grun í að hér var óvenjuleg áróðursherferð far- in og í óvenjulegum tilgangi, svo skjótt brá stjórn SH við til varn- ar austui’viðskiptum Islendinga í þetta sinn. Þjóðviljinn hefur í tilefni af skrifum stjórnarblaðanna snúið sér til nokkul’ra þeirra manna í verzlunarstétt, sem mest hafa haft að gera með innflutning vara i austurviðskiptunum og spurt þá um álit þeirra á þeim viðskiptum. Eru svör þeirra birt á 4. síðu blaðsins í dag. lögunartímabil fyrir Noreg, en ad það aðlögunartímabil gæti ekkt orðið lengra en áltta ár í mesta lagi. Eftir þann tíma gæti ekki komið til mála að neitt yrði gert upp á milli þjóða, hvort sem um væri að ræða rétt annarra þjóða til fiskveiða í núverandi jland- helgi Noregs, eða að öðru leyti“. Og blaðið hefur í undirfyrirsögn fréttarinnar: „Átta ára aðlögun- arfyrirkomulag í fiskveiðunum". Þetta er það sem gefa á Nor- egi. Hvaða úrslitakcsti hafa ís- lenzku ráðherrarnir og sérfræð- ingar þeirra fengið, varðandi þa& að gera einnig landhelgi Islands að almenningsgagni tugmilljóna- þjóða og fisklflota þeirra? Er Emil Jónsson kannski enn a& betla um gálgafrest fyrir Island og íslenzku landhelgina, nokk- urra ára gálgafrest? Eða eru skil- yrði Efnahagsbandalagsins um þetta ef til vill eitt þeirra leynd- armála, sem ráðherrarnir hvísla að Hermanni og Eysteini, en dul- ið er öllum þorra þjóðarinnar, þangað til búið er að beygja og: múta nógu mörgum ’til að berja innlimun Islands í Efnahags- bandalagið gegnum Alþingi á einum eða tveimur dögum? Mjög harður hif- reiðaárekstur Um klukkan 4 í fyrrinótt var& mjög harður árekstur á móturn Snorrabrautar og Hverfisgötu á milli lögreglubifreiðar. sem var ekið austur Hverfisgötu og bif- reiðar, sem ekið var á rauðu ljósi norður Snorrabraut út á gatna- mótin. Við áreksturinn kastaðist bifreiðin, seni kom af Snorra- brautinni á ljósastaur. Báðar bif- reiðarnar skemmdust mjög mikid en engin teljandi meiðsli urðu á mönnum. Grunur leikur á um það, að ökumaður bifreiðarinnar, sem ók ólöglega inn á Hverfis- götuna, hafi verið ölvaður. -k „Helgafell“, eitt af skipum ★ íslenzka kaupskipaflotans, ★ lestar timbur í einni af ★ Eystrasaltshöfnum Sovét- ★ ríkjanna. ] l i 1 I I I t I t 1 I 1 I i \ i [ I i

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.