Þjóðviljinn - 15.10.1970, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 15.10.1970, Blaðsíða 1
Fimmtudagur 15. október 1970 — 35. árgangur — 234. tölublað. Álykfun ungra jafnaSarmanna: Stjórnarsamstarf við íhaldið er óæskilegt □ Ungir jafnaðarmenn héldu þing nýlega þar sem gerðar voru ályktanir um ýms mál. Meðal þeirra ályktana voru ályktanir um dómsmál, bandaríska herinn og stjórnarsamstarfið, þar sem sagt er m.a. að þingið fordæmi það „sleifarlag sem átt hefur sér stað í stjórn dómsmála“, „að áframhaldandi stjórnarsamstarf við Sjálfstæðisfk»kkinn sé óæski- legt Alþýðuflokknum" og þingið harmi „hvað lítið hefur áunnizt í baráttunni fyrir brottflutningi er- lends hers af landinu“. Hér eru birtar á eftir orð- réttar þessar þrjár ályktanir ungra jafnaðarmanna: ------------------—------—--------------^ Skipin stöðvast eitt aföðru SAMNINGSGERÐ yfinnanna á kaupskipum við skipafélögin bar ekki árangur í fyrrinótt. Stóð fundurinn til kl. hálf tvö um nóttina. Boðað var til nýs sa.mningafundar kl. 16 í gœr. ÁTTA KAUPSKIP höfðu stöðv- azt í Reykjavíkurhöfn í gœr. Örslit get- raunarinnar birt á morgun Um síðustu helgi rann út frcstur til skila á Iausnum í ljóðabókagetraun Þjóð- viljans. MikiII fjöldi lausna barst blaðinu og var veru- legur hluti þeirra réttur, þannig að dregið var um vcrðlaunin, bækur fyrir 3000 krónur. Verða úrslitin birt í blaðinu á morgun, föstudag. Von er á Göðafossi í-rá Ameríku í dag. Eitt kaupskipa sigl-di þó úr Reykjavíkurhöfn í gærmorgun. Var þaö Hofs- jöfcuU. Höfðu yfirmennirnir á því skipi ekki sa-gt upp störf-Uim sínum. Svo mun einn- i-g vera með yfirmenn á Sta-pa- felli. Hér «• þó aðeins um undanteknin-gar að ræða. Yfir- menn að undanteknum skip- stjórum á öllum öðrum kaup- skipurn hafa sagt upp störfum sínum miðað við að hætta á miðnætti aðfararnótt s. 1. sunnudags. Ráðin forstöðn- kona við nýtt mæðrabeimili Á fundi félagsmálaráðs fyrir nokkru var samþykkt að ráða Höllu Baehmann til þess að verða forstöðukona nýstofnaðs mæðraheimilis að Sólvallagötu 10. HERINN „24. þing SUJ harmar hvað lítið h-efur áunndzt í baráttunni fyrir brottflu-tnintgi erlends hers af lan-dinu. ítrekar þingið fyrri afstöðu sína og skoriar á næsiu stjórn SUJ að leita eft-ir sam- starfsgrundvelli u-m málið við önnur stjórnmálasam-tök“. ÐÓMSMÁL „24. þinig SUJ fordæmir þ-að sleilfarlag, sem átt hefur sér stað í stjórn dómsmála. Þingið krefst þess að mól þessi verði nú tekin fastari tökum en hing- að til og endurbætur verði fnam- kvæmdar á öllu dómsmálakerf- inu m.a. dómstól-askipun, Þ-ing- i® skorar á nýjan dó-msmáliaráð- herra að ráða bót á þessurn mál- um nú þegar“. STJÓRNARSAMSTARF „Þing SUJ tekir að áfram- haldandi stjórnarsamstarf við Sjálf-stæðisflokkinn sé óæ'Skilegt Alþýðuflokknum1 ‘. GóSaksturs- keppni Su-nnudaginn 25. október verður haldinn góðaksturs- keppni hér í Reykjavík á vegurn Bindindisfélags öku- manna. Verður la-gt upp frá Hverfísgötu og ekið um göt- ur borgarinnar. Verða ýms- ar óvæntar hindranir á leið ökumaona og þeim síðan dasmdar viðurkenningar, ef verðugt þykir. Alls konar þrautir verða laigðar fyrir þátttalkendur á bílaplaninu við Kalkofns- veg og á bí-lastaeðinu við Sölvhóls-götu. öllum er heimil þátttaika í keppninni. Er þó þátt- tökufjö-ldi bundinn við 30 keppendur. Byrjað er að s-k-rá til keppninnar. Tilga-ngur góðakstu-rs- keppni er að vekja athygli á færni ökumanna í akstri, viðbra-gðsflýti og tiHiÍsemi. Hér á myndinni eru for- stöðumenn að virða fyrir sér þrautina „ekið hratt hiykkjótta braut“. Þama mó meðal annars greina Slitnað upp úr sam■ komulagi á Isafírði H-auk Isfeid Ágústsson. og Sig-urð □ ÍSAFIRÐI 14/10 — í kvöld var haldinn fundur í bæjar- stjóm ísafjarðar og á þeim fundi má heita að endanlega hafi slitnað upp úr samstarfi meirihlutaflokkanna þriggja er annar fulltrúi Framsókn- arflokksins rauf enn einu sinni gerðan samning. □ Á dagskrá fundarins var ráðn- ing skrifstofustjóra bæjarins. Höfðu meirihlutaflokkarnir þrir — Alþýðubandalag, Al- þýðuflokkur og Framsóknar- flokkur — gert samkomulag um aðGuðmundur RúnarÓsk- arsson yrði ráðinn til starf- ans. Hins vegar stillti minni- hluti bæjarstjórnar — full- trúar Sjálfstæðisflokksins — upp Alþýðuflokksmanninum Magnúsi Reyni Guðmúnds- syni, □ Fundur hafði verið haldinn í fulltrúaráði Framsóknar- flokksins fyrir bæjarstjórnar- fundinn um málið og var ekki annað vitað en allir fulltrúaráðsmenn styddu sam- komulag meirihlutaflokkanna. Hins vegar spurðist það fljótt um bæinn að annar bæjar- fulltrúa Framsóknar væri andvígur samkomulaginu. Hafði það gerzt áður að þessi bæjarfulltrúi virti ekki sam- komulag meirihlutaflokkanna enda þótt ákvörðun væri um þá afstöðu af meirihluta í hans flokki einnig. Vegna þessa og orðrómsins skrifuðu bæjarfulltrúar Alþýðubanda- lagsins og Alþýðuflokksins Framsóknarmönnum bréf þar sem þeir lýstu þvi yfir að þeir teídu ekki unnt að 'inna með bæjarfulltrúum Fram- sóknar nema treysta mætti bæjarfulitrúum hennar til þess að virða samninga. Það brást svo á fundinum í gær og því er litið svo á að meiri- hlutasamkomulag flokkanna þriggja hafi farið út um þúf- ur. □ Umræddur bæjarfulltrúi Fram- sóknar er Barði Ólafsson, en Fra-mhald á 3. síðu. Sementsvíerksmiðjumálið: Saksóknari rannsaki málið Helztu gögn málsins eru birt á 2. og 3. síðu blaðsins í dag □ Stjórn Verkfræðingafélags ís- lands hefur kært málatil- búnað sementsverksmiðju- stjórnar við ráðningu á for- stjóra og krefjast verkfræð- ingar rannsóknar saksóknara. Bréf verkfræðinga til sak- sóknara ásamt ítrekuðum bréfum til sementsverk- smiðjustjórnar og síðan svör- um formanns stjórnarinnar og loks stjórnarinnar allrar við óskum verkfræðinga. eru birt á 2. síðu blaðsins. Þessi gögn lagði stjórn verk- fræðingafélagsins fyrir blaða- menn á blaðamannafundi í gærmorgun. □ .Tafnframt nefndum gögnum Iögðu verkfræðingar fram Ijósrit af bréfi Hafsteins Sig- urbjörnssonar, fulltrúa AI- þýðubandalagsing í Sements- verksmiðjustjórn og er það bréf birt á 3, síðu blaðsins. Verkfræ'ðingar sögðu á blaða- mann-afundinum í gærmorgun, að þeir hefðu viljað kalla. s-am- an blaðamannafund. til þess að mismuna ekki blöðunum um upplýsingar. Síðan sögðu tals- menn Verkfræðingafél-agsins: „Ástæður þess að Ver-kfræð- inigafélagiO hef-ur ósk-að rann- sóknar á þessu máli, koma fram í bréíinu tií saksóknara ríkisins (sjá 2. síðu — innsk. Þ.jv.). Stjórn VFÍ vill . taka fram. að þessar aðgerðir eru á engan hátt af persónulegum ástæðum held- ur í samræmi við markmið fé- lagsins“. Verkfifæðingafélagið biðu-r nú eftir niðurstöðum sak- Fram-hald á 3. síðu. Endurskoðunar þörf á núverandi kjördæmaskipan Ailt að fjórfaidur munur á atkvæðisrétti kjésendanna! I lok þáttarins „Setið fyr’r svöru-m“ s.l. þriðjudaigskvöld var forsætisráðiherra Jóhann Hafstein, spurð-ur um afstöðu sína til breytinga á kjördæma- skipuninni og þá sérstaklega, hvort harm væri því fylgj- andi, að upp yi'ðu tekin ein- menningskjördæm-i, e-ins og raddir hafa komið fram um, bæði inn-an Sjálfstæðisföokks- ins og Fraimsóknarfiokfcsins. Ráðherrann skaut sér und- an því að gefa ákveðið svar við spuirningunni, kvað ein- menni-ngsikjördæmii hafa ýmsa kost-i en líka galla og sagði að yrði það kosningafyrir- komuiag tek-ið upp þyrfti að sk-ipta ölllu landiinu, lí-ka Reykjavík og öðnrm þéttbýlis- stöðum, niður í einanennings- kjördæmi. Forsætisráðiherra bénti hins vegar réttiiega á, að núver- ' and-i kjördæmiaisikipun þyrfti endursikoðu-n-ar við, þótt haldið yrði við það fyrirkomidlag að hafa hlutfallsikosningar í nokkr- nm stóruim kjördsamum. Benti hann á, að er núverandi kjör- dæmiaskipun var álkveðin, hefði kjósendum í Re-ykjavík og á höfuðborgarsvæðinu ver- ið S'kammtaður minni réttur en öðrum, þar eð í kjördaam- unuim á því svæði hafðu ver- ið miiklu fleiri kjósendur á bafc við hvern þi-ngimann en í kjördæmu-num úti á lands- byggðinni. En-nfremur benti hann á, að á þeirn 11 á-ruim sem liðin e-i-u frá því að nú- verandi kjördæmaskipun var tekin upp hafia orðið miklir fóllksifl'Utni'n.ga!r miilli kjör- dæma, er hafa en-n aufcið á þetta misrétti. Þetta þyrfti að endurskoða, þótt vissuflega bseri að talka tillit til aðstöðu- muna-r kjósenda út-i á landi og fcjósend-a á höfuðborgar- svæðinu. Þar sem þetta mál mun vsentanlega verða til umirsedu á næstunni, þykir Þjióðviljan- um rétt að birta hér tötur um kjósendur á kjörskrá við haustkosninga-rnar 1959 og til saiman-burðar tölur um kjós- endur á kjörskrá nú í á-r, þæ-r tölu-r eru þó eldki nákvæmair, þar sem í þeim eru talldir allir sem fá kosningarétt á árinu allt til áraimótai e-n það breytir að sjálfsögðu en-gu um hlutfölll-in mill-i ára-nna. Tölur þessar sýna Ijósflfeg’a, að strax 1959 er núgildandi kjö-rdæimiaskipun var ákveðin voru þrisvar sinnum fleiri kjósendu-r að baki hverjum kjördæmaikosnum þingmanni hér í Reykjavfk og tvöfalt fleiri í Reyfc'janesk-jördæmii etn. í suimuim kjördaamanna úti á landi. Og enn hef-ur þessi mis- munur aukizt mikið, þannig að það nálgast nú, að í Rvík séu fjó-rum sinnum fleiri kjós- . endur að baiki h-verjum þing- manni en t.d. á Ves-tfjörðuim, þrisvarsinnuim fileir: kjósend- ur eru nú að baki hverjum þingmanni í Reykjaneskjör- dærn.i en t.d. á Austfjö-rðum og tvis-var s-innum fleiri i Norðuiiandskiördæ-mi eystra heldur en í Norðurllandskjör- dasmii vestra, svo að d-æmi séu nefnd. >á er það athyglisvert, að uppbótarþingsætin ráða litla böt á þessu misrétti. — Þannig eru nú 6 iandkjörnir þingmenn úr Reykjavík og Reykjanesfcjördæmi sem telja samtals rösklega sjötíu þúsund kjósendur, en Vesturland, Vestfiirðir og Norðuriand vestra er samtals teija aðeins um 19 þúsund kjósendur hafa 3 landskjörna þingmenn og Norðurfland eyst.rá með tsep- lega Í3 þúsund kjósendur fær tvo landsíkjörna þingmsnn. 1959 1970 Kjör- Þing- Á kjör- - Kjós. á Á kjör- Kjós. á dæmi menn: skrá þingm. skrá þingm. Reykj-aadk 12 40.028 3.336 51.552 4.296 Reykjanes 5 12.142 2.428 20.161 4.032 Vesturland 5 6.509 1.302 ' 7.484 1.497 Vestfirðir 5 5.710 1.142 5.773 1.155 Norðurl. vestra 5 5.796 1.159 5.972 1.194 Norðurl. eystra 6 10.936 1.823 12.853 2.142 Ausfcfiirðir 5 5.808 1.162 6.511 1.302 Suðurla-nd 6 8.708 1.451 10.445 1.741 Alls: 49 95.637 1.952 120.763 2.465

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.