Þjóðviljinn - 21.07.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.07.1970, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 21. júlí 1970 — 35. árgangur— 161. tölublað. SamúSarverkföll víða / Evrópu með hafnarverkamönnum Breta Samtök hafnarverkamanna í Hollandi, Noregi, Svíþjóð hafa lýst banni við vinnu við öll skip frá Bretlandi Sovézku risaflugvélarinnar enn leitað Ekkert hefur spurzt til AN 22 síðan hún fór frá SCeflavík á laugardaginn — komst aldrei til Halifax — óttazt um afdrif 23 manna áhafnar “fLONDON 20/7 — Samtök hafnarverkamanna í ýmsum ríkjum Evrópu hafa boðað samúðarvmnustöðvanir með brezkum hafnarverkamönnum sem hafa nú átt í verkfalli í tæpa viku. I þessum löndum verða engin skip fermd sem til Bretlands fara eða affermd þau se’m þaðan koma. □ Þrátt fyrir rnjög víðtæka leit úr lofti og á sjó hefur enn ekkert spurzt til sovézku risaflug- vélarinnar Antonov AN 22, sem lagði af stað frá Keflavíkurflugvelli kl. rúmlega 2 síðdegis á laugardag og átti að lenda í Halifax á Nova Scotia kl. 8.10 sama kvöld. □ Með vélinni var 23ja manna áhöfn og var hún hlaðin vistum og hjálpargögnum til jarð- skjálftasvæðanna í Perú. Meðal þeirra sem tilkynnt hafa slí!kar samúðarvinnustoðvanir eru sambönd hafnarverkamanna í Hollandi, Noregi og Svíþjóð og gert er ráð fyrir að fleiri muni bætast við ef verkfallið í Bret- landi dregst á langdnn, eins og allar horfur eru á. 1 kvöld var þannig skýrt frá því að halfnar- verkamenn ,í Antwerpen, einni stærstu höfn Belgíu, t>g reynd- ar allrar Evrópu hefðu áteveðið samúðarverkfall með brezkum starfsbræðrum sínum, en eklri var vitað enn um viðbrögð verkamanna í öðrum belgisikum höfnum. Verkfallið í Bretlandi hefur þegar leitt til þess að skortur Fraimlhaid á 7. síðu. 'Cæru vegna Nes- kaupstaðzrkosa- inga vísaðfrá Félagsmálaráðuneytið vís- aði í gær frá kærunni vegna bæjarstjórnarkosn- inganna á Neskaupstað t»g munu kosningaúrslit þar því standa óbreytt. Eins og áður hdfiur kornið fram í Þjóðviljanum reis ágreiningur vegna úrsikurð- ar kjörstjórnar um noktera kjörseðla og sendu fulltrúar A-listans bæjarstjórn bréf þar að lútandi 5. júní, sem bæjarstjóm tók þó sem til- mæli, en ekllti kæru. Áfrýj- uðu ákærendur þá til fé- lagsmálaráðuneytisins, sem tók málið sem kæru og fór það þá aftur ' fyrir bæjar- stjórn og kjörstjórn og var afgreitt frá bæjarstjóm 3. iúlí. Samkvæmt lögum hefði formleg kæra þurft að berast félagsmálaráðu- neytinu innan viku eftir af- greiðslu bæjarstjómar, en hún barst ekki 'fyrr en 13. júlí. Vísaði félagsmálaráðu- neytið kæm A-listamanna frá á þeirri forsendu að hún hefði borizt of seint, en ekki var lagður á hana efnisúrskurður. Síðast var haft saniband við ílugvélina úr flugturninum á Reykj ayíkurflugvelli kl. 14.43, en stuttu síðar hvarf hún af mdarskeinni flug^tjómarinnar, þá um 205 sjómílur suðaustur af landinu. Flaug vélin þá í um 22 þúsund feta hæð eða lægri loft- lögunum og því eðlilegt að rad- arinn næði henni ektei, sagði Arnór Hjálmarsson hjá ílugum- ferðai'stjórn Þjóðviljanum í gær, en hann hefur stjómað leitinni héðan af íslands hálEu. Er vélin hvarf af radarnum var hún beðin að færa radíó- viðskiptin á aðra bylgjulengd, þar eð örbylgjusambandið var orðið óskýrt, en ekkert heyrðist frá hennj eftir þetta. önnur sovézk flutningaflugvél á sömu leið, sem fór frá Kefila- víkurf-lugvelli 55 mínútum síðar var beðin að reyna að ná sam- bandi við þá fyrri á sínum bylgj- um og á bylgjum fflugstjómarinn- ar og mun væntanlega hafa reynt það, annars hafa radíóvið- skipti við sovézku vélamar ekki gengið alveg nógu vel, sagði Amór, vegna enstounnar, nema hvað loftskeytamaður horfnu vél- arinnar virtist óvenju vel fær í enskri tungu. Farið var að undrast um vél- ina fyrir alvöru er ekkert hafði enn heyrst firá henni kl. 7 um kvöldið og kl. hálftólf um kvöld- ið, er hún hafði átt að vera orð- inn eldsneytislaus, var sent út alþjóðlegt neyðarkall. Var síðan neyðarkall sent út frá öllum stöðvum á svæðinu, fyrst á kor- térs og síðan á hálftíma fresti um nóttina. Mjög víðtæk leit helfur verið^ gerð alveg síðan flugvélin hvarf og stóð enn yfir í gærtevöldi, en ekkert hefur spurzt til vélarinn- ar né neitt fundizt, sem bent gæti til þess, hver orðið hafa afdrif hennar. Sagði Arnór, að tvær vélar af Keflavíikurveilli hefðu verið í stöðuigri leit yfir helgina og í gær, þrjár vélar frá Kanada og ein frá dönsku stjóm- inni á Grænlandi. Þá tilkynnti brezki flugherinn, að varf hefði orðið við ifjórar sovézkar flugvél- ar við leit, en þær hafa ekki haft samband við flugstjórnina hér. Auk leitar úr lofti hafa öll skip á þessum slóðum verið beð- in að svipast um eftir filugvél- inni eða einhverju úr henni og sovézkt eftirlitsskip, sem statt var suður af Islandi og norska veðurskipið Alfa hafa farið gagn- gert til leitar. Þoka á leitarsvæð- inu hefur tafið leitina nokikuð og einnig ísjakar, sem mikið er af á sjónum á þessu svæði, og fram koma á radar. Með risalflugvélinni sovéztou var 23 manna áhöfn og var hún að flytja vistir og hjálpar- gögn frá Sovétríkjunum til jarð- skj álf tasvæðannia í Perú, en loftbrú er nú milli Sovétríkjanna og Perú með millilendingu í Keflavík og Halifax, eins og fram hefur komið í fréttum. Framhaild á 7. síðu. Aldraðir borgarar í grasaferð í gær Félagsstarf eldri borgaranna í Tónabæ liggur að mestu leyti niðri yfir hásumarið, en í stað þess er efnt til skoðunarferða um Reykjavík og nágrenni, á söfnin og fleiri staði og hefur þátttaka verið góð í þessum ferðum. í gær var farið í grasaferð í námunda við BIáfjöll og er myndin tekin þegar lagt var af stað í ferðina. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.). Alþýðuflokkurinn í náðarfaömi íhalds og Framsóknar í Keflavík Þríflokkarnir sameinast um að útiloka Alþýðubandalagið frá nefndarkjöri KEFLAVÍK 20/7 — Er kunn- ugt varð u’m samstarf milli Framsóknar og Sjálfstæðis- Niðurstaða ráðstefnu Verðandi: Nefnd fjalli um sameigin- leg málefni vinstri manna □ Á ráðstefnu Verðandi um Leið íslands til sósíal- ismans — vinstra samstarf var ákveðið að Verðandi beitti sér fyrir því að koma á fót viðræðunefnd fulltrúa allra stjórnmálahópa vinstri manna um hugsanlegt sam- starf og sameiginlegt stefnu- atriði, fram að og eftir næstu alþingiskosningar. Ráðstefnan var haldin með beinni þátttöku stjórnmálasam- taka vinstri manna. Ráðstefnu- gestir voru um 100 þegar flest var. Á laugardag hófst ráðstefnan með framsöguerindum, að loknu setningarávarpi formanns Verð- andi Guðmundar Sæmundssonar. Framsögumenn voru fimm: Loft- ur Guttormsson, tilnefndur af Alþýðubandalaginu, dr. Ölafur Ragnar Grímsson, tilnefndur af Framsóknarflokknum, Sveinn Skorri Hösteuldsson, tilnefndur aif Samtökum firjálslyndra i Reykjavík, Ragnar Stefiánsson, tilnefndur af Æsteulýðsfylking- unni og Hafsteinn Einarsson tilnefndur af Sósíalistafélagi Reykjavíkur. Að loknum framsöguerindum spunnust mi'klar umi-æður um efni ráðstefnunnar, Stóðu þær fram um tevöldmatarleytið og Fnaimihald á-7, síðu. flokksins um myndun meiri- hluta innan bæjarstjórnar Keflavíkur, sneri Alþýðu- bandalagið sér bréflega til fulltrúaráðs Alþýðufiokksfé- laiganna í Keflavík um að þeir flofekar tækju upp við- ræður um minnihlutasam- starf innan bæjarstjórnar- innar. Neikvætt svar barst við því bréfi þar sem full- trúaráð Alþýðuflokksfélag- anna lýsir því yfir að ekki sé ábugi fyrir samstarfi af þeirra hálfu nema málefna- lega eftir því sem efni gef- ast til hverju sinni. Á fyrsta fundi bæj'arstjómair eftir kosningar sem haldinn vair hinn 1. þ.m. kom fljótlega í ljós af hvaða óstæðu Alþýðuflokkur- inn hafnaði samstarfi við Al- þýðubandialagið. Er kosið var í bæjarráð á þessum fundi til- nefndi meiri'hluitinn aðeins tvo menn í bæjarráð og eftirlét Al- þýðuflokknum þann þriðja sjólf- kjörinn. í bæjarstjórn eru 3 fU'lltrúar Sjálfstæðisflokksins og 3 Framsóknarmenn, 2 Alþýðu- flokksmenn. og 1 fulltrúi Al- þýðufoandaJagsins, og er því augljóst að ekki voru nema 50 prósent líkur fyrir því að Al- þýðuflokkurinn fengi mann kjörinn í bæjairráð án samstarfs við Alþýðubandalaigið, þar sem hluitkesti hefði þuirft til að skera úr milii þriðja manns meirihiut- ans og fyrsta manns Alþýðu- floteksins, en slíkt kom ekki til þar sem meiri'hluti Sjálfstæðis- flokksins og Framsóknar til- nefndi aðeins tvo menn eins og áður getur. ÖJlum nefndarkosningum var svo frestað til næsta fundar, sem haldinn var 14. þ.m. Á þeim fundi kom enn berlegar í ljós, að samkomulag hafði orðið milli meiriihluitans og Alþýðuflokks- ins varðandi nefndarkjör, því meirihlutinn eftirlét Alþýðu- flokknum ætíð sæti í bverri nefnd, og Jét Alþýðuflokkurinn sér það nægja í alla staði, en sameinaður minnihluti hefði þó getað fengið 2 menn í 5 manna nefndum, þ.e.a.s. 50% líkur, því að hlutkesti hefði skorið úr milii fjórða manns meirihlutains og annars maiins minnihlutans. Af þessiu má dragia þá álykt- un að samkomulag hefur átt sér stað milli þrífflokkanna, þar sem Alþýðuflokteurinn fær einn.mann í ailar þriggja manna nefndir á- tatealaust, en hinir í staðinn ör- uggan fjórða mann í. allar fimm manna nefndir, einnig án hlut- kestis. Með þessu samkomulagi hafia þríflotetearnir, Sjálfstæðisflokkur- inn, Framsókn og Alþýðuflokk- urinn, rækilega , teomið í veg fyr- ir að Alþýðubandalagið ætti nokkurn fulltrúa í nefndum inn- an bæjarstjómar Keflavíteur. — K. Karl Sigurbergsson bæjarfulltrúi Alþýðubandalagsin* 4 Keflavik.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.