Þjóðviljinn - 13.08.1965, Blaðsíða 7
Föstudagur 13. ágúst 1965 — ÞJÓÐVILJINN — SlÐA
Rannsoknaráð ríkisins
Framhald af 10. síðu.
rita og annarra upplýsinga um
vísindastörf, rannsóknastörf og
tækni og úrvinnslu þeirra til
hagnýtingar fyrir atvinnuvegi
landsins. Upplýsingum þessum
skal komið á framfæri við rann-
sóknastofanir.
7. Að beita sér fyrir skiótri
hagnýtingu tæknilegra nýjunga
hjá atvinnuvegunum með kynn-
ingarstarfsemi og upplýsinga-
þjónustu.
8. Samstarf við hliðstæðar er-
lendar stofnanir og að stuðla að
þáttöku íslands í alþjóðlegu sam-
starfi á sviði rannsóknarmála.
9. önnur þau verkefni, sem
æskilegt reynist að sameina fyrir
rannsóknastarfsemina.
Fyrsti fundur hins nýja Rann-
sóknaráðs hófst að Hótel Sögu
í Reykjavík í dag (12. ágúst) og
lýkur um hádegi á morgun.
Gestir fundarins eru dr. Al-
exander King frá Efnahags- og
framfarastofnuninni (OECD) og
Robert Major, formaður Rann-
sóknaráðs Noregs (Norges Tekn-
isk Naturvetenskabelige Forskn-
ingsrád). Fluttu þeir báðir erindi
á fundinum í dag. Dr. Kiag
ræddi um mörkun vísindastefnu.
markmið. nauðsynlegar undir-
stöðuupplýsingar, samræming
við fjárveitingar o.fl. Ennfremur
ræddi hann um starfsemi Efna-
Pólitísk...
Framhald af 1. síðu.
Engu að síður gekk Jóhann
Hafstein fram hjá Óskari B.
Bjarnasyni og skipaði Pétur Sig-
urjónsson forstjóra í hans stað.
Pétur hefur eftir að hann lauk
námi starfað sem verkfræðingur
hjá Alafossi og nú síðustu árin
hjá Sementsverksmiðju ríkisms.
Hann hefur ekki fengizt neitt við
almenna rannsóknarstarísemi og
ekki aflað sér neinnar fram-
baldsmenntunar á því sviði sem
nota mætti til að rökstyðja
stöðuveitinguna. Hins vegar er
hann flokksbróðir iðnaðarmála-
ráðherra.
hags- og framfarastofnunarinnar
á sviði vísinda. — Robert Major
ræddi um skipulag rannsókna í
Noregi, störf ráðsins að mörkun
vísindastefnu og undirstöðuat-
huganir, svo sem á framboði og
eftirspum vísinda- og tækni-
manna og fjármagni til vísinda,
— svo og um samræming fjár-
veitinga til vísinda á vegum
norska Rannsóknaráðsins.
Anáatrú í rénnn
á Norðurlöndum
STóKKHÓLMI 10/8 — Anda-
trú er í rénun á Norðurlönd-
um. Það má ráða af skeyti
frá fréttaritara NTB sem fjall-
ar um ráðstefnu spíritista frá
öllum Norðurlöndum sem haf-
in er í bænum Mullsjö í Sví-
þjóð. Hann segir að andatrúar-
fólk eigi nú erfitt með að
sinna köllun sinnj vegna mik-
ils skorts á miðlum. í Svíþjóð
séu nú ekki nema 10—12 miðl-
ar tiltækir til að koma mönn-
um í samband við andaheim-
inn.
Hroðalegt slys
í Tyrklandi
ISTANBÚL 11/8 — 23 farþegar í
áætlunarbíl á leiðinni milli Ank-
ara og Istanbúl skaðbrenndust í
saltpéturssýru og biðu bana í
dag, eftir árekstur við vörubíl
sem flutti sýruna. Báðir bílamir
ultu ofan í skurð. Farþegar tóku
þá eftir því að það rauk úr
geymum á vörubílnum og hé'.du
að eldur væri kominn upp. Þeir
hröðuðu sér út og stukku ofan
í skurðinn sem hafði fyllzt af
sýrunni sem lekið hafði úr geym-
unum. Átján manns biðu þegar
bana, en fimm létust á sjúkra-
húsi. Sum líkanna voru svo tlla
leikin að ekki einu sinni beinin
voru eftir.
Æskan...
Framhald af 10. síðu.
etja en fyrir t.d. 20 árum. Þar
kæmi einkum femt til. fólks-
fjölgunin, stækkun borga á
kostnað sveita og þorpa, bættar
samgöngur og vaxandi velmegun.
Hann sagðist hafa kynnt sér
æskulýðsmál á íslandi og komizt
að þeiri niðurstöðu að hér væri
við svipúð vandamál að etja og
annars staðar. Hér þyrfti eins og
annars staðar að auka þá við-
leitni að ná til hinnar félags-
bundnu æsku.
1 því sambandi drap hann á
niðurstöður ráðstefnu UNESCO
um æskulýðsmál, en þar segir að
heimilin og skólinn ,séu yfirleitt
ekki fær um það að gera ung-
linginn að góðum þjóðfélagsþegn.
Fléira þyrfti að koma til og virt-
ist heilbrigð félagsstarfsemi (
ýmsum myndum vera hvað bezt-
ur þroskavegur.
Hann kvaðst hafa kynnzt starf-
semi Æskulýðssambands íslands,
sem ætti að auka starísemi sína
á innanlandsvettvangi. En þar
skorti fjármagn til átaka og
þyrfti ríkið að hlaupa undir
bagga. ÆSl væri einmitt sá að-
ili, sem gæ'ti sameinað krafta
hinnar félagsbundnu æsku til að
hún yrði þess umkomin að tak'
ast á hendur vandasöm störf í
þjóðfélaginu.
Oomés sagði, að sér hefði
fundizt æskan hér hallast ta's-
vert að áfengínu. Það hefði sleg'
ið hann talsvert að sjá komungt
fólk mjög ölvað á götum úti
síðla kvölds — þó væru hér t.ii
tvenn félagasamtök, sem hefðu
bindindisstarfsemi beinlínis á
dagskrá.
Jacobus Oomes fer héðan í
dag.
Fáeinar línur
Framhald af 5. síðu.
kom viss orð á vissa staði i
máli. eins og lestrarmerki gera.
En P.H er að sanna að Snorri
hafi skrifað Egils sögu af því
hann skrifaði Heimskringlu, það
er ekki einasta einföld heldur
margföld villa. Er það upphaf
þess máls, að af góðlund við
P.H. benti ég honum á þessar
villigötur á kringlu heimsins og
þær skildi hann ekki lengur
fara. Þetta hefur tekizt, því
nú nefnir P.H .Heimskringlu, án
þess að hún sé eftir Snorra.
Hitt virðist ekki hafa tekizt
að umskapa P.H. í postullegt
sannleiksvitni. Annars er að
segja P.H. það. að ef honum
sámar að ég hlæ, að ég undrast
það, að bera saman langt ger-
hugsáð sagnvísindaverk hinna
færustu manna, eins og Heims-
klingla er, samanber formál-
ann. og svo stutt alþýðusagna-
rit eins og Egils sögu, þar sem
fræðileg og bókleg ábyrgð fer
út um þúfur í mörgum efnum
og stíl ber í sundur á höfuðgrein,
svo sem ég hef bent á. Þrátt
fyrir gefið tilefni biðst P.H.
undan öllu erindi í þessu máli,
en slær botninn í þessar fáu
línur í einlægri von um að fá
fleiri frá mér að heyra ,,í þess-
um efnum, sem eru okkur báð-
um svo mikið áhugamál“.
Ég þekki ekki P.H., en biðst
afsökunar, ef P.H. er aðeins iít-
ið sáklaust bam. Drmskur mað-
ur mun nú hafa farið að at-
huga þetta mál, og eftir það
mun P.H. hafa og þurfa Iítinn
tfma
Benedikt Gíslason frá Hoftclgi.
Útsala — Útsala
Síðasti dagur útsölunnar er í dag-. — Mikil
verðlækkun hjá
BÁRU, Austurstræti 14
Útför föður okkar, tengdaföður og afa,
SVEINBJARNAR ODDSSONAR
fer fram frá Akraneskirkju laugardaginn 14. ágúst og
hefst að heimili hans Sunnubraut 20 kl. 2 e.h.
Að ósk Verklýðsfélags Akraness verður útförin gerg á
vegum þess. Þeim sem vildu minnast hans er bent á
Sjúkrahús Akraness.
. Aðstandendur.
Frumkvæði
opinberra . . .
kynna Upplýsingaþjónustu Banda
ríkjanna í Söguhúsinu við Haga-
torg.
Nú hafa málin þróazt þannig
áfram, að ekkert verður líklega
af þessu námskeiði af öðrum á-
stæðum.
TRULOFUNAR
HRINGIR/^
AMTMANNSSTIG Í'ÆdSk
Halldór Krislinsson
guUsmiður. — Simi 16979.
SMÁAUG
Fataviðgerðir
Setjum skinn á jakka auk
annarra • fataviðgerða. Fljót
og góð afgreiðsla.
Sanngjarnt verð
Skipholti 1. — Simi 16-3-46.
Snittur
Smurt brauð
rffl óðinstore
Síml 20-4-90
Pússningarsandur
Vikurplötur
Einangrunarplast
Seljum allar gerðij- aí
pússningarsandi heimflutt-
um og blásnum inn.
Þurrkaðar vikurplötur og
einangrunarplast.
Sandsalan við
Elliðavog s.f.
EUiðavogi 115 — símj 30120
EYJAFLUG
MEÐ HELGAFELLI NJÓTIS ÞÉR
ÓTSÝNIS, FUÓTRA
OC ÁNÆGJULEGRA FLUGFERÐA.
AFGREIÐSLURNAR
OPNAR ALLA DAGA.
SÍMAR: ___
VESTMANNAEYJUM 1202
REYKJAVÍKURFLUGVELll 22120
Dragið ekki að
stilla bílinn
■ MOTORSTILLINGAR
■ HJÓLASTILLINGAR
Skiptum um kerti og
platínur o.fl.
BÍLASKOÐUN
Skúlagötu 32, sími 13-100.
SÆNGUR
Endurnýjum gömlu
sængina.
Eigum dún- og
fiðurheld ver.
NÝJA FIÐUR-
HREINSUNIN
Hverfisgötu 57 A
Sími 16738.
RYÐVERJIÐ NÝJU BIF-
REIÐINA STRAX MEÐ
TECTYL
Siml 30945.
Hiólbarocvi&jerðír
OPIÐ ALLA DAGA
(LfiCA LAUGARDAGA
OG SUNNUDAGA)
FRÁKL 8 TIL22.
Gúmmívinnostofan h/f
Skipholti 35, Reykjmrik.
Verkstæðið:
SlMI: 3.10-55.
Skriístoían:
SIMI: 3-06-88.
Nýkomii
mikið og fjölbreytt úrval af flugvéla-, skipa- og
bílamódelum frá Lindberg.
Komið óg skoðið meðan úrvalið er mest.
FRISTUND ABOÐIN
Hverfisgötu 59.
Molskinnsbuxur
Nr. 8 til 18. Svartar, grænar og drapplitaðar.
GALLABUXUR allar stærðir.
Danskir BÍTILSJAKKAR
nr. 4 til 16. — PÓSTSENDUM.
Verzlun Ö.L. Traðarkotssundi 3
(móti Þjóðleikhúsinu).
Stakir bollar
* \
ódýrir og fallegir.
Sparið peningana, —
sparið ekki sporin.
Kjörorðið er: allt fyrlr
viðskiptavininn.
VERZLUN
GUÐNVAR
Grettisgötu 45.
Gerið við bílana
ykkar sjálf
— Við sköpum aðstöðuna —
Bílaþjónustan
Kópavogl
Auðbrekku 53 — Siml 40145.
Sandur
Góður pússningax- og gðll-
sandur trá Hraunl í Ölfusi
kr. 23.50 pr. tn.
— SÍMl 40907 —
úr og skartgripir
KORNELlUS
JÚNSSON
slcóla,v-ördu.stlg 8
AKIÐ
SJÁLF
NÝJUM BÍL
Almenna
bifreiðaleigan h.f.
Klapparst. 40. — Sími 13716.
KEFLAVÍK
Hringbraut 106 —. Sfmi 1513.
AKRANES
Suðurgata 64. Síml 1116.
Pússningarsandur
Heimkeyrður pússnlngarsand-
ur og vikursandur, sigtaður
sða ósigtaður við húsdymar
eða kominn upp á hvaða bæg
sem er eftir óskum kaupenda.
SANDSALAN
við EUiðavog s.f.
— Sfmi 30120. —
Saumavélaviðgerðir
Ljósmyndavéla-
viðgerðir
— FLJÓT AFGREIÐSLA —
SYLGJA
Laufásvegi 19 (bakhús)
Sími 12656.
BÍL A
LÖKK
Grunnut
Fyllir
Sparsl
Þynnir
Bón
EINKAUMBOÐ
ASGEIR 0LAFSSON. ueildv
Vonarstræti 12. Sími 11075
Auglýsið i Þjóðviljanum
RADIOTONAR
Laufásvegl 41.