Þjóðviljinn - 26.01.1980, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 26.01.1980, Blaðsíða 16
16SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 26. janúar 1980 skák Umsjón: Helgi ólafsson (Einfaldast og best.) 8... exf6 10. Hcl a6 9. Bxc4 Bb4 11.0-0 Rd7 (En ekki 11. — 0-0 12. Rd5! og svartur er i úlfakreppu.) 12. a3 (En hér var 12. Rd5! skarpari leikur. Besta leiö svarts er nú 12. Einvígi Petrosjans og Kortsnojs Erfðafjendur mætast Sú viðureign I Askorenda- keppninni sem hvað mesta at- hygli kemur til með aö vekja er einvígi Kortsnojs og Petrosjans. A siðasta áratug tefldu þeir i hvert sinn sem Askorendakeppn- in fór fram. Petrosjan vann fyrsta einvigiö 1971 en Kortsnoj svaraðifyrirsig meðþvi að vinna 1974 og 1977. Hvernig úrslitin verða i ár skal ósagt látið en ýmislegt þykir benda tQ aöPetro- sjan sé ekki i sem allra bestu formi en Kortsnoj á hinn bóginn spjarar sig að venju vel. All mikið djúp er á milli þeirra á Elo-listanum en Kortsnoj hefur 2695 stig á móti 2615 stigum Petrosjans. Stigataflan er þó aldrei mjög nákvæm og það hefur löngum verið lýðum ljóst að Petrosjan leggur ekki mikla áherslu á að vinna mót, miklu frekar reynir hann að komast hjá tapi og hefur gengið býsna vel gegnum árin. Aratugurinn 1960-1970 var áratugur Petro- sjans.Still hans var þá fastmótað- ur enda leið ekki á löngu þar til hann bankaði á dyr hjá Mikhael Botvinnik og vann af honum heimsmeistaratitilinn i frekar litt spennandi einvigi árið 1963. Leið hans aö titlinum var mjög glæsi- leg.HannvarðSovétmeistari 1961 hlaut 13 1/2 v. af 19 mögulegum. Varð I 2.-3. sæti á millisvæðamót- inu I Stokkhólmi og sigraði siðan á Askorendamótinu i Curacao hlaut 171/2 v.af 27 mögulegum. 1 þessum þremur mótum tapaði hann einungis einni skák — fyrir Stein á Sovétmeistaramótinu. öryggi hans var slikt að í raun var talið að nær ógerningur væri aðsigrahann. Einn af keppinaut- um hans i þessum mótum var vitaskuld Viktor Kortsnoj en i innbyrðis viöureignum var hann léttvægur fundinn. Hér kemur eitt dæmi, skák sem tefld var i Askorendamótinu i Curacao. Hvitt: Petrosjan Svart: Kortsnoj Enskur leikur 1. c4 c4 2. Rf3 Rf6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 g6 5. Rc3 d5 6. Bg5 dxc4 7. e3 Da5 8. Bxf6! — Bxc3 13.Hxc3 Re5. Hvítur held- ur eilitiö betri stöðu en svartur hefur góða möguleika á að jafna tafhð.) 12... Be7? 14- f4! 13. b4 De5 (Einfalt og snjallt og um leið ein- kennandi fyrir kraftmikla tafl- mennsku Petrosjans á þessum árum. Eftir 14. —Dxe3+ 15. Khl á svartur enga viðunandi vörn gegn 16. Hel o.s.frv.) 14. .. Db8 15. Bxf7+! (Afgerandi!) 15... Kxf7 18. Re6 b5 16. Db3+ Ke8 19. Rdc7+ Ke7 17. Rd5 Bd6 (Að leika aftur velstaðsettum manni er af mörgum taliö það erfiðasta i skák...) 20. Rd4! Kf8 (Eða 20. — Bxc7 21. Rc6+ Kf8 22. Rxb8 Bxb8 23. De6! o.s.frv., 20. — Dxc7 dugar einnig skammt: 21. Hxc7 Bxc7 22. De6+ Kf8 23. Dc6! Ha7 24. Re6+ o.s.frv.) 21. Rxa8 . — Svartur gafst upp. Eftir 8 . umferðir á skákmótinu i Wijk Aan Zee er Guömundur Sigurjónsson í 11-12 sæti með 3 vinninga. Heimsmeistari ung- linga Yasser Seirawan er efstur með 5 1/2 v. og eina biðskák. Walter Browneer i 2. sæti með 5 1/2 v. og Kortsnoj er i 3. sæti með 5 v. Alls verða umferöirnar 13 talsins. V örubílstjóra félagið Þróttur tilkynnir Hér með er auglýst eftir framboðslistum til stjórnar og trúnaðarmannaráðs 1980. Hverjum framboðslista skulu fylgja með- mæli minnst 13 fullgildra félagsmanna. Framboðsfrestur rennur út mánudaginn 28. jan. n.k. kl. 17.00. Kjörstjórn. Húsráðendur athugið! Höfum á skrá f jölda fólks sem vantar þak yfir höfuðið. , Leigjendasamtökin Bókhlöðustig 7 Opið: Ki. 15-18 alla virka daga, simi: 27609 Sitt af hverju frá Súðavík — Þar sem ég hef lofað að senda blaöinu stöku sinnum smá fréttir héðan úr Súöavík en er nú búin að svikjast um lengi er samviskan farin að áreita mig, svo ég verð vist að láta eitthvað i mér heyra, sagði Ingibjörg Björnsdóttir, fréttaritari Þjóð- viljans I Súðavik I viðtali við Landpóst nú um miðja vikuna. Atvinnulíf hefur staðið með miklum blóma. Mikillfiskur hefur borist á land sl. ár þar sem togarinn Bessi fiskaði vel sem fyrr,en auk þess eru fjórir smærri bátar gerðir út héðan og stunda þeir ýmist færi, troll eöa rækjuveiöi. Tveir þeirra stunduðu úthafs- rækjuveiðar i sumar og veiddu vel, — en þeir veiða allir rækju að vetrinum. Skortur á vinnuafli er þvi oft þrátt fyrir margt að- komufólk, bæði innlent og útlent en hér er Astraliu- og Ný-Sjá- landsfólk alla vetur. Framkvæmdir hafa verið hér þó nokkrar á sl. ári, fyrst og fremst hafnargerð. Fremri hafnargarðurinn var lengdur um 120 metra og er nú unnið að bryggjusmiði fyrir smábátana. Mun hafa verið unn- ið viö höfnina fyrir um 120 milj. kr. ibúðaskortur Skortur á ibúðarhúsnæði er alltaf hér i Súðavik. Fjögur ein- býlishús, sem.byggð voru á veg- um hreppsins, voru afhent eig- endum fullfrágengin á sl. ári og enn mun hreppurinn fara af stað með ibúðarhúsabyggingar i vor. Verið er að leggja siðustu hönd á að gera fokhelda 500 ferm. bygg- ingu, sem á að verða skrifstofu- húsnæði fyrir hreppinn, véla- geymsla og bifreiðaverkstæði. Helgi Bjarnason og Auðunn Karlsson standa að þessari byggingu ásamt með Súðavikur- hreppi. Heilsugæslustöðin var nú tekin i notkun i haust. Var margur orðinn langeygur Umsjón: Magnús H. Gislason eftir henni en hún er búin að vera i smiðum siðan 1973. Þetta er 120 ferm. hús og allt hið vistlegasta Læknir kemur svo hingað einu sinni til tvisvar i viku frá tsa- firði. Búskapur er orðinn heldur fyrirferðar- litill i Súðavikurhreppi. Einung- is fjórir bæir eru eftir i byggð en tveir bændur hættu búskap i haust. Afbrigða kalt var hér i vor og sumar eins og annars- staöar á landinu. Tún spruttu seint en menn náðu góðum og óhröktum heyjum þó að i minna lagi væru. Kartöfluuppskera var mjög léleg. Heimtur voru sæmi- lega góöar en lömb heldur með rýrara móti. Oe með ósk um betra árferöi á þessu nýbyrjaða ári enda ég svo þetta spjall, sagði Ingibjörg Björ nsdóttir. ib/mhg 5 ára áætlun Rarik: Raforkuframkvæmdir á Norðurlandi vestra í gær sagði Landpóstur frá þeim framkvæmdum, sem ráö- gerðar eru i raforkumálum á Vesturlandi samkvæmt fimm ára áætlun RARIK. Hér segir frá fyrirhuguðum fram- kvæmdum á Norðurlandi vestra. Árið 1980 þarf að halda á- fram byggingu aðveitustöðvar á Skagaströnd og ljúka henni árið eftir. Skipta þarf um vir á ltnunni Laxárvatn-Blönduós. Taka þarf sveitalinur inn i að- veitustöðina á Laxárvatni 1983. Vegna raforkuflutninga til Hvammstanga frá Hrútatungu þarf að setja upp 2-3 MVAr þéttahlöður á Hvammstanga 1984. Sama þarf að gera fyrir Hofsós 1984. Arið 1982 þarf að auka spennuafl á Sauðárkróki. Stærðþessa spennis veröur að miðast við fyrirhugaða stein- ullarverksmiðju. Timasetning þeirrar verksmiðju getur flýtt þessari framkvæmd. Tengja þarfMiöfjörö viðnýjanútgang i Hrútatungu 1982. Yfirlit Við tengingu aðveitustöðva á byggðalinum i Varmahlið og Hrútatungu er stofnlinukerfi Norðurlands vestra I tiltölu- lega góðu ástandi. Vestur- Gönguskarðsárvirkjun f Skagafirði. Húnavatns s ýs la með Jívammstanga og hluta dreifi- kerfis Orkubús Vestfjarða tengist þá Hrútutungu og Aust- ur-Húnavatnssýsla með Blönduós og Skagaströnd fær áfram rafmagn frá aðveitustöð Laxárvatns. Skagafirði með Sauðárkróki og Hofsósi verður einnig létt af Laxárvatni og við þetta batnar mjög spennuá- stand á sveitalinum i Skaga- firði. Upp úr 1990 kemur til greina að reisa byggðalinustöö við Laugarbakka i Miðfirði, fyrir Laugarbakka og Hvamms- tanga. Um svipað leyti veröur að styrkja flutning til Hofsóss. Það má gera t.d. meö byggingu 66 kV linu frá Varmahlið, sem siðar tengist við Skeiðsfoss- virkjunarsvæðiö og áfram i Ólafsfjörð. Kemst þá á hring- tenging milli Akureyrar og Varmahliðar gegnum Ólafs- fjörö á 66 kV spennu, með möguleikum á spennuhækkun i 132 kV. — mhg.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.