Þjóðviljinn - 31.03.1977, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 31.03.1977, Blaðsíða 1
DJOOVHMN Fimmtudagur 31. mars 1977 — 42. árg. — 75. tbl. Páskahlé á Alþingi í gær voru haldnir á Alþingi siðustu fundir fyrir páska i báðum deildum og i sam- einuðu þingi. Alþingi kemur saman á ný þann 13. april miðvikudaginn eftir páska. A fundi neðri deildar voru tvö stjórnarfrumvörp sam- þykkt sem lög. Var þar um að ræða frumvarp um fávita- stofnanir og frumvarp um staðfestingu á bráðabirgða- lögum frá 6.8 1976 um að létta greiðslu sjúkratrygginga- gjalds af tekjulitlum elli- og örorkulifey risþegum. Krafa á Alþingi Wjm hreinsibúnað| ella lokun álversins: - Ráöamenn fótumtroða aðvaranir heilbrigðiseftirlitsins A fundi Alþingis í fyrra- kvöld mælti Sigurður Magnússon fyrir tillögu, sem hann flytur ásamt Eð- varð Sigurðssyni um að ál- verinu í Straumsvík verði lokað, ef fullgild hreinsi- tæki verði ekki komin þar upp innan eins árs. Sigurður benti á að nú væru 2 og 1/2 ár liðið siðan fyrir lá að ekki væri hægt að nýta hin islensku hreinsitæki sem tilraunir höfðu verið gerðar með. Hann taldi óþolandi að biða enn i 3-4 ár eftir uppsetningu hreinsitækja eins og forráðamenn álversins vilja, og kvað óhjákvæmilegt að gagnrýna stjórnvöld harölega fyrir að hafa ekki knúið á um efndir þeirra bindandi loforða um uppsetningu hreinsibúnaðar, sem tókst að ná fram á valdaárum vinstri stjórnarinnar. Alveg sérstaklega taldi Sigurður gagnrýnisvert, að i fyrra skyldi Alþingi samþykkja nýjan samning um stækkun verksmiðjunnar án þess að þar væri tekinn af allur vafi um það, að álverinu bæri að fylgja heil- brigðisreglugerðum og lögum á Islandi. Þingmaðurinn sagði, að stjórn- völd gætu með engu móti haldið þvi fram að þeim hafi ekki verið kunnugt um aðvaranir og afstöðu Heilbrigðiseftirlitsins og Náttúruverndarráðs. Þessu til sönnunar vitnaði Sigurður I bréf sem Heilbrigðiseftirlit rikisins sendi forráðamönnum áiversins 15. ágúst 1975, en i þvi bréfi er tekiö fram að það sé sent að höfðu samráði við Náttúruverndarráð og Heilbrigðismálaráð Hafnar- fjarðar. í þessu bréfi sem sent var hálfu ári áður en stækkun var heimiluð Framhald á 14. siðu Ekkert markvert geröist á fyrsta samningafundi ASÍ og vinnukaupenda í gœr — nœsti fundur verður á morgun er við ræddum við hann eftir að fyrsta samningafundi ASl og vinnukaupenda undir stjórn sáttasemjara og sáttanefndar, lauk siðdegis i gær, en hann hófst að Hótel Loftleiðum kl. 14.00. Guðmundur sagði að fulltrúar Verkamannasambandsins væru boðaðir til viðræðna um sér- kröfur þess kl. 10.00 i fyrramál- ið, Landssamband iðnaðar- ,,Það gerist nú sjaldan neitt markvert svona á fyrsta fundi og þannig var það lika i gær. Menn ræddu um fyrirkomulag viðræðnanna á næstunni og annað þvi um likt. Sáttanefnd ræddi við báða aðila og það varð að samkomulagiaðhalda annan fund á morgun föstudag og þann næsta þar á eftir miðvikudaginn fyrir páska,” sagði Guðmundur J. Guðmundsson, formaður Verkamannasambands Islands, Björn Jónsson. forseti ASt.heilsar Torfa Hjartarsyni á samninga- fundinum i gær. — gel. manna um sinar sérkröfur kl. Siðan er fyrirhugaður venju- 14.00 og Samband byggingar- legur samningafundur nk. manna kl. 16.00. miðvikudag. —S.dór Síðustu loðnubröndurnar? Hjálmar Vilhjálmsson spáir góðu um sumarloðnuveiðarnar „Ég tel vlst, að þessi loðna sem skipin eru nú að fá I Eyjafirði séu siöustu tonninn sem veiðast á þessari vertið. Enda má segja að sá tlmi sé nú kominn sem venju- lega hefur verið lokatlmi loðnu- vertiðar. Við höfum leitað loðnu útaf Vestfjöröum en ekki fundið þarneittaf hrygningarloðnu, sem liklegt er að gangi suður fyrir; sú loðna, sem við fundum útaf Vest- fjörðum fyrr I vetur virðist alveg horfin.nema að það sé hún, sem gengið hefur inni Eyjafjörð, ég veit það ekki”, sagöi Hjáimar Vilhjálmsson, fiskifræðingur, er við ræddum við hann I gær um þar sem hann var um borð I Arna Friðrikssyni austur af Langanesi. Hjálmar sagði aö leiðindaveður hefði tafiö þá á Arna Friðrikssyni við loðnuleitina undanfarna tvo daga. Aður leituðu þeir útaf Vestfjörðum, en fundu þar enga loðnu, sem heitiö gæti, aðeins fannst af loðnu á Halamiðum, en það var litið magn. Um þá loönu sem bátar hafa ver ið aö veiða i Eyjafiröi sagði Hjálmar, að eftir þvi sem hann bestvissi, væriþar ekkium mikið magn að ræða og sú loöna ætti eft- ir svona viku til 10 daga i hrygningu. Þá er hún einnig á svo grunnu vatni að stærstu skipin eru I hættu með nætur sinar við að veiöa hana. Um sumarveiðarnar sagðist Hjálmar vera bjartsýnn ef hafis Framhald á 14. siðu Tillaga á Alþingi Verndun Bernhöfts- torfu 1 gær var lögð fram á Alþingi tillaga fimm þingsmanna úr jafn mörgum flokkum um verndun Bernhöftstorfu. Tillagan er á þessa leið: „Alþingi skorar á rikisstjórnina að hverfa frá þeirri ákvörðun að reist skuli ný stjórnarráösbygg- ing á spildunni við Bankastræti, Skólastræti og Amtmannsstig i Reykjavik og stuðla þannig að þvi að endurbygging og lagfæring á svonefndri Bernhöftstorfu geti hafist þegar i stað.” Flutningsmenn tillögunnar eru: Ellert B. Schram, Ingvar Gislason, Magnús T. Ólafsson, Eðvarð Sigurðsson og Gylfi Þ. Gislason. Hjúkrunar- frædingar fresta að- gerðum Að fengnu skriflegu loforði frá borgarstjóra og fjármálaráðu- neyti um að kjör stéttarinnar fái „sérstaka meðferö” i komandi k j a r a s a m n i n g u m hafa hjúkrunarfræðingar á Borgar- spitala, Landakotsspitala og Vifilssta.ðaspitala ákveðið að fresta framkvæmd uppsagna. Segjast hjúkrunarfræðingarnir fresta uppsögnunum fram yfir gildistöku sérkjarasamnings Hjúkrunarfélags Islands og fjár- málaráðuneytisins og Reykja- vikurborgar. Viö gerð hans mun væntanlega koma I ljós hverjar efndir verða á skriflegum lof- oröum borgarstjóra og ráðu- neytis um „sérstaka meðferö” i samningunum. Hjúkrunar- fræðingarnir tóku ákvöröun um frestun eftir að ljóst varð að stjórnvöld ætluöu ekki að taka til- lit til þess neyðarástands sem óhjákvæmilega hefði skapast á sjúkrahúsunum, ef uppsagnimar hefðu komið til framkvæmda. Einnig hafði Hjúkrunarfélag Is- lands mælt með frestun.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.