Þjóðviljinn - 13.11.1976, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 13.11.1976, Blaðsíða 16
16 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 13. nóvember 1976 Alþýðubandalagið, Suðurlandskjördœmi: Svartasta afturhaldsstjórn sem setið hefur um árabil Eyðsluskuldir ríkisins hlaðast upp innanlands og utan Afturhaldsstjórn Framsóknar og íhalds hefur nú setið að völdum I rúm tvö ár. Þrátt fyrir mikinn þingstyrk hefur hún ekki efnt nein þau fyrir- heit, sem hún gaf i upphafi valda- ferils sins, svo sem að stöðva verðbólguna, draga úr dýrtiðinni, minnka skattheimtuna, stilla útgjöldum rikisins i hóf og foröast erlenda skuldasöfnun, þó svo aö ekki sé talaö um öll þau há- stemmdu loforð, sem Sjálfstæðis- flokkurinn gaf fyrir siöustu kosningar um lausn efnahags- og skattamála. Er nú svo komið, að algert gjaldþrot vofir yfir bæði þjóöar- búinu og sérhverju alþýðuheimili þessa lands. Kaupmáttur launa skerðist með degi hverjum og má segja, að rikisstjórnin stjórni landinu frá degi til dags með geðþótta- ákvörðunum. Rikisstjórn Geirs Hallgrims- sonar hefur reynst vera það svartasta afturhald, sem fariö hefurmeð völd á íslandi um langt árabil og árásir hennar á launa- menn fara sivaxandi. Má þar nýjast nefna sem dæmi bráða- birgðalögin um kjör sjómanna, kjaradóminn um launakjör opin- berra starfsmanna, stöðugar gengisfellingar og gengissig, gegndarlausar hækkanir á vörum og þjónustu og stöðug hækkun skattheimtu, t.d. með hækkun söluskatts og vörugjalds, að ógleymdu vaxtaokrinu, sem er orðinn þyngsti bagginn á atvinnu- rekstri landsmanna. Eyðslu- skuldir rikisins hlaðast upp innanlands og utan, viöskiptahalli við útlönd svo milljörðum króna skiptir er árlegt fyrirbrigði og íjárlög margfaldast. Síðan eiga launþegar að standa undir greiðslum á öllu þessu sukki rikisvaldsins, þvl aö hlutur at- vinnurekenda fer siminnkandi I skatttekjum rikisins og ekki verður séð, að boðaðar skatta- lagabreytingar fjármálaráðherra bæti þar mikið um. Þetta er sú mynd, sem við okkur blasir I efnahagsmálum þjóðarinnar eftir tveggja ára óstjórn ihaldsaflanna I þjóö- félaginu, og ekki frikkar myndin ef skyggnzt er bak við tjöldin og athuguð sú spilling, sem þrifist hefur allt upp i efstu valda- stofnanir þjóðfélagsins. Virðing fólks fyrir lögum hefur farið si- minnkandi, og fikniefnaneysla, afbrot og glæpir stóraukist. Þrátt fyrir það, að flett hefur verið ofan af þeim blekkingum, Sigriður Samúelsdóttir and- aðist á Landakotsspitala hinn 5. nóvember s.l. eftir aðeins sólar- hrings legu þar. Hún var að visu búin að vera heilsulitil allmörg síðustu árin, en hafði þó að mestu fótavist til siðasta dags. Það má segja að likamleg orka væri með öllu þorrin, en hún var svo Iánsöm að fá að halda sjón, heyrn og and- legu þreki þar til yfir lauk. Og þvi ber að fagna að hún fékk hvildina án mikilla þjáninga, nánast sofnaði útaf. Hinu er ekki að leyna, að það er ávallt mikill eftirsjá i nákömnu og góðu fólki. Sigriður var fædd 12. nóvember árið 1893 i Skjaldbjarnarvik i Strandasýslu. Foreldrar hennar voru hjónin, sem þar bjuggu, Jó- hanna Bjarnadóttir og Samúel Hallgrimsson. Börn þeirra hjóna voru alls fimtán, en ekki munu þau öll hafa náð fullorðins aldri. Þau eru nú öll látin. Þegar Sigriður er 3ja ára gömul er hún flutt til Gisla móðurbróður sins, sem átti heima á Arngerðar- eyri við Djúp. Hann hugðist taka hana að sér, en þegar til kom voru ekki tök á þvi, vegna heimilis- ástæðna, þar sem kona Gisla missti heilsuna. Hann kom henni þá I fóstur til hjónanna Margrétar Stefánsdóttur og Kristjáns Kristj- ánssonar, er þá höfðu nýlega hafið búskap á Fremri-Bakka i Langadal. Þrem árum siðar flutt- ust þau hjónin að Nauteyri og þar ólst Sigriður upp ailt til full- orðinsára. Sigriður átti tvö uppeldissyst- kini, þau Dagbjörtu Kristjáns- dóttur og Stein Leós, og með þeim 'rikti góð vinátta alla tið, enda voru þau úrvalsfólk, sem hún mat mjög mikils. Steinn er látinn fyrir fáum árum, en Dagbjört býr i Reykjavik. Sigriður var ákaflega þakklát sinum ágætu fósturfor- eldrum, og að hafa fengið að alast upp á þessu myndarheimili. Ung að árum, eða nánar sagt 18 ára giftist Sigriður ölafi Péturs- syni frá Hafnardal, dugmiklum ágætis manni. Þau hófu þegar búskap á Snæfjöllum á Snæfjalla- strönd, og þar búnaðist þeim vel. Þar bjuggu þau i niu ár, en urðu þá að fara þaðan. Og aftur er snúið til Nauteyrar þar sem þau ráku búskap i sambýli við fóstur- foreldra hennar i þrjú ár. Frá Nauteyri flytjast þau svo að Hraundai i sama hreppi árið 1924, og allt gengur vel i nokkur ár. En sorgin er stundum á næsta leiti, og 9. júli 1929 dey r Ólafur. Hann hafði að visu verið heilsuveill öðru hvoru i nokkur ár. Mér er tjáð að samlif þeirra hjóna hafi verið farsælt og þau samhent i flestu og tillitssöm hvort við annað. Þau Sigriður og Ólafur eignuð- sem notaðar hafa verið til að réttlæta veru bandariska hersins á Islandi og aðild okkar að NATO, þannig að öllum sé ljóst haldleysi hvors tveggja frá fyrstu tið fyrir varnir landsins og sjálfstæði, þá leitast stjórnvöld sifellt við aö treysta böndin við NATO og festa hernámsliðið I sessi til fram- búðar. Augljóst er, að reynt verður að halda áfram á þeirri óheillabraut ust fimm efnileg börn, þau eru talin eftir aldri: Þórarinn, Ingi- björg, Kristjana, Jóhanna og Hallfriður. Eftir að Sigriður missir eigin- mann sinn, býr hún enn i nokkur ár i Hraundal, með góðri hjálp barna sinna. Ég hygg að það hafi hjálpað Sigriði mikið á erfiðustu stundum i lifi hennar hve einlæg trúkona hún var. Hún var einnig vel greind, ávallt glöð i viðmóti og gædd miklu lifsfjöri. Eins var henni auðvelt að tjá sig við hvern sem var, og átti gott með að halda uppi samræðum, enda hafði hún frá mörgu að segja og lifði timana tvenna. Oftlega heyrði ég hana taka málstað þeirra, sem stóðu höllum fæti i lifsbaráttunni, og gat hún þá verið ákveðin á svipinn. Arið 1936 ræðst Sigriður sem ráðskona til Jens Kristjánssonar, er þá hafði stofnað nýbýlið Vonarland, en það er byggt úr landi Melgraseyrar. Segja má að Vonarland hafi verið hennar heimili upp frá þvi. En eftir að Jens andaðist 1967 hefur Sigriður að langmestu leyti dvalið á veturna hjá dótturdóttur sinni Sigrúnu Guðmundsdóttur og manni hennar Böðvari Magnús- syni. Hjá þeim leið henni eins vel og best varð á kosið. En á hverju sumri fór hún vestur að Vonar- landi, og þar naut hún þeirrar náttúrufegurðar og kyrrðar, sem umhverfið er svo rikt af. Þau Sigríður og Jens tóku fimm börn i fóstur um lengri eða skemmri tima. Raunar má segja að þau hafi verið fleiri, þvi að heimilið á “Vonarlandi var mörgum börnum sólar- og sælu- staður i fjölda mörg sumur. að braska við útlendinga með hin ofveiddu fiskimið okkar, og auka jafnframt áróðurinn fyrir áfram- haldandi stórvirkjunum til þess að framleiöa ódýra raforku handa útlendingum til stóriðju- rekstrar á Islandi, sem aðeins þjónar undir hergagnaiðnað og offramleiðslu heimskapítal- ismans og tengir okkur Efna- hagsbandalaginu sifellt nánari böndum. •‘W •ttkBT’. Sigriður var ekki aðeins góð og elskuleg amma börnum okkar, heldur og öllum sinum barna- börnum, sem nutu þess að fá að vera hjá henni. Og sama var að segja um Jens, hann var sérlega barngóður, og minningar frá hans tima ylja manni ævinlega, þegar hugsað er til Vonarlands. Sigriður var, að eigin sögn, svo lánsöm að eiga sér góða og hjálp- sama nágranna, og hún var þeim mjög þakklát er hún leit yfir liðna tið. Nú þegar tengdamóðir min er látin, er margs að minnast og margt að þakka. Mér verður löngum minnisstætt hve vel hún tók mér og hlýlega, er ég sá hana i fyrsta sinni. Og sá hlý- hugur hennar til min og minnar fjölskyldu fór heldur vaxandi allt til lokadags. Faðir lifs og ljóss leiði hana og blessi. Gisli Guðmundsson RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður KLEPPSSPÍTALINN KENNSLUSTJÓRI. Hjúkrunarfræðingur með sérnám i geðhjúkrunarfræði óskast til starfa sem kennslustjóri á spitalanum frá 1. janúar n.k. Nánari upplýsingar veitir for- stöðukonan. Umsóknir, er greini aldur, menntun og fyrri störf ber að senda Skrifstofu rikisspitalanna fyrir 12. desember n.k. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á spitalanum. HJÚKRUNARFRÆÐINGAR óskast til starfa á hinar ýmsu deildir spitalans. Vinna hluta úr fullu starfi kemur til greina. Upp- lýsingar veitir forstöðukonan, simi 38160. FóSTRA óskast til starfa á dag- heimili spitalans. Upplýsingar veitir forstöðukonan simi 38460. SKRIFSTOFA R Í KISSPÍTALANNA EIRlKSGÖTU 5.SÍM111765 Sjúkraflutninga- námskeið Rauði Kross Islands efnir til námskeiðs fyrir sjúkraflutningamenn dagana 26.-28. nóvember i Reykjavik. Frekari upplýs- ingar veitir skrifstofa RKl, Nóatúni 21, Reykjavik, simi (91) 26722 Ríkisstarfsmenn BHM Almennur fundur verður haldinn i Súlnasal Hótel Sögu kl. 13.30 mánudaginn 15. nóv. Fundarefni: 1. Krafa BHM um grunnkaupshækkun 2. Staða í samningsréttarmálinu 3. Lifeyrissjóðsmál 4. Almennar umræður. F éiagsmenn fjölmennið. Félagsmenn FÍN athugið: Félagið hefur opna skrifstofu i herbergi 513 á Hótel Sögu kl. 9:00 til klukkan 18:00. Kveðja Sigríður Samúelsdóttir Vonarlandi við ísafjarðardjúp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.