Þjóðviljinn - 16.05.1964, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 16.05.1964, Blaðsíða 1
□ Það kemur líka til greina að sigla um Dóná frá Vín og svo til Jalta með viðkomu í sex lönd- um. □ Myndin er frá Búda- pest. — Sjá 'frétt um 'ferð- ir Landsýnar á 12. síðu. í DAG, Iaugardag, er ekki unnið í prentsmiðj- um og þessvegna koma engin blöð út á morgun, hvítasunnudag. Þjóðvilj- inn kemur næst út mið- vikudaginn 20. maí. — Sunnudagur, íylgirit Þjóð- viljans, fylgir blaðinu í dag, svo og barnablaðið, Óskastundin. AF FJÖLBREYTTU efni Sunnudags má m.a. nefna: Greinina: Landbúnaðar- bylting — Hvernig voru búnaðarhættir um alda- mótin? — Viðtal við Nic- olas Guillén forseta lista- mannasamtaka Kúbu um list og byltingu. Mótmæli — Sunnudagspistill eftir Á.B. — Kennslustund í smásagnagerð — sögu eftir A.B. Cox. Efling byggingasjóis ríkisins, lán til 35 ára á 3% vöxtum □ Á nýafstöðnu Alþingi lögðu þrír þingmenn^ Alþýðubandalagsins, Hannibal Valdimarsson, Ein- ar Olgeirsson og Geir Gunnarsson, fram frum- varp um breytingar á lögum um húsnæðismála- stofnun, byggingarsjóð ríkisins o.fl. Eru þar lagð- ar fram raunhæfar tillögur um eflingu byggingar- sjóðs ríkisins, og bent á nýjar tekjuöflunarleiðir fyrir hann upp á allt að 250 miljónir króna, og myndi útlánageta sjóðsins aukast upp í um 595 miljónir á næstu 20 árum. Byssurnar komnar á loft Stríð heíur brotizt út um Akrufjail Þá er gert ráð fyrir að sjóðurinn veiti jafn- greiðslulán til 35 ára með 3% vöxtum, og mega þau lán nema allt að 75% af bygg- ingarkostnaði hjá bygging- arsamvinnufélögum, en allt að 67% af kostnaði annarra íbúða. Nú er hafíð stríð milli Iand- eigenda að Akrafjalli og bæjar- fógetans á Akranesi og er bar- izt um hvorki mcira né minna en heilt fja.ll og hvort leyfa skuli umferð manna um það. Þetta er gert með orðsins brandi svona fyrst í stað og hljóma viljayfirlýsingar fr áþess- um aðilum á víxl í útvarpinu. Landeigendur að Akrafjalli hafa stofnað með sér félag og ber það nafnið „Landeigenda- félagið Vörn“. og hefur nú bannað alla umferð um Akra- fjall um sauðburðinn. Odda- maður fyrir landeigendum er Þorgrímur bóndi Jónsson á Kúludalsá. Landeigendur riðu á vaðið og tiLkynntu bann sitt í útvarpinu í fyrradag og brá þá bæjarfógetinn á Akranesi hart við og tilkynnti um kvöld- ið í útvarpinu, að bann þetta væri að engu hafandi og ekki í samræmi við landslög. í gærdag brugðu landeigend- ur hart við og tilkynntu í út- varpinu, að tveir vopnaðir menn frá þeirra hálfu væru komnir á fjallið og var það látið svo heita, að þeir ættu að skjóta svartfugl. Menn væru varaðir við að vera mikið á flakki um fjallið og lásu Akurnesingar þama á milli línanna sitthvað. Nú er það spurningin, hvort bæjarfógeti vopnar sitt lið og er þá komið heitt stríð á Akra- fjalli. Skagamenn eru skapmenn að upplagi og er ekki að vita hvað af hlýzt. Landeigendur hafa gefið út þá yfirlýsinga, að félagsstofnun þeirra eigi að vinna að eyðingu svartbaks og miklar mannaferð- ir um fjallið trufli sauðburðinn. Annað liggur þó þarna að baki segja Akurnesingar o:g ætla landeigendur að leggja hundrað Framhald á 3. síðu. MUNIÐ Surtseyjar- för Æ F R Meginatriði í írumvarpi þing- manna Alþýðubandalagsins eru sem hér segir: Verkefni húsnæðismála- stjórnar skal vera að gera grein fyrir raunverulegri þörf landsmanna fyrir íbúðabygg- ingar, og hvernig þeirri þörf verði fullnægt á sem hagkvæm- astan hátt. Einnig ákveður hús. næðismálastjórn skiptingu láns- fjár nailli sveitarfélaga. Þá skal setja á stofn húsnæðisnefnd í hverju sveitarfélagi og geri hún áætlanir um byggingaþörf, taki á móti umsóknum um íbúðalán, geri tillögur um í hvaða röð um- sækjendur fá lán úr byggingar- sjóði ríkisins og anni'st ýmsa aðra fyrirgreiðslu fyrir íbúða- byggjendur. Oh Sett verði á stofn almennt byggingarsamvinnufélag í hverju sveitarfélagi og verði því gert kleift að annast verulegan Framhald á 3. síðu. Frumsýning á annan Á annan í hvítasunnu frumsýnir Þjóðleikhúsið óperettuna Sardas- furstinnuna eftir Kálman. Leikstjóri er István Szalatsy og er hann einnig hljómsveitarstjóri. Með aðalhlutverkið fer ungverska söng- konan Tatjana Dubnovszky en með aðalhlutverk karla Erlingur Vigfússon. Aðrir sem hafa með höndum meiriháttar hlutverk í óper- ettunni eru: Bessi Bjarnason, Lárus Pálsson, Valur Gíslason, Guð- mundur Jonsson, Herdis Þorvaldsdottir og Guðbjörg Þorbjarnar- dóttir. Um 30 félagar þjóðleikhússkórsins taka þátt í sýningunni og auk þeirra kemur fram hópur dansmeyja úr ballettskóla leik- hússins. Óperettan verður sýnd í Þjóðleikhúsinu til loka þessa leikárs, 1. júlí. Myndin er af Erlingi og Tatjönu í hlutverkum sínum. Snarað úr konungs- S/oðf Bóndinn að Mógilsá heit- ir Jón Erlendsson og hef- ur setið jörðina síðan árið 1926. Þar bjuggu foreldr- ar hans áður, en þeir voru Skaftfellingar að kyni og hófu búskap á jörðinni ár- ið 1896. — Ekki reiknaði ég með því að halda svona fína veizlu hér í túnfætinum, sagði Jón bóndi, og eru hér mörg stórmenni saman komin. Þeir hafa þegar snarað út jarðarverðinu úr kon- ungssjóði. Ég seldi jörðina á eina miljón og sjö hundr- uð þúsund Qg er þetta eng- inn peningur á þessum timum með hraðfallandi verðmæti krónunnar. Ég er hins vegar orðinn gam- all maður og fylgir aldur minn öldinni og er ég hættur að geta annast fimmtán kýr hér á búinu. Við sitjum líka ein hér gömlu hjónin. Krakkarnir flognir úr hreiðrinu. Tún- rækt er orðin hér tuttugu Veizluborði var slcgið upp í túnfætinum og stjórnaði Ilaukur Ragnarsson, tilraunastjóri vcitingum og við borðsendann stendur Guðmundur 1. Guðmundsson, utanríkisráðherra. (Ljósm. Þjóðv. G.M.) Tifraunastöð fyrir skógrækt að Mógilsá á Kjaiarnesi ■ í gærdag stakk utanríkisráðherra fyrstu skóflustung- una fyrir grunni tilraunastöðvar á vegum Skógræktar rík- isins að Mógilsá á Kjalarnesi og var það eina ærlega hand- takið þarna efra þann daginn. Þetta var hátíðleg athöfn þarna í túnfætinum á Mógilsá og hafði veizluborði verið slegið upp á grænu túninu, og spóinn vall í hæðardragi skammt frá. Þá gekk fram Hákon Guð- mundsson. formaður Skógrækt- arfélags ísiands og skýrði þess- ar framkvæmdir að nokkru: „Á sínum tíma gaf Ólafur V. Noregskonungur Islendingum ■ina miljón norskra króna og Jivldi gjöfinni varið til meiri háttar framkvæmda í skógrækt. Hefur nú verið ákveðið að verja tveim þriðju hl. norsku þjóð- argjafarinnar til þess að ':oma upp tilraunastöð í skógrækt að Mógilsá á Kjalarnesi. Gert er ráð fyrir þvi, að tilraunastöð- in sjálf búin nauðsynlegum tækjum kosti uppkomin um fjórar miljónir íslenzkra króna. Teikningar og uppdrætti að byggingum hafa þeir Hörður Bjamason, húsameistari ríkisins. og Gunnlaugur Pálsson, arki- tekt safið og gert í samráði við Hauk Ragnarsson, tilrauna- stjóra. Byggingu húsa mun Hlöðver Ingvarsson, húsasmið- ur, annast. Skógræiit ríkisins hefur þega: að mestu girt og friðað land jarðarinnar. en nánasta um- hverfi stöðvarinnar og græði- reitir hennar verða girtir skjól- beltum og limgirðingum. Lega jarðarinnar Mógilsár og margbreytileg hæð landsins yfir sjó gefur þessum stað sérstakt gildi vegna þeirra möguleika til fjölþættra tilrauna, sem stað- hættir veita. Fagurt umhverfi er verðug umgerð þeirrar starf- semi, sem þarna fer fram. Sæm- ir og vel að þetta er hér í .landnámi Ingólfs Amarsonar, sem fyrstur hóf búsetu hér á landi og kom af norskri grund“ Þarna voru viðstaddir auk utanríkisráðherra. norski am- bassadorinn, húsmeistari ríkis- ins, skógræktarstjóri ásamt helztu forystumönnum skógrækt- ar hér á landi. hektarar og liggur margt handarverkið í þessari ræktun. (Þess má geta að Jón bóndi hefur fengið verðlaun fyrir góða mjólk og hefur hún ætíð verið í fyrsta flokki). — Þeir sóttu líka að mér frá fiskiræktinni í Kollafirði, sagði hann enn fremur. — Mér er það hinsveg- ar fagnaðarefni að vita jörðina skógi prýdda í framtíðinni og get þess- vegna horfið í gröfina ró- legur og sáttur við guð og menn. Jón Erlendsson

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.