Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 16

Þjóðviljinn - 09.09.1981, Blaðsíða 16
DWÐMHNN Miövikudagur 9. september 1981 Einstæð sýning Vlnnustofa meistara Kjarvals Verk meistara Kjarvals vekja jafnan inikla athygli, og er þaö aö vonum, þvi sérkennilegur og mik- ill var bæöi maöurinn og list hans. Aö Kjarvalsstöðum getur nú aö lita hvorki meira né minna en vinnustofu Kjarvals, verkin sem hann málaöi á veggi vinnustofu sinnar viö Austurstræti, þegar þröngt var I búi og skortur á lérefti og litum. Vinnustofan stóö lengi auö, þar lak inn vatn og vindar smeygðu sér inn og lá viö aö myndirnar yröu ónýtar. Þar kom þó aö björgunarsveit var send á vettvang, myndirnar voru teknar af veggjunum, þe. striginn sem strengdur var á veggina var tekinn af og myndirnar sendar I hendur sérfræöinga I Kaupinhöfn. Þrir veggjanna eru til sýnis aö Kjarvalsstööum, en myndirnar sem voru undir súöinni eru ókomnar úr viögerö. Það er Guðmundur Axelsson eigandi Klausturhóla sem á myndirnar, en þær eru það miklar að umfangi að erfitt verður að koma þeim fyrir. begar blaðamann bar aö garði á Kjarvalsstöðum var augljóst að Þóra Kristjánsdóttir listráðu- nautur hússins renndi hýru auga til verkanna og er vonandi aö ráðamenn Eeykjavikurborgar geri það lika, þvi Kvar eiga verkin frekar heima en að Kjarvals- stöðum? Sýningin stendur til 20. septem- ber, en eftir að henni lýkur er óvist hvað um vinnustofuna verður. Þaðer sannarlega ástæða til að leggja leið sina að Kjarvals- stöðum þessa dagana, þar eru nú fjórar sýningar i gangi, bæði gamlir meistarar og ungir sýna þar verk sin. — ká. Aðalsimi Þjóöviljans er 81333 kl. 9-20 mánudag til föstudaga. Utan þess tima er hægt aö ná i blaöamenn og aöra starfsmenn blaösins i þessum simum: Ritstjórn 81382, 81482 og 81527, umbrot 81285, ljósmyndir 81257. Laugardaga kl. 9-12 og 17-19 er hægt að ná i afgreiöslu blaösins i sima 81663. Blaöaprent hefur slma 81348 og eru blaöamenn þar á vakt öll kvöld. Aðalsími 81333 Kvöldsúni 81348 Helgarsími afgreiðslu 81663 Vinnustofa Kjarvals. — Ljósm.: gel. Óhæft neysluvatn á Akranesi: Hrelnsitækm sett upp eftir áramót Vandinn bráðlega úr sögunni, segir tækiyrðu settupp Ivetur. Raunar var Engilbert staddur á bæjar- 1—, .,1 ^ • r ii j /• stjómarfundi, þegar blaðamaöur bngubert Guðmundsson, bæiartulltrui Þjóðviijansnáöitaiiafhonum.en ^ J þar var m.a. samþykkt aö taka þess ósoöins. Engilbert Guö- tilboöi I byggingu húss utanum mundsson, bæjarfulltrúi á Akra- hreinsitækin. nesi sagöi i gær aö vonandi sæi nú fyrir endann á þessu ófremdar- ástandi sem hefur rikt f marga áratugi, þar sem vatnshreinsi- Akurnesingar verða nú aö sjóöa allt neysluvatn sitten gerlameng- un, sem löngum hefur verið mikil I vatninu hefur nú náð þeim mörkum að Heilbrigðiseftirlit rikisins hefur varaö við neyslu Hilmar Ingólfsson, bæjarfulltrúi í Garðabæ: Bæjarstjómm er blekkbigarieik / 1 ,.Bæjarstjórinn hér f Garöabæ, Jón Gauti Jónsson, hefur siöustu dagana stööugt veriö meö yfirlýs- ingar i fjölmiölum um vega- og skipulagsmá! her i bænum, en þessar yfirlýsingar hafa veriö mjög villandi og ósannar og veröur þaö aö teljast furöulegt ábyrgöarleysi af opinberum em- bættismanni aö hegöa sér þannig” sagöi Hilmar Ingólfsson bæjarfulltrúi I Garöabæ i samtali viö Þ jóöviljann i gær. „Bæjarstjóri upplýsir i blaða- viötali aö gengið hafi veriö með undirskriftalista i nær öll hús I Garöabæ og 85—95% ibúa skrifað undir, eða samtals 1354 IbUar. Kjósendur I Garöabæ eru nú um 2750 og ná undirskriftirnar þvi ekki til helmings kjósenda. Þessi' prósentureikningur er þvi i sam- ræmi viö annað I málflutningi bæjarstjórans”. Hilmar sagði þær fullyrðingar bæjarstjórans rangar að enginn ágreiningur væri i bæjarstjórn um fyrirhugaðar framkvæmdir i vegamálum i bænum og um sé að ræða allt aörar framkvæmdir en þær sem hafnað var af bæjarbú- um 1978. „Meirihluti ibúa, er á móti hraöbraut i' gegnum bæinn og furðulegt að slikt geti farið fram hjá bæjarst jóra. Allt tal nú um að Hafnarfjaröarvegur sé tengi- braut er þvættingur einn. Það liggur alveg ljóst fyrir að umferð- in verður um alla framtið á þess- um vegi og allt tal bæjarst jórans um sjávarbraut er blekking ein. 1 aöalskipulagstillögum fyrir bæinn, sem ekki hafa verið af- greiddar enn á löglegan hátt, er sjávarbraut aðalumferðaræðin, en ekki Hafnarfjarðarvegur. Það eru engar framkvæmdir fyrir- hugaðar viö sjávarbraut. Allir geta því séð hvilikar blekkingar bæjarstjóri og meirihlutinn við- hafa i þessu máli. Hér er um póli- tiskan skri'paleik aö ræöa og mál- efnunum, hagsmunum Garöbæ- inga og þeirra sem þurfa um Garðabæ, fómað. Af þeim val- kostum sem eru i boði, er sá lak- asti tekinn”. — lg. Akurnesingarfá neysluvatn sitt úr hliðum Akrafjalls. Þetta er yfirborðsvatn sem hættir til að mengast einkum af saurgerlum sem svartbakurinn ber i hlið- arnar. Ekki munu önnur tök á vatnsöflun fyrir kaupstaðinn en Engilbert sagði aö hreinsitækin myndu vonandi leysa þennan vanda þannig aöhann yröiúr sög- unni. — Það er farið að framleiða tæki sem drepa allar bakteriur (gerla) i vatninu með geislun, sagöi Engilbert og bæjarstjórn Akraness hefur fest kaup á slíku tæki. S.l. vetur fóru nokkrir menn úr bæjarstjórn til Skandinavíu til að kynna sér ýmis mál, m.a. aö skoða ýmislegt I sambandi við koiabrennslu i Sementsverk- smiðjunni og voru hreinsitæki skoðuð i leiðinni. Með i för var fulltrúi frá Heilbrigöiseftirlitinu og hefur það mælt með þessum tækjum. Máliö ætti þvi að verða úr sögunni þegar tækin koma i notkun i vetur. Að lokum sagði Engilbert að- spurður aö kolabrennslumálið væri i algerri biðstööu, m.a. vegna þess að ekki hefði verið hreyft við þvi af viðkomandi að- iljum upp á síðkastiö. Kommúnista- samtökin um samvinnu við krata: Taktískt vandamál Afstaðan varðandi Alþýðuflokkinn ákvörðuð í tíma Jón Baldvin llannibalsson og Vitmundur Gylfason fóru báöir fram á óformlegar viðræður við Kommúnistasamtökin fyrir hönd Alþýðuflokksins. Þetta kemur fram I yfirlýsingu Kommúnista- samtakanna, sem send var fjöl- miölum I gær. Yfirlýsing hljóðar þannig frá orði til orðs: „Kommúnistasamtökin eru marx-leninisk og byltingarsinnuö samtök sem hafna sovéska kerf- inu sem sósialisma og lita á Al- þýðuflokkinn og Alþýðubandalag- ið sem borgaralega umbóta- flokka. Samtökin hafa ekki talið sér kleift að vinna innan islensku stjórnmálaflokkanna, bæði vegna stefnu þeirra og skipulags. 1 sumar báðu þeir Vilmundur Gylfason og Jón Baldvin Hanni- balssonum óformlegan fund með Ara Trausta Guðmundssyni, ein- um talsmanni Kommúnistasam- takanna. Þar lýstu þeir tillögum nefndar um breytingar á skipu- lagi Alþýðuflokksins og gáfu til kynna að þær gætu opnað komm- únistum leið til þess að starfa I flokksfélagi innan Alþýðuflokks- ins. Hér var hvorki um formlegt tilboð að raeða eða beiðni og fylgdu ekki fleiri fundir I kjölfar- ið. Ari Trausti Guðmundsson taldi hugmyndirnar umræðu veröar innan sinna samtaka og sagðist myndu taka málið upp viö fyrsta hentuga tækifæri. Skipulegar um- ræður Kommúnistasamtakanna eru ekki hafnar, og niðurstöður þvi engar til. Fyrr en þær eru ljósar er ekki tilefni til funda með einum eða öðrum úr Alþýðuflokki um inngöngu Kommúnistasam- takanna i flokkinn. Ekki er heldur ástæða til að gefa sér niðurstööur umræðna kommúnista fyrir- fram eöa állta viðræður um sam- einingu Kommúnistasamtakanna og Alþýðuflokksins hafnar. Fundir þeir með Kommúnista- samtökunum sem Jón Baldvin Hannibalssonnefndi i útvarpsvið- tali 5. sept. sl. voru tveir opnir umræðufundir haustið 1980. Var Jóni boðið þangað ásamt tals- mönnum annarra flokka og ein- staklingum. Að sjálfsögðu eru engin tengsl milli þessara funda og máls þess sem fjölmiölar gera sér nú mat úr, nema hvaö þar kom i ljós að Alþýðuflokkur og Kommúnistasamtökin eiga sér fáein sameiginleg stefnumiö, ekki siður en aðrir flokkar, t.d. Al- þýðubandalagið og Kommúnista- samtökin. Kommúnistasamtökin lita á samvinnu viö aðra flokka eða starf innan þeirra sem taktiskt vandamál og munu ákvarða af- stöðu slna varöandi Alþýöuflokk- inn I tima. 7. september 1981 Stjórn Kommúnistasamtakanna pr. Arnór Sighvatsson Ari Trausti Guðmundsson. Fóstureyðingum fækkaði í fyrra Fóstureyðingum fækkaði hér á landi á siðastliðnu ári miðað við árið 1979. Þessar upplýsingar koma fram Inýjasta hefti Hagtið- inda og þótti okkur Þjóðvilja- mönnum sæta nokkrum tlðindum. Svo sem kunnugt er hafa fóstur- eyðingar verið deilumál hér á landi sem annars staðar. Ar eftir ár hafa komið fram tillögur á AI- þingi um að þrengja löggjöfina um fóstureyðingar sem I gildi er og er frá árinu 1975. Staðreyndin er hfns vegar sú aö fóstureyö- ingar eru mun færri hér á landi, en á hinum Norðurlöndunum og sem áður segir fækkaði þeim I fyrra. Haukur ólafsson, sem sér um skráningu fóstureyðinga hját Landlæknisembættinu, sagöi að árið 1977 hefðu verið fram- kvæmdar 447 fóstureyöingar hér á landi, eöa 8,4 á hverjar 1000 konur. 1978 voru þær 453, einnig 8,4áhverjar lOOOkonur. Ariö 1979 voru þær 549 eða 10 á hverjar 1000 konur.en 1980513, eöa 9.2á hverj- ar 1000 konur. Hér eráttvið konur á aldrinum 15—44 ára. Skýringiná aukningunni 1979 er aö sögn Hauks sú, að það ár gekk hér faraldur rauðra hunda og voru 60 fóstureyðingar fram- kvæmdar þeirra vegna, en 30 áriö þar á undan. Arið 1980 var hins vegar engin fóstureyöing vegna þessa sjdkdóms og er það að mati Hauks skýringin á fækkuninni það áriö. Samsvarandi tölur fyrir Norðurlönd eru fyrir árið 1979: 19.1 fóstureyðing á hverjar 1000 konur I Danmörku, 13,1 i Finn- landi, 15,8 i Noregi og 18,3 i Sviþjóð. 1 Grænlandi var hlut- fallið hins vegar mun hærra eða 36.1 svipaö og I Skotlandi (?). Haukpr Ólafsson sagöi að svo virtist sem fóstureyðingar hér á landi væru I nokkru jafnvægi, svipaðtir fiöidi frá ári tQ árs.ká.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.