Þjóðviljinn - 23.01.1979, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.01.1979, Blaðsíða 1
djodviuinn Þriðjudagur 23. janúar — 18. tbi. — 44. árg. Skólatannlæknar á vegum Reyk j avíkurborgar: 1,2 milj. kr. í mánaðarlaun Fá þó aðeins helming af lágmarks taxta Tannlæknafélagsins 337 miljón kr. kröfur i Breiðholt hf. Kröfur þær sem nú hafa borist I þrotabú Breiftholts hf. nema nú samtals tæpum 257 miljúnum. Fjölmargar kröfur munu úkomnar enn, þar á meöal krafa frá Sem- entsverksmiöju rikisins aö upphæö um 80 miljúnir krúna ef vextir, dráttarvextir og kostnaöur eru reiknaöir meö. Stærsta krafan er frá Gjaldheimtunni i Reykjavik vegna vangoldinna skatta, samtals um 170 miljónir auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaöar. >ar af skuldar Breiöholt hf. 155 miljónir i skatta og á ógreiddar um 15 miijónir vegna skatta starfs- manna fyrirtækisins. Toll- stjórinn i Reykjavik gerir kröfu til 42 miljóna vegna vangoldins söluskatts og Póstgiróstofan krefst rúmra 20 miljóna vegna vangoldins orlofsfjár. Innköllunarfrestur er 4 mánuöir frá þriöju og siöustu birtingu auglýsingar um gjaldþrotaskipti I Lögbirt- ingablaöinu. Auglýsingin hefur nú birst einu sinni og reikna má meö siöustu birt- íngu eftir u.þ.b. hálfan mán- uö. Að sögn Unnsteins Beck borgarfógeta eru þær eignir, sem Breiðholt hf. hefur gefiö upp, flestar i útistandandi kröfum og reynslan sýndi, aö yfirleitt tæki langan tima að ná inn skuldum. Allar likur eru þvi á aö þaö geti dregist alllengi aö ganga frá gjald- þrotaskiptum Breiöholts hf. Skiptafundur i þrotabúinu verður 19. febrúar. _ eös I f járhagsáætlun Reykjavíkur fyrir árið 1979 eru áætiaðar 742 milj. króna til ókeypis tann- lækninga. Hluti af þessari upphæð rennur i laun til 18 skólatannlækna sem vinna fyrir borgina. Borgin leggur til alla aöstööu þeim aö kostnaöarlausu en þeir fá borgaö 50% af lágmarkstaxta Tannlæknafélagsins. Meö þessu móti hafa þeir rúmlega 1,2 milj. króna i laun á mánuöi og ætti mörgum verkamanninum þaö dágóö laun og jafnvel sumum þeim h&menntuöu lika. Meö sömu vinnu og þessir 18 skólatannlæknar leggja fram hafa þvi tannlæknar 2,4 milj. króna fyrir sinn snúö á mánuöi meö þvi aö fara eftir lágmarks- taxta Tannlæknafélagsins en þaö munu þeir flestir gera þó aö þeir séu ekki bundnir af honum. Af þeirri upphæö veröa þeir aö borga reksturskostnað tann- læknastofa sinna. Þess skal getiö aö 77 miljónir króna eru áætlaðar af fé borgarinnar til aö borga aöstoöarmönnum fyrrnefndra skólatannlækna. —GFr Meðan maður er ekki alltof æfður i iþróttinni er gott að njóta stuðnings vinkonunnar. Þær Hrafnhildur og Margrét voru niðir á Tjörn i gær i góða veðrinu, en þar er nú prýðis skauta- svell. Ljósmynd: Leifur. Um of einblínt á vísi- töluhækkun 1. mars sögðu þeir Ragnar Arnalds og Olafur Ragnar Grímsson er þeir kynntu efnahagstillögur Alþýðu- bandalagsins á blaðamannafundi Hvers vegna hækkar fast- eignamatið? Sjá síðu 9 og baksíðu Þeir Ragnar Arnalds og Ólafur Kagnar Urimsson kynna efna- hagstillögur Alþýöubandalagsins fyrir blaöamönnum i Þúrshamri i gær (Ljósm.: Leifur) Viö viljum snúa okkur aö orsök- um sjúkdúmsins og erum nú aö reyna aö snúa athygli samstarfs- flokka okkar aö þeim grundvall- arbreytingum sem veröur aö gera á framleiöslukerfinu til aö viö getum haldiö áfram aö bæta llfskjör I landinu, sögöu þeir Ragnar Arnalds og ólafur Ragn- ar Grimsson á blaöamannafundi i gær er þeir kynntu ftarlegar efna- hagstdiögur Alþýöubandalagsins ásamt meöfylgjandi greinargerö- Magnús L. Sveinsson hjá V.R.: Vara við algjöru frelsi um opnunartíma sölubúða t júli sl. skipaöi borgarstjúrn Reykjavikur nefnd til þess aö athuga reglur um opnunartlma verslana og vöruval i „söluturn- um”. Nefnd þessi er skipuö þremur borgarfulitrúum og fulltrúum Verslunarmannafé- lags Reykjavikur, Kaupmanna- samtakanna og Neytendasam- takanna. Á fyrsta fundi nefnd- arinnar nú I janúar lagöi Markús örn Antonsson til aö þessi reglugerö yröi alfariö numin úr gildi og opnunartimi gefinn algjörlega frjáls. Björg- vin Guömundsson mun hafa stutt þetta en fulltrúi V.R. var þvi andvigur þar sem þetta snertir viökvæman þátt I kjara- samningum félagsins. 1 viötali viö eitt dagblaöanna á laugardag segir Björgvin Guðmundsson aö hann telji aö tillaga Markúsar njóti stuönings meirihluta borgarstjórnar, þe. meö atkvæöum fulltrúa Alþýöu- og Sjáifstæöisflokks og gefur i skyn aö hann muni flytja hana þar. Viö höföum af þessu tilefni samband viö Magnús L. Sveins- son borgarfulltrúa en hann er skrifstofustjóri Verslunar- mannafélags Reykjavíkur. Magnús sagði aö ekki heföi enn verið gerö sérstök ályktun um þetta mál I stjórn félagsins, þar sem þaö heföi ekki veriö neitt til umræöu opinberlega fram til þessa. „Okkur var kunnugt um þessa nefnd sem skipuö var til þess aö endur- skoöa gildandi reglur um opn- unartima sölubúöa. Okkar full- trúi I henni er Böövar Pétursson en hann er i stjórn V.R. Fram til þessa hefur ekki ver- iö tilefni til ályktana um þetta ma. vegna þess aö þótt nefndin væri skipuö I júlí hélt hún sinn fyrsta fund nú i janúar. Nú er þetta hinsvegar komiö upp á yfirboröiö. Ég tel ekkert óeöli- legt aö þessi reglugerö sé end- urskoöuð. Hún hefur nú gilt I nokkur ár og gefist vel i stórum dráttum. Þaö hefur veriö nokk- ur óánægja meö vöruval I sölu- turnum og þaö mætti auövitaö taka til endurskoöunar. Ég neita þvi heldur ekki aö æskilegt er aö hægt sé aö veita fólki sem mesta þjónustu, en ég vil benda á aö samkvæmt gildandi reglum er kaupmönnum heimilt aö hafa opiðtilkl. 10 á föstudögum og til hádegis á laugardögum nema yfir sumarmánuöina. Mér er kunnugt um aö fjöidi verslana notar sér þetta ekki vegna þess aö neytendur versla litiö þennan tima.” Að endingu spuröum viö Magnús hvort hann vildi segja eitthvað sérstaklega um þá full- yröingu Björgvins Guömunds- sonar aö meirihlutinn væri tryggur fyrir frjálsum opnunar- tima i borgarstjórn. Magnús svaraöi „Ég vil vara mjög al- varlega viö þvi aö afnema reglugerö um opnunartima sölubúöa. Þaö gæti leitt til þess aö allar verslanir færu aö hafa opiö á hvaöa tíma sólarhrings- ins sem er.” sgt Þeir Ragnar og Ólafur sögöu aö um of væri einblint á vfsitölu- hækkun 1. mars n.k. en I raun og veru skipti sáralitlu máli fyrir heildarveröbólguvandann hvort kaup hækkaöi um 5 eöa 8%. Þaö sem skipti máli núna væri aö veröbólgan væri á niðurleið og nota þyrfti timann til aö gera ýmsar grundvallarbreytingar á efnahagskerfinu. Meginþættir efnahagsaögeröa þeirra sem Alþýöubandalagiö leggur til er fjárfestingarstjórn, hagræðing i atvinnurekstri og endurskgjulagning atvinnuveg- anna og sparnaöur i hagkerfinu. Markmiðin meö þessum aögerö- um erufyrstogfremstaö tryggja fulla atvinnu, draga úr veröbólgu ' og vernda þann kaupmátt launa sem samiö var um I hinum al- tjarasamningum áriö T977 og bæta kjör launafóiks eftir þvi sem efnahagsaðstæöur frek- ast leyfa. Þeir Ragnar Arnalds og Ólafur Ragnar Grimsson lögöu á þaö megináherslu aöekki mætti fórna neinu af þessum markmiöum fyr- ir annað. — GFr A morgun veröa efnahagstil- lögur Aiþýöubandalagsins kynnt- ar i smáatriöum i sérstökum blaðauka._______________ Verkföllum frestað Flugmenn Flugfélags Islands hafa nú frestað um viku áöur boö- uöum verkföllum meöan rikis- skipuösáttanefnd reynir aö miöla málum i deilunni. Nefndin var skipuö um helgina. Verður þvi flug meö eölilegu móti samkvæmt áætlun þessa vikuna. — vh

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.