Þjóðviljinn - 08.09.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 08.09.1970, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 8. september 1970 — 35. árgangur — 202. tölublað. Þrír íslendingar sæk.ja ráíi- stefnu um borgarmálefni sem haldin verður í Dresden í Aust- ur-Þýzkalandi 8.-12. þ.m. Þeir eru Björgvin Guðmundsson stjórnarráðsfulltrúi, Guðmundur Þórarinsson verkfræðingur og Jón Snorri Þorleifsson trésmiður. Ráðstefinuir þessar hafa verið haldnar annaðhvert ár um all- langt árabil og jafnan í Dresden. Eru þátttakendur frá flestum Evrópulöndum. Ráðstefna sú sem MiSst]órn Alþý&ubandalagsins Þrír íslendingar á ráðstefnu um borgarmálefni í Dresden hefst í næstu viku var umdir- búin af sérstakri nefnd sem í átbu sæti fulltrúar frá 15 ríkjum í Vtestur- og Austur-Evrópu, en formaður hennar er frá Grenoble í Frakklandi. Það málefni sem um verður fjallað að þessu sinni er ábyrgð sveitarstjómanna á vandamálum æskunnar. Auk allsherjarfunda verður starfað í tveimur um- ræðuhópum, og fjallar annar um menntun ungs fóiks og hinn um tómstiundir. Mótmœlir öllum hugmyndum um skertu ka upg jolds vísitölu Verðbólgan verður aðeins heft með ' árangursríkri stjórnmálabaráttu Miðstjórn Alþýðubandalagsins hélt fund sl. föstudag. Þar var m.a. fjallað um verðbólguþró- unina að undanförnu, og flutti Eðvarð Sigurðsson / framsögu uim það mál en síðan urðu miklar um- ræður. Á fundinum var ákveðið að birta þá álykt- un sem hér fer á eftir: Miðstjórn Alþýðubandalagsins, komin saman til fund- ar 4ða september 1970, mótmælir harðlega þeim skipu- lögðu og stórfelldu verðhækkunum se*m einkennt hafa verð- lagsþróunina að undanförnu. Kjarasamningar höfðu ekki fyrr verið undirritaðir í vor en þeir atvinnurekendur, sem þess voru megnugir, tóku að velta af sér skuldbindingum sínum út í verðlagið með mjög tilfinnanlegum. hækkunum á framleiðsluvörum sínum og þjónustu. Stjómarvöld hafa engar tilraunir gert til þess að tryggja stöðugt verðlag heldur fallizt á allar kröfur einkaaðila um verðhækkanir og bætt við hliðstæðum ráðstöfunum af sinni hálfu. Til- gangur atvinnurekenda og stjómarvalda með þessari stefnu er auðsjáanlega sá að grafa undan þeim mikilvæga árangri se’m verklýðssamtökin náðu í vor, og er þá ekk- ert um það skeytt þótt sú skipulagða verðbólgustefna haldi enn áfram að skerða verðgildi krónunnar, eins og gerzt hefur hraðar en nokkru sirmi fyrr í allri valdatíð núverandi stjórnar. Eina samningsbundna tryggingin Eina samningsbundna trygging launafólks gegn afleið- ingum dýrtíðarinnar er ákvæðið um verðtryggingu launa. Því varar miðstjórnin sérstaklega við öllum hugmyndum um að skert verði ákvæði gildandi samninga um kaup- gjaldsvísitölu og skorar á allt launafólk að vernda þá lág- markstryggingu. Verðlagsuppbætur á kaup eru ekki orsök verðbólgunnar, heldur ævinlega afleiðing af verðlagsþró- un sem áður er komin til framkvæ’mda; eina leiðin til að koma í veg fyrir víxlhækkanir verðlags og launa er að halda verðlagi stöðugu. Jafnframt leggur miðstjórnin á- herzlu á nauðsyn þess að staðið verði fast gegn hverskon- ar hugmyndum um að skerða samningsrétt verkafólks með breytingum á vinnulöggjöfinni. Samheldni i stjórnmálabaráttunni Óðaverðbólgan um þessar mundir er staðfesting þess að kjarabarátta og stjórnmálabarátta launafólks verða að haldast í hendur. Á meðan ríkisvaldið er í höndum at- vinnurekenda og annarra aðila. sem andstæðir eru verk- lýðssa’.ntökunum, verður því beitt til þess að skerða jafn- óðum árangur kjarabaráttunnar. Verðbólgan verður því aðeins heft að launafólk nái þeim áhrifum á stjórn lands- mála að ekki verði fram hjá því gengið. Því skorar mið- st'jórn Alþýðubandalagsins á allan almenning að bregðast við óðaverðbólgunni með því að stórauka þátttöku sína og samheldni í stjórnmálabaráttunni og gera Alþýðubanda- lagið að því þjóðfélagsafli sem • tryggt geti í verki hags- muni launafólks. Myndin er tekin á félagsfundi HIP í gær þar sem samningarnir voru samþykktir. Talið frá vinstri Þórólfur Daníelsson ritari HÍP, Óðinn Riignvaldsson varaform. og Jón Ágústsson formaður í ræðustóli. — (Ljósm. Þjóðv. Á.Á.) Samnmgar tókust í kjaradeilu prentara Samningar hafa tekizt milli Hins íslenzka prentarafélags og Félags prentsmiðjueigenda, og voru þeir samþykktir á félags- fundum beggja aðila í gær. samningum í viðtali við Þórólf Daníelsson ritara HXP á baksí'ðu Þjóðviljans í dag. Alþjóðleg ráðstefna í Hagaskóla Rædd ísvandamálin vii mannvirkjageri □ í dag hefst í Reykjavík alþjóðleg ráðstefna um ís- vandamál við mannvirkjagerð. Ráðstefnan er til húsa í Hagaskóla og sitja hana um 100 vísindamenn frá norð- lægum löndum. Þar af taka um 34 Islendingar þátt í ráð- stefnunni. Efcki færri en 55 fyrirlestrar verða á þessari ráðstefnu er stendur í 3 daga. Ráðstefna af þessu tagi hefur ekkí fynr verið haidin í heim- inum. Var svo að skilja á dr. Bernard Miehel, forseta ráð- stefnunnar, að landfræðileg lega íslands í norðrinu helfði miklu ráðið um val Islands sem fyrsta ráðstefnulands á þessu sviði. Þá væiu íslenzikir vísindamenn virt- ir fyrir áh-ugaverðar tilraunir síðustu árin, hann persónulega hefði til dæmis þekkt lengi Sig- mund Freysteinsson, verkfræðing, en þeir félagar kynntu ráðstefn- una fyrir blaðamönnum á Hótel Sögu í gær. Eina ástæðuna fyri,r vali ís- lands sem ráðstefnulands taldi dr. Bernard Michel vera tilvist Búrfellsvirkjunar Aldrei áður hefði verið ráðizt í gerð slíkrar vidkjunar við þær aðstæður, sem þarna væru — einkum við að fleyta krapinu burt á vetr- um. Þeir Kanadamenn heifðu ekki þorað að ráðast í slíkar virkjanir ennþá við slíkar að- stæður. Dr. Bemard Midhel er starf- andj verkfræðingu í Quebec í Kanada. Á miðríkudag verður haldið erindi á ráðstefnunni urn ísvandamálið í sambandi við Búríellsvirkjun og á föstudag verður öllum fulltrúum ráðstefn- unnar boðið að skoða Búrfells- virkjun. Mun mörgum þykja for- vitnilegt að skoða þessa virkjun. Ráðstefnuna sækja vísinda- menn meðal annars frá Kanada, Bandaríkjunum, Sovétríkjunum, Norðurlöndum, Englandi, Frakk- landi og Japan. Hún ber nafnið Ice Sympos- ium, 1970. Ellefu Islendingar í sóttkví vegna ótta við bólusóttina — ekki er talin ástæða til almennrar bólusetningar □ Ellefu íslendingar sem unnið hafa á heilsuhælinu Skodsborg í Danmörku eru nú í sóttkví, en þar kom fyrir stuttu upp bólusóttartilfelli. Eru 7 íslendinganna í ein- angrun í Kaup’mannahöfn og 4 stúlkur f sérstöku húsi á Kjarasamnlngiar prentara voru úr gildi um síðustu mánaðamóf, og voru tíðdr samninigiatfundir í síðustu viku. Síðasti fundurinn stóð yfir f,rá kl. 2 á sunnudag tál kl. 5 á mánudagismorgun er samkomulag var undirritað. Aðalatri’ði í hinum nýju samn- ingum er það að prentuirum er tryggður forgangsróttur tdl jafns vdð ofsetprentara í binni nýju tæknj sem er að ryðja sér til rúms í prentiðninni. Laun hækka um 18,2 tdl 20,2%. Deilitala tímia- kaups lækkar úr 42 í 41. og prentnemar fengu viðiurkennda aðidd að lífeyrissjóði. Nánar er sagt firá hinum nýju Tveir menn slas- ast í bílveltu Um 6 leytið í gærkvöld fór bíl'l útaf veginum rétt ofan við Sandskeið og fór mairgar veltur. Tveir menn vorú í bilnum og slösuðust báðir mikið. Bíllinn er mikið skemmdur. Vifilsstöðum. Síðastliðið föstudaigskvöld barst Xandlækni tilkynning frá dönsk- um heilllbrigð'isyfirvöldum um staðfest bólusóttartilfélli í Kaup- mannahöfn. Að sögn landlæknis, Sigurðar Sigurðssonar, hafði að- komumaður setzt að á heilsu- hælinu Skodsborg seinni hluta dags 26. ágúst í sórstökum starfs- mannabústað og kom hann ekki í sjálfit heilsuihælið. Veiktist hann að kvöldi hins 27. og var fluttuir. í , sjúkrahús í Kaup- mannahöfn 31. égúst. Hafði iandilæknir símasamfband við bci'garlækni Kaupmanna- hafnar í gær og fékk þær upp- lýsingar að bóa'Usótta'rsjúklingui-- inn væri þungt haldinn, en sjúk- dómseinkenna hefði. ekki orðið vart á neinum þeirra sem ein- angradir hafa vei-ið þar ytra, þ.e. starfsfólki í Skodsborg. Var þetta 12. dagui-inn ifiré því að sjúk- lingurinn hafði kcmið til Skods- borg, en uim miðjain manuð og til 20. ágúst hafði hann dvalizt í Afganistan. Hafi hann smitað út frá sér ætti það að koma í ljós á næstu dögum, þar eð meðgöngu- tími veikinnar er 8-16 dagar. 1 Kaupmannaihöfn hafa ennþá eng- ar opinberar ráðstafnir verið gerðar vegna þessa tilfellis, nema bólusetning starfsfólksins. Islendingamir 7 sem eru í ein- angrun í Höfn bjuggu í sama bústað og sjúklingurinn, en stúlkurnar 4 bjuggu í öðru húsi. Islenzkir sjúklingar, sem dvalizt Framlhald á 9. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.