Þjóðviljinn - 06.02.1974, Blaðsíða 15

Þjóðviljinn - 06.02.1974, Blaðsíða 15
Miðvikudagur 6. febrúar 1974. ÞJOÐVILJINN — SIÐA 15 15. SÍÐAN UMSJÓN: SJ Er hægt aö beygja lykil meö hugsanakrafti? Hann er Bandaríkjamaður og heitir Uri Geller. Ilann kom til Kaupmannahafnar á dögunum og ræddi þar við fréttamenn. Uri sagðist hafa svo tnikinn hugsanakraft, að hann gæti beygt venjulegan húsiykil með hugsanakraftinum einum sam- an. Þetta lék liann fyrir framan danska blaðamenn. Það var lcktor við Kaupmannahafnar- háskóla sein kom með lyklana. Uri setti sig i stellingar, snerti ritvél með annarri hendinni en incð liinni strauk hann lykilinn léttum strokum. Hann sagðist alltaf prufa að snerta einhvern málm með annarri hendinni. Og viti menn, lykillinn bognaði. Uri neitaði að hafa nokkui brögð i tafli og bauð hverjum sem var að rannsaka sig hátt og lágt. ,,Ég hef gcrt þetta nærri nakinn i Þýskalandi eftir að ein- hvcr fullyrti að ég væri með las- ergeisla i beltinu” Uri sagðist nokkrum sinnum hafa gert álíka hluti I viðurvis vísindamanna i Bandarikjun um, þar á meðal Werner Von Braun, geimvisindamannsins kunna. En hann viöurkenndi að þetta tækist ekki alltaf, og sérstak- lega ætti hann erfitt með að at hafna sig undir pressu, t.d. sjónvarpssal. Stórmeistarini FORINTOS Forintos frá Ungverjalandi, sá sem sigraði Guðmund i fyrstu umferðinni, varð al- þjóðlegur meistari 1963, þá 28 ára gamall. Hann varð skák- meistari Ungverjalands 1968 og vann þá liklega sinn stærsta sigur til þessa. Mótið var óvenju vel skipað. t þvi tefldu 6 stórmeistarar og 10 al- þjóðlegir meistarar. Forintos hlaut þá 16,5 v. af 21 möguleg- um. Þessi árangur veitti rétt- indi á 3. svæðamótið i Aþenu 1969 og þar lenti Forintos i 9. sæti, með 8,5 v., einum vinn- ingi á eftir Friðrik ólafssyni. Árið 1970 tefldi Forintos i mjög sterku móti i Skopje og varð i 6. sæti með 8 vinninga af 15 mögulegum. Tajmanof og Vasjúkof skipuðu 1. og 2. sætið með 11 vinninga, en Forintos skaut aftur fyrir sig þekktum stórmeisturum, svo sem Gligoric, Matulovic og Reshevsky. t Evrópusveitarkeppninni 1970 urðu Ungverjar i 2.sæti, á eftir Sovétrikjunum, og Forintos átti sinn þátt i þeirri vel- gengni. Hann fékk bestu út- komu sveitarinnar, vann sex skákir, tapaði eínni. Árið 1971 sigraði Forintos á minningar- móti Asztalos með 11 v. af 15 mögulegum. Næstur varð sovéski keppandinn Bagirof með 9.5 v. og þá Ciocaltea, Rúmeniu, með 9 v. Forintos tefldi á 1. svæðamóti Evrópu 1972. Tvö efstu sætin veittu réttindi á millisvæða- mótinu og þau hlutu Júgóslavarnir Ivkof og Ljubojevic, 12 vinninga, en Forintos kom næstur með 10,5 v. Sl. sumar tefldi Forintos i Evrópusveitarkeppninni og fékk 4 vinninga af 6 möguleg- um og vann þá m.a. Kusmin frá Sovétrikjunum. (Heimild: mótsskrá St.) Þessi jvíhöfða slanga fannst við Kaspíahafið fyrir skömmu. Að sögn sérfræðinga er mjög sjaldgæft að rekast á tvíhöfða slöngur, en ein slík fannst fyrir 10 árum í Azerbadjan í Sovétríkjunum. Slangan ferðað- ist og hreyfði sig eðlilega, en þar sem hún var ekki lengur í sínu eðlilega umhverf i dó hún 40 dögum eftir að hún fannst, þrátt fyrir góða umönnun. (APN) Bókhaldsaðstoð með tékkafærslum KJ'BÚN AÐARHANKIN N \fj/ REYKJAVÍK Bifreið Til sölu Jalta, árg. 1970. UpplýsingargefurólafurÞ. Jónsson, simi 17500 milli kl. 1 og 4 á daginn. Frá 1. febrúar er simanúmer okkar 27755 Steinavör h/f, Gamla Hamarshúsinu, Norðurstig 7, (Inngangur frá Tryggvagötu) Verkamannafélagið Hlif Hafnarfirði Tillögur uppstillingarnefndar og trún- aðarmannaráðs Verkamannafélagsins Hlifar um stjórn og aðra trúnaðarmenn félagsins fyrir árið 1974 liggja frammi á skrifstofu félagsins Strandgötu 11 frá og með 6. feb. 1974. öðrum tillögum ber að skila til skrifstofu félagsins fyrir kl. 18 föstudaginn 8. feb. 1974, og er þá framboðsfrestur útrunninn Kjörstjórn Verkamannafélagsins Hlifar. Atvinna r Verkamenn vantar Okkur vantar verkamenn til starfa i Afurðasölunni við Laugarnesveg. Hafið samband við Njál Guðnason verkstjóra. Samband isl. samvinnufélaga. SAMBAND iSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA Skrifstofustúlka vön vélabókhaldi óskast nú þegar. Upplýsingar á skrifstofu vorri, Borgartúni 7. Fyrirspurnum ekki svarað i sima. ÁFENGIS- OG TÓBAKSVERSLUN RÍKISINS Verkamenn Byggingaverkamenn vantar strax. Upplýsingar i sima 84825. Brún h/f Suðurlandsbraut 10

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.