Þjóðviljinn - 25.01.1980, Blaðsíða 2

Þjóðviljinn - 25.01.1980, Blaðsíða 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 25. janúar 1980 Dómsalur Hæstaréttar var troðfullur af fólki slöasta dag réttarhaldanna og fjöldi manns beiö eftir aö fá aö komastinn, eins og þessi mynd sýnir. (Ljósm. -eik-) ins. Hann benti á, aö rannsókn málsins væri nánast einsdæmi. Leitaö hefði veriö út fyrir land- steinanaeftir manni til að stjórna henni þegar allt var komið i strand. Slikt hefði aöeins einu sinni gerst áður hér á landi, árið 1936 vegna peningahvarfs i Landsbankanum. Þá gafst það illa og svo hefði einnig verið i þessu máli. Þessu næst rakti Guðmundur dæmi af þvf harðræði, sem ákærðu segjast hafa orðið fyrir viðrannsókn málsins. Hann benti á að ríkissaksóknari hafi. talað um „hreinar játningar” og „ein- lægar”. Þessar játningar voru togaðar út, orð fyrir orð á löngum tima, með þrotlausum yfirheyrsl- um og þrýstingi. þegar svo þess- um þrýstingi á ákærðu . lauk, drógu þau þessar játríingar til baka, sagði Guðmundur. . Hann sagði, að það væri mikill harð- -neskjublær á rannsókninni. Erla lykilmannsekjan Guðmundur minntist þessu Guðmundar- og Geirfinns-málin fyrir Hæstarétti Guðmundur Ingvi Sigurðsson, verjandiErlu Bolladóttur, geröi i upphafi varnarræöu sinnar þær kröfur', að Erla yrði sýknuö af ákæru i Geirfinnsmálinu en hlyti vægustu refsingu fyrir önnur brot, sem hún er ákærö fyrir, og þaö skilórösbundiö. j Guðmundur sagðist ekki ætla að rifja upp öll atvik málsins, enda hefðu aðrir verjendur gert Erla yar aðeins handbendi Sævars það, hann hefði þar engu við að bæta. Hann sagði þau mál, sem hér væri fjallað um, afar sérstæð fyrir dómstólum hér á landi og mál þessum lik hefðu ekki fyrir islenskadómstólakomiðsl. 100 ár eða svo. Taldi Guðmundur eink- um tvennt sem gerði málin svo sérstæö. Annarsvegar þætti mönnum sönnunarmöguleikar málanna forvitnilegir og svo hítt, aö engin sakamál hefðu fengið annað eins rúm i fjölmiðlum og þessi. Rannsókn undir þrýst- ingi Guðmundur sagði það ljóst, að vegna þess hve fjölmiölar heföu fjallað mikiö um málin, tekið af- stööu og mótað skoðanir almenn- ings á þeim, hefðu rannsóknar- menn málanna verið undir afar miklum þrýstingi. Fjölmiðlar þrýstu á ,þá og ræddu meira um málin en dæmi eru til um. Hann taldi vlst, aö Sigurður Óttar Hreinsson hefði breytt framburði sagði verjandi hennar Guðmundur Ingi og krafðist sýknu sinum vegna þess hvað blöðin sögðu mikið frá rannsókn mál- anna. Guðmundur ræddi þvi næst um, aö ákærðu hefðu verið lengi að játa og margar játningar þeirra hefðu verið fengnar fram undir þrýstingi rannsóknara, sem siðan hefðu raðað brotunum saman. Fortið Erlu Bolladóttur Þessu næst ræddi Guðmundur um fortið skjólstæðings sins, Erlu BoUadóttur. Sagöi Guðmundur hana vera flókinn persónuleika. Erla væri aðeins 25 ára, en hún hefði upplifað ótrúlega erfiðleika á þessari stuttu ævi. Hann nefni þar næst að foreldrar hennar hefðu slitið samvistum þegar hún var barnung og að samkomulagið innan fjölskyldunnarhefði aUa tið verið slæmt og stormasamt. Hún hefði ung fhist á milli landa, kom- ið aftur tU Islands þegar hún var á 8. ári. Rótleysi var i fjölskyld- unni og hún flutti oft á miUi hverfa i Reykjavik, þannig að Erlavar rifin úr skóla hvað eftir annað, og á meðan hún bjó hjá foreldrum sinum hafi hún 10 sinnum skipt um heimili en 22 sinnum alls á hennar 25 ára ferli. Hann rakti þessu næst vinnu- feril Erlu og sagði að henni hefði vegnað ágætlega allt þar tU 1973, að hún kynntist Sævari Siecielski og fór að búa með honum. Hún hefði algerlega verið á hans valdi, hann hefði fullkomlega ráðið yfir henni. I þvi sambandi minnti Guðmundur á úrskurð geðlæknis, sem rannsakaöi Erlu. Þar segir læknirinn, að hún sé áberandi óvirk og undanlátssöm og haldin sjálfspiningarhvöt. Hann benti ennfremur á, að hún hefði haldið Sævari uppi fjárhagslega oghefði mátt þola margskonar ofbeldi af hans hálfu. Þá sagði Guðmundur, að Erla hefði nokkrum sinnum reynt að slita sig frá Sævari, sem hún taldi að hefði haldið framhjá sér, en hann hefði aUtaf fengið hana tU að taka sig aftur, með hótunum ef ekki vildi betur til. Hann s agði, að hafa bæri þetta i huga þegar á þessi mál væri litið sem hér væru fyrir dómi. Þessu næst rakti Guömundur hvernig Erlu hefur gengiö, siðan hiín hlaut dóm i' héraöi 1977, og að hún segði að samfélagið neitaði að taka hana i sátt. Rannsóknin Guðmundur Ingvi sagðist hafa rifjað þetta allt upp, tU þess að hægara væri fyrir menn að glöggva sig á þvi, sem fram kom við hina gölluöu rannsókn máls- næst á og ræddi um aðErla Bolla- dóttir.hefði verið lykilmanneskj- an i að opna þessi mál. Það heföi verið framburður hennar sem varð til þess, að lögreglan komst á sporið i Guðmundar- og Geir- finnsmálunum. Dómsvaldið, ákæruvaldið og þjóðin öll stend- ur i þakkarskuld við hana fyrir það, jafnvel nú eftir að hún hefur dregið framburð sinn til baka. Þá ræddi Guömundur um hve skýrslur Erlu hefðu verið rugl- ingslegar, sem væri i samræmi við persónuleika hennar, sem hann hefði áður lýst. Hann tók dæmi af sögu hennar um að hún hefði sjálf skotið Geirfinn Einars- son.Þá trúðu rannsóknarar henni ekki, en þeir trúöu henni þegar þaðkom þeim og rannsókn þeirra vel. Varðandi meinsærið sagði Guðmundur, að eftir að Erla losn- aði úr gæsluvarðhaldi i desember 1975, hefði hún viljað gera allt til að þóknast rannsóknarmönnum á timabilinu janúar/april 1976 af ótta við að verða aftur sett I gæsluvarðhald. Siðan rakti hann ýmis dæmi úr rannsókninni, máli sinu til stuönings. Framburður afturkall- aður Þessu næst vék Guðmundur að þvi, að Erla hefði nú afturkallað framburð sinn. Hún segist hafa þroskast, segir fyrri skýrslúr sin- ar um málið rangar, hún hafi getað samræmt framburð sinn við rannsóknina vegna þess að rannsóknarlögreglumennirnir báru á milli ákærðu. HUn segist ekki hafa orðið fyrir þrýstingi til að draga framburð sinn til baka. En, sagði Guðmundur Ingvi, það hefur komið fram við mál- flutning fyrir Hæstarétti, að vitn- ið Helga Gisladóttir hefur orðiö fyrir þrýstingi og jafnvel hótun- um af hendi Sævars Ciecielskis, ef hún ekki breytti framburði. Getur ekki verið að Erla hafi lika orðið fyrif þrýstingi og hótunum? Þá sagði hann, að þessi afturköll- un Erlu núværi ekki til þess fallin að auka á áreiðanleik fyrri skýrslna hennar. Og ennfremur benti Guðmundur á, aö Erla hefði miklu fyrr reynt að draga fram- burð sinn til baka én ekki fengið það. Þá vék Guömundur að vitnis- burði bifreiðastjóranna tveggja, sem sögðust hafa tekið Erlu uppi bila sina. Sagði hann framburð þeirra þannig, að möguleiki væri á ruglingi, auk þess sem þeir heföu verið mataðir á upplýsing- um. Sævar höfuðpaurinn Þessu næst vék Guðmundur að þvi, hvað Sævar hefði haft mikið vald yfir Erlu og hefði getað stjórnaö henni algerlega. Það væriþvi ljóst,að hann værihöfuð- paurinn i öllum þeim sakamál- um, sem Erla væri bendluð við, enda sannaði sakavottorö hennar, aö hún hefði aldrei komist i kast við lögin, fyrr en hún kynntist Sævari Marinó. Er Geirfinnur látinn? — Þaö hefur ekkert lik fundist, Framhald á bls. 13 Meta yeröur skýrslur með varúö miðað við hvernig þær eru fengnar, sagði Benedikt Blöndal verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar Benedikt Biöndai, verjandi Guðjóns Skarphéðinssonar, talaði siðastur verjanda fyrir Hæsta- rétti. Hann gerði þá kröfu, að skjólstæðingur sinn yrði sýknaður af ákæru um aö hafa ráðið Geir- finni Einarssyni bana, en til vara að hann hiyti vægustu refsingu. Þessu næst lýsti hann lifshlaupi Guöjóns sem er fæddur árið 1943, kennari aö mennt og hefur stund- aö nám i Háskóla um tima. Rakti hann i fáum dráttum æviferil Guöjóns. Um slys að ræða Þá vék'Benedikt að Geirfinns- málinu og þeim þætti sem Guðjón er ákæröur fyrir. Minnti hann á, að Guðjón hefði aldrei kvikað frá þvi I sinum framburði að hann heföi ætlaö að leiöa Geirfinn burt til að firra vandræðum, þvi aö þeim Sævari og Kristjáni væri laus höndin, eins og Guöjón komst að oröi. Þetta misskildi Geir- finnur, firrtist við og þá upphófust slagsmál er Sævar og Kristján réðust að Geirfinni. Hvaö næst gerðist man Guðjón illa, enda gerðist margt i einni svipan. Guöjón minnist þess ekki aö hafa tekiö þátt i slagsmálunum, hvaö þá aö hafa beitt barefli eins og hinir hafa borið á hann. Guöjón hefði aldrei játaö á sig manndráp, þarna hefði orðið slys. Þá rakti Benedikt hvernig rikissaksóknari hefði teflt saman framburði ákærðu, sem væri mjög ruglingslegur og á reiki. Hann minnti einnig á að nú hefðu allir aðrir en Guðjón dregiö fram- burð sinn til baka. Yrði þvi trúaö, þá heföi Guðjón að sjálfsögöu ekki heldur komið til Keflavlkur þetta umrædda kvöld þegar Geir- finnur hvarf. Handtekinn án úrskurðar Þessu næst tók Benedikt að rekja rannsókn málsins og mein- baugi hennar. Hann nefndi sem eitt af dæmum um galla hennar, að skjólstæðingur sinn hefði verið handtekinn 12. nóv. 1976, án þess að nokkur úrskuröur hefði verið gefinn út, en þrátt fyrir það hefði Guðjón samþykkt hana. Þessu næst rifjaöi Benedikt upp mjög strangar yfirheyrslur yfir Guð- jóni og þaö sem togað var uppúr honum viö þær. Hann ræddi einnig um aðrar yfirheyrslur og sagöi: — Ég tel likur á að ekki hafi allir þeir fundist sem fóru til Keflavikur þetta kvöld. Þessu næst gagnrýndi Benedikt ýmislegt i rannsókninni. Hann nefndi sem dæmi, að Guöjóni heföi veriö gefið valium og libr- Ium saman samfleytt frá 2. des. 1976 til 8. des. og þá hefði hann verið tekinn I stranga yfirheyrslu. Er mikið að marka framburð sem er fenginn undir svona kringum- stæöum?, spuröi Benedikt. Hann sagöi, aö inni skjöl málsins vant- aði til aö mynda fyrsta framburö Erlu Bolladóttur. Hvernig stend- ur á þvi? Sýnileg sönnunargögn vantar Benedikt sagði, að sýnileg sönnunargögn væru ekki til i þessu máli. Þess vegna væru þaö játningar sem ákæran væri byggð á. Hitt er svo annaö mál, að ekki hefur veriö hirt um aö afla allra þeirra sönnunargagna sem hægt var. Nefndi hann sem dæmi blóö- leifar sem fundust i sendiferöa- bilnum, sem fór til Keflavikur þetta kvöld. Þær heföi ekki veriö hægt að rannsaka úti i V-Þýska- landi vegna anna þegar þær voru sendar þangað, en ekkert hefði svo verið gert i að fá blóðsýnið rannsakað þegar hægðist um i rannsóknarstofunni. Aldrei var leitað aö Fólksvagninum, sem fariö var i til Keflavikur og likiö flutt I til baka. Þar hefði hugsan- lega verið hægt að finna blóð- bletti. Það voru þó ekki nema 18 bilar sem komu til greina. Þar næst vék Benedikt aö sim- talinu úr Hafnarbúöinni. Hann taldi sannað, að enginn ákærðu heföi veriö þar aö verki, en samt var hringt. Hver hringdi, spurði Benedikt. Það hafði komið fram, að þegar Sævar sótti Guöjón Skarphéðinsson á Ægis- siðuna þetta kvöld hefði veriö meö honum maöur, sem Guðjón ekki þekkti. Hver var það? Krist- ján Viðar segist hafa veriö þessi maður, en Guöjón er ekki sam- þykkur þvl. Það var aldrei talað viö fólkiö, sem Guöjón var hjá þetta kvöld, sagöi Benedikt. Allt veikir þetta rannsóknina mjög, hve mikið vantar i hana, sagði hann. Játning Guðjóns Hann ræddi þessu næst um játningu Guöjóns og hvernig héraðsdómur hefði taliö hann gera sinn hlut sem minnstan. Guöjón.varö fyrir taugalosti þegar hánn uppgötvaöi aö Geir- finnur var látinn. Þaö er þvl alveg eölilegt aö hann hafi ekki munaö alla atburöi strax viö yfir- heyrslur, enda kom þetta smátt og smátt hjá honum, sagöi Bene- dikt. Guöjón segir á einum staö i skýrslu aö hann teiji varhugavert aö trúa framburöi Sævars og Kristjáns og tel ég þaö rétt vera hjá honum. Þá gagnrýndi Bene- dikt þaö, að bréfið, sem Guðjón skrifaði rannsóknarmönnum, þar sem hann lýsir þeim atburöum sem hann mundi, og heföi átt aö vera umræðugrundvöllur við frekari tilraunir til að fá sam- hengi i máliö, aö þetta bréf hefði svo veriö lagt fram sem sjálfstætt skjal i rannsókninni. Brestur sönnun? Benedikt benti á eins og hinir verjendurnir höföu einnig gert, að sönnun skorti á þvi að Geirfinnur Einarsson væri látinn. Þaö hefur ekkert lik fundist. Þvi væri nú svo komið að byggja yröi á framburöi Guðjóns eins, hinir heföu allir dregið til baka sinn framburð. Fyrst svo væri, þá væri þaö einnig ljóst, samkvæmt framburöi Guö- jóns, að hann hefði ekki tekið þátt i slagsmálunum i Dráttarbraut- inni, þvert á móti, hann hefði gert tilraun til að afstýra vandræðum. Varöandi ásetning taldi Bene- dikt ljóst að um hann væri ekki aö ræöa, ekki einu sinni eftir að komið var i Dráttarbrautina. Erfitt er þvi að meta hvort eða hvenær ásetningur myndaöist, eða hvort hér var um hreint slys aö ræða. Allt máliö ber yfirbragö slyss. Benedikt nefndi atriöi til refsi- lækkunar fyrir Guöjón en þessu næst sagði hann: — Þjóöin er búin aö dæma þetta fólk, meirá að segja dóms- málaráöherra sagði er rannsókn taldist lokiö — martröö er létt af þjóðinni — . Ég vil þvi vekja at- hygli á sjálfstæöi dómsstóla, nú þegar H"átiréttur tekur aö fjalla um máliö. Aö svo mæltu legg ég máliö i dóm meö venjulegum fyrirvara, sagöi Benedikt Blöndal. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.