Þjóðviljinn - 09.06.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 09.06.1976, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 9. júni 1976 —41. árg. —123. tbl. Aukin goshætta við Kröflu Landið hefur risið um tœpan metra á nokkrum vikum — jarðskjálftum fœkkar ekki A þessu landsvæði hefur land ris- ið um tæpan metra á nokkrum vikum. Vísitalan tœp 15 stig yfir rauða strikið 9% kauphækkun 1. júlí Samkvæmt tölum hagstof- unnar var vlsitala framfærslu- kostnaðar komin upp I 578,64 stig þann 1. júni s.l. Það þýðir I raun að framfærslukostnaður I landinu hafi hækkað um tæp 18% á slðustu sjö mánuðum, en 1. nóv. s.l. var vlsitala fram- færslukostnaðar 491 stig. 1 almennu kjarasamningunum sem undirritaðir voru 28. febrú- ar s.l. var kveðið á um, að „rauða strikið” skyldi miðað við 557 stig. Það var þó bundið þeim skilyrðum, að dregin skyldu frá þau stig sem stafa af hækkunum á launalið bóndans og hækkunum á áfengis- og tó- baksverði. Þegar sú hækkun hefur verið dregin frá veröur niðurstaðan sú, að kaup skal hækka um 2,67% þann 1. júll n.k., þvi að I stað þess að miða hækkunina við 21,64 stig er að- eins miðað við tæpra 15 stiga hækkun. Að auki kemur svo til fram- kvæmda um næstu mánaðamót áfangahækkun um 6% sem samið var um I kjarasamning- unum I febrúar og er 2,67% hækkunin reiknuð ofan á kaupið þegar sú hækkun er tekin með, þannig að alls hækkar kaup um 8,88%. Þessi tæpra 9% kauphækkun 1. júli nægir þó ekki til að færa kaupmátt launa i sama horf og hann var i nóvember s.l., en nánar er um það atriði fjallað I leiðara Þjóðviljans i dag. 1 mai- mánuði einum nam hækkun á visitölu framfærslukostnaðar 13,1 stigi, sem gerir 2,32% i þeim mánuði. X>, »£K2íG4!íQí», yoiíttqu*. v «Þcor»ci*n«f* *ffie*o* 4* ,H. ; ÞJD HlÁTRl VARO í HÁLFRI STÖKU ÖLL HEIMSINS FRÆGO Snýst nú „öll heimsins frægð” upp I ramma alvöru? Hundertwasser gefur út verk Dunganons — Við teljum að hættan á gosi við Kröflu sé meiri nú en var fyrir nokkrum vikum og ástæðan er sú að landið er tekið að rísa á ný á þvi svæði sem jarðsigið varð mest I gosinu I vetur, og auk þess hefur jarðskjálftum ekki fækkað. Þeir eru að visu ekki finnanlegir, að- eins mælanlegir, en þeim hefur ekki fækkað frá þvi sem var I vet- ur, og ég tel að ástæða sé til að vera vel á verði, sagði Axel Björnsson jarðeðlisfræðingur, einn þeirra starfsmanna Orku- stofnunar sem fylgist náið meö ástandinu við Kröflu. Axel sagði að i gosinu I vetur heföi lanaið I norðurhluta Hliðar dals sigið um 1,5 m. miðað við suðurhlutann, en á undanförnum vikum hefur orðið vart við að landið væri farið að risa á ný og hefur það hækkað aftur sem nem- ur 1/3 hluta þess sem það seig og nú uppá siðkastið hefur það risið sem svarar 1/2 sm. á dag. Eftir að mesta jarðskjálfta- hrinan gekk yfir eftir gosið, mældust veikir skjálftar sem varla fundust nema á mæla. Þessir skjálftar hafa ekki minnkað eins og búist var viö, og eins og eðlilegt hefði verið, ef ró væri að komast á á svæðinu, heldur hafa þeir haldið áfram undanfarið og verið stöðugir sl. 6 vikur. Axel sagði að það væri þvi greinileg hreyfing á landinu þarna, og i sambandi við skjálft- ana sem stöðugt halda áfram þá hafa þeir fært sig, þannig að komið hafa fram skjálftar á Námafjallssvæðinu, mun sunnar Axel Björnsson jarðeðlis- fræðingur. heldur en áður var, og það hafa mælst þetta 10—15 skjálftar á sólarhring. Þá hefur magn og gassamsetning i holunum breyst. Ekki sagðist Axel þora að spá neinu um það hve hátt landið mætti risa á þessu svæði án þess að alvarleg hætta væri á gosi. — Það og ýmislegt fleira er einmitt það sem við erum að velta fyrir okkur þessa stundina, en mörgu er mjög erfitt að svara I þessu sambandi, en það er alveg ljóst að ástæöa er til að fylgjast mjög vel með öllu sem þarna gerist, eins og gert hefur verið i vetur, þar má alls ekki slaka á, sagði Axel að lokum. —S.dór Sýningin I Bogasal á þeim furðuheimi, sem Karl Einarsson Dunganon, hertogi af Sánkti Kildu, gerði sér, hefur vakið mikla athygli. Nú er engu likara en að austurriski málarinn Hundertwasser muni taka hönd- um saman við Halldór Laxness um að tryggja Dunganon heims- frægö — en Halldór hefur skrifað um hann.tvær sögur merkar, eins og kunnúgt er. Hundertwasser mun hafa setið þrjá'r stundir samfleytt yfir handaverkum Dunganons nú um helgina og látið siðan uppi mikla aðdáun á þeim frumlega ævin- týraheimi sem hertoginn skapaði sér. Hefur hann farið fram á leyfi til að gefa út bók iitprentaöa með verkum Dunganons og það er lik- legt, að með þvi öfluga út- breiðslukerfi sem starfar að vel- gengni Hundertwassers, þá muni bók sú viða fara. fslenska rikið hefur þegið i arf verk Dunganons, en Listasafn ts- lands mun ekki hafa sýnt þcim neina sérstaka hrifningu til þessa. Yfirvinnubann útvarpsmanna Ráðuneytið á næsta leik Landsmenn hafa óþyrmi- lega orðið varir við yfirvinnu- bann starfsfólks hljóðvarpsins yfir hvitasunnjhelgina og þá alveg sérstaklega hvað við- kom fréttum sem voru alls engar hvitasunnudagana. Það skiptir kannski minna máli hvort klassiskri tónlist er út- varpað beint af hljómleikum eða af plötum, eftir þvi taka menn litið. — Það hefur nákvæmlega ekkert gerst i málinu, við höf- um ekki verið boðuð á sátta- fund og yfirvinnubanniö heldur áfram, sagði Dóra Ingvadóttir sem á sæti i nefnd þeirri er f jallar um málið fyrir starfsmannafélag hljóövarps- ins. — Eina sem við okkur hefur verið sagt, er að skila inn kröfugerð og greinargerð til kjaranefndar eins og öll önnur félög eiga að gera fyrir kl. 17 á morgun (i dag), annað er það ekki, sagði Dóra. Aðspurð sagðist hún ekki vita neitt um það hvort starfs- fólk sjónvarpsins færi einnig i yfirvinnubann; það yröi bara að koma i ljós ef svo færi. —S.dór Piltur drukknaði og stúlkur slösuðust Þvi miður varð hvitasunnu- helgin, þessi mikla ferðahelgi ekki stórslysalaus. Ungur piltur, Þórólfur Tryggvason frá Litla Hamri i öngulstaða- hreppúféll af hestbaki á Núpá sl. laugardag og drukknaöi. Hann var ásamt fleira fólki að reka fé þegar slysið varð. Þórólfur var með tvo til reiðar og mun hestur sá er hann sat hafa hrasað i ánni, en óvenju mikið vatn var i henni og féll Þórólfur af baki. Þrátt fyrir mikla leit sam ferðamanna hans, fanst lik Þórólfs ekki fyrr en undir Framhald á 14. siðu. Þýskur togari strikaður út af skrá 1 gær voru hér við land 49 er- lendir togarar og 19 erlendir bátar aö veiöum, allt sam- kvæmt samningum sem rikis- stjórnin hefur gert við hin ýmsu riki. Samtals þvi 68 crlend skip að veiðum innan landheiginnar. Það voru 24 bretar 21 þjóðverji, 2 belgar og 2 færeyingar. Þá gerðist það sl. sunnudag við veiðarfæra - könnun sem landhelgisgæslan framkvæmdi hjá færeyskum belgiskum og þýskum togurum hér við land að v-þýski togarinn „Bremer- haven” reyndist vera meö ólög- leg veiðarfæri.og eftir að þýska eftirlitsskipið hafði staðfest þetta, var togarinn strikaður út af listanum yfir þá þýska togara sem hér mega veiða og kemur ekki annar togari i hans stað. Poki þessa þýska togara reyndist vera klæddur þannig aö möskvastærðin var ekki nema 40 mm. en á aö vera 135 mm. Hér var þvi um fádæma gróft brot að ræða. Mun land- helgisgæslan litib sem ekkert hafa getað haft eftirlit með veiöarfærum erlendra skipa hér við land, en nú mun ákveðið að efla þetta eftirlit verulega. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.