Þjóðviljinn - 08.09.1981, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 08.09.1981, Blaðsíða 7
Þriðjudagur 8. september 1981 þjöÐVILJINN — SÍÐA 7 Valtýr Pétursson við myndaröð sina um kaffibrúsann sem kennd er við Kristján Davlðsson, Þorvaldur Skúlason og Karl Kvaran undirbúa sýningu Septemhúpsins að Kiarvalsstöðum. fyrrum forseta Frakklands De Gaulle. Ljósm. gel. „Gömlu mennirnir”fara á kreik Septemhópurinn að Kjarvalsstöðum Fjölbreytt myndlist á Kjarvalsstöðum Septemhópurinn# sem i eru nokkir af elstu og reyndustu myndlistar- mönnum landsins, opnaði sýningu að Kjarvalsstöð- um sl. laugardag. Þetta er 8. sýningin sem hópurinn heldur í „þessari lotu" eins og Valtýr Pétursson komst að orði. Hér fyrr á árum sýndi hópurinn saman og vakti bæði aðdáun og hneykslun, en síðar varð hlé á, þar til fyrir 8 árum að „gömlu mennirnir" (reyndar er i hópnum ein kona, en eins og allir vita eru konur lika menn) tóku aftur upp þráðinn. Að þessu sinni eru um 80 verk á sýningunni og að öðrum ólöstuð- um hlýtur að vekja hvað mesta athygli að Sigurjón Olafsson myndhöggvari á hvorki meira né minna en 19 verk þarna i vestur- salnum. Annar Nestor islenskrar myndlistar Þorvaldur Skúlason lætur ekki sitt eftir liggja, en hann rær reyndar á fleiri mið þessa dagana, eins og listunn- endur vita. Valtýr komst svo að orði að liklega væri Þorvaldur að feta i fórspor Picassos sem á niræðisaldri sýndi á meira en hundrað stöðum i einu. Valtýr fylgdi blaðamanni um salinn, meðan aðrir þátttakendur sátu hinir rólegustu og sögöu Valtý formann hópsins. Við litum á verk þeirra sem áður eru nefndir og hinna, þeirra Guð- mundu . Andrésdóttur, Jóhann- esar Jóhannesonar, Karls Kvaran og Kristjáns Daviðs- sonar. Sá siðastnefndi hefur eins og Þorvaldur fleiri járn i eldinum niðri i miðbæ. Valtýr sagði aö megnið af myndunum væri til sölu, þar gæti að lita verk, sem flest væru með Hallsteinn Sigurðsson að Kjarvalsstöðum Höggmyndir M og inni Framan við Kjarvalssalinn hefur Hallsteinn Sigurðsson kom- ið fyrir 28 höggmyndum sem unn- ar eru i epoxy kvarts, steinsteypu og plötujárn. Þetta er 5. einka- sýning Hallsteins en hann stund- aði nám við Myndlista- og hand- iðaskólann, listaskóla i London auk þess sem hann hefur farið I námsferðir til italiu og Grikk- lands. Sýningin er bæði inni á gangin- um og úti á stéttinni. Gestir geta þvi gengið út og inn og horft á verkin frá öllum hliðum. Hall- steinn sagði það skemmtilega til- breytingu að geta sýnt verkin með húsið sem bakhjarl, þvi þeg- ar höggmyndir væru einhvers staðar úti á strætum eða túnum vildu þau gjarnan týnast i viöátt- unni. Sýningin stendur til 20. sept. og er opin á opnunartima hússins. —ká Höggmyndir Hallsteins Sigurðssonar eru bæði utan og innan dyra að Kjarvalsstöðum. Ljósm. gel abstrakt undirtónum, þó aö menn eins og hann sjálfur heföu verið að fikra sig i átt til hlutbundnari forma. Myndir Valtýs eru eins konar sería, stef um kaffibrúsa, sem hann kennir við De Gaulle. Það þarf ekki annað en aö lita á myndirnar til að sjá hvað við er átt. Það var ekki annað að sjá að Kjarvalsstöðum en aö Semptem- hópurinn væri hinn hressasti, enda sagði Valtýr að hann hefði aldrei verið „aktifari” svo gripið sé til útlenskunnar. Það verkar hvetjandi á listamennina aö sýna árlega og það eru engin smá af- köst sem getur aö lita á veggjun- um. Septemhópurinn er löngu viðurkenndur, abstraktið vekur ekki lengur deilur, nema hvað sumum finnst það heyra fortið- inni til. Svo er reyndar ekki að sjá þegar litiö er viö að Kjarvalsstöð- um, þar lifir það góöu lifi i lita- gleði og margs konar formum Septemhópsins. Sýningin stendur til 20. sept. — ká Asa ólafsdóttir vefori við eitt veggteppanna sem hún sýnir að Kjar- valsstöðum. Ljósm.: gel. Vefnaður á göngum Kjarvalsstaða jöklar, náttúra Konur, torf Ojí A göngum Kjarvalsstaða hanga nú veggteppi Asu ólafsdóttur 21 að tölu. Asa hefur ekki áður sýnt verk sin á einkasýningu hér á iandi, en undanfarin ár hefur hún verið búsett i Sviþjóð. Asa vefur teppin úr ull, hör, bómull og silki og hjá henni getur aö lita teppi sem búa yfir mikilli litadýrð svo og látlausum mynd- um meö mismunandi áferð. Jökl- ar, torfhleðslur, náttúran og kon- ur koma við sögu, en eins og oft- ast er sjón sögu rikari. Asa var að ganga frá teppunum er blaðamann og ljósmyndara bar að. Hún sagði að það væri mikiö verk að undirbúa svona sýningu, hún hefði þurft að mála hlerana sem eru baksvið tepp- anna og bera þá upp I ganginn, sem væri sko meiriháttar púl. Hún sagði að verkin á sýningunni hefðu verið i vinnslu á annað ár, en það gæti tekið allt að tvo mán- uði að vefa myndina eftir að skyssa lægi fyrir og garnið hefði veriö litað. Sýning Asu stendur fram til 20. september. —ká

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.