Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.06.1976, Blaðsíða 1
Laugardagur 5. iúní 1976 —41. árg. 122.tbl. % VEÐRIÐ UM HELGINA Yæta Lista- hátíð hófst með mynd- list Listahátið hófst i gær með opnun sýningar á verkum austurriska listamannsins Hundert- wassers og ávarpi menntam ála ráðherra. Selma Jónsdóttir kynnti sýninguna. Ambassador Austur- rikis kvaó þaö landi sinu heiöur aö þessi fyrsta sýning landa sins Hundertwassers á Noröurlöndum væri fyrsti atburöur Listahátiöar. Vonandi væri þetta atburöur sem færöi nær hvort ööru tvö lönd, sem bæöi búa viö forna menningarhefö. Vilhjálmur Hjálmarsson þakkaöi listamanninum heim- sóknina og islenskum listamönn- um fyrir framtak sem tryggöi þaö aö listahátiö var ekki frestaö. Mæltihann um og lagöi á aö lista- hátiö geröi okkur öll aö nokkuö örlitiö betri mönnum. Hundertwasser stóö afsiöis meöan þessu fór fram og liktist Agli Skallagrfrnssyni. Siöan gekk hann um sýninguna meö vernd- ara hennar, forseta Islands. Margir listamenn voru nær- staddir. Alfreö Flóki kvaö þaö rétt vera: hann væri ekki eins flinkur og Hundertwasser. Enda hefi ég, sagöi hann, ekki aöra eins hefö i myndlist á bak viö mig. Fyrir glæpi i siöasta lifi var þaö á mig lagt aö endurfæöast sem islenskur iistamaöur. Agæt tré i pottum lögöu áherslu á umhverfisvinsemd höfundár þessarar fjölbreyttu sýningar. SJÁ SÍÐU 7 Hundertwasser ræöir viö verndara sýningar sinn ar. — Ljósm. —eik— Deila komin upp á hljóðvarpinu: Fréttir falla niður hvítasimnudagana simnan fj alla en sól og bjart fyrir norðan Nú um hvitasunnuna ma búast við mikilli umferð um vegi landsins enda er þessi helgi ein mesta ferða helgi ársins. Að sögn Magnúsar A. Einarssonar veðurfræðings má búast við sunnanátt um allt land, vætu sunnan fjalla, en góðu veðri fyrir norðan og norðaustan, sólskini og björtu veðri. Viðast hvar er búist við hlýju veðri. Vegir landsins eru flestir komnir i gott lag, aurbleyta á vegum i Norðurárdal og i Húna- vatnssýslum en annarsstaðar eru vegir góðir, enda hefur mikið ver- ið heflað undanfarið. Aðeins örfá- ir fjallvegir eru ófærir enn þá og eru það aðallega fjallvegirnir á Vestfjöröum. Vegir allt frá Reykjavik austur á Hornafjörð, suðurleiðin eru velfærir. t gær var ekki vitað með vissu hvert aðalferðamannastraumur- inn liggur um helgina frá Reykja- vik, en á nokkrum stöðum er bannað að tjalda, svo sem Laugarvatni og töldu sumir að margt yrði um manninn i Þjórs- árdal um helgina. —S.dór SJÁ SÍÐU 2 íbúðastærðir í Breiðholti til unirœðu i borgarstjórn vegna yfirvinnubanns starfsfólks — ýmislegt fleira mun falla niður úr dagskrá hljópvarpsins vegna bannsins Fyrirsjáanlegt er, aö i fyrsta sinn i 46 ára sögu útvarpsins muni fréttir falla niöur á morgun,hvita- sunnudag, vegna yfirvinnubanns starfsfólks hljóövarpsins, sem sprottiö er af deilu, sem starfs- fólkiö á i við ríkiö. Peila þessi er kjaradeila, sem starfsfóik hljóð- varpsins hefur átt i og staöið i samningum um undanfarið viö fjármálaráöuneytiö, scm aðeins býöur þessa 1,8% hækkun sem aðrir ríkisstarfsmenn fá. — bað sem við viljum fá eru sömu kjör og fólk i sambærilegri vinnu, sagði Dóra Ingvad. sem á sæti i samninganefnd starfsfólks hljóðvarpsins. Nefndi hún sem dæmi að fréttamenn hljóðvarps væru með 10-15% lægri laun en blaðamenn, sem þó eru i Blaða- mannafélagi Islands. bá hafa Utvarpsvirkjar hl jóðvarpsins sýnu lakari kjör en starfsbræður þeirra á verkstæðum svo dæmi séu nefnd. Dóra sagði að þetta yfirvinnu- bann hefði verið boðað fyrir viku og hefði þvi raunar verið frestað einu sinni. Eina svarið sem borist hefur til starfsfólksins er að þetta yfirvinnubann sé ólöglegt, en i lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna segir að starfsfólki sé skylt að vinna yfir- vinnu, allt að 1/3 tima dagvinnu ef yfirmenn telja nauðsyn bera til. — Við vitum vel af þessu en önsum þvi ekki, við munum halda fast við þá ákvörðun okkar að vinna ekki yfirvinnu, sagði Dóra Ingvadóttir. Guðmundur Jónsson fram- kvæmdastjóri Utvarpsins sagði að ljóst væri að fréttir féllu niður hvitasunnudagana og það yrði i fyrsta sinn i þau 46 ár sem Utvarpið hefur starfað sem það gerist. Auk þess munu frétta- aukar falla niður i dag og þeir gerðu það raunar i gær lika. bá munu tónleikar frá listahátið sem flytja átti i dag falla niður, lýsing Jóns Ásgeirssonar frá leik tA og Vals i dag fellur miður. — Ætli við getum annað gert en að fylla i skörðin með tónlist af plötum, sagði Guðmundur. Við getum ekkert gert i þessari deilu, starfsfólkið deilir ekki við okkur heldur fjármálaráðuneytið og menntamálaráðuneytið sem rikisútvarpið fellur undir, sagði Guðmundur. —S.dór Sjónvarpsmenn styðja yfir vinnubannið — sjá bls. 12 Umhverfisverndar- dagurinn er i dag „VATN ER LÍFSN AUÐSYN” Dagurumhverfisinseri dag 5. júni. Dagur- inn er að þessu sinni helgaður kjörorðinu: „Vatn cr lifsnauösyn”.Um alian heim munu náttúruverndarsamtök og áhugamenn aðrir hvetja til baráttu fyrir vatnsvernd og skyn- samlegri nýtingu vatns. bjóöviljinn birti i landbúnaöarblaöi sinu i gær stefnuskrá varöandi ferskvatn i Norðurálfu, sem náttúruverndarnefnd Evrópuráösins tók saman. Það voru Sameinuðu þjóöirnar sem höföu forgöngu um aö 5. júní var kjörinn um- hverf isverndardagur. Þjóöviljinn minnir ferðamenn og aðra á að það ,,að valda mengun á vatni er sama sem að vinna manninum og öörum þeim lifverum sem vatninu eru háðar tjón. J

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.