Þjóðviljinn - 25.01.1980, Blaðsíða 7
Föstudagur 25. janúar 1980 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
Lúðvlk
Jósepsson
Um efnahags-
tillögur Alþýðu-
bandalagsins
Vaxtalækkun
Ein af tillögum Alþýðubanda-
lagsins er lækkun vaxta um 5%
1. mars og aftur um 5% 1. ágúst
n.k.
Vextir eru þegar orönir
gifurlega háir og miklu hærri
en þekkist i nokkru náiægu
landi.
1 umsögn Seðlabankans um
tillöguhugmyndir Sjálfstæðis-
flokksins dags. 9. jan. s .1. segir
orörétt:
„Núgildandi útlánsvextir
skila um 37-38% ársvöxtum,
nema vaxta-útlán 47%, en 3ja
mánaða vaxta-auka-innlán
(viðmiðunarvextir ) 36,5% og 12
mánaða 43,5%.”
Auðvitað er vaxtabyrðin orð-
in litt viðráðanleg fyrir mörg
fyrirtæki og öviðráðanleg fyrir
almennt launafólk. Þessa
gifurlegu háu vexti verður aö
lækka, ef gera á alvarlega til-
raun til að lækka verðbólguna.
Röksemdin um það, að þessir
háu vextir eigi að tryggja
sparif járeigendum „raun-
vexti”, er þegar fallin um koll á
eftirminnilegan hátt. Um raun-
vaxtaþrasiö segir Þjóðhags-
stofnun i riti sinu um þjóðarbú-
skapinn útg. i nóvember 1979,
þetta:
„Aætlunin fyrir liðandi ár
sýnir að raunvextir verða
lægri i ár en undanfarin þrjú
ár, þrátt fyrir að nafnvextir
hafi verið hækkaðir tvisvar i
samræmi við ákvæöi efnahags-
málalaganna frá þvi i april.”
Reynslan hefur sem sagt
sýnt að tilraunir til að tryggja
raunvexti með þvi aö hengja
vextina aftan i verðbólguna,
hafa ekki komið sparifjar-
eigendum til góða, þeirra hag-
ur hefur beinlinis versnaö.
Tillögur Alþýðubandalagsins
miða að þvi að koma verðbólgu-
hraðanum niður i 27% i árslok
1980.
Lækkun vaxta um 10% á
þessum tima mun skila stöðu
sparifjáreigenda betri i lok
ársins en hún er nú. ,
En hvaða áhrif hefði 10%
lækkun vaxta i verðlagsþróun-
inni?
1 mörgum fyrirtækjum eru
vaxtagjöld nú jafnhá og allar
launagreiðslur. Mjög algengt
er að vaxtaútgjöld séu 40-50 af
launum. Lækkun vaxta um 10%
Framhald á bls. 13
Kaunvextir verða lægri i ár en undafarin þr jú ár — þrátt fyrir há-
vaxtastefnu og verðtryggingaráform.
mmmmmmmmm
Frá aðalfundi hás kólakennara
Nær 300 í félagi
Háskólakcnnara
Nýlega var haldinn aðalfundur
Félags háskólakennara, en
félagsmenn eru allir fastir kenn-
arar við Háskóla Islands, tæp-
lega 300 talsins.
A fundinum var fjallað um
ýmishelstu mál, sem eru á dag-
skrá innan félagsins, svo sem
kjaramál og byggingu orlofs-
heimilis. Ný stjórn var kjörin á
aöalfundinum. Hana skipa:
Gunnar G. Schram, forseti laga-
deildar, formaður, Jónas
Hallgrimsson prófessor, vara-
formaður, Maria Jóhannsdóttir
deildarritari, gjaldkeri, Guð-
laugur Tryggvi Karlsson
fulltrúi, ritari og Jón Bragi
Jónsson dósent, meðstjórnandi.
Fulltrúar félagsins i Háskóla-
ráði voru kjörnir þeir Arnór
Hannibalsson lektor og Þorgeir
Pálsson dósent.
Fundur Blindrafélagsins:
Undrast ný lög um
aöstod vid þroskahefta
Félagsfundur Blindrafélags-
ins haldinn að Hamrahiö 17 þann
23. okt. 1979 lýsir undrun sinni
vegna setningar laga um aðstoð
við þroskahefta án nokkurs
samráös við félag öryrkja I
landinu. Telur fundurinn aö
merking orðsins „þr os ka-
heftur”séóljós og að mörguleyti
villandi, en i annarri grein
laganna segir, að orðið þroska-
heftur tákni hvern þann, sem
þannig sé ástatt um að hann geti
ekki án sérstakrar aöstoöar náð
eðlilegum likamlegum eða and-
legum þroska.
Með tilvisun til 24. greinar lag-
anna telur fundurinn, að blindir
og sjónskertir tilheyri ekki
þessum hópi. Auk þess er i
lögunum rætt um öryrkja og
þroskahefta, sbr. áöurnefnda 24.
grein. Jafnframt lýsir fundurinn
furðu sinni á 32. grein laganna,
en þar segir m.a., að auk þess
falli niður öll ákvæði almanna-
tryggingalaga nr. 67 1971, ásamt
siðari breytingu, sem ekki
samrýmist lögum þessum. Enn
fremur ákvæöi annarra laga
sem kunna að ganga i berhögg
við þessi lög. Fundurinn telur, aö
þessi grein geti haft i för með
sér ófyrirsjáanlegar afleiöingar
fyrir hinn almenna öryrkja og
skorar á löggjafarvaldið aö
breyta þessu án tafar. Jafn-
framt beinir fundurinn þvi til
beirra. sem um lagasetningu
fjalla, að þeir hafi fullt samráö
við samtök og félög öryrkja i
landinu, þegar lög um málefi
þeirra eru sett eða endurskoöuö.
Sigurjón Péturssson
borgarfulltrúi
Adda Bára Sigfúsdóttir
borgarfulltrúi
Guðrún Helgadóttir
borgar fulltrúi
Guðmundur Þ. Jónsson
borgarfulltrúi
Guðrún Agústsdóttir
var a-bor gar fulltr úi
setið fyrir svörum
borgarfulltrúar Alþýðubandalagsins í Reykjavík
sitja fyrir svörum á almennum fundi á Hótel Sögu miðvikudaginn 30. janúar.
fundurinn er í Lækjarhvammi og hefst hann kl. 20.30.
1 i! .!
Borgarbúar eru hvattir til að fjölmenna
Alþýðubandalagið í Reykjavík