Þjóðviljinn - 17.07.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.07.1970, Blaðsíða 1
Föstudagur 17. júlí 1970 — 35. árgangur— 158. tölublað. Setudómarínn víkur ekki úr sætí sínu Setudómarinn í lögbannsmáli því á Húsavík sem Félag land- eigenda á Laxársvæðinu hefur hafið gegn Laxárvirkjunarstjórn vegna fyrirbugaðra várkjunar- framkvæmda við Laxá kvað í gærmorgun upp þann úrskurð að liann þyrfti ekki að víkja úr dómarasæti vegna skyldleika við ráðgefandi verkfræðing Laxár- virkjunar. ®-------------------------------- Lögmaður landeigenda hafði uppi þessa kröfu við þinghald í málinu í fynradag og byggði kröfugerð sína á því að setu- dómarinn, Magnús Thoroddsen borgairdómari í Reykj avík, væri skyldur Sigurði Thoroddsen verk- fræðingi, sem verið hefur helzti ráðgjafi Laxárviirkjunarstjórnar í sambandi við viirkjunaráaetlanir. Voru og fyrirhuguð virkjunar- mannvirki hönnuð á verkfræði- skrifstofu Sigurðar Thoroddsen sf. Sem fyrr segir féllst dómar- inn ekki á kröfur landeigenda. Þess má geta að þegar lög- bannsmálið kom fyrst upp vék Jóhann Skaptason sýslumaður úr dómarasæti skv. eigin úrskurði og var Magnús Thoroddsen skipað- ur setudómari í hans stað. Ráðherrar, borgarstjórinn í Reykjavík og forseti sameinaðs Alþingis báru kistu forsætisráðherra Börn forsætisráðherralijónanna og úr kirkju, en vinir og vandamenn báru kistur Benedikts Viimundarsonar og frú Sigríðar Björnsdóttur Dómkirkjuna að athöfninni lokinni. KifS fip, H I tihl B | 1 J:I Mikill fjöldi vottaði fors hinztu. virðingu Q Útför forsætisráðherrahjónanna og dót’tur- sonar þeirra fór fram frá Dómkirkjunni í gær að viðstöddu miklu fjölmenni. Biskup íslands, herra Sigurbjörn Einarsson flutti kveðjuorð, en séra Jón Auðuns dómprófastur jarðsöng. Karlakórinn Fóstbræður söng, Ragnar Björnsson lék á orgel og Pétur Þorvaldsson á selló. Jairðsett var í Foss- vogskirkjugarði. Útförin var gerð af ísl. ríkinu. Hvarvetna í borginni blöktu fánar í hálfa stöng. Opinberum skrifstofum hafði verið loikað sivo og f jö'lmörgum veralunuim og fyr- irtækjum. Fólk tók að safnast saiman við Dómkirkjuna M. 1 eða klukkustund áður en athöfnin hófst og öll bílaumlferð við Aust- urvöll hafði verið stöðvuð. Ættingjar og venzlamenn hdnna látnu, ríkisstj'órn, aiþingismenn, fjölmargir fulltrúair erlendra ríkja og forsetahjónin gengu inn kórmegin, en aðaldyrum Dóm- kirkjunnar var ekki lokið upp fyrr en kil. 1.40 og aðeins litill hluti þeirra, sem utan kirkjunn- ar biðu, komst upp á kirkjullioft- ið. Þá safnaðdst miairgt mamna saman inni í Alþingishúsinu en þar hafðd verið komið fyrir gjall- arhornum og sætuim, og . voru gjallarhorn við Alþdngisihúsið að Austurvelli, þar sem hundruð manna stóðu, þrátt fyrdr rek og rigningu. Stundarfjórðungi áður en ait- höfnin hófst hóf Lúðrasvedt R- vfkur leik á Austurvelli og lék sorgarlög, þair tii kirkjukilukk- urnar tóku að óana og athöfnin hófst. Var athöfnin afiar látlaus og virðuleg. Hún hófist með orgelleik, þvínæst söng Karla- kórinn Fóstbræður „Hærra mdnn guð til þín“ og biskupinn, herra Sigurbjöm Eina.rsson flutti fö-gur kveðjuorð. Þá létou Ragnar Björnsson og Pétur Þorvaldsson vögiguljóð á orgiei og selló, og séra Jón ’Auðuns dömprófástur Élutti situtt minningar-orð, en að þeiim loknnm var sungin sálrn- urinn .„Hvað bindur vom hug við heimsins gjaum“ eftir Einar Benediktsson, og Ragnar Björns- son og Pétur Þorvaildsson illuttu barnagælu á orgel og selló. Greftrunarathöfnin fór frarn í kirkjunni. Lokaorð séra Jóns Auðuns voru síðustu hendi'ngarn- ar úr Sólarljóðuim. Var þvínæst sunginn sálmurinn' Framhald.á 7. síðu. Mikill mannfjöldj stóð á Austurvelli og við Kirkjutorg, meðan á athöfninni stóð. Lögreglumenn stóðu. heiðursvörð við kirkjuna, þegar kisturnar þrjár voru bornar út. Kjördæmisráð- stefna AB á Norðurl. vestra Kjördæmisráðstefna Al- þýðubandalagið á Norður- landi vestra hefst á Sauðár- króki á morgun, Iaugardag, kl. 3 í húsi Sjálfsbjargar. Setur formaður kjördæma- ráðs, Haukur Hafstað, bóndi í Vík, fundinn, en síðan ræðir formaður Alþýðu- bandalagsins, Ragnar Am- alds, um stjórnmálaviðhorf- ið og starfið í kjördæminu. Um kvöldið verður efnt til ferðar út á Skaga. A sunnudag hefjast fund- ir eftir hádegi og verða þá rædd hagsmunamál kjör- dæmisins og Norðurlands- áætlun. Málshefjandi er Benédikt Sigurðsson á Siglu- firði. Skuldin eftir sjö ára nám erlendis um miljón Nýskipan lánamála námsmanna dugir skammt til þess að treysta efnahagslegt jafnrétti til náms hérlendis □ Samkvæint nýjum reglum um námslán geta íslenzk- ir námsmenn erlendis komizt upp 1 að skulda Lánasjóði ísl. námsmanna 730 þúsundir króna eftir 7 ára nám, auk liðlega 300 þúsunda króna, sem þeir skulda annars staðar hafi þeir ekki notið þeinna fjárframlaga frá vinum og vandamöninium meðan á náminu stóð. Hinar nýju reglur gera ráð fyrir að námslánin dugi fyrir auknum hluta svo- nefndrar umframfjárþarfar, sem er mismunur sjálfsafla- fjár námsmannsins og áætlaðs framfærslukostnaðar í við- komandi landi. Blaðamaður Þjóðvilj ans ræddi þessi mál í fyrradag við Gunn- ar Vagnsson formann stjórnar Lánasjóðs íslenzkra námsmianna. Kom m.a. íram í viðtalinu við hann sarnianbuirður á lánakjör- unum samikvæmt hinni nýju til- kynningu mennttamálaráðuneyt- isins og því sem áður var. Gerir Gunnar ráð fyrir að meðalnámskostnaður á Norður- löndiunum, Bretlandi og í Þýzka- landi sóu í ár um 180 þúsund krónur á ári, en gerir ráð fyrir þvi að kostnaðurinn verði að jafnaði um 188 þúsund krónur á næsta ári. 1971. Gunnar sagðd að ríflegg 80% íslenzkra náms- maona erlendis væru við nám í nefndum löndum. Þá litur dæm- ið þannig út 1971: Námsár 1. ár 2. ár ár ár ár ár Lán 90.000 90.000 95.000 95.000 105.000 120.000 Sjálfs- aflafé 40.000 40.000 40.000 40.000 40.000 40.000 Vantar 58.000 58.000 53.000 53.000 43.000 28.000 7. ár 135.000 40.000 13.000 AIls 730.000 280.000 306.000 í þessum . tölum er auðvitað m-iðað við óhreytt ástand í lána- málum og verðlagi. Aðspurður sagði Gunnar Vagnsson, að ekkj væri ráðið hve miklu yrði ráðstafað strax í haust til námsmanna, en það nýmæli verður nú tekið upp. Þá lagði Gunnar áherzlu á að aðalbreytinigarnar á lánunum kæmu firam gagnvart náms- mönnum fyrstu árin, hin síðari væri hlutfall umiframfjárþairfar óbreytt frá því sem áður var. Það er nauðsynlegt að taka fram, að umframfjáirþörf er tal- in vera mismunur á sjálfsaflafé stúdents og áætluðum fram- færslukostnaði í hverju landi fyrir sig. Þannig er lán-aupp- hæðin ekki föst helduæ mismun- andi eftir framfærslukostnaði og sjálfsaflafé. Lánsupphæðin er hins végar fast hlutfall af um- framfjárþörfinni hjá hverjum fyrir sig og skiptist þannig eftir hinum nýju reglum — innan sviga fyrra hlutíall umframfjár- þarfar: Erlendis Heima 1. ár 60% (40% 30%) 2. ár 60% (45% 40%) 3. ár 65% (50% 55%) 4. ár 65% (60% 60%) 5. ár 70% ( Óbreytt j 6. ár 80% ( Óbreytt ) 7. ár 90% ( Óbreytt ) Eins og af þessum tölum sést hefur orðið sú breyting að náms- menn heima fá nú sama hlutfall umframfjárþarfar og námsmenn erlendds.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.