Þjóðviljinn - 21.12.1975, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.12.1975, Blaðsíða 1
11 ao'önu' ,(> í-a ilifaímttgn: !;nnstó?shi>f?i Sunnudagur 21. desember 1975 — 40. árg. 291. tbl Fyrstu fréttir af Leirhnjúk. Blaöið fór í prentun kl. 16 á laugardag .Siuutnlmtnn r rníixtt tl fi ujtn)<jí|u.r I órtittu'hírljutfár Ittiíitjijrirtur \ V ■> aoa Gigur við Leirhnjúk Gr'ún.% Ijnimulaníji tjv: y'G&muíuws m*JGm 'gja t ja rn.ir j , h . WPy r f IJrui<uH>qsUuu^cJWy fo % { ávj; 2 r ofr ' ti V* M i K a ’Hlií 9,fka:m.bi/jp vtnnóitfm QF/JöRm&á c^lísi'Íírm,rw,iv .. . Eldfjallið Leirhnjúkur er á þessum uppdrætti merkt sem þrlhyrningur. Borholur og önnur mannvirki Kröfluvirkjunar eru á svæðinu innan hringsins sem dreginn er til hægri við Leirhnjúk. Til vinstri við eld-fjallið breiðist út hið mikla hraun sem rann úr gigum við Leirhnjúk og í grennd á 18. öld. Neðst tii vinstri sést I Mývatn. GOS I LEIRHNJUK — Túristagos segja almannavarmr. 1500 metra löng sprunga. — Ómögulegt aö segja hve mikið þetta veröur. Eldgos kom upp i Leirhnjúk skammtfrá virkjunarsvæðinu við Kröflu á laugarda gsmorg un. Það var klukkan 10 að jarð- hræringa varð vart á virkjunar- svæðinu við Kröflu, en þá voru þar staddirtveir vaktmenn. Aðrir starfsmenn við virkjunar- framkvæmdirnar voru farnir heim i jólafri. Um klukkan hálf tólf hófst eldgos úr Leirhnjúk, en Leirhnjúkur er i þriggja km fjar- lægð frá Kröflu. Eldgosið er i sprungu sem ligg- ur frá norðri til suðurs vestan i Leirhnjúk, hraun rennur á einum stað úr sprungunni og eldur er i tveimur af þremum gigum, en gufugos virðist i þeim þriðja. „Engin mannvirki og engin mannslif eru i hættu vegna þessa”, sagði Björn Guðfinnsson, starfsmaður Kröflunefndar, en Þjóðviljinn náði tali af honum i hótel Reykjahlið um klukkan 13 i dag. Björn kvaðst engar upplýs- ingar geta gefið, almannavarna- nefnd Mývatnssveitar sat þá á fundi I hótelinu i Reykjahlið. Vaktmennirnir tveir við Kröflu Snorri Snorrason og Hannes Hilmarsson gengu að gosstabnum og höfðu samband við Reykjahlið með talstöð fyrir hádegið sögðust þeir þá ekki geta haldist lengur við I virkjuninni, og legðu þeir á stab til byggða. Reiknað var meö mönnunum tveimur til byggða uppúr hádeginu. Sprungan 1,5 km Eldsprungan er 1,5 km að stærð, að þvi Almannavarnir rikisins tjáðu Þjóðviljanum, hún lengist til norðurs, hraunið renn- ur i þveröfugaátt við vinnusvæðið að kröflu og engin byggð i hættu. „Þetta er bara túristagos”, sagði upplýsingafulltrúi hjá Al- mannavörnum i sambandi við Þjóðviljann. „Við vorum komnir hingað i aðalstöðina snemma i morgun, þegar við fengum fregnir af þvi að Mývatnssveit nötraði af jarðskjálftum. Við fengum siðan fyrstu fregnir af gosinu úr farþegaflugvél sem Gott veður var i Mývatnssveit i morgun, mökkurinn frá gosinu stóð i' norðvestur. —GG Áætlun notuð i fyrsta sinn Guðnuindur Sigvaldson, for- stöðumaður Norrænu eldfjalla- stöðvarinnar, sagði i viðtali við blaðið, að vegna þessa eldgoss yröi nú i fyrsta sinn notuð áætlun Norrænu eldf jallastöðvarinnar um það hversu bregðast ætti við eldgosum. Hann var spurður hvort hann væri sammála þvi að þetta væri bara „túristagos”. Þeir geta ekki mikið vitað um það. Það er ómögulegt að scgja hversu niikið þetta verður. Á 18. öld gaus hér í fimm ár nær samfellt. — Lengsta gos á sögulegum tíma. Við tökum þessu með stillingu sagði Starri í Garði Þetta kemur auðvitað eins og högg, sagði Þorgrimur Starri Björgvinsson, bóndi i Garði I Mývatnssveit, þegar við höfðum samband við hann út af gosinu hjá Leirhnjúk um klukkan eitt. Við tökum samt lifinu með stillingu og ró, og reyndar þurfti þetta svo sem ekki aö koma neinum á óvart, þvi að hér um slóðir var mikið um eldgos á 18. og 19. öld, en á þessari öid hefur ekki gosið hér fyrr en nú nema inn I öskju. Óvenju mikið hefur verið um jarðhræringar á Kröflusvæðinu frá þvi snemma á þessu ári svona öðru hvoru. Hafa þessar jarðhræringar fundist i Reykja- hlið og jafnvei hér hinum megin við vatnið. Menn gátu þvi látiö sér til hugar koma, að eldsum- Yfirlitsmynd yfir Kröflusvæðiö I vestur. brot kynnu að vera á næsta leyti. Héðan frá Garði að sjá er mökkurinn norövestur af Kröflu og er eldsuppkoman á sprungu vestan til við Leirhnjúk svona liklega um 3 kilómetra frá virkjuninni. Hér i Garði urðum við ekki vör við neina jarð- skjálfta i morgun, en þeir munu hafa verið nokkuð snarpir hjá Reykjahlið, og vaktmennirnir ^tveir, sem voru inn við Kröflu héldust þar ekki við. Annars var vinnuflokkurinn við Kröflu far- inn heim i jólaleyfi nýlega, og bara þessir tveir menn, sem voru þar i morgun. Þarna hafa annars unnið nokkrir tugir manna að undanförnu vegna virkjunarframkvæmdanna. Auðvitað hlýtur gosið að setja virkjunina i mikla hættu, en enginn veit þó enn hvað úr verð- ur. Hér gaus með stuttum hléum nær samfellt i 5 árá 18. öld, frá 1724—1729, þ.e. við Leir- hnúk, i Hrossadal og Bjarnar- flagi, — er það lengsta gos á sögulegum tima á Islandi. Þá tók af bæinn i Reykjahlið, og hraun rann út i Mývatn. Við vonum að ekki fari jafn illa, eða verr nú, en um það verða spá- dómar að biða. Við höfum ekki orðið vör vib öskufall en hraun rennur til norðvesturs. Veður er hér all- hvasst á suðvestan en bjart.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.