Þjóðviljinn - 30.06.1976, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 30. júní 1976 — 41. árg. —140. tbl.
Hjá klerkum og
kommúnistum
— Arni Bergmann skrifar
um Italiuferð sina — Sjá opnu
FÆIŒYINGAR FÆRA ÚT1
200MILUR
%Fœrt verður út í síðasta
lagi 1. janúar 1977
tÖllum samningum við
erlendar þjóðir sagt upp
%Fœreyskir hagsmunir
einir látnir ráða en
ekki settir í
bland við dani eða EBE
Erlendur Patursson í
Færeyjum hringdi til Þjóð-
viljans í gær og hafði eftir-
farandi fréttir að segja:
Færeyska landstjórnin
ákvaö í dag að fiskveiði
lögsaga Færeyja skuli
færð út í 200 mílur eigi
síðar en 1. janúar 1977.
Einnig ákvað hún að öllum
samningum við breta, v-
þjóðverja, norðmenn,
belga og frakka um fisk-
veiðiheimildir þessum
þjóðum til handa skuli sagt
upp þannig að þeir verði
fallnir úr gildi í síðasta lagi
1. febrúar 1977.
Þessi ákvörðun land-
stjórnarinnar verður lögð
fyrir lögþingið í Færeyjum
til umræðu er það kemur
saman 29. júlí n.k. Verður
þar ákveðin nánari dag-
setning útfærslunnar.
Það er danska stjórnin
sem mun segja samning-
unum við útlendingana upp
en í þeim er ákvæði um sex
mánaða uppsagnarfrest.
Landstjórnin lagði áherslu
á að í þessu máli verði
gengið út frá færeyskum
hagsmunum einum en þeir
ekki settir í bland við
hagsmuni dana og EBE.
Handahóf ræður
fjármögnun RARIK
segir Jakob Björnsson orkumálastjóri
A aðalfundi Sambands is-
lenskra rafveitna (SÍR) f gær
ræddi Glúmur Björnsson skrif-
stofustjóri Orkustofnunar um
fjármál raforkuiðnaðarins en
undanfarið hefur starfað vinnu-
hópur sem hefur gert athuganir á
stöðu allra raforkufyrirtækja I
landinu. Glúmur gerði sérstak-
lega að umtaisefni hina miklu
skuldabyrði raforkuiðnaðarins en
mikiil hluti iána eru ýmist erlend
eða vísitölubundin. Jakob Björns-
son orkumálastjóri sagði að lok-
inniræðu Glúms að handahóf réði
Framhald á bls. 14.
Stórvirk hjálpartæki eins og þetta hafa verið tekin úr notkun I Alverinu og óbreyttum fjölda starfs-
manna er ætlað að taka við hlutverkum þeirra. Mynd: — gsp
„Skeiðklukkumœlingar”
gerðar á afkastagetu
verkamanna í Alverinu!
sem margoft hafa beðið um fjölgun starfsliðsins
vegna gífurlegs vinnuólags og ómældrar slysahættu
t skrifum Þjv. undanfarið um
slysahættuna og hin tiðu vinnu-
slys i kerskálum Alversins hef-
ur einn þáttur orðið útundan og
erhann þó síst minnstur. Vinnu-
álagið á þá rúmlega 100 menn
sem samtals vinna i kerskálun-
um er geysilegt og þó einkum I
skála númer tvö, þvi þar hafa
stórvirkar hjálparvélar verið
teknar úr notkun án þess að bætt
hafi verið við einum einasta
manni.
Þessar upplýsingar fengust er
gengið var með Sigurði T. Sig-
urðssyni trúnaðarmanni um
kerskálana I siðustu viku. Hann
sagði að viðræður stæðu yfir við
forráðamenn Alversins um
fjölgun starfsfólks þar sem
vinnuálag á hvern mann væri
langt umfram það sem hægt
væri að bjóða nokkrum manni.
— Þeir eru svo harðir á að
gjörnýta mannskapinn sem er
fyrir hendi, sagði Sigurður, —
að einn yfirmanna hefur upp á
eigin spýtur og eigin ábyrgð
gert „Skeiðklukkumælingar” á
afkastagetu starfsmanna með
óendanleg verkefni. Þessar
mælingar hafa verið notaðar til
grundvallar á viðræðufundun-
um undanfarið og það verður
svo sannarlega ekki sagt að þar
sé um heilbrigðan mælikvarða
að ræða. Það er ekki gert ráö
fyrir einni einustu minútu af-
lögu þrátt fyrir þá erfiðu vinnu
sem þarna er unnin og við sjá-
um ekki einu sinni möguleika á
þvi að komast á salerni þótt
brýn nauðsyn væri, ef unnið
væri eftir þessum klukkumæl-
ingum.
Til dæmis um skyndilega
aukningu vinnuálagsins nefndi
Sigurður að i kerskálunum báð-
um hefðu til skamms tima verið
svokallaðar „kerfreyjur”, sem
eru stórvirk tæki og sjá af al-
gjörri sjálvirkni um súráls gjöf i
kerin. 1 skála númer eitt eru
Framhald á bls. 14
Islenskiun þingmömnun neitað
um landvist í Bandaríkjunum
Kyrrsettir í heilan sólarhring í Kanada
Svava Jakobsdóttir
„Það sem er stóra málið i
þessu er að bandarfkjamenn
geta komið hingað hver sem er
án þess að fá vegabréfsáritun
og valsað hér um allt án þess að
við höfum nokkrar upplýs. um
en opinber islensk sendi-
nefnd i boði Kanadaþings fær
ekki einu sinni að skipta um
flugvél og fara I transit á
Kennedýflugvelli án þess að
setja allt I háa loft og heimtað sé
af henni áritun og henni komið i
alls konar vandræði. Þetta er
enn eitt dæmið um það hva ð Is-
lensk stjórnvöld hafa alltaf
verið höll undir bandarlkin. Við
látum troða á okkur en okkar
réttindi á mótieru engin.” Þetta
mælti Svava Jakobsdóttir alþm.
þegar Þjóðviljinn hafði sam-
band viðhana i gær en hún var i
5 manna sendinefnd frá Alþingi
I boði Kanadaþings sem var
kyrrsett i heilan sólarhring og
móðguð af bandariskum emb-
ættismönnum.
Forsaga málsins er sú að
þingmennirnir Þorvaldur
Garðar Kristjánsson, Ingi
Tryggvason, Svava Jakobs-
dóttir, Jón Armann Héðinsson
og Magnús Torfi Ólafsson fóru I
opinbera heimsókn til Kanada
eins og áður sagði. — Við þurft-
um aö gista um nótt i New York
á leiöinni vestur, sagði Svava,
en á heimleið aö hafa nokkra
klukkutima dvöl þar bara til
að skipta um flugvél. Viö fórum
héðan skv. bestu manna ráðlegg
ingum án vegabréfsárituna:. A
Kennedyflugvelli var hins
vegar farið fram á að við
hypjuðum okkur hiö snar-
asta til Kanada, en 'hefð-
um enga viðdvöl i Banda-
rikjunum af þvi að viö hefðum
ekki vegabréfsáritun. Fyrir
Framhald á bls. 14.