Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 13

Þjóðviljinn - 22.03.1977, Blaðsíða 13
Þriðjudagur 22. mars 1977 ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13 þeirrar hreyfingar, Jonas Savimbi, hafði góð sambönd við vestræna auðhringa, sem mikilla hagsmuna áttu að gæta i Angólu, stjórn Sambiu og siðast en ekki sist Suður-Afriku, sem snemma í ágúst hafði sent her yfir landa- mærin frá Namibiu undir þvi yf- irskini, að það væri til þess að hindra skemmdarverk á Ruacana-Caluaquaraforkuverun- um, sem bæði Angóla og Namibia fá raforku frá. En seint i október 1975, tveimur til þremur vikum fyrir brottför siðustu portúgölsku nýlenduher- sveitanna, tóku atburðirnir nýja og alvarlega stefnu. Suður-Afrika sendi aukið lið inn i Angólu og hóf sannkallaða leiftursókn noröur á bóginn. Fyrstu viku sóknarinnar sóttu „steingeiturnar” (Sten- bocks), eins og vestrænir frétta- menn kölluðu suðurafrisku her- mennina aö gömlum sið breskum, fram um hvorki meira né minna en 600 kilómetra og héldu siðan áfram áleiðis til Luanda á um 70 kilómetra hraöa i dag. Her MPLA, sem enn hafði takmark- aða þjálfun hlotið i meðferð sovésku vopnanna, var að visu ágætlega fær i skæruhernaði, en kunni ekkert til staöbundins vig- vallahernaðar, mátti sin einskis gegn þessu harðsnúna og þraut- þjálfaöa innrásarliði, sem ofan á allt annað hafði aíger yfirráö i lofti. Samtimis þessu hertu FNLA-menn og hjálparlið þeirra frá Zaire sóknina aö norðan. Fengi MPLA ekki aukna hjálp, virtist ekki annað fyrir höndum en að suðurafrikumenn og FNLA tækju Luanda réttum leið og sið- ustu portúgölsku hersveitirnar færu þaðan, eða 11. nóvember MPLA réð ekki orðið yfir nema fremur litlum hluta landsins, Lu- anda og nágrenni ásamt með nokkuð breiðri ræmu austur eftir til landamæra Zaire. Örlagarík ákvörðun Það var 5. nóvember, sem kúbanska stjórnin ákvað aö senda ekki einungis hernaðarsérfræð- inga, heldur og reglulegt herlið, til Angólu. Ekki kemur fram hjá Garcia Marquez, hvort MPLA hafði formlega beðið um slika aö- stoð, en hvort sem svo var eða ekki hefur kúbönum væntanlega verið ljóst, að aöstoðin yrði vel þegin, enda ljóst orðið aö engan tima mátti missa. Garcia Marquez segir á þá leið, að kúbönum hafi verið fullvel ljóst, aö miklar likur voru á að þessi ieiðangur þeirra endaði með ósigri, sem hefði orðiö kúbönsku þjóðinni mikið siðferðilegt áfall, en engu að siður hafi her þeirra farið austur yfirhaf meö þvi hug- arfari, að hið eina sem ekki kæmi til greina væri að biða ósigur. — Kúbanir nefndu þessa djöfustu aðgerð sina á erlendum vettvangi til þessa Carlota, en svo hét blökkumaöur nokkur og þræll, sem 5. nóvember I843hafði staðiö fyrir þrælauppreisn i fylkinu Mantanzas, vestan til á Kúbu. Gunnreifir sjálfboðaliðar Lið það, sem kúbanir sendu til Angólu, hefur verið aö tölu til ein- hversstaðar á bilinu milli tiu og tuttugu þúsund. Allt voru þetta sjálfboðaliðar og ekki úr kúbanska hernum sjálfum, held- ur varaliðsmenn og fyrrverandi hermennfyrstog fremst. Ekki er að heyra að stjórnarvöld hafi þurft að beita neinum þrýstingi til þess að fá menn til að gefa sig fram i þessar vikingaferðir á tutt- ugustu öld: þvert á móti viðast. færri hafa komist meö en vildu. Þess voru dæmi að menn fölsuöu persónuskilriki sin til þess að verða tækir i Angóluleiöangurinn. Ungur maöur bauö sig fram án leyfis föður sins, en var ekki fyrr kominntilAngólu en hann rakst á gamla manninn þar. Hann haföi þá einnig gengið i leiðangurinn án þess að hafa hátt um þaö viö fjöl- skylduna.A skipunum, sem fluttu hermennina austur yfir Atlants- hafið, varð þaö plága aö sjómenn- irnir reyndu að laumast i land og koma sér i hersveitirnar, þegar til Angólu kom. Trúlega hefur bein ævintýrafýsn einhverju ráð- iðum þennan mikla baráttuvilja, en Garcia Marquez telur hins vegar engum vafa bundiö aö hugsjónaeldmóöur og einlægur vilji til að verða góðu málefni að liði hafi verið undirrótin hjá flest- um. Bandarikin hóta loftárás Flutningarnir austur yfir hafið voru út af fyrir sig mikið afrek. Til flutninganna höfðu kúbanir einkum skip og flugvélar af göml- um og úreltum gerðum og urðu að flytja með sér mestallan þann út- búnað og vörur, sem þeir þurftu með, meira aö segja oliu, þvi að ekki þótti eigandi undir þvi að hægt væri aö fá hana úr angólsku lindunum, eins og ástandið var orðið þar i landi. Allt þetta gekk þó vel og slysalaust og ber það dugnaði og skipulagshæfni kúbananna glöggt vitni. Ráðamönnum Bandarikjanna brá hastarlega viö, þegar þeir loksins fréttu af kúbönum i Angólu, og hefur þeim áreiðan- lega þótt sárt að þola aö þessi smái granni skyldi enn einu sinni hafa skotið þeim ref fyrir rass. Viðbrögð þeirra urðu þau, að beita þau riki, sem voru kúbönum á einn eða annan hátt innanhand- ar viðvikjandi flutningunum, þrýstingi og jafnvel skýlausum ofbeldishótunum. Eyrikiö Barbados hafði leyft kúbönskum flutningaflugvélum að millilenda þar á leiðinni milli Kúbu og Angólu, en Bandarikin knúðu Barbados til þess að draga það leyfi til baka. Stjórn Gvæönu leyfði kúbönum þá miililendingu þar i landi, en bandariski auð- hringurinnTexaco, sem ræður yf- ir oliulindum Gvæönu, lét pólitik- ina ganga fyrir gróðasjónarmið- inu og neitaði að selja kúbönum oliu, og ofan á það hótaði ambassador Bandarikjanna i Georgetown, höfuðborg Gvæönu, i eigin persónu loftárásum á flug- völlinn við borgina, ef kúbanir fengjuaö lenda þar. Sáu gvæönu- menn þá sitt óvænna og sviptu kúbani lendingarleyfinu. Eftir það var flogið millilendingarlaust frá Holguin á Kúbu austanverðri til Brazzaville, höfuðborgar Kongó, en það riki var hlynnt MPLA. Herskip og herflugvélar Bandarikjanna fylgdu flutninga- skipum kúbana yfirleitt eftir og sýndu oft ögrandi framkomu, meðal annars með þvi aö flug- vélár steyptu sér i litla hæð niður yfir skipin. Boðskort frá Roberto Engum vafa er það bundiö að til þess að bjarga MPLA máttu kúbanir ekki seinni vera. Her- menn þeirra, sem fyrstir komu til Angólu, urðu margir aö fara beint úr flugvélunum og skipunum á vigvöllinn. Andstæðingar MPLA réðu sér ekki fyrir sigurkæti. Málaliðaforingi nokkur i liði FNLA á norðurvigstöðvunum stjórnaðiliði sinu úr Honda-sport- bil og hafði meö sér i farartækinu ljóshærða kvikmyndaleikkonu. En skyndilega laust eldflaug nið- ur i honduna og sprengdi hana i smátt ásamt hinu sigurglaða pari. Sú eldflaug kom frá kúbön- um. Af kvikmyndaleikkonunni fannst ekki annað en handtaksa og i henni siður veislukjóll, bikini- baöföt og boðskort á sigurhátiö, sem Holden Roberto, foringi FNLA, var þegar búinn aö á- kveða að halda i Luanda, sem hann varsannfærður um að menn hans tækju einhvern næstu daga. Striðslukkan á bláþræði Þessi atburður er nokkuö tákn- rænn fyrir þau snöggu umskipti striðsgæfunnar, sem urðu við til- komu kúbananna. Fyrstu vikurn- armáttiþóekki á milli sjá, hverj- ir sigrast myndu, enda höfðu kúbanir ekki á móti sér neina amlóða þar sem búarnir frá Suð- ur-Afriku voru, og i liði FNLA var margthvitra málaliöa auk deilda úr Zaire-her. Heri þessa skorti ekkert, enda höfðu Bandarikin dælt 50 miljónum dollara i striös- rekstur FNLA og UNITA og bandamanna þeirra. 10. nóvem- ber átti lið FNLA aðeins 25 kiló- metra ófarna til Luanda, og fyrstu vikuna i desember horfði svo illa fyrir MPLA og kúbönum, að þeir höföu um skeið i huga að Fidel Castro, forsætisráðherra Kúbu, flytur iandsþingi Kommúnista- flokksins fyrstu sigurfréttirnar frá Angólu. Þar sem þetta var fyrsta landsþing flokksins, má nærri geta hvilikt siöferðilegt áfall það hefði orðið kúbönúm ef Castró hefði haft annað en sigurfréttir aðfæra. CABINDA MPLA Novo Redondo' Lobito Benguelay Luso Huambo ANGOLA FNLA+UNITA Staðan i Angóla skömmu eftir að kúbanir skárust Ileikinn Portugalia MPLA yfirgefa aðalland Angólu og bita sig fasta í Cabinda, landskika þann norðan ósa Kongófljóts er heyrir til Angólu. Kúbanir urðu nokkrum sinnum f.vrir alvarleg- um áföllum, einkum i viðureign- inni við suður-afrikumenn. Mesta ósigur sinn biðu kúbanir við Catofe skammt frá Nhia-fljóti á suðurvigstöðvunum, er suður- afriskri hersveit haföi, áður en kúbani varði, tekist að gera við brú yfir fljótið og koma svo bak- liði kúbana i opna skjöldu i morgungrámanum. Þetta geröist réttupp úr miðjum desember, og daginn áður hafði æðsti yfir- maður kúbanska liðsins i Angóiu, RaulDiaz Arguello, beðiö bana er brynvagn hansók á jarðsprengju. Diaz Arguello hafði getiö sér góðan orðstir i baráttunni gegn afturhaldsstjórn Batista á sinum tima og naut mikillar alþýðuhylli á Kúbu. FNLA gersigruð En þegar Kommúnistaflokur Kúbu hóf sitt fyrsta landsþing 22. desember, var kúbönum farið að veita betur. Þá gat Castro til- kynnt þingheimi aö FNLA-menn hefðu verið hraktir um 100 kiló- metra norður eftir og að bryn- vagnar suðurafrikumanna hefðu veriö stöðvaðir um 200 kilómetra fyrir sunnan Luanda. Snemma i janúar 1976 tóku MPLA-menn og kúbanir Carmona, „höfuðborg” Holdens Roberto, og varð sá sigur mjög til þess aö auka traust Af- rikurikja á MPLA, sem skipti miklu máli er Einingarsamtök Afriku (OAU) héldu ráðstefnu 12. janúar 1976 i Addis Ababa. Um miðjan þann mánuð var FNLA- herinn orðinn svo illa leikinn, að MPLA og kúbanir hófu þá þegar sóknaraðgerðir á suðurvigstööv- unum, sem annars haföi verið fyrirhugað að ekki gætu byrjað fyrr en i april. Megináætiunin var sem sagt sú, að ganga tryggilega milli bols og höfuðs á FNLA til þess að getá siöan beitt öllu afli gegn hættulegustu óvinunum — suðurafrikumönnum. 1 marsbyrjun var lið FNLA á norðurvigstöðvunum gersigrað. Siðasta örvæntingartiltæki þeirr- ar hreyfingar og bandamanna hennar var aö CIA réði i skyndi hóp breskra og bandariskra málaliða og sendi þá fram á vig- völlinn frá Zaire þegar aðstaðan var oröin gersamlega vonlaus. Bresku málaliðarnir, sem margir voru reyndir hermenn, gortuðu af þvi við brottförina að heiman að þeir væru „fræknustu menn Eng- lands” og að kúbanir myndu verða rýrir fyrir þeim. En þegar út i slaginn kom urðu þessir ensku vigamenn að gjalti, drápu hver annan og flýðu sem fætur toguöu. Þaö er engu líkara en aö allt sé orðið á eina lund með gengi þess fyrrverandi heimsveldis, sem Bretland er. af erlendum vettvangí Suðurafrikumenn á undanhaldi Eftir það einbeittu MPLA og kúbanir sér að sókninni suður á bóginn. Vörn UNITA-liðsins, sem var illa þjálfað og hugdeigt, brast þegar við fyrstu atlögur og leyst- ist upp i stjórnlausan flótta. Og hvað suðurafrikumenn snerti, fundu þeir fljótt að þar sem kúbanir voru höfðu þeir á móti sér her, sem stóð þeim fyllilega jafnfætis hvað snerti vopn, kunn- áttu i meðferð þeirra, herstjórn- arþekkingu og siðast en ekki sist baráttukjark og vigamóð. Um miðjan mars hófu suðurafriku- menn undanhald og 27. þess mán- aðar fóru siðustu hersveitir þeirra suður yfir landamærin til Namibiu. Trúlega hefur Suður- Afrikustjórn ekki litist á að flækja sig i langdregið strið i Angólu, án þess að hafa vissu um stuðning Vesturveldanna, en Garcia Marquez teiur, að suðurafriskir ráðamenn hafi óttast, að MPLA og kúbanir kynnu, ef suöurafriska herliðið þrjóskaðist við að hörfa, að veita þvi eftirför gegnum Namibiu og jafnvel inn i Suður- Afriku sjálfa. Ekki er vafi á, að slikri sókn hefði verið tekið meö samúð af mörgum Afrikurikjum og raunar mörgum rikjum utan þeirrar álfu, vegna andúöar á kynþáttakúgun suðurafriskra valdhafa. Góða veislu gera skal Ekki voru fyrstu MPLA-her- flokkarnir, undir forustu kúbansks foringja, fyrr komnir suður að namibisku landamærun- um en yfirmaður suðurafrisku hersveitanna hinumegin beiddist þess auðmúklega að viöræður yrðu teknar upp milli þeirra fyr- irliðanna, til að forðast misskiln- ing og slysaárekstra. Kúbanski foringinn tók þvi vel, og kom sá suðurafriskisiðanyfir til hans við þriðja mann. Aö viðræðunum. sem virðast hafa farið fram hið besta, loknum, lét suöurafriski foringinn sækja yfir landamærin til herbúða sinna veislumat og eðalvin, hélt viðræðunefnd kúbana og MPLA veislu og var greinilega mjög umhugað að verða þessum andstæðingum sin- um á allan hátt til geðs. Ómetanleg áhrif Um áhrif þau, sem kúbanska herliðið hafði á gang mála i Af- riku, hefur mikið verið fjallað og er þvi óþarfi að fjölyrða um það atriöi hér. En þetta djarflega og ævintýralega framtak varð einn- ig mjög mikilvægt fyrir kúbani sjálfa. Enda þótt kúbönum hafi, á þeim tæpum tveimur áratugum, sem liðnir cru frá sigri Castros og skæruliða hans, tekist að byggja upp eina velferðarþjóðfélag Ró- mönsku-Ameriku og hrinda við- tækum tilraunum Bandarikjanna og bandamanna þeirra til þess að knésetja kúbönsku byltinguna, hafa þeir einnig á þessu timabili beöið ósigra og mátt þola sár von- brigði. Morðið á argentinumann- inum Che Guevara, öðrum aðal- foringja kúbönsku byltingarinn- ar, var eitt slikt áfall, og annað og enn meira varð valdarániö i Chile, þegar afturhaldssamir herforingjar steyptu sósialiskri stjórn Allendes. Þar að auki hafa kúbanir mátt horfa upp á aö vinstrisinnaðir skæruliðar i öðr- um rómanskameriskum löndum hafa stöðugt farið halloka um langt skeið. Allt þetta hefur verið dapurlegt fyrir kúbani, sem búa við vissa einangrun i næsta ná- grenni við höfuðandstæðing sinn og fjarri helstu bandamönnum. Sigurinn i Angólu varð kúbönum ómetanleg uppbót fyrir þessi von- brigði. Hinir heimkomnu her- menn eru hylltir sem hetjur, og þjóðin finnur að meö afrekum þeirra hefur Kúba haft þýðingar- mikil áhrif á gang mannkynssög- unnar. dþ.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.