Þjóðviljinn - 17.04.1964, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 17.04.1964, Blaðsíða 5
Föstudagur 17. apríl 1961 ÞIÖÐVILIINN SlÐA g ÁRMANN BJARGAÐI SÉR FRÁ FALLI MEÐ SIGRI YFIR FH ■ Það væri synd að segja að leikirnir í fyrstu deild á miðvikudagskvöld- ið hafi ekki verið spenn- andi og gefið áhorfendum eitthvað fyrir inn?angs- eyrinn. — f báðum leikjun- um var um bað barizt hvort Ármann eða Víkingur yrðu áfram í fyrstu deild, eða hvort þessum liðum tækist að koma því svo fyrir að ÍR — sem ekkert kom v’ð sögu þetta kvöld — félli niður í aðra deiid, án þess að geta nokkuð við því gert. Það voru aðeins síð- ustu mínúturnar i síðari leiknum sem biörguðu því að ÍR fær bó að ,,bera hönd fvrir höfuð sér“ í leik við Víkine um sjálft fallsætið! l'funaði aðeins einu marki. Fvrst unnu Ármenningar FH og svo kom V'kincmr tvíefldur, og ógnaði ís- landsmeisturunum sem að- eins tókst að ná jöfnu o" um leið að bjarga TR frá því að falla svona eins og uppúr þurru. Takist Vík- ingi eins upn í þeim leik og þessum þá á ÍR ekki von á góðu. Ég hef stundum leyft mér að líkja liði Ármanns við blóm sem biði eftir því að springa út. og það hefur verið eins og manni hafi þótt nokkuð standa á því að það gerðist. Á vissan hátt má segja að þetta hafi gerzt í leiknum við FH á mið- vikudagskvöld. Þó segja megi að FH hafi ekki leikið eins vel og þetta lið getrur, þá verður ekki annað sagt en að þeir hafi átt allgóðan leik og að reynt hafi á hina ungu Ármenninga sem ætti að sanna að þetta lið Ármanns er þegar búið að ná þroska sem ætti að vera það traustur að hér hafi eklci verið um neina tilviljun að ræða. Sérstaklega var leikur þeirra góður í fyrri hálfleik og fengu FH-ingar þá ekki rönd við reist. Ármann byrjar að skora en FH jafnar og þetta endur- tekur sig á 2:2 og 3:3, en þá ná þeir góðum leikkafla sem FH réði ekki við og komast í 8:3 en hálfleikurinn endar 9:6. FH vinnur síflari hálfleik FH nser heldur betri tökum Víkingur ógnaði Fram er bjargað- ist með jafntefli Myndin sýnir eitt æsispennandi augnablik í leik Frain og Víkings á miðvikudagskvöldið, þegar minnstu munaði að ÍR yrði sent niður í 2. delltl með sigri Víkings. Það er Pétur Bjarnason sem er að varpa knettinum, en Framarar eru vel á verði. (Ljósm.: Bj. Bj). í raun og verum sáum við nýtt Víkingslið í leikn- um móti íslandsmeisturun- um. Það var eins og þetta væri sparilið sem þeir not- uðu þegar þeir leika við sjálfa fslandsmeistarana! Þetta voru þó öll sömu nöfnin og áður, en nú höfðu þau bætt við sig, og á þeim orðið nokkurs konar geng- islækkun! Og það svo að viðskiptin við sjálfa meist- arana urðu nokkurskonar „clearing“-viðskipti, er leik lauk, og má segja að Fram hafi sloppið vel, eftir hinn slaka fyrri hálfleik sinn, sem þó var enginn „svart- ur“ dagur eins og það er kallað, það var miklu frem- ur það að Víkingar rugluðu svo fyrir Fram að þeim tókst ekki að koma við neinni þeirri ,,taktik“ sem gaf þeim verulegan árang- ur. Það segir dálítið til um gang leiksins í fyrri hálfleik að Fram skoraði fyrsta mark sitt á 14. mínútu leiksins. en þá höfðu Víkingar skorað 4! Og þessi sami munur var í hálfleik eða 11:7. I þessum hálfleik náði Vík- ingur oft mjög góðum leik og Framhald á 8. siðu. Það var eftirvænting og ólga á áhorfendapöllu num þegar Ármann og FH léku, og Ármann forð- aði sér frá falli í 2 deild með þvi að sigra FH. í andlitum áhorfenda má lesa ýmist ánægju eða vonbrigði, eins og gjarnan vill verða á slíkum stunduin. á síðari hálfleik, en þó engan vegin svo að þeir taki frum- kvæði í leiknum, munurinn er oftast 2—4 mórk. Á 26. mínútu er leikstaðan þó 19:18 fyrir Ár- mann. En rétt fyrir leikslok bæta Ármenningar einu við svo leikurinn endar 20:18 fyrir Ármann, og eftir gangi leiks- ins var Ármann vel að sigrin- um kominn. 1 FH-liðið vantaði Einar Sig- urðsson, en annars voru þeir með alla sína menn. Þeir voru ekki eins virkir og oft áður og komust ekki eins inní vörn Ármanns og þeim hefur oft Framhald á 9. síðu. TBR minnist 25 ára afmælis Badminton er íþrótt fyrir unga og gamia Tennis- og Badmintonfélag Reykjavíkur var stofnsett fyrir 25 árum og hefur æ síðan verið sá aðili sem mest og bezt hefur unnið að hag íþróttarinnar hér á landi. Um næstu helgi verð- ur afmælismót félagsins haldið. íslandsmeistara- mótið í badminton verður háð 2. og 3. maí n.k. Það var Jón Jóhannesson sem svo að segja var „inn- flytjandi" badminton-íþróttar- innar til Islands fyrir 30 ár- um, og hann var aðalhvata- maðurinn að stofnun TBR fyrir 25 árum. Jón var á ferð í Danmörku ásamt Jóni Kal- dal 1934, og komst þá í kynni við badminton og varð sér úti NÝ UÓÐABÓK FVRSTA LJÓÐABÓKIN FRÁ NÝJL SKÁLDI r t. BÖÐVAR GUÐMÖNDSSOM AUSTAN ELIVOGA Höfundur þessarar ljóðabókar, Böðvar Guðmundsson, er fæddur á Kirkjubóli, Hvítársíðu, 9. janú- ar 1939. Hann lauk stúdents- prófi frá M.R. 1962 og stundar nú nám í islenzkum fræðum við Háskóla íslads. Böðvar Guðmundsson hefur fengizt við yrkingar frá blautu bamsbeini og hafa allmörg kvæði hans birzt j skólablöðum og tímaritum. Þessi fyrsta ljóðabók hans sýnir að hann sækir viðfangs- efni sín ekki sizt í fornar ís- lenzkar bókmenntir og sögu og að hann leitast við að sameina i ljóðum sínum forn og ný skáld- skaparverðmæti. BÓKAFÉLAGIÐ Jón Jóhannesson. ,,innflytjandi“ badminton- íþróttarinnar til íslands og fyrsti formaður TBR. um leiðsögu i íþróttinni. Þeg- ar heim kom, vann hann að því að kynna íþróttina. enda var honum ljóst að hún væri heppilegri til iðkunar hér á Framhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.