Þjóðviljinn - 25.08.1967, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 25.08.1967, Blaðsíða 10
 „í tilefni af þessum merka á- fanga í sögu flugsins á Akur- eyri“ eins og það var orðad, flykktust bæjarbúar að vél- Meðan gestir þágu veiting- ar bæjarstjórnar Akureyrar í hinni nýju flugstöðvarbygg- ingu og hlýddu þar á ræður >íAMx Bjarni Einarsson bæjarstjóri á Akureyri og kona hans, Gíslina Friðbjörnsdóttir, kveðja Gullfaxa. inni. Varð þröng við aftur- dyrnar þar sem fólki var hleypt inn, og gengu menn í halarófu eftir endilangri flus- vélinni, en þar afhcntu bros- mildar flugfreyjur hverjum manni merki Fllugfélagsins. Fengu allir að kíkja frammí flugstjórnarklefann, og voru stoltir á svip yfir þessum glæsta farkosti er þeir stigu út. Talið er að þriðji hver Akureyringur hafi gengið < gegnum vélina endilanga meðan á móttökuathöfninni stóð í flugstöðvarbygging- unni nýju. Flugvöliurinn hefur nýlega verið malbikaður, og er lengd hans þá öli orðin 1560 m Hins vegar notaði Gullfavri ekki nema um þriðjung braut- arinnar við lendinguna o? vákti það mikla hrifningu viðstaddra, enda mátti víða heyra þessa athugasemd: Það hofði svo sem ekki þurft að lengja flugvö'Uinn vegna þot- unnar. Gullfaxi á Aku reyrarflugvelli. Svar Hlífar við síðustu greinargerð V.l. í>ær Ásðis, Bergljót og Björg hrósuðu happi yfir að hafa komizt inn í vélina í öllum troðningnum. Og svo fengum við líka að kíkja frammí, sögðu þær. Áhuginn mikill sem fyrr: Akureyríngar fögn- uðu komu GuHfaxu Flugfélag íslands var stofnað á Akureyri fyr- ir 30 árum og áhugi Akureyringa fyrir fluginu nú er engu minni en þá, ef marka má af þeim mannfjölda sem hafði safnazt saman þar við flugvöllinn, þegar fyrsta þota Flugfélagsins lenti þar í fyrrakvöld. Talið er að 3—4 þúsund manns hafi komið út á flugvöll til að fagna komu Gullfaxa, og þar sem mannfélkið er, þar eru bílamir, enda náði bílalestin frá flugvellinum svo langt sem augað eygði í átt til bæjarins. Komu menn jafnvel frá Bjlvík og Húsavík til að vera viðstaddir þenn- an merkisatburð. Akureyringum var boðið að skoða Gullfaxa meðan hann stóð þar við, og hér sést einn af yngstu borgurunum stíga út úr flugvélinni. Er V.Í. að hlakka yfir samdrættinum í atvinnulífinu? Vmf. Hlíf í Hafnarfirði hefur sent Þjóðviljanum eftirfarandi athugasemd vegna síðari grein- argerðar Vinnuveitendasambands Islands um vinnudeiluna í Straumsvík. „1 tilefni af síðari greinargerð Vinnuveitendasambands Islands vill Verkamannafélagið Hlíftaka eftirfarandi fram: Þessi greinargerð Vinnuveit- endasambandsins hrekur ekki þá staðreynd, sem Hlíf hefur haldið fram, að samningarnir við Búr- fell voru gerðir af Vinnuveit- endasambandi íslands og Foss- kraft og kaup þar nákvæmlega hið sama og ákveðið var í samn- ingum Verkamannafélagsins Hlifar við Strabag-Hoohtief fra 5. marz s.l. Samningarnir við Búrfell og Straumsvík eiga ekkert skylt við yfirgreiðslur sem tíðkazt hafa á vinnumarkaðnum. Svar Hh'f- ar við fyrri greinargerð Vinnu- veitendasambandsins stendur þvi óhaggað. Hinsvegar sýnir það hugarfar Vinnuveitendasambandsins, að það skuli nú hlakka yfir því að yfirgreiðslur fari minnkandi vegna samdráttar í atvinnulíf- inu. —Verkamannafél. Hlíf“. Landsþing hjá Kven- félagasambandinu Landsþing Kvenfélagasam- bands Islands var sett í Nes- kirkju í gærmorgun. Sctningar- athöfnin hófst kl. 10; Helga Magnúsdóttir frá Blikastöðum, sem er formaður sambandsins, flutti ávarp og setti þingið. Síð- an flutti séra Jón Thorarensen nokkur ávarpsorð og sungnir voru sálmar við undirleik Páis Halldórssonar, organista í Hail- grímssókn. Fundur hófst síðan í Hall- veigarstöðum við Túngötu kl. 11 i gærmorgun og er þetta í fyrsta sinn sem landsþing sambandsins er haldið þar, en þingið er það 17. sem halldið hefur verið frá upphafi. Fulltrúar á þinginu eru 45 og auk þess sitja það allmargir gestir. Við setningarathöfnina voru m.a. mættir fulltrúar hinna Norðurlandanna, sem sátu stjóm- arfund Húsmæðrasamb. Norð- urlanda í Heykjavík í vikunni. Á fundinum í gærmorgun fluttu þær kveðjur til þingsins frá fé- lögum sinum, en konumar halda utan í dag. Blaðið hafði í gær samband við Ólöfu Benediktsdóttur, en hún er í stjórn sambandsins og kvað hún helztu mál á þinginu vera rekstur Hallveigarstaða og starfsemi Kvenfélagasambands- ins. Rœtt verður um húsmæðra- fræðslu og hvernig bezt erhægt að koma henni við, verður í því sambandi fjalllað um Leiðbein- ingarstöð húsmæðra, hugsanleg- ar breytingar á tímaritinu Hús- freyjunni, útvarpsfyrirlestra o.fl. í dag flytur Andri isaksson sál- fræðingur erindi á landsþing- inu. Þingið stendur fram á laugar- dag og verður því slitið eftir hádegi. Sáttafundur ekki boðaður að nýju Sáttafundur í Straumsvíkur- deilunni varhaldinn í fyrrakvöld fyrir miiligöngu sáttasemjara ríkisins. Fundurinn stóð stutt og náðist ekkert samkomulag. Torfi Hjartarson sáttasemjari sagði í viðtali við Þjóðvilljann í gær að ekkert nýtt hefði komið fram á fundinum en deiluaðil- ar hefðu skipzt á skoðunum og síðan tekið málið til athugunar að nýju. Bjóst Torfi við að nýr fundur yrði boðaður bráðlegaen ekki hefur enn verið ákveðið hvenær það verður. Deilunni hefur ekki verið vísað til sátta- semjara heldur hefur hann tek- ið málið sjálfur í sínar hendur. Árbæjarkirkja ekki saurguð af Baha'i-um, orð biskups Biskup íslands hefur nú a- kveðið að ekki sé þörf á að endurvígja Árbæjarkirkju, hún hafi ekki saurgazt af brúðkaupi þvi að Bahai-sið sem þar fór fram fyrir nokkru og sagt var frá m.a. hér í blaðinu. Eftir að fréttir birtust um brúðkaupið hafa ýmsir, bæði leikir og lærðir, m.a. séra Sig- urður Pálsson vígslubiskup, lát- ið í ljós þá skoðun að endur- vígja bæri kirkjuna þar sem farið hafi fram í henni helgiat- höfn trúflokks er ekki játar kristna trú og hún því vanhelg- azt. I bréfi sem biskup Islands sendi í fyrradag öllum dagblöð- um í Reykjavík, nema Þjóðvilj- anum, segist hann telja baha;- hjónavígsluna slysni, sem ekki sé þess eðlis að til mála komi að endurvígja kirkjuna. Urn vangá hafi verið að ræða, en ekki syndsamlegt athæfi. Notk- un hússins er á ábyrgð biskups. segir hann og tekur fram „að gefnu tilefni", að brátt fyr- ir mikil ferðalög hafi hann verið vís og finnanlegur í síma í alli sumar utan scx daga sem hann tilgreinir. DIHniNN Föstudagur 25. ágúst 1967 — 32. árgangur — 189. tölublað.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.