Þjóðviljinn - 09.04.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 09.04.1975, Blaðsíða 9
Miðvikudagur 9. april 1975. ÞJóOVILJINN — StÐA 9 Reykjavíkurmótiö í knattspyrnu: íslandsmótiö í knatt- spyrnu hefst 17. maí Þann dag fara fram þrír leikir í 1. deild og þrír leikir í 2. deild — á 9. hundrað leikir fara fram í sumará vegum mótanefndar KSÍ Nú er lokið að mestu niðurröðun á leikjum ís- landsmótsins í knattspyrnu/ aðeins eftir ganga frá smátilfærslum að ósk félaganna. Og það hefur verið ákveðið að 1. og 2. deildar keppnin hefjist 17. maí nk. Þann dag verða leiknir þrír leik- ir í hvorri deild og 19. maí lýkur fyrstu umferðinni í 1. deild en 21. mai í 2. deild. bað er sem sé laugardaginn 17. mai sem keppnin hefst, og þann dag leika saman i 1. deild: FH — Fram IBV — Vikingur IA — KR Mánudaginn 19. mai leika svo á Laugardalsvellinum Valur og ÍBK I 2. deild leika saman 17. mai: Þróttur — Völsungur Selfoss — Vikingur Ólafsvik Reynir Arskógsströnd — Haukar og miðvikudaginn 21. mai leika saman Ármann og Breiðablik. I sumar fara fram fleiri leikir i landsmótum á vegum móta- nefndar KSI en nokkru sinni fyrr eða á niunda hundrað leikir. Eins og gefur að skilja hefur reynst erf- itt og vandasamt verk að koma öllum þessum leikjum fyrir á þessa 4 mánuði sem keppnistima- bilið stendur, enda ekki að furða þar sem fram fara rúmlega 6 leikir á dag að meðaltali. En ein- hvernveginn hefur þetta tekist hjá mótanefnd undir stjórn Helga Danielssonar, en hann og nefnd hans sýndi alveg sérstaka hæfni bæði i niðurröðun og ekki siður i þvi vandasama verki að láta mót- ið ganga snurðulaust fyrir sig. Vonandi verður eins i sumar. —S.dór Veröur ákveðið um næstu helgi hvort ég fer vestur, Ásgeir Elíasson — Það verður sennilega á- kveðið um næstu helgi hvort af þvi verði að ég fari til Vest- fjarða í sumar og kenni þar iþróttir og leiki með liði það- an, sagði Ásgcir Eliasson landsliðsmaðurinn kunni úr Fram, en honum hefur verið boðið að koma vestur i sumar. Ásgeir sagðist ekkert ætla sagði að draga úr þvi aö hann hefði mikinn hug á að fara vestur i sumar. Þetta væri góð atvinna og hann hefði vart efni á að sleppa henni. Það verður mikið áfall fyrir Fram ef Asgeir fer, þar sem hinn miðvallarspilarinn, Guð- geir Leifsson, er einnig farinn frá félaginu. Það veröa Vikingur og IBV m.a. sem leika saman I fyrstu umferð 1. deildarkeppninnar 17. mai. Ingi Björn Albertsson skoraði 2 mörk fyrir Val á móti Þrótti. Valsmenn á skotskónum sigruðu Þrótt 4:0 Það virðist vera heldur betur stuð á framlínu- mönnum Vals í byrjun keppnistimabilsins. Eftir að Valur sigraði islands- meistara í A 2:1 í Meistara- keppni KSI um síðustu helgi mættu þeir Þrótti í Reykjavikurmótinu sl. mánudagskvöld og sigruðu með yfirburðum eða 4:0. skilyrði eins og þessi leikur, rok og kulda. En þó sýnist manni sem framlina Valsmanna verði mjög beitt i sumar. Samvinna leik- manna þar var oft góð og skot- menn á Valur nóga. Á vörnina reyndi litið. Þróttarliðið fékk aldrei tæki- færi til að sýna neitt, það var al- gerlega yfirspilað. I fyrri hálfleik þegar Þróttur lék undan veðrinu náði liðið nokkrum vel útfærðum sóknarlotum, en broddinn i sókn- ina virtist vanta. íslands- mótið í I léikhléi var staðan 1:0. Her- mann Gunnarsson framkvæmdi hornspyrnu, boltinn lenti i varnarmanni Þróttar og af hon- um fór hann i netið. 1 siðari hálfleik þegar Valur lék undan norðan-rokinu tóku Vals- menn öll völd á vellinum og bættu þremur mörkum við. Ingi Björn skoraði tvö þeirra en Birgir Einarsson eitt. Auðvitað er frekar litið að marka vorleikina og allra sist þá leiki sem fram fara við slæm íslands- glíman fer fram 27. apríl islandsglíman fer fram i Reykjavik sunnudaginn 27. april n.k. Rétt til þátttöku liafa þeir glimumenn innan sam- bandsfélga GLÍ, sem öðlast hafa þátttökurétt samkvæmt 5.gr. reglugcrðar um islands- glimuna. Þátttökutilkynningar þurfa að hafa borist fyrir 19. april i pósthólf 997 Rcykjavik. Þarkom að því Menntamálaráðuneytið hef- ur skipað nefnd til þess að kanna stöðu og þýðingu iþrótt- anna I þjóðfélaginu og fjárþörf iþróttastarfseminnar. Athug- un þessi nær bæði til hinnar frjálsu iþróttastarfsemi og einnig skólaiþrótta. Ætlast er til að kannað verði og gert yfirlit um, hver aðstaða iþróttastarfinu er nú búin og hvernig hagkvæmast sé fyrir hina frjálsu iþróttastarfsemi og opinbera aðila að skipa þessum málum i framtiðinni. Miða ber tiliögur nefndarinn- ar við það, að efla almanna- Iþróttir, þ.c. Iþróttir, sem menn geta stundað meira og minna á ýmsu æviskeiði, svo sem sund, og að iþróttastarf- semin sé frjáls, en njóti stuön- ings opinberra aðila fjárhags- lega og sérfræðilega og að um samnýtingu iþróttaaðstöðu sé að ræða fyrir hið frjálsa iþróttastarf, þ.á m. almanna- iþróttir og skólaiþróttir. Nefndinni ber i starfi sinu að liafa hliðsjón af ályktun iþróttamálaráðherrafundar- ins i Bruxelles 20.—21. inars 1975, um „opinbera aðila og almannaiþróttir.” Er þcss beiðst að nefndin Ijúki störfum svo fljótt sem unnt er og eigi siðar en innan eins árs. Ráðuneytið mun sjá um greiðslu kostnaðar við aðstoð, sem nefndin þarf á að halda I starfi sinu, enda sé haft sam- ráð fyrirfram viö ráðuneytið um þaö atriði. N eifndarmenn cru: Þorsteinn Einarsson, iþróttafulltrúi, for- maður, GIsli Halldórsson, for- seti íþróttasambands íslands, Iiafsteinn Þorvaldsson, for- maður Ungmennafélags tslands, Jón Ásgeirsson for- maður samtaka Iþróttafrétta- manna, og Magnús E. Guðjónsson, framkvæmda- stjöri Sambands islenskra sveitarfélaga. badmin- ton fer fram 1. 3. og 4. maí nk. Islandsmótið i badminton fer fram dagana 1. 3. og 4. mai nk. i Laugardalshöll. Keppt verður i Mfl. og A-fl. og hefst keppnin kl. 11 alla dagana.Þeir sem ætla að taka þátt i mótinu þurfa að hafa tilkvnnt það til Kals Maack skipholti 50 j Reykjavik fyrir 20. april nk. MUNIÐ Ibúðarhappdrætti HSÍ, 2ja herbergja ibúð að verðmæti kr. 3.500.000 Verð miða kr. 250.00 Dregið 1. mai .

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.