Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 17.12.1975, Blaðsíða 1
Ekkert Samninganefndir ASl og VI komu saman til fundar undir leiðsögn sáttasemjara rikisins i gær og sátu saman i um það bil tvo klukkutima. Ekkcrt nýtt kom fram á þeim fundi, en ann- ar fundur hefur verið boðaður á fimmtudag. Á fundinum i gær lýstu at- vinnurekendur þvi yfir, að þeir treystu sér ekki til þess að leggja fram álit sitt á kjara- málaályktun ASl, en báðu um frest til þess fram á fimmtudag. —úþ Málflutningiir bretans fyrir öryggisráðinu í gærkveldi: Haa g-dóms t óllinn var hálmstráið islenska kæran vegna at- burðanna fyrir mynni Seyðisf jarðar, þegar breskir ofbeldismenn stefndu islenskum fiski- mönnum í stórháska var tekin fyrir á fundi öryggis- ráðs Sameinuðu þjóðanna í gærkvöld. Sigurður Blön- dal, fulltrúi Alþýðubanda- lagsins, í fastanefnd is- lands hjá Sameinuðu þjóð- unum, sagði Þjóðviljanum i gærkvöld að óvíst væri hvert framhald málsins yrði fyrir öryggisráðinu, en málsaðilar hefðu nú lagt fram greinargerðir sinar á 45 mínútna fundi. Ingi Ingvarsson, ambassador tslands hjá Sameinuðu þjóðunum gerði grein fyrir málavöxtum af hálfu íslands. En siðan talaði full- trúi breta i öryggisráðinu, Ivar Richard, en hann er formaður ráðsins nú. Hafði hann áður vikið úr formannssæti að eigin úrskurði fyrir fulltrúa Kamerúns. 1 ræðu sinni sneri breski sendiherrann atburðunum fyrir mynni Seyðis- fjarðar algerlega við: Hélt hann þvi fram að varðskipið Þór hefði ógnað bresku skipunum og hefði aðeins orðið þarna óhjákvæmi- legur árekstur vegna háttalags varðskipsins Þórs. Breski sendiherrann vitnaði i ræðu sinni til Haagdómstólsins: þar hefði sjálfur alþjóðadómstóll- inn dæmt bretum ákveðinn rétt og ákveðinn afla. Þá sagði hann að islendingar hefðu eytt sildar- stofnunum, og siðar snúið sild- veiðiflota sinum til þorskveiða. Lagði hann enn áherslu á að bret- ar ættu hefðbundinn rétt á miðun- um við tsland þó að islendingar ættu vissulega forgangsrétt. Loks kvað sendiherrann breta reiðu- búna til samningaviðræðna við is- lendinga ef hætt yrði að áreita togarana við veiðar innan 200 milna: myndu bretar þá draga herskip sin og hjálparskip út úr islensku landhelginni. Er umræðum lauk fyrir raoinu i gærkvöld — en þvi var skotið inn á milli umræðna um Timor-mál- in — var meðferð þess frestað. Mun ráðið nú næstu daga taka ákvörðun um frekari meðferð þess. Ekki vildi Sigurður Blöndal spá neinu um niðurstöð- Fjárhagsáœtlun Rvikur ekki samþykkt fyrr en eftir áramót Borgarráð hefur samþykkt að fara þess á leit viö félagsmála- ráðuneytið að fá að fresta end- anlcgri gerð fjárhagsáætlunar fyrir borgina fram yfir áramót. Er þessi beiðni tilkomin vegna seinagangs fjármálaráðherra og rikisstjórnar við lagasmið, en eins bg alkunna er ætlar rikisstjórnin að gera nokkrar breytingar á verkaskiptingu rikis og bæja og þar með tekju- skiptingu milli þessara aðila. Vanalega hefur fjárhagsáætl- un verið samþykkt fyrir ára- mót, enda svo kveðið á um i lög- um. Vegna þessara vandræða samþykkti borgarráð að heim- ila borgarstjóra að ávisa úr borgarsjóði fé til greiðslna á lögbundnum samningsbundnum og öðrum óhjákvæmilegum út- gjöldum, þar til samþykkt fjár- hagsáætlun liggur fyrir. —úþ í gær voru undirritaöir samningar milli rithöfunda og bókaútgefenda um laun rithöfunda. Er þetta I fyrsta sinn sem sllkur samningur er gerður hér á landi. Sjá 3. siðu. GROÐAFELOGIN Þessi eftirlætisbörn ríkis- stjórnarinnar sleppa 2. umræða fjárlaga fór fram á alþingi I gær. Jón Árnason, for- inaður fjarveitinganefndar mælti fyrir nefndaráliti meirihlutans og brcytingartillögum, sem nefndin i heild stcndur að. Er þar gert ráð fyrir rúmlega 100 miljón kr. út- gjaldaauka miðað við frumvarp- ið. Næstir töluðu stjórnarand- stæðingar i f járveitingarnefnd, þeir Geir Gunnarsson, Jón Ar- mann Héðinsson og Karvel Pálmason. Hófust siðan almenn- ar umræöur, og var kvöldfundur boðaður klukkan niu i gærkvöld. í ræðu sinni sagði Geir Gunn- arsson, um hið nýja frumvarp ríkisstjórnarinnar um 10% út- svarshækkun og 500 miljóna álög- ur á sjúklinga: „Þetta frumvarp er nokkuð eðlilegt framhald af þeirri á- kvörðun rikisstjórnarinnar, sem felst i fjárlagafrumvarpinu um að Sjá kafla úr rœðu Geirs Gunnarssonar við 2. umrœðu fjárlaga á siðu 6 spara rikinu útgjöld með þvi ð hækka stórlega verð á landbúnað- arvörum, þeim vörum, sem mestu skipta lifeyrisþega og barafjölskyldur, og aðra þá, sem eyða mestum hluta tekna sinna i brýnustu matvörur. Nú telur rikisstjórnin sig þurfa að auka enn skattheimtu af þegn- unum i þjóðfélaginu, og hún velur ekki það ráð, að auka skattheimt- una með hækkun áfengisverðs, eða með hækkun verðs á ein- hverjum þeim vörum, sem teljast ekki til brýnustu neysluvara, og hún velur ekki það ráð, að leggja sérstakan skatt á hátekjufólk. Nei, rikisstjórnin leggur 480 miljóna kr. útgjaldaauka á þá eina, sem þurfa að kaupa lyf eða leita læknis. Þessa aðila telur hún að sjálfsögðu eftirsóknarverðari skattgreiðendur en þau hundruð fyrirtækja, sem greiða engan eyri i tekjuskatt, þótt þau velti þús- undum miljóna. I öðru lagi leggur rikisstjórnin um 1200 miljón kr. nýjan skatt á ►alla útsvarsgreiðendur með sér- stöku álagi á gjaldstofn útsvara. Með þessari aðferð tryggir hún, að einungis einstaklingar greiða þennan skatt, og þar með er ör- uggt að eftirlætisbörn rikisstjórn- arflokkanna, gróðafélögin, sem engan tekjuskatt borga, þurfa ekki að hafa áhyggjur af þessum skatti heldur, þar sem fyrirtæki greiða ekki útsvör, samkvæmt skattalögum. En klókindin eru ennþá meiri. Rikissjóður vill ekki koma nærri þessari 'skattheimtu, með þvi móti er hægt að lækka fjárlaga- tölur, sem þessari upphæð nemur i útgjöldum almannatrygginga! Þess vegna er sveitarfélögunum gert að innheimta þessa upphæð og skila henni inn i trygginga- kerfið. Það á eftir að koma i ljós, hvort sveitarfélögin telja þessar fyrirætlanir rikisstjórnarinnar, sem nú á að knýja fram á nokkr- um dögum, vera efndir á fyrirætl- unum hennar úm aukið fjárhags- legt sjálfstæði þeirra og breyting- ar á verkaskiptingu i þágu sveit- arfélaganna. una, en bent hefði verið á að i slik- um málum teldu margir að öryggisráðið myndi visa málinu til alþjóðadómstólsins i Haag. Sigurður Blöndal sagði að all- margir hefðu fylgst með umræð- unum i öryggisráðinu, en málið hefði satt best að segja ekki vakið verulega athygli. Myndi sendi- nefnd Islands hjá Sameinuðu þjóðunum halda blaðamannafund i dag, miðvikudag, og þá gera grein fyrir afstöðu sinni til ým- issa ummæla bretans fyrir öryggisráðinu i gærdag. Fleirien 167 fjölskyldur utan Vallar A bæjarstjórnarfundi suður i Keflavik á dögunum kom fram vafi á talnaspeki hermálaráð- gjafa utanrikisráðuneytisins, Páls Asgeirs Tryggvasonar, en hann telur einvörðungu 167 fjöl- skyldur amerikana i Keflavikur- bæ, samkvæmt upplýsingum sem utanrikisráðherra las á alþingi fyrr i vetur. Urðu nokkrar umræður um þessa talnaspeki ráðgjafans, og varð úr, að talið var vænlegt til þess að fá botn i málið, að starfs- mönnum bæjarins yrði falið að gera talningu á fjölda kana i byggðinni. Þessari talningu mun ekki lokið enn sem komið er. —úþ 300 þús. til 40 höfunda í viðbótar- ritlaun Sjá lista yfir höfundana á síðu 16 Þrírmenn í gœsluvarð- hald vegna smygknálsins 1 fyrrakvöld var einn maður til viðbótar öðrum tveimur úr- skurðaður i gæsluvarðhald vegna smyglmálsins sem ver- ið hefur i fréttum. Sitrónbill var tekinn til skoöunar af lögreglunni og tollvörðum og fannst i honum verulegt magn af hassi, um 3 kg. auk annars efnis, sem enn hefur ekki verið efnagreint en vonast er eftir niðurstöðum á morgun. Ekki hafði i gær verið tekin ákvörðun um frekari rann- sókn bilsins, sem smygliö fannst i. Giskað hefur verið á að verðmæti þess efnis, sem þegar hefur fundist sé um sjö miljónir króna. —gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.